Fréttablaðið - 09.12.2011, Qupperneq 49
FÖSTUDAGUR 9. DESEMBER 2011 5UNICEF ●
Í MP banka er dagurinn tekinn
alveg sérstaklega hátíðlega. Ekki
er látið nægja að kaupa nef handa
öllum starfsmönnum bankans
heldur er boðið upp á rauða köku
með kaffinu auk þess sem blásið
er til veglegrar brandarakeppni
með það að markmiði að safna
áheitum.
„Starfsmenn flytja brandara
sem eru teknir upp og svo velj-
um við þann besta,“ segir Hildur
Þórisdóttir, starfs-
mannastjóri hjá MP
banka. Samstarfs-
fólkið getur svo
heitið á þann koll-
ega sem þeim finnst
standa sig best. Að
auki styrkir MP
banki svo UNICEF
um sem nemur verð-
mæti eins moskító-
nets, en moskítónet
sem börn sofa undir
á næturnar er víst
albesta vörnin gegn
malaríu.“
STOLT AÐ STYÐJA STARF UNICEF
Hildur veit ýmislegt um moskító-
net og annað sem lýtur að hjálp-
arstarfi fyrir börn eftir að hafa
fengið fróðlega heimsókn á starfs-
mannafund bankans.
„Við fengum starfsmann frá
UNICEF til að veita okkur innsýn
í það mikilvæga starf sem sam-
tökin vinna um allan heim. Starf
samtakanna í þágu barna er mjög
áhrifamikið og sérstaklega fannst
mér merkilegt hvað hefur í raun
og veru náðst mikill árangur á
mörgum sviðum – og ekki síður
hvað hver og einn getur lagt mikið
af mörkum, t.d. með því að gerast
heimsforeldri. Við höfum einmitt
hvatt bæði starfsfólk og viðskipta-
vini okkar til að gerast heimsfor-
eldrar, séu þeir það ekki nú þegar.
Til enn frekari hvatningar mun
bankinn styrkja UNICEF um
námsgagnapakka,
þ.e. 40 stílabækur
og 40 blýanta, fyrir
hvern starfsmann
sem er eða gerist
heimsforeldri.“
Hildur segir að
starfsfólk bankans
sé afar stolt af því að
taka þátt í degi rauða
nefsins. „Við höfum
tekið þátt í að vekja
athygli á þættinum
í kvöld með auglýs-
ingum auk þess sem
hægt hefur verið að
kaupa rauðu nefin í úti búum okkar.
Svo erum við auðvitað farin að
huga að jólum og munum senda jóla-
kort frá UNICEF til okkar helstu
samstarfsaðila. Það er nefnilega
hægt að leggja UNICEF lið á svo
ótal vegu. Það mikilvægasta er svo
auðvitað að stuðningurinn, í hvaða
mynd sem hann kemur, nýtist til að
bæta aðstæður bágstaddra barna
um allan heim. Það er markmið sem
allir ættu að vilja leggja lið.“
Það verður vafalaust mikil stemning á mörgum vinnustöðum
landsins í dag þar sem óhefðbundnum meðölum verður beitt til
að brjóta upp daglegt amstur. Fjöldi fyrirtækja hafur keypt nef
handa starfsfólki sínu og efnt er til ýmissa uppákoma, til gamans
en jafnframt til góðs.
Brandarakeppni,
nef og rauð kaka
Það er upplagt að koma sér í rétta gírinn fyrir kvöldið. Dagur rauða
nefsins er jú bara einu sinni á ári. Hér eru nokkrar hugmyndir að
því hvernig hægt er að koma sér og sínum í reglulega gott skap.
● Kauptu rautt nef, Skottu, Skrepp eða Skjóðu, og vertu með nefið
í allan dag.
● Farðu á Youtube og kíktu á gamalt rauðanefsgrín frá mörgum af
allra bestu grínurum landsins, svo sem Tvíhöfða, Sögu Garðars-
dóttur, Ara Eldjárn og aðalkynnunum kvöldsins, Ilmi Kristjáns-
dóttur og Þorsteini Guðmundssyni.
● Hlustaðu á lagið „Megi það byrja með mér“ eftir Pál Óskar
Hjálmtýsson og Redd Lights. Nú, eða eldri lög dags rauða nefs-
ins á borð við „Brostu“ með Baggalúti og „Hætt‘essu væli“ með
Ljótu hálfvitunum.
● Safnaðu áheitum frá vinum eða
vinnufélögum og gerðu eitthvað
sem þú ert ekki vanur að gera;
hvort sem það er að syngja allt
sem þú þarft að segja, tala ein-
ungis dönsku, búa til einstak-
lega flippaðan fésbókar-
status eða borða bara
rauðan mat.
● Skráðu þig sem heims-
foreldri á www.unicef.is
Hitað upp fyrir kvöldið ● VEITA VERND OG SKJÓL Á hverju ári gera styrktaraðilar UNI-
CEF samtökunum kleift að bæta líf
milljóna barna um allan heim; að
veita þeim heilsugæslu, vernd gegn
ofbeldi og misnotkun, menntun, að-
gang að vatni og skjól í neyð. Þessar
fallegu myndir eru af börnum sem
notið hafa góðs af starfi UNICEF.
„Við höfum hvatt bæði starfsfólk og viðskiptavini okkar til að gerast heimsforeldrar,” segir Hildur. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
„Við fengum
starfsmann
frá UNICEF
til að veita
okkur innsýn
í það starf
sem samtökin
vinna um allan
heim.”