Fréttablaðið - 09.12.2011, Side 51

Fréttablaðið - 09.12.2011, Side 51
FÖSTUDAGUR 9. DESEMBER 2011 7UNICEF ● Heimsforeldrar og aðrir styrktaraðilar UNICEF gegna mikilvægu hlutverki við að lækka tíðni barnadauða í heiminum. Tíðni dauðsfalla barna yngri en fimma ára lækkar nú tvö- falt hraðar en fyrir tíu árum. Bólusetning er ein ódýrasta og áhrifamesta að- ferðin til að koma í veg fyrir dauðs- föll barna yngri en fimm ára. Heimsforeldrar gera UNICEF kleift að bólusetja börn gegn hættulegum sjúkdómum en í fyrra bólusetti UNICEF 109 milljón börn gegn sex skæð- ustu sjúkdómunum. Menntun er nauðsynleg þroska hvers barns og lyk- ill samfélaga úr ógöngum fátæktar og sjúkdóma. Heimsforeldrar veita milljónum barna í fátækustu ríkj- um heims tækifæri til að læra. Allt of mörg börn eru fórnar lömb ofbeldis, þrælkunar og mis- notkunar. Með hjálp heims- foreldra vinn- ur UNICEF að því að treysta öryggis net berskjaldaðra barna. Með því að greina hvort ófrískar konur eru með HIV áður en að barnsburði kemur er hægt að minnka lík- urnar verulega á því að hið ófædda barn smitist við fæðingu. UNICEF leggur mikla áherslu á þetta. Náttúruhamfarir og átök koma alltaf verst niður á börnum. Heimsfor- eldrar gera UNICEF kleift að hjálpa berskjölduðum börnum þegar neyðar- ástand kemur upp en einn- ig eftir að mesta neyðin er yfirstaðin og kastljós fjöl- miðlanna beinist að öðru. UNICEF hefur verið leiðandi í hjálparstarfi fyrir börn í yfir 60 ár. Samtökin standa vörð um líf barna frá fæðingu til fullorðinsára og sinna bæði langtíma þróunar- aðstoð og neyðaraðstoð – óháð stjórnmálum og lífsskoðunum. UNICEF treystir alfarið á fjár- stuðning í gegnum frjáls framlög; frá einstaklingum, fyrirtækjum, félagasamtökum og ríkisstjórnum. Þetta þýðir m.a. að sú aðstoð sem samtökin veita bág stöddum börnum er algjörlega háð því hversu margir kjósa að leggja hjálparstarfinu lið, til dæmis með því að gerast heimsforeldrar, gefa stök framlög eða með kaupum á UNICEF-jólakortum, gjafavöru eða svokölluðum sönnum gjöfum. Á degi rauða nefsins er orðatil- tækið „hláturinn lengir lífið“ sett í nýtt og áhrifamikið samhengi. Inn- tak söfnunarátaksins er að gleðj- ast og gleðja aðra og þá sérstak- lega bágstödd börn í fátækari ríkj- um heims. Með því að slást í hóp heimsforeldra UNICEF um kvöldið leggja áhorfendur lið öflugu hjálp- arstarfi fyrir börn sem búa við bág kjör og erfiðar aðstæður. UNICEF er áhrifamesti mál- svari réttinda barna í heiminum. Leiðarljós samtakanna er sú bjarg- fasta trú að öll heimsins börn eigi rétt á heilsu, menntun, öryggi og vernd. Staðreyndin er hins vegar sú að allt of mörg börn eiga um sárt að binda. Nú láta rúmlega tuttugu þúsund börn lífið á hverj- um degi af orsökum sem vel eru viðráðanlegar. UNICEF telur að þetta sé óásættanlegt. Mikilvægasta verkefni UNICEF er að koma í veg fyrir að börn deyi að óþörfu. Mikil áhersla er því lögð á að tryggja heilsu barna og koma í veg fyrir að þau líði hung- ur og þorsta. UNICEF leggur einn- ig mikið upp úr því að börn hafi tækifæri til að mennta sig og hljóti vernd gegn ofbeldi, misnotkun og þrælkun. SAMTAKAMÁTTUR MIKILS MEGNUGUR Heimsforeldrar eru hjartað í starfsemi UNICEF á Íslandi. Án þeirra gætu samtökin ekki sent frá sér mánaðarlega bráð- nauðsynleg framlög til hjálpar bágstöddum börnum. Heimsforeldrar greiða upp- hæð að eigin vali á mánuði, t.d. 2.000 krónur. Það kemur mörgum á óvart hversu miklu er hægt að áorka fyrir 2.000 krónur og hve framlag hvers og eins er í raun mikilvægt. Þess þá heldur er samtakamáttur heimsforeldra mikils megnugur því það safn- ast svo sannarlega þegar saman kemur. Það eru engar ýkjur að íslenskir heims foreldrar skipta sköpum fyrir þúsundir bág- staddra barna. Heimsforeldrar skipta sköpum fyrir fjölda barna UNICEF treystir alfarið á fjárstuðning í gegnum frjáls framlög. MYND/UNICEF/ZAIDI Menntun er nauðsynleg fyrir þroska barna og framtíðarmöguleika þeirra. Mikill fjöldi barna fer engu að síður á mis við grundvallarmenntun, ýmist vegna fátæktar, fötlunar, átaka eða misréttis. Þessu vill UNICEF breyta með hjálp heimsforeldra. MYND/UNICEF/ASSELIN Víða neyðast börn til að vinna slítandi og hættulega vinnu. Náðst hefur að draga verulega úr barnavinnu síðasta áratuginn í Bólivíu, þar sem þessi glaðbeittu börn búa. Heimsforeldrar eiga þátt í þeim árangri. Treyst á góðvild einstaklinga ● HVERT FRAMLAG SKIPTIR MÁLI Fyrir 2.000 krónur er hægt að koma öllu þessu til barna í neyð: 20 skömmtum af bóluefni gegn mislingum 20 skömmtum af vítamínbættu jarðhnetumauki fyrir vannærð börn 200 lítrum af vatni sem gert er drykkjarhæft með vatnshreinsitöflum ● HVERT FRAMLAG SKIPTIR MÁLI Fyrir 2.000 krónur er hægt að útvega allt neðantalið: 1 moskítónet sem kemur í veg fyrir malaríusmit 10 skammta af bóluefni gegn mislingum 100 prótínríkar kexkökur sem hjálpa börnum í neyð 100 skammta af ormalyfi gegn sníkjudýrasýkingu 1.000 lítra af vatni sem gert er drykkjarhæft með vatnshreinsitöflum Hvert einasta framlag mikilvægt

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.