Fréttablaðið - 22.11.2011, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 22.11.2011, Blaðsíða 14
14 22. nóvember 2011 ÞRIÐJUDAGUR FRÁ DEGI TIL DAGS greinar@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is og Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Sigurður Elvar Þórólfsson seth@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 20% afslátturaf Biomega vítamínum HALLDÓR Þórður Snær Júlíusson thordur@frettabladid.is SKOÐUN F réttablaðið hefur á undanförnum vikum greint ítarlega frá áhrifum íslensku bankanna á innlenda samkeppnis- markaði með eignarhaldi þeirra á fyrirtækjum. Sam- kvæmt úttekt Fjármálaeftirlitsins (FME) voru fyrir- tækin sem þeir eiga í 132 talsins í byrjun nóvember. Bankarnir hafa brugðist ókvæða við þessari talningu og birtu í kjölfarið upplýsingar um eðli þessara fyrirtækja. Með hafa fylgt skýringar um að flest fyrirtækjanna séu annaðhvort í minni- hlutaeigu bankanna, geymd í dótturfélögum eða séu ekki í sam- keppni við önnur fyrirtæki á neytendamarkaði. Þess vegna sé skakkt að setja eignarhaldið fram með þeim hætti sem FME gerði. Þessar skýringar halda ekki að öllu leyti. Ef hófsamlega er talið er ekki hægt að sjá betur en að stóru viðskiptabankarnir þrír eigi samanlagt, beinan eða óbeinan, hlut í á fjórða tug rekstrarfélaga sem keppa á samkeppnismarkaði. Þeir eiga þau ekki öll að fullu leyti, eru meira að segja ekki meirihlutaeigendur flestra þeirra, en eiga samt í þeim. Skilgreint hlutverk banka er að hámarka arðsemi eigna sinna. Hvort sem eignarhluturinn er 1% eða 100% hafa bankarnir því alltaf eigendahagsmuni af framgangi fyrir- tækjanna. En bankar eru líka stærstu þjónustuaðilar nánast alls atvinnu- lífsins. Þeir ráða yfir fjármögnun þess. Það ríkir samkeppni milli fyrirtækja um að fá lánað sem mest fé og á sem bestum kjörum. Þegar bankarnir eru farnir að eiga fyrirtækin líka skapast hætta á að það eignarhald liti þjónustuhlutverkið. Sérstaklega þegar sömu bankar hafa fjármögnun keppinauta í höndum sér. Vegna þessarar stöðu eru lög í gildi sem segja að bankar megi ekki eiga fyrirtæki í óskyldum rekstri. Sumarið 2010 var 12 mánaða tímaramma bætt við lögin. Frá 25. júní síðastliðnum hafa bankar þurft að sækja um undanþágur frá þessum lögum ef þeir hafa haldið á eignarhlut í fyrirtæki í meira en eitt ár. 74 undanþágubeiðnir hafa borist til FME. Þær hafa allar verið sam- þykktar. Lengsti fresturinn er fram til 1. apríl 2012 en í flestum tilfellum hafa bankarnir frest fram að áramótum til að losa sig við eignarhlutina. Eða sækja um enn lengri frest. Aðstæður á Íslandi eru fordæmalausar. Hægt er að sýna því vissan skilning að það taki tíma að endurskipuleggja atvinnulíf heils lands. En þegar efnahags- og viðskiptaráðherra, sem fer líka með málefni FME, lagði fram ofangreinda breytingartillögu á lögum um fjármálafyrirtæki þá hlýtur það að hafa verið skýr vilji hans að lögin yrðu virt eins og þau standa. Annars hefði tímaramminn verið lengri. Undanþágur eiga að vera undanþágur, ekki regla. Því skýtur skökku við þegar meirihluti fyrirtækja í eigu bankanna er undanþeginn reglunni. Sú staða sem er uppi skapar tortryggni í garð bankanna. Tor- tryggni sem þeir hafa illa efni á. Í síðustu birtu könnun MMR um traust til bankakerfisins kom fram að einungis 5,9% aðspurðra báru mikið traust til þess. Rúmlega 75% treystu því lítið. Þetta traust mun ekki aukast af sjálfu sér. Bankarnir þurfa að vinna sér inn fyrir því. Góð byrjun væri að starfa í anda þeirra laga sem gilda um starfsemi þeirra. Bankar