Fréttablaðið - 22.11.2011, Blaðsíða 4
22. nóvember 2011 ÞRIÐJUDAGUR4
Sé krossgáta síðasta laugardags leyst
á réttan hátt fást tíu bókstafir sem
mynda eiga lausnarorð. Einn þeirra er
ö, en ætti með réttu að vera o.
Þá voru tvö orð misrituð í lausn
krossgátu vikunnar þar á undan.
Lausn á skýringu númer 11 á að vera
stolnar og númer 36 ólatar.
LAUGARDAGSKROSSGÁTA
UMHVERFISMÁL Hakkari réðst
á síðu Umhverfisvaktarinnar,
umhverfisvaktin.is, í Hvalfirði
strax eftir að ályktanir fyrsta
aðalfundar félagsins voru sendar
út, segir á vefnum kjos.is. Síðan lá
niðri í nokkra daga en hefur verið
opnuð að nýju.
Ragnheiður Þorgrímsdóttir, for-
maður félagsins, sagði á fundinum
að vegna fyrirhugaðrar stækk-
unar á Grundartanga hefðu augu
vaktarinnar fyrst og fremst
beinst að þeim þætti umhverfis-
mála í Hvalfirði. - shá
Umhverfisvaktin.is:
Hakkari gerði
vef óvirkan
STJÓRNMÁL Sóley Tómasdóttir,
borgarfulltrúi Vinstri grænna,
gekk af fundi stjórnar Orku-
veitunnar á föstudag eftir að til-
laga hennar um
að rætt yrði
við Geogreen-
house um að
aflétta leynd af
samningi milli
fyrirtækjanna
var felld. Sóley
sagðist neita að
taka við upp-
lýsingum sem
ætlast væri
til að haldið væri leyndum fyrir
borgarbúum. Meirihluti Besta
flokksins og Samfylkingar hefði
misst af tækifæri til þess „sjálf-
bæra gagnsæis“ sem hann sjálfur
hefði boðað. Samningurinn er um
sölu á rafmagni og heitu og köldu
vatni til ylræktarvers á Hellis-
heiði. Stjórnin samþykkti að
við kynningu á verkefninu yrði
arðsemi þess fyrir OR kynnt. - gar
Vill aflétta leynd á samningi:
Neitaði viðtöku
trúnaðargagna
SÓLEY
TÓMASDÓTTIR
MENNING Björn Hlynur Haralds-
son leikari hlaut í gærkvöldi styrk
úr Minningarsjóði frú Stefaníu
Guðmundsdóttur.
Björn Hlynur varð þar með
37. einstaklingurinn sem hlýtur
styrkinn. Fyrsti styrkurinn var
veittur úr sjóðnum árið 1970, en
þá hlaut Helga Bachmann hann.
Sjóðurinn sjálfur var stofnaður
árið 1938 af Önnu Borg, dóttur
Stefaníu, og Poul Reumert manni
hennar. Hann var stofnaður til
að efla íslenska leiklist og heiðra
minningu Stefaníu, en hún var
leikkona og burðarás í Leikfélagi
Reykjavíkur. - þeb
Minningarsjóður Stefaníu:
Björn Hlynur
hlaut styrkinn
FRÁ AFHENDINGUNNI Björn Hlynur tók
við styrknum úr hendi Stefaníu Borg,
barnabarns Stefaníu Guðmundsdóttur, í
Iðnó í gærkvöldi. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
VIÐSKIPTI Breska flugrekstrarfélagið
Astraeus, sem hefur séð Iceland
Express (IE) fyrir flugvélum um
árabil, hefur hætt starfsemi og verið
sett í slitameðferð. Öllum þeim átta
vélum sem félagið hefur verið með
á leigu verður í kjölfarið skilað til
eigenda sinna. IE var langstærsti
viðskiptavinur Astraeus.
Ákvörðunin var tekin á fundi um
hádegisbilið í gær. Ekki er þó úti-
lokað að Astraeus muni hefja starf-
semi að nýju í einhverri mynd komi
fram áhugasamir kaupendur. Eign-
arhaldsfélagið Fengur var eigandi
Astraeus og er eigandi IE. Pálmi
Haraldsson á allt hlutafé Fengs.
