Fréttablaðið - 04.10.2011, Page 46

Fréttablaðið - 04.10.2011, Page 46
4. október 2011 ÞRIÐJUDAGUR34 Nú situr Heinz Á TOPPNUM BESTI BITINN Í BÆNUM „Þetta gekk ágætlega, svona miðað við veður,“ segir Sara Nassim, framleiðandi hjá Pegasus. Fyrirtækið var bresku stúlknasveitinni The Saturdays innan handar um helgina þegar þær tóku upp myndband við nýjasta smell sinn, My Heart Takes Over, hér á landi. Breskir fjölmiðlar fylgja hverju fótmáli stelpn- anna og vefútgáfa Daily Mail birti myndir af þeim í Heathrow-flugstöðinni þar sem þær voru nýkomn- ar heim eftir heimsóknina til Íslands. Þar má meðal annars sjá eina af aðalstjörnum sveitarinnar, Frankie Sandford, með Epal-poka en við hlið hennar var kærastinn, Wayne Bridge, knattspyrnumaður hjá Manchester City. Að sögn Söru fóru tökur mestmegnis fram við Kleifar vatn og næsta umhverfi. „Þetta voru mjög erf- iðar aðstæður, þær voru stílíseraðar fram á fingur- gómana, klæddar í pils og háhælaða skó en stóðu sig eins og hetjur. Þær voru algjör hörkutól,“ segir Sara en The Saturdays gafst ekki mikill tími til að skoða sig um enda var unnið frá morgni til kvölds. „Þær höfðu engan tíma til að kíkja eitthvað út.“ The Saturdays er spáð miklum frama og í gær greindu breskir fjölmiðlar frá því að sveitin hefði samið við bandarísku sjónvarpsstöðina E! um gerð raunveruleikaþáttar og er talið að sá samningur eigi eftir að greiða götu sveitarinnar að Bandaríkja- markaði sem hefur reynst mörgum torsóttur. - fgg Á háum hælum við Kleifarvatn „Þetta er fyrst og fremst óþægi- legt. Ég veit ekki hvort það verða einhverj eftirmál af þessu,“ segir Ásmundur Jónsson, útgáfustjóri Smekkleysu. Óprúttnir aðilar brutust inn í pósthólfið hans á dögunum og sendu út falskan póst undir hans nafni þar sem óskað var eftir fjárframlögum. Ástæðan var sú að Ásmundur átti að hafa verið í ferðalagi í Madríd á Spáni og hafði tapað öllum farangrinum sínum, þar á meðal peningunum. „Þeir hjá Google tengja þetta við IP-lausa tölvu í Nígeríu,“ segir Ásmundur, sem hafði einnig samband við lög- regluna vegna málsins. Þetta er í fyrsta sinn sem hann fær heimsókn sem þessa inn í pósthólfið sitt og óskar engum að lenda í slíku. „Maður hefur fengið vírusa. Ég hef verið með „makka“ sem hafa verið lausir við þetta en þá fékk ég þessa því- líku heimsókn. Ég sendi Google póst og þar kom þessi „melding“ til baka um að líklega hafi verið ráðist inn í hólfið.“ Aðspurður segist Ásmundur sem betur fer ekki vita til þess að nokkur hafi látið glepjast af póstinum sem var sendur í hans nafni. „Þetta er raunveruleiki heimsins. Það er fullt af lögbrotum í gangi, eins og við þekkjum vel úr tónlistar- bransanum. Það er lykilatriði í mínum huga að löggjafinn virðist því miður hafa átt erf- itt með að eiga við brot í net- heimum. Það er mjög knýj- andi verkefni í framtíðinni að leysa þau mál.