Fréttablaðið - 09.12.2011, Blaðsíða 56

Fréttablaðið - 09.12.2011, Blaðsíða 56
12 föstudagur 9. desember GK REYKJAVIK –– LAUGAVEGI 66 –– 565 2820 SJÁÐU MEIRA Á FACEBOOK FILIPPA K 37.900 kr. JEFFREY CAMPBELL 34.900 kr. JEFFREY CAMPBELL 34.900 kr. SUIT 24.900 kr. JEFFREY CA MPBELL 27 .900 kr. WON HUNDRED 34.900 kr. SHOE THE BEAR 23.900 kr. SHOE THE BEAR 23.900 kr. SHOE THE BEAR 25.900 kr. Fatahönnuðurinn Karl Lagerfeld hefur lengi verið í sviðsljósinu, bæði sökum hæfileika sinna sem hönnuður og vegna andstyggi- legra ummæla sem hann á til að láta falla um annað fólk. Hann á að baki langan og farsælan feril sem fatahönnuður og er hvergi nærri af baki dottinn. 1 Lagerfeld fæddist í Hamborg en enginn veit hvaða ár. Eitt sinn sagðist hann hafa fæðst árið 1938 en nokkru síðar sagði hann engan vita með vissu hvaða ár hann fæddist og er það enn hulin ráðgáta. 2 Árið 1955 hreppti Lagerfeld annað sætið í hönnunarsam- keppni á vegum tískuhússins Balmain, fyrsta sætið hlaut Yves Saint-Laurent. Í kjölfarið fékk Lagerfeld starf sem lærlingur hjá Balmain. 3 Lagerfeld hefur tekið að sér ýmis aukaverkefni í gegn- um tíðina og árið 2004 hann- aði hann búningana fyrir tón- leikaferðalag Madonnu. Hann hannaði einnig búninga fyrir Showgirl-tónleikaferðalag söng- konunnar Kylie Minogue. 4 Árið 1993 gekk ritstjóri bandaríska Vogue, Anna Wintour, út af tískusýningu sem Lagerfeld hannaði fyrir Fendi. Lagerfeld notaði fatafellur og klámstjörnur í stað fyrirsæta og þótti Wintour nóg um. 5 Lagerfeld hét upprunalega Lagerfeldt en ákvað að sleppa bókstafnum t því honum þótti það hentugra á alþjóðlegum markaði. Umdeild Myndir af fyrirsætunni Karlie Kloss í ítalska Vogue hafa fengið mikla gagnrýni því fyrirsætan þykir allt of grönn á þeim. NORDICPHOTOS/GETTY Hjá Chloé Karl Lagerfeld árið 1979 er hann var hönnuður hjá tískuhúsinu Chloé. NORDICPHOTOS/GETTY Í góðra vinkvenna hópi Lagerfeld ásamt fyrirsæt- unum Lindu Evangelistu og Claudiu Schiffer. Í dag Lagerfeld í nóvember á þessu ári. Myndaþáttur ítalska Vogue með fyr- irsætunni Karlie Kloss hefur vakið umtal vegna þess hve grönn fyrir- sætan virðist á sumum myndunum. Nú hefur Vogue.it fjarlægt mynd- ina sem fékk hvað mesta gagnrýni af vefsíðu sinni þar sem átröskun- arsjúklingar hafa notað hana sem „thinspiration“, eða innblástur til þess að grenna sig enn frekar. Myndin af Kloss hefur birst á þó nokkrum „pró-ana“ vefsíðum, en slíkar síður hvetja átröskunarsjúk- linga áfram í veikindum sínum og þykja mjög skaðlegar. Ítalska Vogue hefur tekið opinbera afstöðu gegn slíkum síðum, jafnvel hvatt til markvissrar lokunar á þeim, og því kemur þetta sér illa fyrir tímaritið. „Vogue Italia er tímarit er hefur fag- urfræði og fegurð að sjónarmiði og því höfum við ákveðið að nýta áhrif okkar í baráttunni gegn átrösk- unum,“ skrifaði ritstjórinn Franca Sozzani eitt sinn á vefsíðu blaðsins. Fyrirsætan Karlie Kloss, 19 ára, er fyrrverandi balletdansari. Hún var uppgötvuð þrettán ára að aldri og sagði skilið við dansinn er fyrirsætu- ferillinn fór á flug. Myndaþáttur í ítalska Vogue gagnrýndur: Fyrirsæta þykir allt of grönn Fimm hlutir sem þú vissir ekki um: KARL LAGERFELD Á tímamótum Nánast óþekkjan- legur Lagerfeld árið 2000 ásamt fyrirsætunni Devon Aioki. Tuttugu bjé Helga Lilja Magnúsdóttir sem hannar undir nafninu helicopter, Berglind Hrönn Árnadóttir sem hann- ar barnaföt undir heitinu Begga Design og Rakel Sævarsdóttir sem rekur netgalleríið Muses opna saman verslun í dag. Verslunin hefur hlotið nafn- ið 20Bé og er við laugaveg 20b. Sérstök opnun- arteiti fer fram í búðinni í dag á milli 17 og 20.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.