Fréttablaðið - 09.12.2011, Side 46

Fréttablaðið - 09.12.2011, Side 46
9. DESEMBER 2011 FÖSTUDAGUR2 ● UNICEF Upp er runninn harla óvenju- legur dagur; sjálfur dagur rauða nefsins. Að baki þessum merkisdegi er einföld hugmynd: Að gaman og gefandi sé að hjálpa þeim sem minna mega sín. Og hvað er meira viðeigandi tákn fyrir gleði og gaman en eldrautt trúðsnef? Einfaldur hlutur sem getur engu að síður dimmu í dagsljós breytt. Ógrynnin öll af frábærum ís- lenskum skemmtikröftum stend- ur að degi rauða nefsins ásamt UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna. Markmiðið er að bjóða upp á skemmtun sem skiptir máli, skemmtun sem skilur eitthvað áþreifanlegt og áhrifamikið eftir sig. Dagur rauða nefsins er einmitt þannig skemmtun. Og í raun meira en það; hann er skemmtun sem skiptir öllu máli fyrir þau börn sem munu njóta góðs af gamninu um ókomna tíð, þegar dagurinn er löngu liðinn og flest okkar horfin á vit nýrra ævintýra. Hápunktur dags rauða nefsins er söfnunar- og skemmtiþáttur í opinni dagskrá á Stöð 2 í kvöld þar sem sannkölluð lúxusblanda af skemmtikröftum þjóðar innar bregður á leik – hver með sínu nefi auðvitað. Á sama tíma verð- ur staldrað við sögur af börnum sem, þrátt fyrir ungan aldur, þurfa að kljást við vægast sagt erfiðar aðstæður, annars vegar í Afríku- ríkinu Síerra Leóne og hins vegar á Haítí. Saga þessara barna veitir innsýn í þær áskoranir sem blasa við svo allt of mörgum börnum um allan heim; börnum sem UNICEF kappkostar að hjálpa – að hjúkra, mennta og vernda. Í anda dagsins vonum við að sem flestir áhorfendur finni það hjá sér að leggja starfi UNICEF lið, og þá sérstaklega með því að ganga í hóp heimsforeldra. Heims- foreldrar styrkja UNICEF með mánaðarlegu framlagi og gera samtökunum þannig kleift að að- stoða börn um allan heim, börn sem svo nauðsynlega þurfa á hjálp og stuðningi að halda. Án framlags frá gjafmildu fólki gætu samtökin einfaldlega ekki sinnt þessu starfi. Verkefni UNICEF eru ærin og við vonum að þátturinn í kvöld hreyfi við ykkur. Að þið skemmtið ykkur vel og innilega en finnið á sama tíma til samkenndar og síð- ast en ekki síst fyrir hinni sönnu gleði sem felst í því að gefa. Gleðilegan dag rauða nefsins og góða skemmtun! Skemmtun sem skiptir öllu máli Það er óhætt að segja að boðið sé upp á frábæran söfnunar- og skemmtiþátt í kvöld í opinni dagskrá á Stöð 2. Það marg borgar sig að fylgjast með alveg frá upphafi til að missa ekki af einni einustu mínútu af því spennandi efni sem aðalkynnar kvöldsins, Þorsteinn Guðmundsson og Ilmur Kristjánsdóttir, koma til með að framreiða fyrir áhorfendur. Meðal þess sem þú mátt einfaldlega ekki missa af er: ● Frumflutningur á myndbandi Páls Óskars Hjálm- týssonar við lagið „Megi það byrja með mér“ sem hann samdi í tilefni af degi rauða nefsins í sam- starfi við Redd Lights. ● Dansatriðum rústabjörgunarsveitarmanna, starfs- manna Landhelgisgæslunnar og þingmanna. Hvernig í ósköpunum mun það fara? ● Uppistand frábærra grínista. Þar á meðal Ara Eld- járns, Sögu Garðarsdóttur, Uglu Egilsdóttur og hins síunga Ómars Ragnarssonar. ● Háleynileg innkoma Björgvins Halldórssonar. Hm, dularfullt! ● Spaugstofan og Mið-Ísland. Þarf að segja eitthvað meira? ● Fjöldinn allur af grínatriðum þar sem meðal annars koma fram Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Gunnar Hansson, Bergur Þór Ingólfs- son, María Heba Þorkelsdóttir, Katla Margrét Þorgeirsdóttir, Kjartan Guðjónsson og Guðlaug Elísabet Ólafsdóttir. ● Innslög frá heimsóknum Páls Óskars Hjálmtýssonar og Halldóru Geirharðsdóttur til Síerra Leóne og Haítí, þar sem þau skoðuðu aðstæður barna og verkefni UNICEF. LOVÍSA ELÍSABET SIGRÚNARDÓTTIR LAY LOW Af því að mér finnst það mikil- vægt. Þetta er það minnsta sem ég get gert og litlir hlutir geta skipt miklu máli. AF HVERJU ERTU HEIMSFORELDRI? Stefán Ingi Stefánsson segir mikinn fjölda skemmtikrafta gera dag rauða nefsins að veruleika. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON GUNNAR HANSSON Ég er svo heppinn að vera fædd- ur við allsnægtir, en það eru ekki allir. Börn eiga allt gott skilið, hvar sem þau búa. Heimsforeldri er mjög fallegt orð. Það minnir okkur á ábyrgð okkar gagnvart börnum heimsins. EDDA BJÖRGVINSDÓTTIR Ég er heimsforeldri vegna þess að það er einfaldlega skylda mín að styðja við bakið á þeim sem minna mega sín og eiga um sárt að binda. UNNUR ÖSP STEFÁNS DÓTTIR OG BJÖRN THÓRS Við viljum og verðum að taka þátt í að reyna að hafa áhrif á lífsviður- væri og líðan barna sem eiga um sárt að binda í hörmu- legu ástandi í stríði: Er ekki jörðin fyrir alla? KRISTÍN STEINSDÓTTIR Af hverju skyldi ég ekki vera það? Mig langar til að hjálpa og mér finnst ég ekki geta gert neitt betra við pen- ingana mína! MISSIÐ EKKI AF ÞÆTTINUM KLUKKAN 19.30 Í KVÖLD

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.