“ - fb HÖRKUTÓL Stúlkurnar í The Saturdays sýndu af sér mikla hörku þegar þær klæddust litlum pilsum og háhæluðum skóm við Kleifarvatn um helgina þegar haustlægðir börðu á höfuð- borgarsvæðinu. NORDICPHOTOS/GETTY ÓÞÆGILEGT Ásmundur Jónsson segir það hafa verið óþægilegt þegar brotist var inn í póst- hólfið hans. „Ég hef nú sagt það við menn á förnum vegi að nú hafi ég aðeins opið tvo daga á ári; þegar KR verð- ur bikarmeistari og svo Íslands- meistari,“ segir Hafsteinn Egils- son, vert á Rauða ljóninu. Gleðin draup af hverju strái í Vesturbænum á laugardagskvöld- ið þegar KR-ingar fögnuðu glæsi- legu gengi í sumar. Liðið varð bæði Íslands- og bikarmeistari og því ljóst að stuðningsmennirnir, sem eru meðal þeirra kröfuhörðustu í íslenska boltanum, fengu nánast allar sínar óskir uppfylltar. Hátt í tvö þúsund manns máluðu Eiðistorgið í svörtum og hvítum litum á laugardagskvöldinu, tekið var á móti liðinu með 25 blysum og allur skarinn söng í einum kór: „Fimm stjörnu klúbbur“, en KR-ing- ar urðu Íslandsmeistarar í 25. sinn og hafa því uppskorið fimm stjörnur á búning sinn. „Það voru allir rosa- lega kátir og ekkert vesen, engin slagsmál eða nein leiðindi,“ segir Hafsteinn, sem hefur notið góðs af því að vera hæstráðandi á aðalkrá KR-inga í sumar eftir nokkra eyði- merkurgöngu. Slík var gleðin að allt „bland“ kláraðist á barnum og þurfti vertinn því að fara nokkrar ferðir í Hagkaup til að kaupa meira af slíkum drykkjum. „Ég reikn- aði ekki með öllum þessum orku- drykkjum, unga liðið drakk hann út í vodka,“ segir Hafsteinn, en eldra liðið hélt sig á kunnug legum slóðum og sötraði gin og tónik. Slíkur var atgangurinn við bar- inn að nokkrir leikmenn tóku sér stöðu hinum megin víglínunnar en fremstir þar í flokki voru varnar- tröllið Grétar Sigfinnur Sigurðs- son og miðjumaðurinn Viktor Bjarki Arnarsson. „Þetta var bara eitthvað sem vatt upp á sig,“ segir Grétar, en hann afgreiddi drykki af mikilli list í klukkutíma. „Það var svo mikið að gera og mig vantaði afgreiðslu þannig að ég hjálpaði mér bara sjálfur, sem endaði með GRÉTAR SIGFINNUR: SIGURGLEÐI KR-INGA FER Í FRAMLENGINGU Leikmenn KR í hlutverki barþjóna á sigurhátíðinni 2.000 MANNS Mikil gleði ríkti á Eiðistorgi á laugardags- kvöldið þegar KR-ingar fögnuðu bæði bikar- og Íslandsmeistaratitli og hátt í tvö þúsund manns sungu sigursöngva. Slíkur var fögnuður- inn að Hafsteinn Egilsson, vertinn á Rauða ljóninu, fékk óvænta aðstoð á barnum þegar Grétar Sigfinnur Sigurðsson og Viktor Bjarki Arnarsson hlupu undir bagga og aðstoðuðu við afgreiðslu. Ási í Smekkleysu í klóm Nígeríusvindlara klukkutíma vinnu.“ Varnartröllið gerir þó lítið úr hæfileikum sínum sem barþjónn og telur að liðsfélagi sinn Viktor Bjarki myndi sóma sér betur í því hlutverki. Grétar segir það af og frá að fögnuðinum sé lokið. Í gær, þegar Fréttablaðið ræddi við hann, sagði hann að nú væri aðeins „þriðji í meistara“ og menn ætluðu sér að njóta sigurvímunnar. „Við ætlum að fara á októberhátíðina á KEX í kvöld og annað kvöld til að sýna Pétri Marteins bikarinn og horfa svo á Ásgeir Sigurvinsson drekka fyrsta bjórinn. Menn fagna síðan eitthvað út þessa viku.“ freyrgigja@frettabladid.is „Það er Happ fyrir hádegisverð- inn og Pisa fyrir kvöldverðinn.“ Ísold Uggadóttir kvikmyndagerðarkona.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.