Fréttablaðið - 09.12.2011, Blaðsíða 94

Fréttablaðið - 09.12.2011, Blaðsíða 94
9. desember 2011 FÖSTUDAGUR66 FÖSTUDAGSLAGIÐ „Það er alltaf samkeppni á milli þeirra. Þeir eru báðir skapmenn og metnaðarfullir strákar. Báðir myndu að sjálfsögðu vilja selja meira en hinn,“ segir Ásthildur Ragnarsdóttir, móðir popparanna Jóns Jónssonar og Friðriks Dórs. Jón Jónsson hefur selt fyrstu plötu sína, Wait for Fate sem kom út í sumar, í um 3.500 eintökum. Þar með hefur hann tekið fram úr litla bróður sínum Friðriki Dór í sölu. Sá síðarnefndi gaf seint á síðasta ári út sína fyrstu plötu, Allt sem þú átt. Hún seldist í um 2.000 eintök- um í fyrra en er núna komin sam- anlagt í um 2.600 eintök, að sögn útgefandans Senu. Friðrik Dór hefur þó verið dug- legri en bróðir hans við að selja hringitóna og lög á netinu og fá áhorf á Youtube, enda tveir ólíkir markhópar sem hlusta á tónlistina þeirra. Jón Jónsson syngur popplög sem ná til yngri jafnt sem eldri ald- urshópa á meðan Friðrik Dór bland- ar saman poppi og R&B-tónlist, sem yngri hlustendur hrífast meira af. Ásthildur móðir þeirra segir það hafa komið sér og föður þeirra mest á óvart hve Friðrik Dór hefur náð langt. „Jón var búinn að vera að troða upp og syngja í langan tíma. Hann var tólf ára þegar hann kom fyrst fram á Stöð 2 í Íslandi í dag og var oft að syngja á jólaskemmt- unum fyrir Hafnarfjarðarbæ. En þetta kom okkur verulega á óvart með Friðrik.“ Bræðurnir halda sína fyrstu „alvöru“ tónleika saman í Bæjar- bíói í Hafnarfirði 16. desember og að sjálfsögðu verður Ásthildur á staðnum. „Jú, jú, ég er áhangandi númer eitt.“ Jón og Friðrik Dór eru báðir á mála hjá Senu. Aðspurður segir útgáfustjórinn Eiður Arnarsson þá hafa staðið vel undir væntingum. „Í sjálfu sér vorum við nokkuð sáttir við sölu Friðriks í fyrra. Um er að ræða plötu fyrir kaupendahóp sem hefur ekki verið mjög duglegur við að kaupa geisladiska,“ segir hann. „Með Jón voru efri mörk vænting- anna um þrjú þúsund. Hann er að gera enn betur en við áttum von á.“ Eiður segir Jón sjarmerandi náunga sem hafi tekist að hrífa fólk með sér. „Honum hefur tek- ist það sem er stundum erfitt fyrir listamenn sem syngja á ensku og hljóma svolítið útlenskir. Honum hefur tekist að búa til tengingu á milli þeirra laga sem þú heyrir í útvarpinu og íslenska listamanns- ins. Hann týnist ekki eins og sumir hafa gert með svona efni.“ freyr@frettabladid.is ÁSTHILDUR RAGNARSDÓTTIR: ALLTAF SAMKEPPNI Á MILLI ÞEIRRA Jón Jónsson siglir fram úr litla bróður í plötusölu VINSÆLIR Bræðurnir Jón Jónsson og Friðrik Dór hafa selt plötur sínar í rúmlega sex þúsund eintökum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM „María Pálsdóttir leikur á móti mér í þessu atriði, hennar persóna heitir Hermann Gunnarsson, en ég held að þetta hafi nú ekkert verið meira henni að kenna en mér. Við vorum bara allar frekar æstar og misst- um okkur aðeins í lokaatriðinu,“ segir Alexía Björg Jóhannesdóttir leikkona. Hún rifbeinsbrotnaði í sýningu leikhópsins Pörupilta, Uppnám, í Þjóðleikhúskjallaranum um síðustu helgi. Lokaatriði Uppnáms er mikið slagsmálaatriði og Alexía segir þær hafa gefið allt í botn að þessu sinni, enda var kvikmyndafyrirtækið Saga Film að taka sýninguna upp þegar óhappið varð. Alexía er hins vegar hvergi af baki dottin og mun standa sína vakt á lokasýningu hópsins um helgina. Hún viðurkennir þó að það hafi komið henni glettilega á óvart hversu sársaukafullt það er að vera rifbeinsbrotinn. „Maður á erfitt með að anda og leggjast út af,“ segir Alexía, en hún leikur einnig stórt hlutverk í Kirsuberja- garði Borgarleikhússins. „Þar er ég bandbrjálaður dansandi töfra- maður og ég verð að viðurkenna að ég var hálfskælandi um síðustu helgi þrátt fyrir að hafa tekið heilar fjórar verkjatöflur.