Fréttablaðið - 09.12.2011, Qupperneq 1
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
Sími: 512 5000
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup apríl - júní 2011
Jólaleikur
BYKO!
Vinningshafi gærdagsins er Snorri Hauk
sso Sjá nánar á www.byko.is
Nýr vinningur á hverjum degi
Vöfflujárn, 1000W - 14.990 kr.
Vinningur dagsins:
n
so yce e swww. n nt r.i
Bæklingur frá Sony Center fylgir
blaðinu í dag!
Sony Center / Verslun Nýherja BorgartúniSony Center / Kringlunni
Föstudagur
skoðun 22
2 SÉRBLÖÐ
í Fréttablaðinu
Allt
Föstudagur
veðrið í dag
9. desember 2011
288. tölublað 11. árgangur
Sölufulltrúar: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Brynja Dan Gunnarsdóttir brynjadan@365.is 512 5465 Snorri Snorrason snorris@365.is 512 5457
Frumkvöðullinn Frosti Sigur-
jónsson stendur ásamt syni sínum
Sindra Frostasyni fyrir því að mak-
ríll er nú fáanlegur í íslenskum
verslunum. „Íslendingar fluttu út 150 þúsund
tonn af makríl á síðasta ári en ekk-
ert af honum fór í verslanir hér á
landi,“ segir Frosti. Makríll er nýr
nytjafiskur við Ísland. „Hann er
eftir sóttur víða í Evrópu en Íslend-
ingar hafa fæstir gert sér grein
fyrir því hve hollur og góður hann
er, auk þess sem lítil hefð er fyrir
því að borða makríl hér á landi.“
Þeir Frosti og Sindri komust á
bragðið eftir makrílveiðife ð
prófuðum kk okkur á ð
Á þriðja upplestri aðventunnar munu Þórarinn
Eldjárn, Jón Kalman, Ragna Sigurðardóttir og Oddný Eir
Ævarsdóttir lesa upp úr verkum sínum á Gljúfrasteini
á sunnudag klukkan 16. Að venju er aðgangur ókeypis
og allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.
2 makrílflök (látið þiðna)
ólífuolía
salt og pipar1 límóna eða 2 sítrónu-bátar
Hitið ofn í 200°C. Fjarlægið beinin úr flök-unum með beinaplokk-ara eða skerið úr með hníf. Penslið báðar
hliðar á flökunum með olíu.
Saltið og piprið að smekk. Leggið flökin með roðið upp í eldfast mót eða pönnu sem má setja í ofn. Bakið í tíu mínútur eða þar til roðið fer að brúnast. Berið fram með límónueða sít ó
OFNBAKAÐUR MAKRÍLL FYRIR FJÓRA
Feðgarnir Frosti Sigurjónsson og Sindri Frostason eru hrifnir af makríl og vilja koma fleirum á bragðið.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Makríll er lostæti
föstudagur
FYLGIRIT FRÉTTABLAÐSINS 9. desember 2011
● STEED LORD TILNEFND TIL
VERÐLAUNA
● DAGUR Í LÍFI ÍSLENDINGS
● JÓLATÍSKAN
● Á RÚMSTOKKNUM
Olga Einarsdóttir
LÆRÐI FLJÓTT
HVERNIG BEST
ER AÐ NÝTA
FATASKÁPINN
Nýr matarmarkaður
Búrið og Beint frá býli
standa fyrir matarmarkaði
í tilefni af alþjóðlegum degi
móður jarðar.
allt 2
ÉLJAGANGUR norðanlands
en bjart sunnan til. Hvasst allra
austast en annars hægari. Bætir
heldur í frost í dag.
VEÐUR 4
-8
-8 -8
-12
-11
Ekki eldfimt ástand
Vel fer á með markvörðum
íslenska liðsins þrátt fyrir
að samkeppni ríki.
sport 60
Heimild: Könnun Fréttablaðsins og
Stöðvar 2 dagana 7. og 8. desember.
Já
35,7%
Nei
64,3%
Stuðningur við ráðherra
Finnst þér að Jón Bjarnason eigi að
sitja áfram sem sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra?
KÖNNUN Tæplega tveir af hverjum
þremur sem afstöðu tóku í nýrri
skoðanakönnun Fréttablaðsins og
Stöðvar 2 vilja að Jón Bjarnason
láti af embætti sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra.
Alls segjast 35,7 prósent þeirra
sem afstöðu taka vilja að Jón sitji
áfram sem ráðherra. Um 64,3
prósent vilja að hann hætti.
Stuðningur við Jón er lítið meiri
þegar eingöngu er skoðuð afstaða
stuðningsmanna flokks Jóns,
Vinstri grænna. Alls segjast 37,1
prósent þeirra sem segjast myndu
kjósa Vinstri græna vilja að Jón
haldi áfram sem ráðherra, en
62,9 prósent vilja að hann láti af
embætti sínu.
Meðal stuðn-
ingsmanna
Samfylkingar-
innar segjast
aðeins 8,3 pró-
sent vilja að
Jón sitji áfram,
en 91,7 prósent
vilja hann út
embætti.
