Fréttablaðið - 09.12.2011, Side 54

Fréttablaðið - 09.12.2011, Side 54
KRINGLUNNI Sími: 568 4900 Verð 14.990 kr. Verð Jakki – 19.990 kr. Blússa – 9.990 kr. Verð 12.990 kr. Verð 19.990 kr. Verð 12.990 kr. Verð 19.990 kr. 20% afsláttur helgina 9.-10. des. Ný sending beint frá London. Á RÚMSTOKKNUM Sigga Dögg kynfræðingur Sendu Siggu Dögg póst með spurningum eða óskum um umfjöllunarefni. Netfangið er kynlif@frettabladid.is Nauðgun er ofbeldisverknaður ? Finnur maður strax mun/sársauka/kláða ef maður fær kyn sjúkdóm? Getur kláði að neðan kannski stafað af einhverju öðru en kyn- sjúkdómum? Svar: Einkenni kynsjúkdóms geta komið snemma í ljós eða seinna eða jafnvel alls ekki. Í ljósi þess ætti hver og einn að hugsa vel um kynfæri sín og fara reglulega í skoðun, og þá sérstaklega ef þú finnur fyrir einhverjum breytingum. Breytingar á kynfærum, til dæmis kláði, getur stafað af sýk- ingu sem ekki er skilgreind sem kynsjúkdómur eða jafnvel ertingu vegna nærfatnaðar. Margir hræðast kynfæraskoðun læknis en það er töluvert verra (og hættulegra) að vera með óþægindi í kynfærum heldur en að fara í stutta skoðun hjá lækni. Hins vegar er vissara að stunda ekki samfarir eða munnmök fyrr en læknir er búinn að komast til botns í málinu og skrifa upp á viðeigandi lyf, ef þess er þörf. ? Sæl Sigga, frábærir pistlar frá þér. Ég verð oft svo hissa þegar fjallað er um nauðgunarmál og hvernig karlmenn geta „misskilið“ konuna sem þeir nauðga. Stundum verður maður svo vonlaus þegar maður heyrir af svona málum, bæði í fréttum og persónulega, og ég velti því fyrir mér hvort eitthvað sé hægt að gera til að fyrirbyggja nauðganir og upplýsa karlmenn? Svar: Ég þakka hólið og svara með einu orði, fræðslu. Með því að fjalla á fordómalausan og upplýstan hátt um samskipti, sambönd og kynlíf. Um- ræðan þarf að hefjast á unga aldri og vera hluti af daglegri umræðu. Það þarf að fá samþykki fyrir kynferðislegum at- höfnum og það þarf að kenna fólki af báðum kynjum það. Þá þarf einnig að brjóta niður staðalímyndir. Stelpur eru ekki passívir þiggjendur og strákar gerendur heldur þarf að kenna báðum ábyrga hegðun bæði í almennum sam- skiptum og kynferðislegum. Fræðsla og almenn um- ræða á því ekki einungis við karlmenn heldur þjóð- félagið sem heild, því mýtur og ofbeldi fyrirfinnast hjá báðum kynjum. Það er ekki nóg að opna um- ræðuna í skólum heldur þarf hún einnig að fara fram inni á heimilum, í fjölmiðlum og meðal vina. Nauðgun er ofbeldis verknaður og þurfa allir að leggjast á eitt að vera sammála um að gerandinn eigi sök en ekki þol- andinn. Það sem er oft erfitt með kynferðisafbrot er að sjaldan eru vitni til staðar og því byggir málið oft á orði gegn orði og sönnunargögn eru af skornum skammti. Þá fellur oft skömm á fórnarlambið, m.a. út af flækju- stigi réttvísinnar, og því verða þessi mál viðkvæm, erfið og flókin. Það er erfitt að benda á einhver skref til að fyrir byggja ofbeldi önnur en þau að það þarf að byrja á réttum enda, í grasrótinni. Klæðnaður, ölvun og látbragð leiða ekki til ofbeldis, gerandinn sér al- farið um það sjálfur. Því þarf að brjóta niður fordóma, fyrir litningu, staðalímyndir og fáfræði og hefja um- ræðuna á hærra plan! S ysturnar Edda og Sólveg Ragna Guðmundsdætur sem hanna undir nafninu Shadow Creatures hafa tekið höndum saman við Kríurnar, þróunarsam- tök í þágu kvenna í Afríku. Hluti af hverri seldri flík frá systrunum mun renna til styrktar málefnum Kríanna. Edda og Sólveig Ragna hanna fallegar kvenmannsflíkur meðal annars úr silki og lífrænni bóm- ull og hafa umhverfisvæna fram- leiðslu að leiðarljósi í hönnun sinni. Edda segir Kríurnar hafa haft samband við systurnar að fyrra bragði og þær ákveðið að leggja samtökunum lið enda séu baráttumál þeirra brýn. „Þetta eru ung samtök sem styðja með ýmsum ráðum við konur í Afríku og beita sér sérstaklega fyrir menntun og heilsu þeirra. Við tókum auðvitað mjög vel í bón þeirra enda er þetta verðugur málstaður og gaman að geta lagt honum lið.“ Ný lína frá Shadow Creatures kom í verslunina Kiosk við Lauga- veg um síðustu helgi og inni- heldur meðal annars fallega síð- kjóla, klúta, buxur og boli. - sm Shadow Creatures leggur Kríunum lið: STYÐJA VIÐ BAKIÐ Á KONUM Í AFRÍKU Leggja sitt af mörkum Edda og Sól- veig Ragna Guðmundsdætur hanna undir heitinu Shadow Creatures. Hluti af hverri seldri flík mun renna til Kríunnar, þróunar- samtaka í þágu kvenna í Afríku. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.