Fréttablaðið - 09.12.2011, Blaðsíða 80
9. desember 2011 FÖSTUDAGUR52
Árið sem senn er að líða var nokkuð viðburðaríkt í heimi hátískunnar og má þar nefna manna-
breytingar hjá tískuhúsunum og tvö stórkostleg brúðkaup.
SKANDALARNIR SEM SKÓKU
TÍSKUHEIMINN Á ÁRINU
6. ANDREJ
PEJIC Á LISTA
FALLEGUSTU
KVENNA
Fyrirsætan Andrej Pejic
vermdi 98. sæti á lista
tímaritsins FHM yfir
kynþokkafyllstu konur
heims. Þetta þætti ekki
skrýtið nema vegna
þess að Pejic er karl-
maður en hefur þrátt
fyrir það setið margoft
fyrir í kvenmannsfötum
á síðum tískublaða.
7. LOUBOUTIN GEGN YSL
Er tískuhúsið YSL frumsýndi hælaskó með
rauðum sólum ákvað skóhönnuðurinn
Christian Louboutin að kæra það
fyrir vörumerkjastuld. Louboutin
vildi meina að hann ætti einka-
rétt á rauðu sólunum enda hans
kennitákn. Dómari dæmdi þó
YSL í vil og lét þau orð falla
að ógjörningur væri að ætla
sér að eiga lit.
8. KANYE WEST
KLÚÐRAR HÖNN-
UNARFERLINUM
Rapparinn Kanye West
ákvað að söðla um á árinu
og reyna fyrir sér sem hönn-
uður. Fyrst hugðist hann
sækja um í fatahönnunar-
nám í Central Saint Martins
í London en í stað þess tók
hann sig til og frumsýndi
fatalínu sem hann hannaði
á tískuvikunni í París. Línan
hlaut hræðilega dóma enda
voru fötin illa sniðin og
óklæðileg.
10. AMERICAN
APPAREL-
SKANDALLINN
Nokkrar starfsstúlkur banda-
ríska fatamerkisins American
Apparel kærðu Dov Charney,
forstjóra fyrirtækisins, fyrir
kynferðislegt áreiti. Ein
þeirra sagði Charney hafa
sent sér dónalegan netpóst
og myndir af sér auk þess
sem hann áreitti hana
kynferðislega.
2. EMMANUELLE ALT
TEKUR VIÐ FRANSKA VOGUE
Margir sáu eftir Carine Roitfeld er hún hætti sem ritstjóri
franska Vogue í byrjun ársins. Það var Emmanuelle Alt sem
tók við keflinu og prýddi Gisele Bündchen fyrstu forsíðu Alt
sem þótti heldur óspennandi.
5. JENNA LYONS
Jenna Lyons, listrænn
stjórnandi tískumerkisins J.
Crew, komst tvisvar í frétt-
irnar á þessu ári. Fyrst var
Lyons gagnrýnd fyrir að lakka
táneglur sonar síns í bæklingi
frá J.Crew og töldu einhverjir
að hún gerði barninu grikk og
að hann gæti þróað með sér
kynsemdarraskanir í kjölfarið.
Lyons komst aftur í fréttirnar
þegar hún tók saman við
konu eftir að hún skildi við
eiginmanninn.
3. CHRISTOPHE DECARNIN
YFIRGEFUR BALMAIN
Yfirhönnuður Balmain var fjarri góðu gamni á tískusýningu
merkisins í mars síðastliðnum. Það kom í ljós að hönnuðurinn
hafði fengið taugaáfall og verið lagður inn á sjúkrahús. Stuttu
síðar tilkynnti Balmain að Decarnin væri hættur sem yfirhönn-
uður hússins og var það Melanie Ward sem fyllti í skarðið.
4. BRÚÐARKJÓLAR
KATE MIDDLETON OG KATE MOSS
Fyrirsætan og prinsessan gengu báðar í heilagt hjónaband á
árinu og ríkti mikil eftirvænting meða tískuspekúlanta sem og
almennings eftir því að sjá brúðarkjólana. Kjóll Middleton var
hannaður af Söruh Burton en kjóll Moss af Galliano.
1. JOHN GALLIANO-SKANDALLINN
Hönnuðurinn John Galliano var rekinn sem yfirhönnuður
Dior-tískuhússins eftir að hann var kærður fyrir kynþátta-
hatur. Myndband náðist af hönnuðinum þar sem hann sat á
knæpu í París og lýsti því meðal annars yfir að hann „elskaði
Hitler“. Galliano var í kjölfarið rekinn frá Dior en tískuhúsinu
hefur gengið illa að finna arftaka hans.
NORDICPHOTOS/GETTY
9. AUGLÝSINGAR
MEÐ BÖRNUM
Auglýsing franska undir-
fataframleiðandans Jours
Après Lunes fyrir barnalínu
sína þótti einstaklega
ósmekkleg og olli miklu
fjaðrafoki. Það þótti
myndaþáttur Toms Ford
fyrir franska Vogue einnig,
en hann valdi sér barn-
ungar fyrirsætur.