“ Eiginmaður Alexíu er Guðmundur Steingrímsson, sem í gær tilkynnti stofnun nýs stjórnmálaafls. Leik- konan segir að þrátt fyrir augljós- ar annir í kringum framboðið hafi Guðmundur gefið sér góðan tíma til að hjúkra henni. „Hann hefur alltaf verið mjög duglegur og hefur hjálp- að mér að leggjast niður. Ég held samt að hann sé hálfhræddur að koma við mig af ótta um að slasa mig enn frekar.“ - fgg Rifbeinsbrotnaði í slagsmálaatriði HÖRKUKVENDI Alexía Björg sýnir af sér mikla hörku og mun standa á sviði rifbeinsbrotin um helgina. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Líkt og í fyrra eru það Arnaldur Indriðason og Yrsa Sigurðardóttir sem hafa skorið sig nokkuð úr í jólabókaflóðinu þetta árið. Eins og Fréttablaðið greindi frá í gær skaust Yrsa upp fyrir Arnald og Einvígið hans á bóksölulista bókaútgefanda í eina skiptið sem listinn var ekki birtur en Arnaldur var kominn á kunnuglegan stað sam- kvæmt nýja listanum, sat þar makinda- lega í efsta sæti í gær. En það eru ekki bara vinsældir í harðspjaldabókum sem Arnaldur og Yrsa berjast um því þau eiga einnig tvær söluhæstu hljóðbækurnar um jólin samkvæmt upplýsingum frá Stefáni Hjörleifs- syni, fram- kvæmdastjóra Skynjunar. Það er Ingvar E. Sigurðs- son sem les Einvígið eftir Arnald en Elva Ósk Ólafsdóttir les Brakið. - fgg FRÉTTIR AF FÓLKI „Ég finn að orðstír hátíðarinnar hefur vaxið. Það er vel talað um hana og mikil aðsókn í að koma hingað,“ segir Grímur Atlason, framkvæmdastjóri Iceland Airwaves. Aukin áhersla hefur verið lögð á að heim- sækja erlendar tónlistarhátíðir til að koma Airwaves betur á framfæri og íslenskum tón- listarmönnum og hefur það skilað sér í meiri áhuga á hátíðinni. „Frá því að ég tók við höfum við lagt mikla áherslu á að við séum í tengslum við sambærilegar hátíðir. Það er vesen að koma hingað því við erum langt í burtu frá öllum,“ segir Grímur. „Síðustu tvö árin höfum við farið mjög víða. Við höfum tekið með okkur hljómsveitir á ýmsa staði og hjálpað hljómsveitum og það er að skila sér.“ Sem dæmi um þetta má nefna að Grímur var nýverið staddur á hátíðinni M For Montreal í Kanada ásamt Of Monsters and Men og For a Minor Reflection. Þar spiluðu hljómsveitirnar undir merkjum Airwaves og fengu góðar viðtökur. Í janúar er fulltrú- um Airwaves svo boðið til Hollands þar sem hin árlega bransahátíð Eurosonic fer fram. Íslenskum böndum hefur fjölgað þar undanfarið og í ár stíga Hjálmar, Ghostigital og Sóley þar á svið. Einnig verður íslensk tónlist kynnt á hátíðinni by:Larm í Ósló í febrúar. Miðasala er hafin á næstu Airwaves- hátíð og þegar hafa selst nokkur hundruð miðar. Þar af hefur Icelandair selt um fimmtíu pakkaferðir. Síðasta hátíð fékk mjög jákvæða umfjöllun erlendis í fjölmiðl- um á borð við Rolling Stone, Mojo, BBC og Billboard. - fb Orðstír Airwaves vex erlendis GÓÐUR ORÐSTÍR Að sögn Gríms Atlasonar hefur orðstír tónlistarhátíðarinnar vaxið mikið erlendis. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI „Survivor með Destiny‘s Child og spilað nógu hátt til að trufla gangráða í 50 metra radíus.“ Andri Þór Sturluson, ritsjóri vefmiðilsins Sannleikurinn.com.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.