Fréttablaðið - 22.11.2011, Blaðsíða 18
22. nóvember 2011 ÞRIÐJUDAGUR18
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Þorgerður Magnúsdóttir
Vallargötu 19, Sandgerði,
lést á Hjúkrunarheimilinu Hlévangi laugardaginn
19. nóvember. Útförin fer fram frá Útskálakirkju
föstudaginn 25. nóvember kl. 14.00.
Magnús Ó. Ingvarsson Ingibjörg Ágústa Guðnadóttir
Einar V. Ingvarsson
Ævar Örn Einarsson
Agnar Þór Magnússon Sigrún J. Ólafsdóttir
Þorgerður Magnúsdóttir
og barnabarnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir
okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
Jónas Finnbogason
íslenskufræðingur,
Miklubraut 52,
lést á Landspítalanum í Fossvogi mánudaginn
14. nóvember. Útför hans fer fram frá Dómkirkjunni
í Reykjavík miðvikudaginn 23. nóvember kl. 13.
Kristín Arnalds
Einar Arnalds Jónasson Maria Louise Wind
Ari Jónasson Hildur Jónsdóttir
Elín Lilja Jónasdóttir Egill Pálsson
barnabörn og barnabarnabarn.
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á
auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
timamot@frettabladid.is
„Jólatré í sínu heillandi látleysi er feg-
ursta jólaskrautið og þótt lítill aur sé
í buddunni til að skreyta híbýlin hátt
og lágt er jólatré eitt og sér ómissandi
yfir hátíðarnar og ætti að vera öllum
börnum falt til sannrar jólagleði,“
segja hönnuðirnir Hafdís Heiðars-
dóttir og Vilborg Aldís Ragnarsdóttir,
en í dag hefja þær kynningarátakið
Pakki á pakka annað árið í röð, og nú
til styrktar Fjölskylduhjálp Íslands.
„Við stofnuðum fyrirtæki okkar
Arca Design í upphafi kreppunnar,
þegar okkur sjálfar vantaði vinnu.
Viðtökurnar urðu strax svo góðar að
við vildum leyfa sem flestum að njóta
með okkur og láta þannig gott af okkur
leiða þegar leið að jólum í fyrra,“
útskýrir Hafdís um áhrif hins sanna
jólaanda sem greip þær stöllur þegar
þær hrundu af stað átakinu Pakki á
pakka til styrktar Mæðrastyrksnefnd
í jólamánuðinum í fyrra.
„Pakki á pakka er órói úr plexigleri,
sérmerktur jólum hvers árs og mis-
munandi á milli ára. Fyrir jólin nú
varð íslenska jólatréð fyrir valinu í
mynstri og kostar stykkið 500 krón-
ur, sem er sama verð og í fyrra,“ segir
Vilborg um óróann sem hefur snert
streng í hjörtum gjafmildra Íslend-
inga og hlaut strax verðskuldaðar
viðtökur.
Óróinn er ýmist notaður til skreyt-
ingar á jólapakka eða á jólatré.
„Við ákváðum að sala á jólaóróanum
nú rynni óskipt til Fjölskylduhjálpar
Íslands, eftir að hafa setið fund með
Ásgerði Jónu Flosadóttur formanni
hennar. Ásgerður afhenti okkur
skýrslu Völu Jónsdóttur, verkefna-
stjóra Félagsvísindadeildar Háskóla
Íslands, með sláandi niðurstöðum um
hversu margir þurfa í raun og veru á
hjálp að halda og hversu mikilvægt er
að sem flestir rétti hjálparhönd,“ segir
Vilborg sem ásamt Hafdísi hefur átak-
ið í húsnæði Fjölskylduhjálpar Íslands
í dag.
„Viðtökurnar nú eru strax mjög
góðar og mörg fyrirtæki sem hafa
þegar pantað óróann til jólagjafa og
styrkja með því þarft málefni. Óró-
inn er einnig fallegur söfnunargrip-
ur og margir sem keyptu óróa í fyrra
sem koma aftur nú til að bæta við í
safnið eða setja aftur á jólapakkana.
Pakki á pakka er enda lítil og sæt gjöf
með kærleikshugsun að baki og fólki
þykir góð tilhugsun að vita til þess
að ágóði sölunnar renni óskiptur til
málefnisins,“ segir Hafdís.
