Fréttablaðið - 09.12.2011, Qupperneq 66
9. desember 2011 FÖSTUDAGUR38
BAKÞANKAR
Sifjar
Sigmars dóttur
Flestir þekkja tilfinninguna. Hjartað tekur á rás; maginn fer í hnút; lófarnir
verða þvalir. Líkamleg viðbrögð við að vera
tekinn í óæðri endann sem neytandi eru
voldug. Hvort sem orsökin er léleg þjónusta
á kaffihúsi eða vonbrigði með vöru leiðir
sært stoltið og léttleiki pyngjunnar gjarnan
til innblásinna áforma um að ná fram rétt-
læti. Númeri Neytendasamtakanna er flett
upp í símaskránni. Í huganum er Dr. Gunna
skrifað rismikið bréf til birtingar á Okur-
síðu hans. En svo grípur hversdagurinn í
taumana. Það þarf að fara út með ruslið.
Elda kvöldmatinn. Kíkja á netið til að tékka
á hvort Jón Bjarnason sé enn þá ráðherra.
Einlægur ásetningur verður að engu.
Á ÞEIM upplausnartímum sem nú ríkja
bítast ólíkir hópar um auðævi íslensks
samfélags sem liggja sem hráviði í rústum
spilaborgar sem hrundi. Gamlir kvótakarl-
ar keppast við að halda í gull sjávar meðan
landsbyggðarmafían heimtar það í byggða-
stefnu. Landbúnaðar-lobbíistar standa
fastan vörð um tollamúrana um einok-
unarverslun sína og hagsmunahópar á
borð við Stef sjá til þess að ekki einn
einasti hlutur sem fræðilega er hægt
að nota til að dilla sér við sé seldur án
þess að vera fyrst smurður gjöldum
samtökunum til handa. Það eru allir
að ota sínum tota, koma ár sinni sem
best fyrir borð á hinu Nýja Íslandi.
Nema einn hópur. Fjölda síns vegna
ættu neytendur að vera háværasti
þrýstihópurinn. Hagsmunir neytenda
virðast hins vegar ávallt láta í minni-
pokann fyrir sérhagsmunum. Í síðustu
viku bárust fréttir af því að Matís
hefði hætt við að sækja um 300 millj-
óna króna styrk til að mæla eiturefni í
matvælum því einhverjum líkaði ekki
að styrkurinn kæmi frá Evrópusam-
bandinu. Í fréttum af málinu kom enn
fremur fram að hingað til hafi Ísland
verið með undanþágu frá EES-reglum
um mælingar á um þrjú hundruð eitur-
efnum. Sem neytanda kom mér aðeins
eitt orð í huga: Ha?
ÍSLENSKIR neytendur búa við háa tolla,
skert vöruúrval og bágan skilarétt.
Merkingum á matvælum er jafnframt
ábótavant; gildistöku reglugerðar um
merkingar á erfðabreyttum matvælum
var t.a.m. frestað nýverið. Við neyt-
endur hljótum þó að draga línuna við að
eitrað sé fyrir okkur. Árið 2011 hófst á
að í ljós kom að sorpbrennslustöðin Funi
á Ísafirði olli því að þrávirk eiturefni
komust í mjólk kúabús í nágrenninu, ein-
mitt í boði séríslenskrar undanþágu frá
EES-samþykkt. Því lýkur á sömu nótum.
Hvernig væri að gera 2012 að ári neyt-
andans? Látum í okkur heyra, krefjumst
þess að við hættum að svindla á okkur
sjálfum með undanþágum og sendum Dr.
Gunna oftar póst.
Íslenskt eitur: Já takk!
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Pondus Eftir Frode Overli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Barnalán Eftir Kirkman/Scott
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
krossgáta
LÁRÉTT
2. báru að, 6. líka, 8. óvild, 9. endir,
11. tveir eins, 12. æxlunarfæri blóms,
14. helgitákn, 16. nudd, 17. nár, 18.
spíra, 20. í röð, 21. djamm.
LÓÐRÉTT
1. íþrótt, 3. kúgun, 4. land, 5. hár, 7.
sveppur, 10. náinn, 13. kjökur, 15.
skakki, 16. lík, 19. bor.
LAUSN
Þú mátt ekki
taka þessu illa
Ívar en ég þarf á
pásu að halda.
Ha?
Ég þarf á
pásu að
halda.
En við vorum
bara að kynnast!
Já, ég vil bara ekki ana
að neinu. Ég verð að
vita að ég sé að breyta
rétt. Áður en þetta
verður eitthvað alvarlegt
verð ég að fá tíma til að
hugsa mig um!
Ókei,
hversu
langan
tíma?
15 ár? Rosaleg pía! Og ég á ekki að
hringja í hana,
hún hringir í mig!
Ókei Ég færi honum
skilaboðin um
leið og hann
kemur heim.
Klikk!
Skanna!
Prenta!
Pabbi
hringja
í Siggu -P
Það er ekk-
ert hægt að
gera hérna!
Af hverju
leikurðu ekki
við Lóu?
Hvar er Hannes?
Hér er Hannes!
Hvar er Hannes?
Hér er Hannes!
Fliss!
Fliss!
Fliss!
Fliss!
Hvar er Hannes?
Hér er Hannes!
Hvernig veit maður hvor
er að vinna?
LÁRÉTT: 2. komu, 6. og, 8. kal, 9. lok,
11. ll, 12. fræva, 14. kross, 16. nú, 17.
lík, 18. ála, 20. aá, 21. rall.
LÓÐRÉTT: 1. golf, 3. ok, 4. malasía,
5. ull, 7. gorkúla, 10. kær, 13. vol, 15.
skái, 16. nár, 19. al.
Meðal annars efnis:
Skógareyðing ógnar einstöku
dýralífi
Ferðamenn gætu verið lykillinn að
náttúruvernd á eyjunni Madagaskar.
Hef alltaf verið á flótta
Elín Eiríksdóttir sem var á Bjargi segir
vistina þar hafa haft hræðilegar afleiðingar.
Mynstur og litadýrð
Rýnt í strauma og stefnur í tískunni á árinu
sem er að líða.
Tilraunakennd klassík
Tónskáldið Daníel Bjarnason lætur klassíkina ekki setja sér
skorður og fer óhefðbundnar leiðir í sinni listsköpun.