Heimildir Fréttablaðsins herma
að ef takist að selja Astraeus muni
ávinningurinn ekki renna til Pálma
heldur annarra kröfuhafa félags-
ins. Starfsmenn Astraeus munu
hins vegar þurfa að treysta á trygg-
ingasjóði launa hjá sínum stéttar-
félögum til að greiða þau laun sem
þeir eiga inni og uppsagnarfresti.
Skömmu áður en Astraeus var
lokað var send út tilkynning um
að IE hefði gengið frá samkomu-
lagi við tékkneska félagið CSA
Holidays um að það myndi fljúga
fyrir IE frá og með gærdeginum.
IE hefur auk þess sótt um flug-
rekstrarleyfi til Flugmálastjórn-
ar Íslands og hyggst leigja nýjan
flota af flugvélum fyrir komandi
sumarvertíð.
Í bréfi til starfsfólks Astraeus
frá Hugh Parry, forstjóra félags-
ins, kemur fram að ákvörðunin
hafi verið tekin eftir að samningar
um flug til Asíu, Suður-Ameríku og
Mið-Austurlanda sem vonast hefði
Din smertestillende løsning til lokal
behandling af smerter i ryg, skuldre og muskler
Voltaren Gel 100g
20% afsláttur
Seljavegi 2 101 Reykjavík Sími 511 3340 www.reyap.is
Afgreiðslutími: 9-18.30 alla virka daga og 10-16 á laugardögum
Verð áður: 3.073 kr.
Verð nú: 2.458 kr.
GENGIÐ 21.11.2011
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
215,1552
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
118,12 118,68
185,32 186,22
158,88 159,76
21,344 21,468
20,296 20,416
17,319 17,421
1,5348 1,5438
184,23 185,33
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Einar Davíðsson einar.davidsson@365.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Steingrímsson hlynurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson
orn.geirsson@365.is ALLT SÍMI 512-5402: Jóna Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Brynja Gunnarsdóttir brynjag@365.is, Snorri Snorrason snorris@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Benedikt Jónsson benediktj@365.is, Sigríður Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Ívar Hansen ivarorn@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-
5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, Sigrún Guðmundsdóttir sigrunh@365.is KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is
DÓMSMÁL Ungur karlmaður hefur verið dæmd-
ur í Héraðsdómi Reykjaness til að sæta öryggis-
gæslu á viðeigandi stofnun og greiða rúmar
átta milljónir í skaðabætur, eftir að hafa banað
barnsmóður sinni í Heiðmörk í maí 2011.
Fólkið hafði farið ásamt ungum syni sínum
í bíltúr sem endaði með þessum hörmulega
hætti. Banamein konunnar var kyrking, jafn-
vel talin framkvæmd með bílbelti. Barnið svaf
í bílnum meðan maðurinn vann voðaverkið.
Maðurinn fór með drenginn í pössun hjá bróður
sínum og þaðan lá leiðin á bráðamóttöku Land-
spítalans þar sem hann sýndi starfsfólki er tók
á móti honum konuna látna í farangursgeymslu
bílsins. Þar handtók lögregla hann.
Maðurinn hafði dvalið á geðdeild á
Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri vegna þung-
lyndis og ofskynjana en hafði útskrifað sig
sjálfur tæpri viku áður en hann varð konunni
að bana. Það gat hann þar sem óheimilt er að
nauðungar vista fólk sem leggst sjálfviljugt inn.
Hann hafði tjáð geðlækninum að hann væri
hættur að taka geðlyfin, sér liði miklu betur og
„raddir“ sem hann hefði heyrt væru horfnar.
Að skipan „raddanna“ hafði hann margoft reynt
að fyrirfara sér, þær sögðu honum að drepa til-
tekið fólk, berja aðra og vara sig á enn öðrum.
Dómkvaddur geðlæknir mat manninn hafa
verið ósakhæfan þegar verknaðurinn var unn-
inn. Annar geðlæknir kvaðst „sjaldan hafa séð
eins hræðilega veikan mann“ og unga manninn.
