Fréttablaðið - 22.11.2011, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 22.11.2011, Blaðsíða 16
16 22. nóvember 2011 ÞRIÐJUDAGUR í vali á Bíl ársins 2012 Brimborg og Volvo áskilja sér rétt til að breyta verði og búnaði án fyrirvara. Útbúnaður og gerð bílanna getur verið frábrugðin myndunum í auglýsingunni. Nánari upplýsingar veita ráðgjafar Volvo á Íslandi. Á síðustu árum hafa ekki verið nýttar um 1.200 milljónir króna til tannlækninga, fjármun- ir sem alþingismenn hafa ákveðið að skuli nýttir til að greiða niður tannlæknaþjónustu í landinu. Í stað þess hefur viðmiðunargjald- skrá ráðherra staðið óbreytt í nán- ast áratug og því ekki farið að vilja alþingismanna. Kemur í ljós þegar skoðaðar eru opinberar tölur að útgjöld ríkisins til tannlækninga hafa aðeins hækkað um 2% á 19 ára tímabili, frá árinu 1991 til ársins 2010. Á meðan hefur verðlag hækk- að um 134%. Um þetta er ekki deilt. Nú stígur velferðarráðherra fram og ætlar að skera niður fjár- veitingu í stað þess að hækka ein- faldlega ráðherragjaldskrána og þannig nýta þessa fjármuni barna- fjölskyldum til hagsbóta. Nei, það er víst ekki hægt vegna þess að samningar nást ekki við tannlækna og því komin allt í einu fullkomin afsökun fyrir því að hafa ekki nýtt lögbundið fé í mörg undanfarin ár. Tannlæknar eru ekki að fara fram á launahækkanir í þessu samhengi því gjaldskrá þeirra er frjáls og keppa þeir sín á milli í verði og þjónustu. Því er alveg frá- leitt að koma stjórnvaldsákvörð- un um skerðingu fjármuna yfir á tannlækna. Hvort heldur ráðherra ákveði að hækka endurgreiðslu- skrána um 50%, 70% eða 100%, hefði það ekki áhrif á laun tann- læknisins. Það myndi einfaldlega auka niðurgreiðslu tannlækna- reikninga t.d. barna sem þessu næmi. Tannlæknir hefur eina gildandi gjaldskrá fyrir alla sína viðskipta- vini og á t.d. niðurgreiðsla ríkisins fyrir tryggða sjúklinga ekki að hafa áhrif á verðlagningu tannlækn- is á tannlæknisverkum sem hann vinnur á ótryggðum viðskipta- vini. Kannanir hafa raunar sýnt að hækkun raunútgjalda heimilanna var minnst í tannlæknisþjónust- unni af allri heilbrigðisþjónustu á landinu sem heimilin sækja. Ef ráðherra vill semja um fasta verðskrá fyrir tannlæknisverk er nauðsynlegt að sú verðskrá endur- spegli raunkostnað þjónustunnar og er 70% hækkun ráðherragjald- skrár, eins og ráðherra býður, alls ekki nægjanleg að mati tannlækna til að reka tannlæknastofu. Raunar hafa tannlæknar margsinnis boðið yfirvöldum að óháður aðili fari yfir kostnað við rekstur tannlæknastofu en því hefur alltaf verið hafnað af hálfu yfirvalda. Ef samkomulag næðist um fasta gjaldskrá yrði að vísitölutengja a.m.k. kostnaðarhluta rekstursins, en hann er um tveir þriðju hlutar innkomu tannlæknastofu. Þriðji hluti er launahluti tannlæknis. Ef kostnaðarhluti fylgir ekki verð- lagi er ljóst að laun tannlæknisins myndu lækka sem því nemur og gæti tannlæknirinn því ekki fylgt launavísitölu á Íslandi. Það vill hins vegar þannig til að á Íslandi er töluvert um tannskemmdir, líklega vegna óheyrilegrar sykurneyslu og vegna þess að forvarnir eru ekki í fyrirrúmi. Því hafa verkefni verið mikil fyrir tannlækna undanfar- in ár og þeir því unnið mjög langa vinnudaga og tekið stutt neysluhlé. Reyndar er það svo að tannlæknar mega ekki hafa samræmda gjald- skrá skv. samkeppnislögum og þyrfti að skera úr um það með ótvíræðum hætti hvort samræmd gjaldskrá væri brot á þessum lögum. Tannlæknar hafa reglulega bent á ósamræmi í heilbrigðis- þjónustunni og hversu lævíslega heilbrigðisyfirvöld hafa dregið úr útgjöldum til tannlækninga miðað við aðra heilbrigðisþjónustu. Svo langt hefur þetta gengið undan- farin ár að málið þolir orðið enga skoðun og hefur tannlæknum fund- ist heilbrigðisyfirvöld og embættis- menn einbeita sér að því að skjóta sendiboðann frekar en að ræða raunverulegar lausnir og sýna í verki vilja til að snúa við þessari óheillaþróun. En tannheilsa er hins vegar á ábyrgð einstaklingsins og bera for- eldrar ábyrgð á tannheilsu barna sinna og neysluvenjum. Ekki er hægt að líta á það sem sjálfgefinn hlut að skattpeningum sé varið í sjúkdóma sem eru algerlega fyrir- byggjanlegir eins og tannskemmdir svo sannarlega eru. Því þurfa heil- brigðisyfirvöld að hafa þá framtíð- arsýn að tryggja þegnum landsins góða tannheilsu, sem myndi spara gífurlegar fjárhæðir til lengri tíma litið. Tannlæknafélagið lauk á síð- asta ári við stefnumótun um bætta tannheilsu barna og unglinga og hefur þessi vinna verið kynnt yfir- völdum. Þar eru góðar tillögur um hvernig hægt væri að bæta tann- heilsu íslenskra barna ásamt for- gangsröðun í áhættuhópa þannig að fjármunir nýtist sem best. Hægt er að nálgast skýrsluna á heimasíðu Tannlæknafélagsins, www.tannsi.is Hvort heldur ráðherra ákveði að hækka endurgreiðsluskrána um 50%, 70% eða 100% hefði það ekki áhrif á laun tannlæknisins. Viltu nota milljarð? Heilbrigðismál Sigurður Benediktsson formaður TFÍ

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.