Fréttablaðið - 09.12.2011, Side 40

Fréttablaðið - 09.12.2011, Side 40
4 föstudagur 9. desember Sendum í póstkröfu 5.900.- 5.900.- 5.900.- 5.900.-Golla 4.950.- Kringlan 4 - 12 Reykjavík s: 588 - 1705 Hafnarstræti 106, göngugötunni Akureyri s: 463 - 3100 Lj ós m yn da ri He id a. is Aldur: 24 ára. Starf: Nemi í viðskiptafræði, móðir og fastakúnni í helstu sænsku tískuvöruverslunum fyrir kaupglaða Íslendinga. Hversu lengi hefur þú búið í Halm stad? Frá því í júlí 2009. Af hverju fluttirðu þangað? Við fjöl- skyldan fluttum hingað út þegar maðurinn minn byrjaði að spila handbolta hér í bænum. Ef þú mættir taka með einn hlut aftur heim til Íslands, hvað væri það? Frá því að ég flutti hingað hef ég tileinkað mér meira skipulag að hætti Svíanna. Einnig er ég dottin í hádegisverðar- menninguna. Það gerir mikið fyrir vinnudaginn ef maður sest niður í mat með fólkinu sínu í staðinn fyrir að borða á hlaupum eins og ég gerði oftast á Íslandi. Hvað er það fyrsta sem þú gerir á morgnana? Sest með kaffibollann minn við tölvuna og skipulegg daginn sem að er að hefjast. Hvaða stað má ekki missa af þegar borgin er sótt heim? Hér er að finna vin- sælustu strönd Svíþjóðar, Tylösand, og myndi ég segja að fólk mætti ekki missa af því að heimsækja hana á sólríkum sumardegi. Hvernig mundirðu lýsa þjóðinni í einni setningu? Skipulag og reglur eru einkennandi fyrir annars yndislegt fólk sem þó skilur ekki kaldhæðna íslenska húmorinn. Dagur í lífi Íslendings: Elísabet Gunnarsdóttir eigandi elisabetgunnars.com og námsmaður SVÍAR SKILJA EKKI ÍSLENSKAN HÚMOR Bókasafnið „Mjög flott bygging í miðbænum og lærdómurinn fer yfirleitt fram hér.“ Plaka „Í Svíþjóð er mikil hádegisverðarmenning. Plaka er okkar uppáhaldsstaður og þar eyði ég ófáum hádegunum. Þar er einnig mjög gott tapashlaðborð á föstudögum þar sem við förum gjarnan með vinum. Hér má sjá sambýlismanninn Gunnar Stein Jónsson.“ Monki „Uppáhaldsbúðin í Svíþjóð hjá mér og fleirum. Hér er ég fastakúnni að versla fyrir kaupglaða Íslendinga.“ Sænsk náttúra „Mæðgnastundir seinnipartinn fara oft fram úti í fallegri sænsku náttúrunni.“ Uppáhaldsgatan „Kaffihúsið Espresso House er í uppáhaldsgötunni minni í Halmstad. Við mæðgur förum hingað oft saman, hún með liti og litabók og ég sinni mínu á meðan.“ Halm- stad

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.