- jss
RÉTTARGEÐDEILDIN AÐ SOGNI Maðurinn hefur dvalið á
Sogni. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Útskrifaði sig sjálfur af geðdeild og banaði barnsmóður sinni:
Dæmdur í öryggisgæslu eftir manndráp
Astraeus slitið og
hættir starfsemi
Breska flugrekstrarfélagið Astraeus var í gær sett í slitameðferð. Pálmi Haralds-
son hefur átt félagið um árabil. Hann tapar milljarða fjárfestingu. Iceland
Express samdi þess í stað við tékkneskt flugrekstrarfélag um að fljúga fyrir sig.
IRON MAIDEN Þungarokkshljómsveitin heimsfræga var á meðal þeirra sem
leigðu vélar af Astraeus. Bruce Dickinson, söngvari hennar, starfaði auk þess
sem flugmaður hjá félaginu.
Iceland Express hefur tilkynnt að félagið muni fækka áfangastöðum sínum úr 23
í 16 næsta sumar og draga verulega úr sætaframboði. Ástæðan er meðal annars
sú að búist er við 800 milljóna króna tapi á rekstri félagsins í ár. Fréttablaðið
greindi frá því fyrr í þessum mánuði að Pálmi Haraldsson, eigandi félagsins,
hefði nýverið veitt því um eins milljarðs króna hluthafalán til að bæta lausa-
fjárstöðu félagsins. Auk þess mun samkeppnin í flugrekstri aukast mikið næsta
sumar með tilkomu Wow Air og Easyjet inn á íslenska flugmarkaðinn.
Undirbúa sig fyrir aukna samkeppni
verið eftir að landa gengu ekki
eftir. Í september síðastliðnum
lánaði Pálmi Astraeus um milljarð
króna og réð í kjölfarið Parry aftur
í starf forstjóra félagsins, en hann
hafði hætt sem slíkur í desember
2007. Í bréfi Parrys fullyrðir hann
að Pálmi hafi alls fjárfest um 7,5
milljarða króna í Astraeus. Þeir
peningar eru nú tapaðir.
Fréttablaðið hefur ársreikn-
ing Astraeus fyrir árið 2010 undir
höndum. Þar kemur fram að félagið
hafi tapað um 540 milljónum króna
í fyrra. Alls seldi það þjónustu fyrir
10,9 milljarða króna á síðasta ári. Í
ársreikningnum kemur einnig fram
að Astraeus skuldaði Feng um 372
milljónir króna og greiddi félaginu
auk þess 18,5 milljónir króna í
stjórnendakostnað í fyrra. Heildar-
skuldir Astraeus um síðustu áramót
voru um 2,3 milljarðar króna.
thordur@frettabladid.is
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
20°
7°
2°
5°
7°
9°
6°
6°
22°
13°
18°
11°
26°
3°
12°
15°
5°
Á MORGUN
8-20 m/s, hvassast syðst.
FIMMTUDAGUR
Hæg suðvestlæg eða
breytileg átt.
1
2
2
2
-2
-1
4
4
8
7
6
8
7
5
7
7
9
14
17
12
10
10
0
1
4
5
2
0 -3
-3
0
1
SKÚRIR EÐA ÉL
Stíf suðaustanátt á
landinu í dag með
rigningu, einkum
suðaustan til. Til
morguns snýst í
nokkuð hvassa
suðvestanátt með
skúrum eða éljum
en úrkomulítið
austanlands. Hæg-
lætisveður og kalt
á fi mmtudag.
Elísabet
Margeirsdóttir
veður-
fréttamaður
Litaðri hráolíu stolið
Um 700 lítrum af litaðri hráolíu var
stolið af tönkum frá verktaka í grjót-
námum norðan við Eystri-Sólheima
aðfaranótt síðastliðins föstudags. Lög-
reglan á Hvolsvelli biður þá sem hafa
orðið varir við óeðlilegar mannaferðir
á þessum slóðum á þessum tíma að
hafa samband í síma 488 4110.
LÖGREGLUMÁL