Fréttablaðið - 22.11.2011, Blaðsíða 32
22. nóvember 2011 ÞRIÐJUDAGUR20
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
Guðni Ólafsson
frá Súgandafirði,
lést á Hrafnistu, Hafnarfirði, 18. nóvember. Útförin fer
fram frá Digraneskirkju miðvikudaginn 30. nóvember
kl. 13.00.
Halldór Guðnason Svanhildur Guðmundsdóttir
Ingveldur Guðnadóttir Jón G. Kristinsson
Guðfinna Guðnadóttir Jóel Sverrisson
Matthildur Guðnadóttir Hjörtur Jóhannsson
Friðbjörg Ingimarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og bróðir,
Árni Magnússon
skipstjóri, Suðurmýri 16,
verður jarðsunginn frá Seltjarnarneskirkju
fimmtudaginn 24. nóvember klukkan 13.00.
Móeiður Marín Þorláksdóttir
María Árnadóttir Pjetur Stefánsson
Ásta Kristín
Þórdís Árnadóttir Daniel Marston
Hlédís Maren og Magnús Jökull
Þorlákur Már Árnason Edda Huld Sigurðardóttir
Alexander Már og Indriði Áki
Jensína G. Magnúsdóttir
Okkar ástkæri
Friðrik Axel Þorsteinsson
Markarvegi 4,
lést á Blóðlækningadeild 11G, Landspítalanum,
19. nóvember. Jarðarförin fer fram frá Bústaðakirkju
föstudaginn 25. nóvember.
Helga Þ. Einarsdóttir
Inga Ísaksdóttir
Matthías Örn Friðriksson Svafa Grönfeldt
Bjarki Hrafn Friðriksson Bryndís Guðmundsdóttir
Ingibjörg Dröfn Friðriksdóttir Gunnar Hafsteinsson
og barnabörn
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Ingvi Sv. Guðmundsson
Miðvangi 41, Hafnarfirði,
lést á krabbameinsdeild Landspítalans miðvikudaginn
16. nóvember. Útförin fer fram frá Víðistaðakirkju
fimmtudaginn 24. nóvember kl. 13.00.
Þeim sem vildu minnast hans er bent á
Krabbameinsfélagið.
Ellen K. Einarsdóttir
Guðmundur Einar Ingvason Guðný Bjarkadóttir
Örn Orri Ingvason Auður Hansen
Dagmar Svanhvít Ingvadóttir Hjörvar Þór Guðmundsson
Jóhann Ingvi Ingvason Sólveig Birna Magnúsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær systir mín og föðursystir,
Arnbjörg Magga
Magnúsdóttir
frá Traðarbakka, Akranesi,
Árskógum 8, Reykjavík,
lést á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ 4. nóvember
síðastliðinn. Útförin hefur farið fram í kyrrþey
að ósk hinnar látnu.
Elín Aðalheiður Magnúsdóttir
Magnús S. Guðmundsson
Sjöfn Guðmundsdóttir
og fjölskyldur.
Thelma Rut Frímannsdóttir
varð tvöfaldur Íslandsmeistari
fullorðinna í kumite í Fylkissetrinu
á laugardaginn þegar Íslandsmeist-
aramót fullorðinna í kumite var
haldið hjá Karatesambandi Íslands.
Þá varð Diego Björn Valencia þre-
faldur Íslandsmeistari fullorðinna í
kumite.
Thelma Rut vann bæði opinn flokk
kvenna og -61 kílóa flokk og varði
báða titla sína frá því í fyrra. Diego
vann opinn flokk karla og +84 kílóa
flokk og var einnig í sigurliðinu í
liðakeppni karla. Diego var einnig
þrefaldur Íslandsmeistari í fyrra.
Yfir 60 keppendur frá 8 félögum
öttu kappi í einstaklingskeppni og
5 lið í sveitakeppni karla. Í lok dags
stóð félagið Víkingur uppi sem
Íslandsmeistari í kumite fullorðinna
2011.
