Fréttablaðið - 22.11.2011, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 22.11.2011, Blaðsíða 2
22. nóvember 2011 ÞRIÐJUDAGUR2 Gildir út nóvember Lyfjaval.is • sími 577 1160 Nicotinell er samstarfsaðili Krabbameinsfélagsins Nicotinell Tropical Fruit SPURNING DAGSINS HEILBRIGÐISMÁL Allir 39 íbúar hjúkrunarheimilisins Holtsbúðar í Garðabæ voru fluttir á Vífilsstaða- spítala laugardaginn 12. nóvember vegna ófullnægjandi aðbúnaðar. Húsið stendur nú autt. Heimilisfólk Holtsbúðar, allt eldra fólk, býr flest hvert við mikil veikindi. Um miðjan september var Pálmi V. Jónsson, yfirlæknir öldr- unar af Landakoti, fenginn inn í Holtsbúð til afleysinga. Innan fárra daga hafði hann áttað sig á því að Holtsbúð væri barn síns tíma og þar væri erfitt að annast jafnmikið veikt fólk og þar dvaldi. „Það var sett upp af góðum hug á sínum tíma en var orðið algjör- lega ófullnægjandi húsnæði og átti sinn þátt í því að skerða gæði þjónustunnar,“ segir Pálmi. „Mér fannst of langt að bíða eftir nýju hjúkrunarheimili sem er í bygg- ingu. Það tekur eitt og hálft ár að byggja það en meðalævi fólks sem dvelur á svona hjúkrunarheimili er þrjú ár. Stór hluti þess hefði þess vegna aldrei fengið að njóta nýja heimilisins,“ segir hann. Forstjóri Holtsbúðar hafði áður látið sér detta í hug að flytja starf- semina að Vífilsstöðum og Pálmi ákvað að ganga í málið, fá vilyrði frá Birni Zoëga, forstjóra Land- spítalans sem á Vífilsstaði, og viðra hugmyndina í kjölfarið við bæjar- yfirvöld. Í þetta var vel tekið og innan tveggja mánaða var fólkið flutt. Björn Zoëga segir að gerður hafi verið samningur við Garðabæ um afnot af Vífilsstöðum í eitt og hálft ár. Engin leiga verði greidd, en Garðabær þurfi þó að standa straum af öllum rekstrarkostnaði, til dæmis rafmagni og hita. Landspítalinn lánar Garðabæ Vífilsstaði Yfirlæknir í afleysingum á öldrunarheimili í Garðabæ hlutaðist til um það að allir íbúarnir yrðu færðir á Vífilsstaði vegna ófullnægjandi aðbúnaðar. Gamla húsið stendur autt en Garðabær greiðir af því fulla leigu næsta eitt og hálfa ár. ALGJÖRLEGA ÓFULLNÆGJANDI Holtsbúð stendur nú auð en Garðbæingar greiða enn leigu af húsinu og munu gera fram á árið 2013. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Landlæknisembættið gerði úttekt á starfsemi Holtsbúðar síðasta vetur og skilaði skýrslu í vor. Þar birtast ýmsar athugasemdir, meðal annars í þá veru að mönnun fagfólks virðist vera í lágmarki, hjúkrunarskráning sé ónóg, ekki séu fyrir hendi sérstök markmið og áætlanir um gæði og þjónustu og að öryggi sé ábótavant. Bæta þurfi úr öllum þessum atriðum sem fyrst. Erling Ásgeirsson, stjórnarformaður Holtsbúðar, segir flutninginn á Vífils- staði ekki tengjast því beint sem fram kemur í skýrslunni, og undir það tekur Pálmi V. Jónsson. Gagnrýnt í skýrslu Landlæknis Ólafur, eruð þið alveg á kafi? „Nei, en það er best að hafa þetta allt uppi á yfirborðinu.