Fréttablaðið - 07.10.2011, Page 24
7. október 2011 FÖSTUDAGUR
Minnisvarði um útilegufólkið Fjalla-Eyvind og Höllu verð-
ur afhjúpaður á morgun í formi veitingastaðar sem ber
nafnið Eyvindarstofa.
„Þar sem hvorki þykir sannað að þér hafið feitum sauð-
um stolið, né étið skjóttan reiðhest Einars bónda Brynj-
ólfssonar á Barkarstöðum, hefur þér verið veitt lausn
undan öllum sökum.“ Þannig hefst heimboð í formi lausn-
arbréfs frá Birni Þór Kristjánssyni og Söndru Kaubriene,
frumlegum vertum Eyvindarstofu á Blönduósi sem verður
opnuð á morgun klukkan 14.
Eyvindarstofa er nýr veitingastaður á efri hæð Potts-
ins við Norðurlandsveg 4. Þar er og eftirlíking hellis með
ýmsum hlutum sem tengjast lífi útilegufólks og sögunni
af Eyvindi og Höllu eru gerð skil með textaspjöldum og
myndefni. Stemningunni er einnig miðlað með hljóðum
sem minna á hálendið, hverina og snarkið í eldinum.
Upplifunin af lífi þekktasta útilegupars sögunnar er
síðan fullkomnuð með sérstökum mat sem borinn er
fram á diskum og skálum sem minna á handverk Fjalla-
Eyvindar er var hagleiksmaður. Á matseðlinum er létt-
saltaður lambaskanki, silungur kemur við sögu í súpunni
og eftirréttur er rúgbrauðskaka með rjómaís og rabar-
baragraut. Fleira er í boði fyrir þá sem ekki girnast svo
þjóðlegt fæði.
gun@frettabladid.is
Fjalla-Eyvindi og
Höllu til heiðurs
Í EYVINDARSTOFU Veggir, gólf og innanstokksmunir eru í þjóðlegum
stíl.
Næstu fjóra mánudaga boðar Borgarbókasafn til opinna
funda um frumvarp til stjórnskipunarlaga. Þar munu full-
trúar úr stjórnlagaráði og stjórnlaganefnd kynna frum-
varp til stjórnskipunarlaga, en frumvarpið var afhent
Ástu Ragnheiði Jóhannesdóttur, forseta Alþingis, 29. júlí.
Fyrsti fundur verður mánudaginn 10. október með
almennri kynningu á stjórnlagaráði og frumvarpinu.
Annar fundur verður viku síðar um Nefnd A: Grunn-
gildi, ríkisborgararétt og þjóðtungu, uppbyggingu
og kaflaskipan stjórnarskrárinnar, náttúruauðlindir,
umhverfismál og mannréttindi.
Hinn 24. október verður fundarefni Nefnd B: Undir-
stöður íslenskrar stjórnskipunar, hlutverk og staða forseta
Íslands, hlutverk og störf Alþingis, ríkisstjórn, störf for-
seta og ráðherra, verkefni framkvæmdarvaldsins og staða
sveitarfélaga.
Síðasti opni fundurinn verður mánudaginn 31. október
um Nefnd C: Stjórnlagaráð, lýðræðislega þátttöku almenn-
ings (þar á meðal stjórnarskrárbreytingar), sjálfstæði
dómstóla og eftirlit þeirra með öðrum handhöfum ríkis-
valds, alþingiskosningar, kjördæmaskipan og alþingis-
menn, samninga við önnur ríki og utanríkismál.
Öllum er velkomið að sækja fundina sem haldnir verða
í Borgarbókasafni, Tryggvagötu 15 og hefjast klukkan
17.15.
Nánari upplýsingar á www.borgarbokasafn.is og www.
facebook.com/BorgarbokasafnReykjavikur.
Ný stjórnarskrá?
ALÞINGI Borgarbókasafn efnir til funda um frumvarp til stjórnskipunar-
laga sem afhent var forseta Alþingis í sumar.
Alþjóðlegur dagur líknar er á morg-
un, 8. október. Því er sjónum beint að
Lífinu, sem eru íslensk samtök um
líknar meðferð, skipuð fagfólki úr heil-
brigðisgeiranum og kirkjunni. Arndís
Jónsdóttir, sérfræðingur í hjúkrun, er
í stjórn þeirra.
