Fréttablaðið - 22.11.2011, Blaðsíða 23

Fréttablaðið - 22.11.2011, Blaðsíða 23
KYNNING − AUGLÝSING Jólabakstur22. NÓVEMBER 2011 ÞRIÐJUDAGUR 3 Jólakossar 500 g hreint marsipan (Odense Ren Rå Marcipan) 300 g sykur 1 dl vatn 150 g eggjahvítur 250 g dökkt súkkulaði Marsipanbotn: Ein rúlla marsipan er skorin í 30 sneiðar, sem lagðar eru á bökunarpappír og bakaðar við 180 °C í 5–8 mín. Fylling: 300 g sykur og 1 dl vatn er soðið saman í 2 mín. 150 g eggjahvítur eru þeyttar létt og sykurleginum bætt hægt saman við. Þeytt með handþeytara við meðalhraða þar til stíft. Fyllingunni er sprautað í gegnum plast- poka á marsipanbotnana og síðan bakað í 5 mín. við 180 °C, eða þar til yfirborðið er stíft. Eftir kælingu eru jólakossarnir penslaðir með bræddu dökku súkkulaði. Odense Marsi-pan Fabrik í Óðinsvéum í Danmörku er um- svifamesti, virtasti og einn elsti marsipan- framleiðandi í heimi. Ölgerðin er innflutn- ings-, dreifingar- og söluaðili fyrir Odense á Íslandi. Gunnar Örn Gunnarsson, vöru- merkjastjóri Odense í Gnótt hjá Ölgerðinni, þekkir leyndarmálið á bak við áralanga vel- gengni fyrirtækisins. „Helsta ástæðan f yrir farsæld Odense er vitanlega sjálft marsipanið, sem vegna úrvals hráefnis og vand- aðra framleiðsluaðferða er engu líkt,“ upplýsir Gunnar. „Meginuppistaðan í marsipani er sykur og möndlur og hjá Odense eru möndlur í miklum meiri- hluta, valdar af kostgæfni frá Kali- forníu í bland við spænskar möndl- ur. Útkoman er gott, mjúkt og temmi- lega sætt marsipan en ekki beiskt eins og sumt marsipan frá öðrum framleiðendum.“ Að sögn Gunnars felst sérstæða Odense enn fremur í umfangsmikilli fram- leiðslu á marsipani í bakstur. „Ástæðan er sú að Norðurlanda- þjóðir baka miklu meira upp úr marsi- pani en aðrar þjóðir og eru Íslendingar þar engin undantekning. Marsipan hefur hér lengi verið vinsælt í bakstur.“ Gunnar bendir á að auk bökunarmars- ipans standist fáir framleiðendur Odense snúning í gerð konfektmarsipans, hjúpmarsipans og fyllingarmarsipans. Þess utan sé Odense fremst í flokki í framleiðslu á núggati, að ógleymdu ljúffengu hvítu og dökku súkkulaði og rjómasúkkulaði. Vörurnar segir Gunnar auðvelt að nálgast hérlendis. „Þær fást í velflest- um stórmörkuðum auk þess sem bak- arar geta snúið sér beint til Ölgerðar- innar.“ Nánari upplýsingar segir hann uppgefnar í síma 412-8000 og á heima- síðu Ölgerðarinnar; slóðin er www.ol- gerdin.is. Marsipan við öll tækifæri Marsipan frá Odense Marsipan Fabrik í Óðinsvéum í Danmörku er þekkt um allan heim fyrir gott bragð og einstök gæði. Marsipanið er hægt að nálgast í velflestum stórmörkuðum hérlendis og hjá Ölgerðinni, sem flytur inn vörur frá Odense. Gunnar Örn Gunnarsson. Kókosmánar 200 g Odense kókosmarsipan 200 g brætt súkkulaði Kókosmjöl ristað á pönnu Skerið kókosmarsipanlengju í 10 sneiðar og hverja í hálfa sneið eftir það. Dýfið í brætt súkkulaði og stráið smá ristuðu kókosmjöli yfir. Mozart kúlur 200 g Odense marsipan (Odense Ren Rå Marcipan) 50 g Odense núggat 150 g brætt súkkulaði Skerið marsipanlengjuna í sneiðar og setjið smá klípu af núggati í miðju og hnoðið í kúlu. Dýfið í brætt súkkulaði og stráið smá flórsykri yfir. Kransakökustangir Tilbúinn Odense kransakökumassi 100 g af bræddu súkkulaði Dálítið af söxuðum heslihnetum og vanillusykri Kransakökudeigi er sprautað úr pokanum í langar stangir sem bakaðar eru samkvæmt leiðbeiningum á umbúðunum. Síðan kældar og skornar í 6-8 cm búta. Endunum er dýft í bræddan hjúp, stangirnar kældar og raðað upp í stæðu eins og sýnt er á mynd.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.