“ Ólafur Örn Haraldsson, þjóðgarðsvörður á Þingvöllum, vinnur að því að bæta aðstöðu köfunarfyrirtækja í þjóðgarð- inum þar sem mikil ásókn hefur verið þangað undanfarið. LÖGREGLUMÁL Nítján ára gamall maður var í síðasta mánuði dæmdur í Héraðsdómi Vestfjarða fyrir brot gegn barnaverndar- lögum og áfengislögum en hann lét fimmtán ára gamla stúlku hafa við sig munnmök gegn því að lofa henni áfengi. Þá var hann einnig fundinn sekur um að hafa nokkrum dögum áður útvegað stúlkunni áfengi. Í dómnum kemur fram að stúlkan hafi sjálf tilkynnt málið til barnaverndarnefndar. Mað- urinn, sem var átján ára þegar brotið var framið, var dæmdur í skilorðsbundið 45 daga fangelsi og til þess að greiða sakarkostn- að að hluta. Þá skal hann greiða stúlkunni 150 þúsund krónur auk vaxta. Fékk skilorðsbundinn dóm: Lofaði áfengi fyrir munnmök ÖRYGGISMÁL Hafdís, björgunar- bátur Slysavarnafélagsins Lands- bjargar á Fáskrúðsfirði, dró fjög- urra tonna bát í land í gærkvöldi eftir að hann strandaði í sunnan- verðum firðinum. Landhelgisgæslunni barst aðstoðarbeiðni rétt fyrir klukkan sex. Samstundis voru kallaðar út sjóbjörgunarsveitir auk þess sem haft var samband við nærstödd skip og báta. Skömmu síðar til- kynnti skipstjóri bátsins að hann hefði losnað af strandstað og gæti siglt fyrir eigin vélarafli. - shá Betur fór en á horfðist: Losnaði sjálfur af strandstað Garðabær hefur samning um leigu húsnæðisins að Holtsbúð fram til ársins 2013, sem bær- inn mun greiða áfram þó að húsið standi autt. Spurður hve há leigan sé segist Erling Ásgeirsson, stjórnarformaður Holtsbúðar, ekki muna það. Fréttablaðið hefur heimildir fyrir því að hún sé 20,8 milljónir á ári, og segir Erling það vel geta staðist. stigur@frettabladid.is sunna@frettabladid.is REYKJAVÍK „Við höfum búist við þessu en þetta eru samt von- brigði,“ segir Haraldur Freyr Gíslason, formaður Félags leik- skólakennara, um þá fyrirætlan borgaryfirvalda að afnema yfir- borgun starfsmanna leikskóla. Í tillögu borgarstjóra fyrir borgarráð er gert ráð fyrir aftur- köllun sérstakrar launauppbótar sem starfsmenn leikskóla fengu í október 2007 og fólst í tíu greidd- um yfirvinnutímum á mánuði. Afnema á þessar greiðslur í fjór- um áföngum fram til ársins 2014. Í greinargerð með tillögunni s e g i r a ð nágrannasveit- arfélögin hafi tekið upp hlið- stæðar yfir- borganir en að þær hafi verið felldar niður. Ástæða þess að leikskóla- kennarar hafi árið 2007 feng- ið þessa „launauppbót umfram ákvæði kjarasamninga“ hafi verið mannekla og mikið álag í starfi. Það eigi ekki lengur við. Afnema á fyrstu 2,5 yfirvinnu- tímana 1. mars á næsta ári. Gefa á þeim starfsmönnum sem lægst hafa launin færi á að vinna þessa yfirvinnutíma svo heildarlaunin skerðist ekki. Haraldur segir leikskólakenn- ara vona að endurskoðun á launum þeirra með samanburði við grunn- skólakennra leiði til þess að jafn- gildi launauppbótarinnar fáist til baka. Sanngjarnt væri þó að þeir fengju hvort tveggja. „Það er bara bull að álagið hafi minnkað. En það er þó jákvætt að þetta verður afnumið í þrepum,“ segir hann. - gar Borgaryfirvöld telja ekki lengur forsendur fyrir því að borga óunna yfirvinnu: Afnema á launauppbót í leikskólum HARALDUR FREYR GÍSLASON DÓMSMÁL Ríkissaksóknari hefur ákært