Fréttablaðið - 22.11.2011, Side 17
ÞRIÐJUDAGUR 22. nóvember 2011 17
Verð frá 5.690.000 kr.
Ég minnist þess frá yngri árum að menn voru stundum að
yrkja grín og glens, hver við annan
og hver um annan, gerðu sér
gaman af og voru ekkert að erfa
það í sinn hóp. Ætíð hafa þó verið
til menn sem snerust öndverðir við
svo alþýðlegri gamansemi og nýttu
hana til heiftar og rangtúlkana ef
þeim bauð svo við að horfa.
Af þessum toga var spunninn
einkar ómerkilegur hálfkærings-
kveðskapur í gömlum stíl, sem
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
gerir að heimspólitísku umfjöll-
unarefni í nýrri kommúnistabók
sinni og kynnir ýmist sem háð-
kvæði eða skopkvæði, er ég hafi
sem sérlegur „ráðstjórnarvin-
ur“ sett saman til niðrunar Jóni
Óskari skáldi.
Ekki man ég lengur hvernig eða
í hverskonar gantaskap umræddar
bögur mínar rötuðu á síður
Þjóðviljans 1964, en tek fúslega
fram að í þetta sinn leyndist raun-
ar ákveðin alvara að baki skensinu.
Okkur strákum og stelpum, sem
af misgóðum efnum vorum þá að
myndast við að láta sem bókleg iðja
kæmi okkur við, þótti ætíð nóg um
hve oft og lengi úthlutunarnefnd
listamannalauna lét sér sæma
að vanmeta og sniðganga góð-
skáldið Jón Óskar, sem þá bjó oft
við þröngan hag; af nefndarinnar
hálfu naut hann smánarlauna, lít-
illa eða engra – unz skyndilega
skipti um, þegar út kom frá hans
hendi gagnrýn og vafalaust makleg
meðhöndlun á Sovét, sem að þeirr-
ar tíðar hætti gat virzt brúkleg í
hanaslag kalda stríðsins.
Miðað við listatök þessa ágæta
ljóðskálds þótti okkur viðbrögð
nefndarinnar afhjúpa fremur
lágkúrulegt verðleikamat. Þessi
var ályktun mín og margra ann-
arra í þá daga, og menn geta ýmis-
lega velt því fyrir sér, með hlið-
sjón af ríkjandi aldarfari, hvað
kunni að hafa verið hæft í henni.
Svo mikið er víst að samsetn-
ingur minn var ekki „háðkvæði
um Jón Óskar“. Skeytunum, svo
óbjörguleg sem þau annars voru,
var umfram allt beint að úthlut-
unarnefnd listamannalauna, sem
sjaldnast naut friðsældar um þær
mundir fremur en endranær.
Þetta skynjuðu og skildu flestir
sem töldust vera þokkalega læsir;
og örugglega allir sem einhvern
tíma höfðu kynnt sér gaman og
alvöru í kveðskap af þessu tagi,
þar sem saman fara stundum bjag-
að rím, hæpnar áherzlur, kringil-
yrði, ýkjur og staðnað orðaprjál,
oft úr sálmum: „Hér máttu, sál
mín, sanna“ og því um líkt.
Langt er um liðið, og með naum-
indum að maður kannist við sjálf-
an sig í slíku þófi og þrefi, sem
kannski er fyrst og fremst talandi
vitni um hraklega aðbúð rithöf-
unda á þessum árum. En alla tíð,
bæði fyrr og síðar en þetta var,
fór vel á með okkur Jóni Óskari,
við áttum saman notalegar stund-
ir, kynni mín af honum voru frjó
og fræðandi, okkar á milli ríkti
hlýja og velvild. Ég mótmæli því
harðlega að umrætt vísnaklastur
sé dregið fram sem falsvitni um
skipti mín við þann vammlausa og
góða dreng. Ég hef ekkert unnið
til þess að nefndur prófessor við
Háskóla Íslands geri mér upp kala
í garð einstakra samferðamanna
minna, lífs eða liðinna.
Prófessorinn Hannes Hólm-
steinn skrifar talsvert og les líka
heilmikið. Það er fallegt. Að lesa
og skrifa list er góð. En ákjósan-
leg er einnig sú list að hreinsa
skólp pólitískrar áráttuhegðunar
út úr hausnum á sér þegar farið er
hug og höndum um verk eftir aðra,
jafnvel þótt um sé að ræða hart-
nær hálfrar aldar gamlan leirburð
eftir mig.
Að lesa og skrifa er list er góð. En
ákjósanleg er einnig sú list að hreinsa
skólp pólítískrar áráttuhegðunar út úr
hausnum á sér þegar farið er hug og höndum um verk
eftir aðra …
Athugasemd til Hannesar Hólmsteins
Menning
Þorsteinn
frá Hamri
rithöfundur
AF NETINU
Disney í Skálholti?
Í Skálholti er stundað margþætt
kirkjulegt starf sem verður vonandi
með vaxandi blóma í framtíðinni
þótt nú virðist blása á móti. Þangað
leita margir til að njóta kyrrðar og
næðist á sögufrægum stað.
Í Skálholt er líka stöðugur straumur
ferðamanna bæði á eigin vegum
og í skipulegum ferðum á vegum
ferðaþjónustunnar. Rúturnar
sem þangað koma dag hvern eru
ótrúlega margar.
Stundum rekast hagsmunir þessara
tveggja hópa á: Þátttakendur í
kirkjustarfi, t.d. á kyrrðardögum,
vilja vera í friði. Ferðamenn á hinn
bóginn þarfnast meiri þjónustu.
Sé viðskiptahugmyndin eins góð
og af er látið er ljóst að þessi
árekstur verður enn tilfinnanlegri
í framtíðinni. Verði af byggingunni
og lánist hún verulega vel vaknar
spurningin: Mun kirkjumiðstöðin
í Skálholti víkja fyrir ferðamanna-
staðnum? Óskar þess einhver í
alvöru? Lánist byggingin hins vegar
illa gæti kirkjumiðstöðin drukknað
í einhvers konar íslenskri útgáfu af
Disneylandi.
http://www.pressan.is/pressu-
pennar/Lesa_HjaltiHugason/
Hjalti Hugason