Fréttablaðið


Fréttablaðið - 09.12.2011, Qupperneq 12

Fréttablaðið - 09.12.2011, Qupperneq 12
9. desember 2011 FÖSTUDAGUR12 STJÓRNSÝSLA Hafnarfjarðarbær hefur samið við þýsku fjármála- stofnanirnar DEPFA ACS og FMS Wertmanagement um framleng- ingu á erlendum lánum sveitar- félagsins. Samkomulagið nær yfir 13 milljarða af skuldum Hafnar- fjarðar. Þar af voru 4,3 milljarð- ar á gjalddaga í apríl síðastliðn- um og 5,5 milljarðar á gjalddaga í janúar á næsta ári. Skuldir bæjarins voru um síð- ustu áramót rúmir 30 milljarð- ar króna, sem jafngildir 243 prósentum af tekjum bæjarins í fyrra. „Þetta sam- komulag hefur gríðarlega mikla þýðingu fyrir bæinn því þetta eyðir þeirri óvissu sem við höfum búið við. Þetta setur afborgun- arferlið í þann- ig ramma að það rúmast vel innan þeirra fjár- hagsáætlana sem við höfum gert til næstu ára,“ segir Guðmundur Rúnar Árnason, bæjarstjóri Hafnarfjarðar, og bætir því við að fínt jafnvægi sé að nást í rekstur bæjarins eftir erfið ár. Samkomulagið kveður á um lán til fjögurra ára með afborg- unum og greiðslu vaxta á þriggja mánaða fresti. Í tilkynningu frá bænum segir að sveitarfélagið geti vel staðið undir greiðslum af láninu. Þá leggur bærinn meðal annars óseldar en skipulagð- ar lóðir í bænum og skuldabréf við Alterra Power (áður Magma Energy) að veði fyrir láninu. Fjárhagsáætlun fyrir árið 2012 var lögð fram í bæjarstjórn á miðvikudag. Stefnt er að því að rekstarniðurstaða A- og B-hluta verði samanlagt jákvæð um 156,7 milljónir. Á árinu er ráðgert að greiða niður lán að fjárhæð 1,4 milljarðar króna en áætlað veltu- fé samantekið frá rekstri A- og B- hluta er áætlað 1,9 milljarðar. Þá er í fjárhagsáætluninni gert ráð fyrir hóflegum hækkunum á gjaldskrá sveitarfélagsins en samkvæmt tilkynningu munu þær í flestum tilfellum aðeins fylgja verðlagsbreytingum og hækkunum á verði aðfanga og launa. - mþl Fjárhagsáætlun fyrir árið 2012 gerir ráð fyrir afgangi af rekstri og niðurgreiðslu á lánum: Hafnarfjarðarbær semur um erlend lán GUÐMUNDUR RÚNAR ÁRNASON MEÐ HNÍFINN Á LOFTI Á helgideginum Ashura minnast sumir múslímar sorgardags í sögunni með því að skera sig til blóðs, eins og þessi maður í Bagdad. NORDICPHOTOS/AFP Bæjarstjórn Akureyrar auglýsir hér með tillögu að breytingu á aðalskipulagi skv. skipulagslögum nr. 123/2010. Í tillögunni er gert ráð fyrir nýrri háspennulínu, Blöndulínu 3, tengivirki við Kífsá og háspennustrengjum að tengivirki á Rangárvöllum og þaðan að Krossanesi. Tillöguuppdráttur ásamt greinargerð mun liggja frammi í þjónustuanddyri Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 1. hæð, frá 7. desember 2011 til 19. janúar 2012, svo að þeir sem þess óska geti kynnt sér tillöguna og gert við hana athugasemdir. Tillagan er einnig birt á heimasíðu Akureyrarkaupstaðar, www.akureyri.is/skipulagsdeild. Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna rennur út kl. 16.00 fimmtudaginn 19. janúar 2012 og skal athugasemdum skilað skriflega til skipulagsdeildar Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 3. hæð, og/eða í tölvupósti (arnarb@akureyri.is) þar sem nafn, kennitala og heimilisfang sendanda kemur fram. Skipulagsstjóri Akureyrarkaupstaðar Flutningslínur raforku og tengivirki við Kífsá Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is – Afslátt eða gott verð? Kletthálsi 7 - Reykjavík Fuglavík 18 - Reykjanesbæ Furuvöllum 15 - Akureyri GOTT FYRIR BÍLINN Deka Tjöru- og olíu- hreinsir 4 lítrar 1.550 Rúðuvökvi -18 C 4 lítrar 540 TIA-JM-3340 Bílaþvottakústur 1.795 1400W 360 min/lit/klst Þolir 50C heitt vatn 5 metra barki Sápubox Black&Decker háþrýstidæla 110 bar 15.900 Álskófla S805-2Y 1.590,- FÓLK Jón Gnarr borgarstjóri opn- aði nýjan jólamarkað á Ingólfs- torgi í gærdag. Markaðurinn verður opinn á torginu til jóla, en hann er hluti af átaki borgarinn- ar sem nefnist Jólaborgin Reykja- vík. Á jólamarkaðnum verður ýmislegt til sölu í bjálkakofum sem þar hefur verið