Nýkrýndir Íslandsmeistarar í karate
ÍSLANDSMEISTARAR Diego Björn Valencia og
Thelma Rut Frímannsdóttir.
MYND/KARATESAMBAND ÍSLANDS
Veislur og gjafir íslenskra höfðingja á miðöldum er yfir-
skrift fyrirlesturs Viðars Pálssonar, doktors í sagnfræði,
í Sögufélagshúsinu í Fischersundi annað kvöld.
Því hefur gjarnan verið haldið fram að gjafmildi og
veisluhöld höfðingja miðalda hafi verið stór þáttur í að
tryggja sér og viðhalda eigin vinsældum. Viðar tekur
meinta gjafmildi höfðingjanna fyrir í fyrirlestrinum
og færir rök fyrir því að þeir hafi hvorki getað, viljað
né verið jafn gjafmildir og haldið hefur verið fram.
Fyrirlesturinn hefst klukkan 20 og er hluti af Rannsókn-
arkvöldum Félags íslenskra fræða. - jma
Veislur höfðingja á
miðöldum
Samtökin Umhverfi og vellíðan hafa
síðastliðin tvö ár, í samstarfi við
Landspítala – Háskólasjúkrahús,
unnið að endurbótum á umhverfi
dag- og göngudeildar krabbameins-
lækninga, 11C, á Landspítala –
Háskólasjúkrahúsi við Hringbraut.
Samfara endurbótum var gerð sál-
fræðileg rannsókn þar sem áhrif
endurbótanna á líðan sjúklinga voru
könnuð.
Auður I. Ottesen, Hulda Þórey
Gísladóttir, Páll Jakob Líndal og Rut
Káradóttir stóðu fyrir rannsókninni
en ábyrgðarmaður var dr. Sigríður
Gunnarsdóttir, forstöðumaður
fræðasviðs í krabbameinshjúkrun
HÍ og LSH.
Verkefninu lauk fyrir skömmu
með afhendingu ljósmynda Páls
Jökuls Péturssonar úr náttúru
Íslands og munu myndirnar prýða
gang deildarinnar.
Allir aðilar samtakanna Umhverf-
is og vellíðunar hafa unnið þetta
starf í sjálfboðavinnu, en markmið
samtakanna er að vekja athygli á
mikilvægi umhverfis á líðan fólks.
Endurbótum á umhverfi lýkur
FORMLEGA LOKIÐ Auður Ottesen og Páll Líndal afhentu Starfsfólki deildar 11C myndir Páls
Jökuls Péturssonar og lauk þannig verkefninu. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og vinarhug vegna andláts og útfarar
okkar ástkæra frænda og mágs
Birgis Þórs Erlendssonar
Höfðabraut 3, Akranesi.
Lilja Ellertsdóttir
Magnhildur Erla Halldórsdóttir
Margrét Árný Halldórsdóttir
Ágústína Halldórsdóttir
Hafdís Halldórsdóttir
Áslaug Valdimarsdóttir
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
Guðmundur Gunnarsson
verkfræðingur,
til heimilis að Sléttuvegi 19,
lést fimmtudaginn 17. nóvember. Útförin fer fram frá
Dómkirkjunni í Reykjavík hinn 25. nóvember kl. 13.00.
Anna Margrét Guðmundsdóttir Kristinn Ágúst Friðfinnsson
Gunnar Örn Guðmundsson Helga Söebech
Hrönn Guðmundsdóttir Sicari Frank J. Sicari
Hlíf Guðmundsdóttir Geir Björnsson
Björn Líndal
barnabörn, barnabarnabörn og aðrir aðstandendur.
EKKI SVO GJAFMILDIR Viðar Pálsson sagnfræðingur flytur fyrirlestur
í Sögufélagshúsinu í kvöld um gjafmildi höfðingja á miðöldum.