Fréttablaðið - 09.12.2011, Síða 32

Fréttablaðið - 09.12.2011, Síða 32
32 9. desember 2011 FÖSTUDAGUR STEINI/PÉSI &GAUR Á TROMMU Miðasala á gamlabi o.is og midi.is. Símanúm er í miðasölu 563 4000 . Opið mán.-mið. 14: 00-18:00 og fim.-sun. 14:00-2 0:00. Þú færð magavöðva af hlátri. Steindi – grínisti Hló endalaust í Gamla Bíó í kvöld – Steini & Pési fara á kostum!!! Jón Gunnar Geirdal – markaðsgúrú Ég hló allan tímann! Helga Braga – leikkona Takk fyrir frábæra skemmtun með Steina og Pétri í gærkvöld, ég vældi af hlátri :) Guðlaug Elísabet Ólafsdóttir – leikkona og grínisti Fimmtudagur 08.12.11 22:30 Fimmtudagur 15.12.11 20:00 Föstudagur 16.12.11 22:30 Aukasýning! Aukasýning! Síðustu sýningar fyrir jól! 25% jólaafsláttur fyrir duglega námsmenn í desember í miðasölu Gamla bíós. Í frétt á bls. 10 í Fréttablaðinu hinn 3. desember sl. er vitnað í ályktun 5 manna stjórnar Lands- sambands heilbrigðisstofnana, sem blandar sér í kjördæmapotið með ófaglegum hætti um mikil- vægi Reykjavíkurflugvallar fyrir bráðaþjónustu við landsbyggðina (sjá nánar: http://lhh.123.is/blog/ yearmonth/2011/10/default.aspx). Það vekur furðu Samtaka um betri byggð að Björn Zoëga for- stjóri og aðrir forsvarsmenn LSH hafi ekki brugðist strax við þess- ari ályktun þar sem hann og fleiri hafa staðfest opinberlega að það skipti engu um stækkun LSH hvort flugvöllur fari eða veri í Vatnsmýri. Þessi ólýðræðislega og umboðs- lausa 5 manna stjórn fer hér með grófum hætti gegn þeirri fag- mennsku, mannúð og mannviti sem krefjast verður af stjórn samtaka með jafnháfleygt og virðulegt heiti. Samtökum stofnana sem hafa það göfuga verkefni að bjarga mannslífum og bæta heilsu borg- aranna væri betur sæmandi að styðja einmitt þá stefnu að höfuðborgin losni við þá mein- semd sem flugvöllurinn í Vatns- mýri er. Þau ættu í staðinn að mæla með þéttri og blandaðri mið- borgarbyggð í Vatnsmýri. Þannig yrði vítahringur bílasamfélagsins rofinn, þörf fyrir akstur yrði allt að 40% minni en ella og umferðar- slysum með eigna- og líkamstjóni fækkaði að sama skapi. Þar með sköpuðust betri aðstæður fyrir sjúkraflutninga, eldvarnir, löggæslu, öryggis- gæslu og daglegt líf íbúa á höf- uðborgarsvæðinu. Splundrun byggðarinnar hefur leitt af sér mikla bílaumferð, einhverja þá mestu sem þekkist á byggðu bóli, sem kostar nú samfélagið á þriðja hundrað milljarða kr. á ári, með tilheyrandi heilbrigðis- og lýð- heilsuvanda af völdum mengunar, streitu, bílslysa, hreyfingarleysis og óheilbrigðs lífsstíls. Við í Samtökum um betri byggð bendum á eftirfarandi varðandi sjúkraflug: Ekki er verjandi að flytja sjúk- linga í óstöðugu ástandi með vængjuðu sjúkraflugi. Bráðveika og stórslasaða ber að flytja með þyrlu nema hægt sé að koma þeim í svo stöðugt ástand að flutnings- tími í sjúkraflugi hafi ekki áhrif á batahorfur. Stórbæta má sjúkraflug með brotabroti af því fjármagni sem nú er bundið í verðmætu byggingarlandi ríkisins undir flugbrautum í Vatnsmýri. Heildarflutningstími í vængj- uðu sjúkraflugi er nú a.m.k. 70 mínútur en er oftast nokkrar klukkustundir. Lenging þessa tíma um 10-30 mínútur við komu á LSH breytir því augljóslega engu. Sjúkraflutninga má bæta veru- lega með bættu skipulagi og þjálf- un, meiri mannafla, auknum fjölda farartækja (bíla, flugvéla og þyrla) og betri búnaði. Stytta má viðbragðstíma flugáhafna, sjúkrabílstjóra og hjúkrunarliðs. Athuga ætti hvort taka mætti í notkun léttari og hagkvæmari þyrlur við hlið þungra leitar- og björgunarþyrla Landhelgisgæsl- unnar. Eðlilegt er að ein eða fleiri þyrlur verði varanlega staðsettar utan Reykjavíkur. Sú fullyrðing að nánd nýs Land- spítala við Vatnsmýrarflugvöll sé mikilvæg á að sjálfsögðu ekki við rök að styðjast, sbr. t.d. opinber ummæli Björns Zoëga forstjóra og annarra forsvarsmanna LSH. Enda fyrirfinnast slíkar aðstæð- ur hvergi. Núverandi staðsetning flugvallar í Vatnsmýri þrengir hins vegar mjög að umferð í Vest- urborginni og getur m.a. torveld- að neyðaraðkomu að LSH. Óþarft er að deila við stjórn LH um þessi efni en benda má henni á u.