„Þeim aðferðum sem falla undir
líknarhugtakið er ætlað að bæta líðan
sjúklings sem greinst hefur með lífs-
hættulegan sjúkdóm þannig að hann
geti lifað með reisn þann tíma sem
hann er veikur,“ segir hún og heldur
áfram. „Einnig að veita fjölskyldu hans
stuðning. Þetta á við hvort sem sjúk-
dómurinn er læknanlegur eða ekki.“
Arndís segir samtökin Lífið halda
námskeið af og til og hafa gefið út
bækling um undirbúning andláts ást-
vinar. „Í upphafi var fókusinn aðallega
á líknandi meðferð við lífslok,“ segir
Arndís. „Síðan hefur starfið þróast í
margvíslega aðstoð við þá sem eiga í
erfiðleikum vegna sjúkdóma svo þeir
fái notið eins mikilla lífsgæða og kost-
ur er. Þar er það þörf sjúklingsins sem
vísar veginn.“ - gun
Að lifa með reisn er réttur fólks
ERFIÐLEIKAR Líknarmeðferð getur átt við snemma á veikindatímabilinu samhliða læknandi meðferð. MYND/NORDIC PHOTO/GETTYIMAGES
Elskulegur eiginmaður minn,
faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
Valgeir Sigurðsson
vélvirki,
Kirkjuvegi 1, Keflavík,
lést sunnudaginn 2. október á Heilbrigðisstofnun
Suðurnesja. Útförin fer fram þriðjudaginn 11. október
frá Keflavíkurkirkju kl. 13.00.
Guðmunda Magnea Friðriksdóttir
Laila Jensen Valgeirsdóttir Sigurður Halldórsson
Sigurður Valgeirsson Bjarney Gunnarsdóttir
Óli Þór Valgeirsson Elín Guðjónsdóttir
Áslaug Valgeirsdóttir
Williams Robert D. Williams
Friðrik Már Valgeirsson Ingigerður Guðmundsdóttir
Gunnar Valgeir Valgeirsson Cristina Bodinger de Uriarte
Herborg Valgeirsdóttir Guðjón Guðmundsson
Guðrún Valgeirsdóttir
afa- og langafabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Margrét Björnsdóttir
Blöndal
frá Siglufirði,
andaðist að morgni 28. september á St. Franciskus-
spítalanum í Stykkishólmi. Jarðarförin fer fram frá
Grafarvogskirkju föstudaginn 7. október kl. 13.00.
Ólöf Birna Blöndal Sveinn Þórarinsson
Jósep Ó. Blöndal Erla Harðardóttir
Ásbjörn Ó. Blöndal Jóhanna Guðmundsdóttir
Sigurður Ó. Blöndal Linda Björk Guðmundsdóttir
Guðrún Ó. Blöndal Friðrik Jón Arngrímsson
ömmubörn og langömmubörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Björg Halldórsdóttir
Stóru-Breiðuvík, Eskifirði,
sem lést 30. september, verður jarðsungin frá
Eskifjarðarkirkju laugardaginn 8. október kl. 14.00.
Halldór Árni Jóhannsson
Jón Sigmar Jóhannsson Róshildur Stígsdóttir
Sigurgeir Jóhannsson Ólöf María Sigurðardóttir
barnabörn og barnabarnabarn.
Elskulegur bróðir minn og frændi,
Kristján Sturlaugsson
tryggingastærðfræðingur
frá Múla í Ísafjarðardjúpi,
löngum til heimilis að Bogahlíð 14,
Reykjavík,
lést á Hrafnistu miðvikudaginn 5. október.
Gerður Sturlaugsdóttir
og fjölskylda.
Innilegar þakkir sendum við öllum
sem sýndu okkur hlýhug og samúð við
andlát og útför ástkærrar eiginkonu
minnar, móður, ömmu og langömmu,
Guðfinnu Betsýjar
Hannesdóttur
Háaleitisbraut 41, Reykjavík.
Sérstaklega viljum við þakka starfsfólki Heima -
hlynn ingar LSH og líknardeildar LSH í Kópavogi.
Fyrir hönd aðstandenda,
Jens Chr. Sörensen
Kolbrún Svala Hjaltadóttir Oddur Sigurðsson
Kristbjörg Stella Hjaltadóttir Sigurður Ingi Jónsson
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 512 5000.