Fréttablaðið - 09.12.2011, Blaðsíða 48
9. DESEMBER 2011 FÖSTUDAGUR4 ● UNICEF
„Við fengum einfaldlega símtal
frá Unicef með ósk um að semja
lagið og maður segir ekki nei við
því,“ segir Ingi Már Úlfarsson,
spurður um tilurð Rauðanefslags-
ins, en hann og Jóhann Bjarkason
eru lagahöfundar í tvíeykinu Redd
Lights.
„Við höfum ekki unnið verk-
efni áður sem tengist góðgerðar-
málum en við hikuðum ekki við
að gefa vinnu okkar fyrir þennan
málstað,“ bætir hann við.
Páll Óskar Hjálmtýsson samdi
textann við lagið og segir Ingi
samstarfið hafa gengið vonum
framar. „Það gæti ekki hafa gengið
betur. Palli gengur hreint til verks
og veit upp á hár hvað hann er að
gera. Við sömdum nokkra grunna
og sendum honum. Hann kom svo
mjög fljótlega með texta og laglínu
við þann grunn sem honum leist
best á. Þetta var í fyrsta skipti
sem við unnum með Palla og við
vonumst til að það samstarf haldi
áfram, við stefnum á það.“
„Við unnum Gull af mönnum
með Steinda jr., Matta Matt og
Bent sem kom út seinasta sumar,
en það var mjög skemmtilegt
verkefni. Svo unnum við nánast
alla plötu Friðriks Dórs og stóran
part af plötu Erps Eyvindar sonar
og fengum gullplötu í hendurn-
ar fyrir plötu Erps á dögunum,“
segir Ingi, en þeir félagar halda
sig ekki við eina tónlistarstefnu.
„Nei, alls ekki. Í byrjun var þetta
aðallega rapp, svo R’n’B og svo
popp en við erum alltaf að skipta
um stíl. Við förum kannski langt í
eina átt en endum svo á að blanda
öllu saman.“
Ingi segir tilfinninguna góða
að geta stutt við góðan málstað á
þennan hátt. Páll Óskar hafi einn-
ig hrifið þá með sér með frásögn-
um sínum af ástandinu.
Palli er náttúrulega svo sann-
færandi og allt öðruvísi að heyra
einhvern segja frá hlutunum frá
fyrstu hendi en að lesa eitthvað
í bæklingum. Það er gott að fá
staðfestingu á að þetta er að gera
gagn.“
Gott að gera gagn
Ingi Már Úlfarsson og Jóhann Bjarkason, lagahöfundar Redd Lights sömdu Rauðanefslagið ásamt Páli Óskari. MYND/ANTON
Ef að ég gæti breytt öllum
heiminum
myndi ég kannski byrja hjá
börnunum.
Gefa þeim sól sumaryl
Þau lifa í heimi sem að þau
bjuggu ekki til
Ég hélt að ég gæti ekkert leyst
en nú hef ég sjálfur breyst
MEGI ÞAÐ BYRJA
MEÐ MÉR
ÞORSTEINN GUÐMUNDSSON
Hægt að monta
sig af því að gefa
Ilmur Kristjánsdóttir og Þorsteinn Guðmundsson eru
aðaldagskrárkynnar á degi rauða nefsins. Þau hafa lagt UNICEF
lið með margvíslegum hætti í gegnum tíðina. Þessir hjartans
vinir UNICEF svara hér nokkrum mjög mikilvægum spurningum.
Ef þú værir rautt nef í einn dag, á hverjum myndir þú vilja vera?
„Ég myndi gjarnan vilja vera á nefinu á manni með engar nasir.“
Ef þú mættir gefa hverjum sem er í mannkynssögunni rautt nef, hver yrði
það?
„Móður Theresu. Hún var voða góð en það vantaði smá húmor í hana, held ég.“
Er sælla að gefa en þiggja?
„Já, miklu sælla. Það er hægt að monta sig af því í mörg ár.“
Hvaða rauða nef finnst þér skemmtilegast (þ.e. Skotta, Skjóða eða
Skreppur) og af hverju?
„Skreppur er fínn. Hann kvartar ekki.“
Ef þú mættir búa til þitt eigið rauða nef, hvernig yrði það?
„Ég myndi hanna svolítið stórt nef sem væri langt og pínu á ská og kalla það
Gyllinæð.“
Hvernig er að kynna margra tíma dagskrá á degi rauða nefsins?
„Svolítið eins og að taka á móti þríburum.“
Verður þitt nef einhvern tímann rautt?
„Já, einu sinni reyndi ég að kreista unglingabólur á því og kreisti það næstum
óvart af mér.“
Ertu heimsforeldri?
„Já, vegna þess að konan mín sagði mér að
við ætluðum að gera það.“
Þekkirðu einhvern sem er alltaf
með rautt nef?
„Nei, en ég þekkti einu sinni dreng
með tvö rassgöt. Hann var
kallaður Gummi tvörassgöt.“
ILMUR KRISTJÁNSDÓTTIR
Ef þú værir rautt nef í einn dag, á hverjum myndir þú
vilja vera?
„Jólasveininum.“
Ef þú mættir gefa hverjum sem er í mannkynssögunni
rautt nef, hver yrði það?
„Ágústínusi keisara.“
Er sælla að gefa en þiggja?
„Já, það er sælla að gefa en maður
þarf líka að kunna að þiggja.“
Hvaða rauða nef finnst þér
skemmtilegast og af hverju?
„Þau eru best saman í hóp.“
Ef þú mættir búa til þitt eigið
rauða nef, hvernig yrði það?
„Það héti Friðrik og væri voða rólegt.“
Af hverju gefur þú vinnu þína á degi rauða nefsins?
„Mig langar til að hjálpa og þegar UNICEF biður þá svarar
maður kallinu.“
Hvernig er að kynna margra tíma dagskrá á degi rauða
nefsins?
„Strembið en ég ætla að láta Þorstein sjá um allt erfiðið.“
Verður þitt nef einhvern tímann rautt?
„Oft, ég er ofnæmissjúklingur.“
Ertu heimsforeldri?
„Já, af því að það skiptir máli og ég hef séð
það með eigin augum.“
Þekkirðu einhvern sem er alltaf með
rautt nef?
„Margir alkóhólistar, fólk með rósroða og
ofnæmissjúklingar.“