Jólaóróann vinna þær Hafdís og
Vilborg í félagi við samstarfsaðila
sinn Lógóflex sem leggur til efni og
útskurð á Pakka á pakka. Óróinn fæst
í Arca Studio í Grímsbæ. Sjá heima-
síðuna arca.is og Facebook-síðu, undir
Arca Studio. thordis@frettabladid.is
PAKKI Á PAKKA HEFST Í DAG: TIL STYRKTAR FJÖLSKYLDUHJÁLP ÍSLANDS Í ÁR
Jólatré handa öllum börnum
GÓÐUR MÁLSTAÐUR Vilborg Aldís Ragnarsdóttir og Hafdís Heiðarsdóttir hefja í dag kynningarátakið Pakki á pakka til styrktar Fjölskylduhjálp
Íslands. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
JOHN F. KENNEDY forseti Bandaríkjanna lést þennan dag (1917-1963).
„Það stoppar enginn þann sem er nógu brjálaður að vilja drepa forseta Bandaríkjanna, en á
móti verður sá sami að vera tilbúinn til að gefa sitt líf í skiptum fyrir líf forsetans.“
Jóhann Karl I varð núverandi Spánarkonungur eftir
að einræðisherrann Francisco Franco féll frá. Hann
er sonur Don Juan de Borbón, sonar Alfonsós XIII
Spánarkonungs, og Maríu Mercedes af Bourbon-
Orleans.
Tveimur dögum eftir dauða Francos, 20. nóvem-
ber 1975, var Jóhann Karl útnefndur konungur
samkvæmt lögum um erfðaröð. Spánn hafði ekki
haft konung í 38 ár þegar Franco útnefndi hann
sem næsta ráðamann þjóðarinnar 1969. Spænska
stjórnarskráin staðfesti Jóhann Karl sem konung
1978 og þar segir að hlutverk konungs sé að vera
ímynd þjóðarinnar, tákn um samheldni hennar og
stöðugleika og auk þess æðsti yfirmaður spænska
heraflans.
Jóhann Karl stjórnaði farsællega umbreytingu
Spánar frá einræði til þingræðislegs lýðræðis.
Hann kvæntist Soffíu prinsessu af Grikklandi og
Danmörku 1962. Þau eiga saman tvær dætur og
son og átta barnabörn. Fjölskyldan nýtur vinsælda
meðal Spánverja og var Jóhann Karl kjörinn vin-
sælasti þjóðhöfðingi Íberíu-Ameríku-þjóða 2008.
ÞETTA GERÐIST: 22. NÓVEMBER 1975
Jóhann Karl I útnefndur konungur
MERKISATBURÐIR
1907 Giftar konur í Reykjavík fá kosningarétt og kjörgengi til
sveitarstjórna og nýta sér hann nokkrum mánuðum
seinna.
1907 Vegalög staðfest. Þá var ákveðið að hér á landi skyldi vera
vinstri umferð. Það var einkum gert vegna ríðandi kven-
fólks sem notaði söðla og sat með báða fætur á vinstri
síðu hestsins.
1963 John F. Kennedy, forseti Bandaríkjanna, er myrtur í Dallas í
Texas.
1979 Börn sjá um meginhluta dagskrár Ríkisútvarpsins í tilefni
af ári barnsins.
1986 Fyrsti lottómiðinn keyptur í Reykjavík af Steingrími Her-
mannssyni, þáverandi forsætisráðherra.
1995 Kvikmyndin Leikfangasaga er fyrst mynda í fullri lengd
sem notast eingöngu við tölvugerðar sögupersónur.
2005 Angela Merkel kjörin fyrsti kvenkyns kanslari Þýskalands.
AFMÆLI
ÞÓRUNN SVEINBJARNARDÓTTIR
alþingismaður er 46 ára.
EDDA ARNLJÓTSDÓTTIR leikkona
er 47 ára.
INGVAR E. SIGURÐSSON leikari
er 48 ára.
HÖRÐUR ÁSKELSSON tónlistar-
maður er 58 ára.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Eðvaldína Magney
Kristjánsdóttir
frá Glerárskógum, Dvergabakka 4,
sem lést á Hrafnistu í Reykjavík þriðjudaginn
15. nóvember síðastliðinn, verður jarðsungin frá
Hvammskirkju í Dalabyggð laugardaginn 26. nóvember
kl. 14.00.
Rútuferð verður frá Umferðarmiðstöðinni kl. 10.00.
Sætapantanir í s. 862-0546.
Viðar G. Waage
Björk Magnúsdóttir Steinar T. Karlsson
Bjarnheiður Magnúsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.