þ.b. 20 blaðsíðna opinbera, faglega skýrslu um sjúkraflutn- inga á slóðinni: Sjúkraflutning- ar á Íslandi: Tillögur nefndar 31. janúar 2008, enda byggjum við málflutning okkar um sjúkra- flutninga á henni. Kjördæmapot Á Íslandi er bara eitt fyrirtæki sem veitir upplýsingar um símanúmer einstaklinga. Það selur þjónustu sína fyrir meira en þús- und milljónir á ári og enginn getur veitt því samkeppni á þessu sviði. Árið 2009 var hagnaður þess fyrir skatta 281 milljón – 28% af veltu eða 48% arðsemi eigin fjár, sam- kvæmt upplýsingum frá Frjálsri verslun. Það ár voru fá fyrirtæki á Íslandi sem græddu meira. Þjónust- an er dýr enda er það þekkt stef hjá fyrirtækjum með einokunarstöðu á markaði. Þessi aðili er Já Upplýs- ingaveitur og hér á eftir er sagan af baráttu Miðlunar fyrir að fá að veita ódýrari þjónustu í samkeppni við Já. Sagan byrjar fyrir mörgum árum, þegar Símaskráin og 118 voru í höndum Pósts og síma. Árið 2005 var Síminn einkavædd- ur – kaupendurnir voru bræðurn- ir Ágúst og Lýður Guðmundssynir (Exista), Kaupþing og aðrir fjár- málamenn. Exista fór í þrot og haustið 2010 keyptu stjórnendur Já og óþekktur fjárfestingarsjóður fyrirtækið – þessir aðilar eiga það í dag. Þegar Póstur og sími átti fyrir- tækið var viðskiptalífið einfalt. Í þá daga var einfaldlega bannað með lögum og reglugerðum að keppa við 118. Þegar Síminn átti fyrir- tækið var komið í veg fyrir sam- keppni með tæknilegum aðgangs- hindrunum. Þegar fyrirtækið var selt stjórnendum haustið 2010 töld- um við starfsmenn Miðlunar að nú gæfist tækifæri til að hefja sam- keppni og bjóða ódýrari þjónustu. Já Upplýsingaveitum var skylt samkvæmt reglum að selja þriðja aðila gögn með nöfnum og síma- númerum einstaklinga sem þær fengu frá símafyrirtækjunum. Þetta ákvæði var sett í reglur fyrir nokkrum árum til að reyna að skapa samkeppni. Starfsmenn Miðlunar voru til- búnir í samkeppni haustið 2010. Reglurnar voru til staðar og Já Upp- lýsingaveitur voru ekki lengur hluti af Símanum. Það hlaut því að vera hægt að hefja samkeppni með því að opna nýja símaþjónustu sem veitti ódýrari upplýsingar um símanúmer einstaklinga en gert er í 118. Við sendum fyrirspurn til Já Upp- lýsingaveitna um verð á upplýsing- um í samræmi við þær reglur sem þá voru í gildi. Svarið barst fljótt – 42 krónur áttum við að greiða fyrir uppflettingu ef við nýttum upplýs- ingarnar til að veita þjónustu í síma í samkeppni við 118 en 125 krónur ef við ætluðum að keppa við Já með því að bjóða sams konar þjónustu á netinu. Þessi verð eru galin og útiloka algerlega samkeppni. Við báðum Póst og fjarskipta- stofnun að athuga málið – þetta gat ekki verið eðlilegt. Póst og fjar- skiptastofnun vann fljótt og vel og skilaði bráðabirgðaniðurstöðum síðastliðið sumar. Niðurstaðan var að verðið ætti að vera 1,14 – ein króna og fjórtán aurar – fyrir hverja uppflettingu óháð notkun á upplýsingunum. Mun- urinn er mörg þúsund prósent. Það er augljóst að verðskrá Já var sett fram til að koma í veg fyrir eðlilega samkeppni. Miðlun hafði unnið sigur; með þessum úrskurði Póst og fjarskipta- stofnunar var ljóst að