Um 46,2 pró-
sent þeirra sem styðja Fram-
sóknarflokkinn vilja að Jón haldi
ráðherrastól sínum, og 34,5 pró-
sent stuðningsmanna Sjálfstæðis-
flokksins.
Heldur fleiri karlar en konur
vilja að Jón sitji áfram. Um 38,3
prósent karla vilja að hann verði
áfram ráðherra en 32,6 prósent
kvenna.
Stuðningur við Jón er talsvert
meiri á landsbyggðinni en á höfuð-
borgarsvæðinu. Um 32,5 prósent
borgarbúa sem afstöðu taka vilja
að Jón sitji áfram, en 42,5 prósent
íbúa landsbyggðarinnar.
Hringt var í 800 manns dagana
7. og 8. desember. Þátttakendur
voru valdir með slembiúrtaki úr
þjóðskrá. Svarendur skiptust jafnt
eftir kyni, og hlutfallslega eftir
búsetu og aldri.
Spurt var: Finnst þér að Jón
Bjarnason eigi að sitja áfram sem
sjávarútvegs- og landbúnaðar-
ráðherra? Alls tóku 75,4 prósent
afstöðu til spurningarinnar. - bj
Um 64% vilja að Jón hætti
Jón Bjarnason nýtur stuðnings þriðjungs landsmanna til að gegna embætti ráðherra samkvæmt könnun
Fréttablaðsins og Stöðvar 2. Nærri tveir af þremur stuðningsmanna Vinstri grænna vilja Jón úr embætti.
JÓN BJARNASON
DAGUR RAUÐA NEFSINS
Sérblað fylgir Fréttablaðinu í dag
SKEMMTUN Dagur rauða nefsins,
fjáröflunarviðburður UNICEF,
verður sýndur í opinni dagskrá
á Stöð 2 í kvöld. Viðburðurinn
hefur það að meginmarkmiði að
safna fleiri heimsforeldrum UNI-
CEF, en þeir greiða mánaðar legt
framlag til samtakanna.
Þetta er í fjórða sinn sem
Dagur rauða nefsins er haldinn.
Alls eru vel á sautjánda þúsund
Íslendinga í hópi mánaðarlegra
styrktaraðila og bættust lang-
flestir þeirra í hópinn eftir fyrri
fjáröflunarviðburðina.
Dagskráin hefst klukkan
19.30 í kvöld undir stjórn Ilmar
Kristjánsdóttur og Þorsteins
Guðmundssonar. Þá verða um
hundrað manns í sjálfboða-
vinnu við að taka á móti nýjum
heimsforeldrum í símaverinu,
þeirra á meðal þjóðþekkt fólk.
Úr símaverinu segir svo Freyr
Eyjólfsson útvarpsmaður reglu-
lega fréttir, líkt og Björn Bragi
og Þórunn Antonía úr Týndu
kynslóðinni.
Þá hafa fjölmargir skemmti-
kraftar léð viðburðinum krafta
sína. Spaugstofan tók upp atriði
í frítíma sínum, líkt og Steindi
Jr. og grínhópurinn Mið-Ísland,
og áhorfendum verður jafnframt
boðið upp á ýmis önnur skemmti-
og tónlistaratriði. - sh / sjá síðu 54
UNICEF fær fjölda skemmtikrafta í sjónvarpssal á fjórða Degi rauða nefsins:
Safna heimsforeldrum í beinni
HÓPKNÚS Á DANSGÓLFINU Alþingismenn úr öllum flokkum hyggjast stíga dans í fjáröflunarútsendingu UNICEF á Stöð 2 í
kvöld. Þuríður Backman, Pétur Blöndal, Sigmundur Ernir Rúnarsson, Höskuldur Þórhallsson, Margrét Tryggvadóttir, Ólína
Þorvarðardóttir og Vigdís Hauksdóttir voru galvösk og innileg á æfingu í Listdansskóla Íslands í gærkvöld. FRÉTTABLAÐIÐ ANTON
VIÐSKIPTI Tilboð fyrir fjörutíu
milljarða bárust í tuttugu til
þrjátíu prósenta hlut í Högum í
útboði sem stóð frá mánudegi til
fimmtudags. Um þrjú þúsund til-
boð bárust í útboðinu, sem var
í umsjón fyrirtækjaráðgjafar
Arion banka.
Bæði almenningi og fagfjár-
festum var gefinn kostur á að
skrá sig fyrir samtals 20 til 30
prósentum af útgefnum hlutum í
félaginu. Hægt var að senda inn
tilboð á bilinu 100 þúsund til 500
milljónir og á genginu 11 til 13,5.
Þessi mikla eftirspurn þýðir að
hver aðili fær í mesta lagi hluta
af sínu tilboði samþykktan.
Endanleg stærð útboðsins,
verð, skipting og úthlutun bréfa
mun liggja fyrir í dag. Arion
banki á enn 31,7 til 41,7 prósent
í Högum eftir útboðið. Bankinn
þarf að selja þann hlut fyrir 1.
mars á næsta ári vegna skilyrða
sem Fjármálaeftirlitið hefur sett.
Hagar er fyrsta hlutafélagið
sem er skráð í Kauphöllina eftir
bankahrunið. - þeb
Mikil eftirspurn í útboði:
Tilboð fyrir 40
milljarða í Haga