komið fyrir. Meðal þess er hönnun, handverk, kjöt beint frá býli, jólaskraut og fleira jólatengt. Þá verða ýmsir viðburðir á torginu í tengslum við markaðinn sem og annars staðar í borginni. Jón Gnarr afhenti viðurkenn- ingarskjöl fyrir fegurstu jóla- glugganna í miðborginni og fengu Aurum í Bankastræti og Eva og Nostalgía á Laugavegi viðurkenn- ingar. - þeb Jólamarkaður á Ingólfstorgi verður opinn alla daga fram að jólum: Borgarstjóri opnaði jólamarkað INGÓLFSTORG Í JÓLABÚNINGI Talsverður fjöldi fólks lagði leið sína á Ingólfstorg síðdegis í gær þegar markaðurinn var opnaður þar. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI LÖGREGLUMÁL Hlutfall erlendra ríkisborgara sem kærðir hafa verið fyrir afbrot hér á landi er orðið það sama og það var fyrir tíu árum, eða um 1,9 prósent af heild- arfjölda skráðra á landinu. Hafa ber í huga að fleiri erlendir ríkisborgarar eru hér á landi heldur en töl- urnar segja til um, því ekki er hægt að aðgreina ferða- menn sem ger- ast brotlegir og ekki eru allir þeir sem eru búsettir hér skráðir í þjóðskrá. Samkvæmt tölum Hagstofunn- ar fyrir árið 2010 voru rúmlega 21.700 erlendir ríkisborgarar skráðir á Íslandi, sem er fækk- un um tæplega 3.000 manns frá árinu áður, þegar skráðir voru um 24.400 einstaklingar. Árið 2005 voru erlendir ríkisborgarar 10.600 talsins. Helgi Gunnlaugsson afbrota- fræðingur segir mikilvægt að átta sig á að dreifing þeirra erlendu ríkisborgara sem hér voru árin 2007 og 2008 sé allt önnur en Íslendinga og bendir þar sérstak- lega á að hlutfall meintra brota- manna sé komið í samt horf og fyrir tíu árum. „Það er afar áhugavert,“ segir Helgi, en árið 2000 voru um 7.300 erlendir ríkisborgarar skráðir í þjóðskrá, þrefalt færri en í dag. „Hlutfall erlendra ríkisborgara er talsvert hátt hér á landi, eða yfir sjö prósent. Vissulega hefur það minnkað á allra síðustu árum, en ekki eins mikið og allir vilja meina,“ segir Helgi og bendir á að meirihluti þeirra sem hér voru á góðærisárunum voru í miklum meirihluta karlar í yngri kant- inum, á þeim aldri þar sem brot koma upp að öllu jöfnu. „Það var sá hópur sem sést mest í gögnum lögreglu yfirleitt svo það er ekki óeðlilegt að sjá hærri pró- sentutölu hjá erlendum ríkisborg- urum en hjá Íslendingum þar sem þeir dreifast öðruvísi.“ Helgi segir brýnt fyrir almenn- ing að átta sig á að ef heildar- fjöldi yfir þjóðerni brotamanna hér á landi er skoðaður kemur það afar skýrt í ljós að í langflest- um tilvikum eru brotin framin af Íslendingum. „En þegar þessi einstöku mál koma upp, eins og til dæmis úraránið, þá virðist fólk fá á til- finninguna að brotamennirnir séu meira og minna útlendingar. En það er bara alls ekki þannig,“ segir hann og undirstrikar að slík hugsun ýti undir fordóma og jafnvel útlendingahatur. Rannveig Þórisdóttir, deildar- stjóri hjá lögreglunni á höfuðborg- arsvæðinu, segir að þó tölurnar væru leiðréttar fyrir aldri og kyni, sé samt umframhækkun á afbrot- um meðal erlendra karlmanna. Það skýrist líklegast af því að fólk skráir sig ekki alltaf inn í landið, líkt og áður sagði. „Því er fjöldinn ónákvæmur,“ útskýrir Rannveig. „Það skiptir máli þegar vantar þúsund manns í 20 þúsund manna hóp. En fyrir 300 þúsund skiptir það hlutfallslega mun minna máli.“ sunna@frettabladid.is Hlutfall meintra brotamanna Af fjölda íbúa 1998 til 2010 4 3,5 3 2,5 2 1,5 1 0,5 0 1998 1999 2000 2001 2002 2003 2004 2005 2006 2007 2008 2009 2010 % a f í bú af jö ld a ■ Erlendir ríkisborgarar ■ Íslenskir ríkisborgarar HEIMILD: LÖGREGLUSTJÓRINN Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU Hlutfall kærðra nú svipað og árið 2000 Hlutfall meintra erlendra brotamanna af fjölda íbúa hér á landi er orðið eins og það var árið 2000. Fór í 4% árið 2008 en er komið niður í 1,9%. Mikilvægt að skoða ólíka dreifingu íbúa á landinu eftir þjóðerni, segir afbrotafræðingur. HELGI GUNNLAUGSSON
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.