Fréttablaðið - 22.11.2011, Qupperneq 16
16 22. nóvember 2011 ÞRIÐJUDAGUR
í vali á Bíl ársins 2012
Brimborg og Volvo áskilja sér rétt til að breyta verði og búnaði án fyrirvara. Útbúnaður og gerð bílanna getur verið frábrugðin myndunum í auglýsingunni. Nánari upplýsingar veita ráðgjafar Volvo á Íslandi.
Á síðustu árum hafa ekki verið nýttar um 1.200 milljónir
króna til tannlækninga, fjármun-
ir sem alþingismenn hafa ákveðið
að skuli nýttir til að greiða niður
tannlæknaþjónustu í landinu. Í
stað þess hefur viðmiðunargjald-
skrá ráðherra staðið óbreytt í nán-
ast áratug og því ekki farið að vilja
alþingismanna. Kemur í ljós þegar
skoðaðar eru opinberar tölur að
útgjöld ríkisins til tannlækninga
hafa aðeins hækkað um 2% á 19 ára
tímabili, frá árinu 1991 til ársins
2010. Á meðan hefur verðlag hækk-
að um 134%. Um þetta er ekki deilt.
Nú stígur velferðarráðherra
fram og ætlar að skera niður fjár-
veitingu í stað þess að hækka ein-
faldlega ráðherragjaldskrána og
þannig nýta þessa fjármuni barna-
fjölskyldum til hagsbóta. Nei, það
er víst ekki hægt vegna þess að
samningar nást ekki við tannlækna
og því komin allt í einu fullkomin
afsökun fyrir því að hafa ekki nýtt
lögbundið fé í mörg undanfarin ár.
Tannlæknar eru ekki að fara
fram á launahækkanir í þessu
samhengi því gjaldskrá þeirra er
frjáls og keppa þeir sín á milli í
verði og þjónustu. Því er alveg frá-
leitt að koma stjórnvaldsákvörð-
un um skerðingu fjármuna yfir á
tannlækna. Hvort heldur ráðherra
ákveði að hækka endurgreiðslu-
skrána um 50%, 70% eða 100%,
hefði það ekki áhrif á laun tann-
læknisins. Það myndi einfaldlega
auka niðurgreiðslu tannlækna-
reikninga t.d. barna sem þessu
næmi.
Tannlæknir hefur eina gildandi
gjaldskrá fyrir alla sína viðskipta-
vini og á t.d. niðurgreiðsla ríkisins
fyrir tryggða sjúklinga ekki að hafa
áhrif á verðlagningu tannlækn-
is á tannlæknisverkum sem hann
vinnur á ótryggðum viðskipta-
vini. Kannanir hafa raunar sýnt að
hækkun raunútgjalda heimilanna
var minnst í tannlæknisþjónust-
unni af allri heilbrigðisþjónustu á
landinu sem heimilin sækja.
Ef ráðherra vill semja um fasta
verðskrá fyrir tannlæknisverk er
nauðsynlegt að sú verðskrá endur-
spegli raunkostnað þjónustunnar
og er 70% hækkun ráðherragjald-
skrár, eins og ráðherra býður, alls
ekki nægjanleg að mati tannlækna
til að reka tannlæknastofu. Raunar
hafa tannlæknar margsinnis boðið
yfirvöldum að óháður aðili fari yfir
kostnað við rekstur tannlæknastofu
en því hefur alltaf verið hafnað af
hálfu yfirvalda.
Ef samkomulag næðist um fasta
gjaldskrá yrði að vísitölutengja
a.m.k. kostnaðarhluta rekstursins,
en hann er um tveir þriðju hlutar
innkomu tannlæknastofu. Þriðji
hluti er launahluti tannlæknis. Ef
kostnaðarhluti fylgir ekki verð-
lagi er ljóst að laun tannlæknisins
myndu lækka sem því nemur og
gæti tannlæknirinn því ekki fylgt
launavísitölu á Íslandi. Það vill
hins vegar þannig til að á Íslandi er
töluvert um tannskemmdir, líklega
vegna óheyrilegrar sykurneyslu og
vegna þess að forvarnir eru ekki í
fyrirrúmi. Því hafa verkefni verið
mikil fyrir tannlækna undanfar-
in ár og þeir því unnið mjög langa
vinnudaga og tekið stutt neysluhlé.
Reyndar er það svo að tannlæknar
mega ekki hafa samræmda gjald-
skrá skv. samkeppnislögum og
þyrfti að skera úr um það með
ótvíræðum hætti hvort samræmd
gjaldskrá væri brot á þessum
lögum.
Tannlæknar hafa reglulega
bent á ósamræmi í heilbrigðis-
þjónustunni og hversu lævíslega
heilbrigðisyfirvöld hafa dregið úr
útgjöldum til tannlækninga miðað
við aðra heilbrigðisþjónustu. Svo
langt hefur þetta gengið undan-
farin ár að málið þolir orðið enga
skoðun og hefur tannlæknum fund-
ist heilbrigðisyfirvöld og embættis-
menn einbeita sér að því að skjóta
sendiboðann frekar en að ræða
raunverulegar lausnir og sýna í
verki vilja til að snúa við þessari
óheillaþróun.
En tannheilsa er hins vegar á
ábyrgð einstaklingsins og bera for-
eldrar ábyrgð á tannheilsu barna
sinna og neysluvenjum. Ekki er
hægt að líta á það sem sjálfgefinn
hlut að skattpeningum sé varið í
sjúkdóma sem eru algerlega fyrir-
byggjanlegir eins og tannskemmdir
svo sannarlega eru. Því þurfa heil-
brigðisyfirvöld að hafa þá framtíð-
arsýn að tryggja þegnum landsins
góða tannheilsu, sem myndi spara
gífurlegar fjárhæðir til lengri tíma
litið.
Tannlæknafélagið lauk á síð-
asta ári við stefnumótun um bætta
tannheilsu barna og unglinga og
hefur þessi vinna verið kynnt yfir-
völdum. Þar eru góðar tillögur um
hvernig hægt væri að bæta tann-
heilsu íslenskra barna ásamt for-
gangsröðun í áhættuhópa þannig
að fjármunir nýtist sem best. Hægt
er að nálgast skýrsluna á heimasíðu
Tannlæknafélagsins, www.tannsi.is
Hvort heldur ráðherra ákveði að hækka
endurgreiðsluskrána um 50%, 70% eða 100%
hefði það ekki áhrif á laun tannlæknisins.
Viltu nota milljarð?
Heilbrigðismál
Sigurður
Benediktsson
formaður TFÍ