Fréttablaðið - 04.10.2011, Blaðsíða 43
ÞRIÐJUDAGUR 4. október 2011 31
Viltu miklu
hraðara Internet?
Á siminn.is sérðu
hvort Ljósnetið er
komið til þín.
Áskriftarleiðir Símans eru hraðar og öruggar. Netvarinn
fylgir með þeim öllum og möguleiki á Sjónvarpi Símans.
Hringdu núna í 800 7000 og veldu þína leið.
Internet hjá Símanum
Mánaðarverð
4.490 kr.
Mánaðarverð
5.490 kr.
Mánaðarverð
6.490 kr.
Leið 1
10GB
Leið 2
40GB
Leið 3
80GB
Leið 4
140GB
Mánaðarverð
7.690 kr.
112Mb • 10GB
212Mb • 40GB
312Mb • 80GB
416Mb • 140GB
Vinsælasta
leiðin
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
4
8
3
13
Netið er eins og rafmagnið,
ef það stoppar, stoppar allt
og allir verða pirraðir
FÓTBOLTI „Bjarni er samnings-
bundinn Stjörnunni og það er
gagnkvæmur vilji af beggja hálfu
að hann verði áfram. Það er því
nokkuð ljóst að hann verður áfram
þjálfari liðsins,“ segir Almar Guð-
mundsson, formaður knattspyrnu-
deildar Stjörnunnar. Stjarnan
kom af öllum liðum mest á óvart í
sumar og náði sínum besta árangri
í efstu deild.
„Það er svolítið önnur staða hjá
okkur núna. Við erum búnir að
festa okkur í sessi í efstu deild og
farnir að klóra i toppliðin. Auð-
vitað viljum við blanda okkur í
slaginn næsta sumar. Við erum að
fara yfir samningamál leikmanna
núna og svo munum við huga að
styrkingu,“ segir Almar en Daníel
Laxdal hefur þegar framlengt við
félagið og Stjarnan vonast til þess
að festa aðra lykilmenn til lengri
tíma.
Danirnir Jesper Jensen og
Nikolaj Pedersen verða líklega
báðir áfram hjá félaginu að sögn
Almars.
„Til þess að geta tekið næsta
skref þá þurfum við að styrkja
okkur. Það er alveg ljóst. Við
verðum engu að síður að vera
skynsamir í okkar aðgerðum. Ég
geri ráð fyrir að við munum reyna
fyrir okkur fyrst á markaðnum
hér heima áður en við skoðum
erlenda leikmenn,“ segir Almar,
en það verður líklega auðveld-
ara fyrir Stjörnuna að laða til sín
erlenda leikmenn núna.
Bæði er liðið búið að sanna sig
sem eitt besta lið landsins og svo
verður komið nýtt og betra gervi-
gras á völlinn. Grasið sem lagt var
á völlinn árið 2004 er úr sér gengið
fyrir nokkru en grasið sem spilað
verður á næsta sumar er allt annað
og betra. - hbg
Stjörnumenn ætla sér stærri hluti næsta sumar á nýju og betra gervigrasi:
Bjarni mun stýra Stjörnunni áfram
BJARNI JÓHANNSSON Er á stöðugri uppleið með Stjörnuna og verður áfram þjálfari
hjá félaginu. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
FÓTBOLTI Stjórn knattspyrnu-
deildar Breiðabliks mun setjast
niður með Ólafi Kristjánssyni í
dag og ræða framtíðina.
Ólafur skrifaði undir nýjan
samning við Blika fyrir tíma bilið
og einhugur er innan stjórnar
um að halda Ólafi sem þjálfara
liðsins.
„Ólafur hættir ekki að vera
besti þjálfari á Íslandi þó svo að
illa hafi gengið í sumar,“ sagði
Einar Kristján Jónsson, formaður
knattspyrnudeildar Breiðabliks.
„Þetta sumar var lærdómsríkt
fyrir okkur og við verðum að
læra af því.“ - hbg
Þjálfaramál Breiðabliks:
Blikar vilja
halda Ólafi
ÓLAFUR KRISTJÁNSSON Er samnings-
bundinn Blikum. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
FÓTBOLTI Gunnar Guðmundsson,
þjálfari U-17 landsliðs karla og
fyrrum þjálfari HK, er sam-
kvæmt heimildum Fréttablaðsins
einn þeirra þjálfara sem forráða-
menn Fylkis hafa augastað á.
Þórður Gíslason, formaður
meistaraflokksráðs félagsins,
vildi ekki staðfesta þetta í sam-
tali við Fréttablaðið og sagði að
margir þjálfarar kæmu til greina
í starfið. Páll Einarsson hefur
einnig verið orðaður við starfið.
Ólafur Þórðarson hefur þjálfað
Fylki undanfarin þrjú ár en
ákveðið var að semja ekki við
hann á ný. Hann er nú tekinn við
sem þjálfari Víkings, sem féll í 1.
deildina.
Gunnar stýrði liði HK frá 2004
til 2008 en þjálfaði þar áður lið
Leifturs/Dalvíkur og Leiknis á
Fáskrúðsfirði. Hann hefur undan-
farin ár stýrt U-17 liði karla. - esá
Fylki vantar þjálfara:
Hafa áhuga
á Gunnari
GUNNAR GUÐMUNDSSON Er undir
smásjá Fylkismanna. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON