Fréttablaðið - 22.11.2011, Blaðsíða 17

Fréttablaðið - 22.11.2011, Blaðsíða 17
ÞRIÐJUDAGUR 22. nóvember 2011 17 Verð frá 5.690.000 kr. Ég minnist þess frá yngri árum að menn voru stundum að yrkja grín og glens, hver við annan og hver um annan, gerðu sér gaman af og voru ekkert að erfa það í sinn hóp. Ætíð hafa þó verið til menn sem snerust öndverðir við svo alþýðlegri gamansemi og nýttu hana til heiftar og rangtúlkana ef þeim bauð svo við að horfa. Af þessum toga var spunninn einkar ómerkilegur hálfkærings- kveðskapur í gömlum stíl, sem Hannes Hólmsteinn Gissurarson gerir að heimspólitísku umfjöll- unarefni í nýrri kommúnistabók sinni og kynnir ýmist sem háð- kvæði eða skopkvæði, er ég hafi sem sérlegur „ráðstjórnarvin- ur“ sett saman til niðrunar Jóni Óskari skáldi. Ekki man ég lengur hvernig eða í hverskonar gantaskap umræddar bögur mínar rötuðu á síður Þjóðviljans 1964, en tek fúslega fram að í þetta sinn leyndist raun- ar ákveðin alvara að baki skensinu. Okkur strákum og stelpum, sem af misgóðum efnum vorum þá að myndast við að láta sem bókleg iðja kæmi okkur við, þótti ætíð nóg um hve oft og lengi úthlutunarnefnd listamannalauna lét sér sæma að vanmeta og sniðganga góð- skáldið Jón Óskar, sem þá bjó oft við þröngan hag; af nefndarinnar hálfu naut hann smánarlauna, lít- illa eða engra – unz skyndilega skipti um, þegar út kom frá hans hendi gagnrýn og vafalaust makleg meðhöndlun á Sovét, sem að þeirr- ar tíðar hætti gat virzt brúkleg í hanaslag kalda stríðsins. Miðað við listatök þessa ágæta ljóðskálds þótti okkur viðbrögð nefndarinnar afhjúpa fremur lágkúrulegt verðleikamat. Þessi var ályktun mín og margra ann- arra í þá daga, og menn geta ýmis- lega velt því fyrir sér, með hlið- sjón af ríkjandi aldarfari, hvað kunni að hafa verið hæft í henni. Svo mikið er víst að samsetn- ingur minn var ekki „háðkvæði um Jón Óskar“. Skeytunum, svo óbjörguleg sem þau annars voru, var umfram allt beint að úthlut- unarnefnd listamannalauna, sem sjaldnast naut friðsældar um þær mundir fremur en endranær. Þetta skynjuðu og skildu flestir sem töldust vera þokkalega læsir; og örugglega allir sem einhvern tíma höfðu kynnt sér gaman og alvöru í kveðskap af þessu tagi, þar sem saman fara stundum bjag- að rím, hæpnar áherzlur, kringil- yrði, ýkjur og staðnað orðaprjál, oft úr sálmum: „Hér máttu, sál mín, sanna“ og því um líkt. Langt er um liðið, og með naum- indum að maður kannist við sjálf- an sig í slíku þófi og þrefi, sem kannski er fyrst og fremst talandi vitni um hraklega aðbúð rithöf- unda á þessum árum. En alla tíð, bæði fyrr og síðar en þetta var, fór vel á með okkur Jóni Óskari, við áttum saman notalegar stund- ir, kynni mín af honum voru frjó og fræðandi, okkar á milli ríkti hlýja og velvild. Ég mótmæli því harðlega að umrætt vísnaklastur sé dregið fram sem falsvitni um skipti mín við þann vammlausa og góða dreng. Ég hef ekkert unnið til þess að nefndur prófessor við Háskóla Íslands geri mér upp kala í garð einstakra samferðamanna minna, lífs eða liðinna. Prófessorinn Hannes Hólm- steinn skrifar talsvert og les líka heilmikið. Það er fallegt. Að lesa og skrifa list er góð. En ákjósan- leg er einnig sú list að hreinsa skólp pólitískrar áráttuhegðunar út úr hausnum á sér þegar farið er hug og höndum um verk eftir aðra, jafnvel þótt um sé að ræða hart- nær hálfrar aldar gamlan leirburð eftir mig. Að lesa og skrifa er list er góð. En ákjósanleg er einnig sú list að hreinsa skólp pólítískrar áráttuhegðunar út úr hausnum á sér þegar farið er hug og höndum um verk eftir aðra … Athugasemd til Hannesar Hólmsteins Menning Þorsteinn frá Hamri rithöfundur AF NETINU Disney í Skálholti? Í Skálholti er stundað margþætt kirkjulegt starf sem verður vonandi með vaxandi blóma í framtíðinni þótt nú virðist blása á móti. Þangað leita margir til að njóta kyrrðar og næðist á sögufrægum stað. Í Skálholt er líka stöðugur straumur ferðamanna bæði á eigin vegum og í skipulegum ferðum á vegum ferðaþjónustunnar. Rúturnar sem þangað koma dag hvern eru ótrúlega margar. Stundum rekast hagsmunir þessara tveggja hópa á: Þátttakendur í kirkjustarfi, t.d. á kyrrðardögum, vilja vera í friði. Ferðamenn á hinn bóginn þarfnast meiri þjónustu. Sé viðskiptahugmyndin eins góð og af er látið er ljóst að þessi árekstur verður enn tilfinnanlegri í framtíðinni. Verði af byggingunni og lánist hún verulega vel vaknar spurningin: Mun kirkjumiðstöðin í Skálholti víkja fyrir ferðamanna- staðnum? Óskar þess einhver í alvöru? Lánist byggingin hins vegar illa gæti kirkjumiðstöðin drukknað í einhvers konar íslenskri útgáfu af Disneylandi. http://www.pressan.is/pressu- pennar/Lesa_HjaltiHugason/ Hjalti Hugason

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.