samkeppni gæti hafist. Neytendur hefðu fengið fleiri valkosti og ódýrari þjónustu. Hagnaðurinn hjá Já Upplýsinga- veitum hf. hefði mögulega minnk- að eitthvað aðeins en staða þeirra hefði áfram orðið sterk. En þessu gátu Já Upplýsingaveitur ekki unað – örfáum dögum eftir að úrskurð- ur Póst og fjarskiptastofnunar lá fyrir kærði fyrirtækið reglurnar sem gerðu því skylt að veita þriðja aðila aðgang að upplýsingum. Af einhverjum ástæðum vann fyrir- tækið það mál og tryggði sér einok- un á þessum markaði enn um sinn. Þar með er ekki öll sagan sögð. Ef einokun Já Upplýsingaveitna verð- ur aflétt fær fyrirtækið að veita sína þjónustu í þriggja stafa núm- eri eins og 118 á meðan mögulegir keppinautar þurfa að nota fjögurra stafa númer – í okkar tilfelli núm- erið 1800. Þetta er eins og Bónus væri leyft að vera með verslanir í Reykjavík en Krónan fengi bara að vera úti á landi. Þetta er samt ekki það versta varðandi númerið 118. Þannig er að Póst- og fjarskiptastofnun hefur for- ræði yfir símanúmerinu 118. Í þetta símanúmer er líklega hringt fimm milljón sinnum á ári til að spyrjast fyrir um símanúmer. Símtalið er dýrt, þannig að tekjur sem fylgja þessum hringingum eru líklega 500-700 milljónir á ári. Hinn 10. febrúar 2011 fengu Já Upplýsingaveitur þessu númeri úthlutað til ársins 2016. Það þýðir að þær fá tekjurnar af innhring- ingum í fimm ár, það eru samtals 2.500–3.000 milljónir án þess að rætt væri við aðra eða þjónustan boðin út! Þetta hljómar ótrúlega en haustið 2010 keyptu stjórnend- ur Já og óþekktir fjárfestar starf- semi fyrirtækisins, fjórum mánuð- um síðar voru þeim tryggðar tekjur af símtölum í númerið 118 til fimm ára, líklega að upphæð 2.500–3.000 milljónir! Það er skylda stjórnvalda að eyða svona einokun og tryggja sam- keppni. Víða hefur verið gengið langt til að tryggja möguleika nýrra aðila til að hasla sér völl á einokunar- mörkuðum. Á fjarskiptamarkaði er nýjum fyrirtækjum jafnvel tryggð betri staða en gömlum grón- um fyrirtækjum – þetta er kallað jákvæð mismunun. Við erum ekki að biðja um slíkt, við förum bara fram á að fá að keppa við Já Upplýs- ingaveitur á jafnræðisgrundvelli og veita neytendum ódýrari þjónustu. Við ætlum ekki að gefast upp. Miðlun hefur fengið úthlutað núm- erinu 1800 til að veita þjónustu í samkeppni við 118. Við vitum að það er hægt að bjóða ódýrari þjón- ustu en nú stendur til boða í 118. Það munum við gera um leið og einokun á þessum markaði verður afnumin. Já-málið Símaþjónusta Andri Árnason framkvæmdastjóri Miðlunar ehf Skipulagsmál Gunnar H. Gunnarsson verkfræðingur Örn Sigurðsson arkitekt Við ætlum ekki að gefast upp. Miðlun hefur fengið út- hlutað númerinu 1800 til að veita þjónustu í sam- keppni við 118. AF NETINU Að útkljá málin á netinu Hvernig dettur fólki í hug, í þessu fámenna landi, í þessu mikla nábýli, að ætla að fara gera út um alvarlegt sakamál á bloggi og spjallsíðum internetsins? Þetta hefur maður mátt horfa upp á síðustu daga – í ýmsum miður skemmti- legum myndum. Að þetta skuli vera orðið aðalhitamál desembermánaðar segir sitt um hversu erfitt við eigum með að umgangast nýmiðlana svokallaða – hversu stutt við erum komin áleiðis í að þróa heilbrigðar samskiptavenjur á þeim. Það má reyndar nefna fleiri upphlaup sem eru lýsandi fyrir þetta – þau eru bara ekki jafn alvarleg – eins og til dæmis hið óskiljanlega mál guðfræðikenn- arans sem móðgaði trúleysingjana, og svo má í raun lengi telja. Nýr dagur, nýtt upphlaup, ný geðshræring. http://silfuregils.eyjan Egill Helgason
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.