fyrir Héraðs- dómi Norðurlands vestra fjóra pilta sem struku frá meðferðarheimilinu að Háholti í Skagafirði 17. júlí í sumar. Piltarnir eru á aldrinum sextán til átján ára. Tveim- ur þeirra er gefið að sök að hafa veist að starfsmanni í Háholti í sjónvarpsholi, eldhúsi og á göngum heimilis- ins. Annar þeirra barði hann ítrekað með sundurskrúf- uðum biljarðskjuða sem hafði fjögurra sentimetra járntein á öðrum enda í hnésbót, síðu og handleggi, að því er segir í ákæru. Hinn pilturinn barði hann einu sinni í handlegg með sams konar vopni. Auk þess hótuðu þeir að slá starfsmanninn í höfuðið með biljarðskjuðunum ef hann afhenti þeim ekki síma sinn og lykla. Af atlögunni hlaut starfsmaðurinn áverka, svo sem bólgur, mar og eymsli víða á líkama. Þá er öllum piltunum gefið að sök að hafa læst starfsmanninn inni í neyðarherbergi, skilið hann þar eftir og svipt hann þannig frelsi sínu, þar til annar starfsmaður mætti til vinnu rúmum fimm tímum síðar og hleypti honum út. Þá er einn piltanna ákærður fyrir að hafa ekið bifreið um nóttina án ökuréttinda. - jss Ákærðir fyrir brot gegn valdstjórninni og frelsissviptingu á meðferðarheimili: Börðu starfsmann og læstu inni VARMAHLÍÐ Einn piltanna var ákærður fyrir að aka réttinda- laus í nágrenni Varmahlíðar. SPÁNN, AP Hægrimenn á Spáni unnu stórsigur í þingkosningun- um þar á sunnudag. Lýðflokkur- inn hlaut tæplega 45% atkvæða og hreinan meirihluta í neðri deild spænska þingsins, eða 186 sæti af 350. Sósíalistaflokkur forsætisráð- herrans José Luis Zapatero beið afhroð, hlaut aðeins 29 prósent atkvæða og 110 þingsæti. Hann óskaði keppinauti sínum til ham- ingju með sigurinn í fyrrakvöld. Spánverjar standa frammi fyrir miklum efnahagsþrengingum og gríðarlegu atvinnuleysi. Mariano Rajoy, leiðtogi Lýðflokksins, tekur við forsætisráðherraemb- ættinu af Zapatero eftir mánuð. Hann sagðist í gær gera sér grein fyrir umfangi þeirra verkefna sem lægju fyrir og hann væri reiðubúinn að færa fórnir. - sh Zapatero játar ósigur á Spáni: Hægrimenn unnu stórsigur ÞYKIR ÞURR Mariano Rajoy þykir afskap- lega hæglátur og yfirvegaður maður – sumir segja óspennandi. NORDICPHOTOS/AFP Oddur Björnsson, rithöfundur og leikskáld, er látinn, 79 ára að aldri. Oddur var bókavörður við Borgar- bókasafn Reykjavíkur, kennari við Iðnskólann í Reykjavík og leikhússtjóri hjá Leik- félagi Akureyrar. Þá skrifaði hann bækur og fjölmörg leikrit fyrir svið, útvarp og sjónvarp. Auk þess leikstýrði hann meðal annars í Þjóðleikhúsinu og hjá Leikfélagi Akureyrar. Hann hlaut heiðursverðlaun Leiklist- arsambands Íslands á Grím- unni fyrr á árinu fyrir fram- úrskarandi ævistarf í þágu leiklistar. Oddur lætur eftir sig eigin- konu og tvö börn. Oddur Björns- son látinn Hlutabréfaverð lækkaði Hlutabréfaverð lækkuðu víðast hvar í dag vegna ótta fjárfesta við miklar skuldir þjóðríka og banka, að því er fram kemur á vef breska ríkisútvarps- ins BBC. Hlutabréfavísitölur í Bandaríkjunum lækkuðu um 2,5% og hlutabréfaverð í Þýskalandi og Frakklandi um 3%. VIÐSKIPTI

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.