eiga í mörgum fyrirtækjum. Samkeppni um fé Bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar í Reykjanesbæ leggja fyrir reglur um skráningu á fjárhagslegum hags- munum bæjarfulltrúa í Reykjanesbæ og trúnaðarstörfum þeirra fyrir bæjar- stjórnarfund þriðjudaginn 22. nóvem- ber. Bæjarstjórn setti sér siðareglur á síðasta fundi eins og gert hefur verið í nokkrum sveitarfélögum og nú leggjum við til í rökréttu framhaldi að bæjar- fulltrúar Reykjanesbæjar, fyrstir bæjar- fulltrúa á Íslandi, skrái hagsmuni sína fyrir opnum tjöldum á vefsíðu sveitar- félagsins. Reglurnar um hagsmunaskráningu taka mið af reglum um skráningu á fjárhagslegum hagsmunum alþingis- manna og trúnaðarstörfum utan þings sem voru samþykktar vorið 2009. Sam- kvæmt reglunum skulu bæjarfulltrúar m.a. skrá launaða starfsemi aðra en setu í bæjarstjórn, skrá launaða stjórnar- setu sem kosið er til að af bæjarstjórn, skrá launaða stjórnarsetu í einkareknum eða opinberum félögum og gera grein fyrir fjárhagslegum stuðningi, gjöfum, utanlandsferðum og eftirgjöfum eftir- stöðva skulda. Þá skulu bæjarfulltrúar skrá upplýsingar um stjórnarsetu og önnur trúnaðarstörf fyrir hagsmuna- samtök, opinberar stofnanir, sveitarfélög og félög - óháð því hvort þessi störf eru launuð eða ekki. Skráning þessi er ætluð íbúum og kjós- endum í Reykjanesbæ til upplýsingar og til þess að auka gagnsæi í störfum bæjarstjórnar Reykjanesbæjar. Það er ein af grundvallarreglum í stjórnmálum lýðræðisríkja að kjörnir fulltrúar taka ákvarðanir um hvaða hagsmuni eigi að taka fram yfir aðra, hvernig eigi að for- gangsraða. Þess vegna er mikilvægt að kjósendur hafi upplýsingar um það hvar hagsmunir bæjarfulltrúa liggja, sérstak- lega þegar taka þarf erfiðar ákvarðanir á erfiðum tímum eins nú í bæjarstjórn Reykjanesbæjar. Bæjarbúum og öðrum áhugamönnum um betri stjórnmál er bent á að kynna sér reglurnar á xsreykjanesbaer.is. Hagsmunir bæjarfulltrúa skráðir opinberlega Stjórnmál Eysteinn Eyjólfsson bæjarfulltrúi Litla Ísland Alþingi óskaði á dögunum eftir því við Ríkisendurskoðun að hún gerði úttekt á arðsemi Vaðlaheiðarganga. Þeirri umleitan var hafnað, sem er einsdæmi í seinni tíð. Rökin voru tvenn: Annars vegar að það væri ekki hlutverk stofnunarinnar. Það hljómar furðulega en kann að standast skoðun. Hin rökin eru merkilegri. Þau eru að Sveinn Arason ríkisendurskoðandi sé hvort eð er vanhæfur til að ráðast í slíka úttekt vegna mægða við Kristján L. Möller, sem öðrum fremur vill grafa göng um Ísland. Möllersáhrifin Nú mætti ætla að mat á arðsemi ganga væri reikningsdæmi sem talnaglöggir embættismenn gætu leyst sæmilega hratt og vel án þess að skoðanir Kristjáns Möller hefðu áhrif á niðurstöðurnar. En Sveinn er ekki sannfærður og biðst því undan verkinu. Það hlýtur að teljast til eftirbreytni. Til þessa hafa Íslendingar nefnilega sjaldnast talið það eftir sér að vasast í verkefnum sinna nánustu ættingja. Ha? Tvíbentustu skilaboð helgarinnar bár- ust frá Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, sem féll með slíkri sæmd í formanns- kjörinu á landsfundi Sjálfstæðis- flokksins að hún vissi ekki í hvorn fótinn hún átti að stíga á eftir. Og þá er best að stíga bara í þá báða. Nánast í sömu andrá og hún lýsti því yfir að sjálfstæðismenn ættu að fylkja sér á bak við endurkjör- inn Bjarna Benediktsson áréttaði hún þá skoðun sína að skipta hefði þurft um forystu í flokknum. Hver segir svo að ekki verði bæði sleppt og haldið? stigur@frettabladid.is

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.