Morgunblaðið - 30.07.2010, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 30.07.2010, Blaðsíða 1
F Ö S T U D A G U R 3 0. J Ú L Í 2 0 1 0  Stofnað 1913  176. tölublað  98. árgangur  PRJÓNALÍNA ÁSDÍSAR SÝND Í LONDON KR HEFNDI ÓFARANNA FRÁ SÍÐASTA ÁRI ARTFART ALDREI STÆRRA LÖGÐU FRAMARA 4:0 ÍÞRÓTTIR LISTASPRENGING 32LITRÍK PRJÓNA- OG HÖRLÍNA 10 Þemað á fimm ára afmæli hátíðarinnar er óhefðbundin rými Morgunblaðið/Golli  Veiðimenn hafa orðið varir við laxadauða í Norðurá í Borgarfirði vegna þurrka. Ástandið er sagt verra en það var sumarið 2007. Hit- inn hafi verið slíkur í Norðurárdal í langan tíma að áin hafi ekki náð að kólna með þeim afleiðingum að lax- inn sé hættur að fá nægt súrefni. „Ástandið er náttúrlega bara mjög slæmt. Það vantar gersamlega vatn. Það vantar ekkert fiskinn, það er nóg af honum, en hann heldur sig bara í djúpu hyljunum,“ segir Guð- mundur Viðarsson staðarhaldari í veiðihúsinu við Norðurá. »14 Farið að bera á laxa- dauða í Norðurá Hjörtur J. Guðmundsson hjorturjg@mbl.is Tveir fyrrverandi viðskiptaráðherr- ar, Finnur Ingólfsson og Valgerður Sverrisdóttir, kannast ekki við að neinar athugasemdir hafi borist frá Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) þess efnis að ekki hafi verið staðið rétt að innleiðingu tilskipunar Evrópusam- bandsins um innistæðutryggingar hér á landi fyrir um áratug. „Ég er alveg viss um það að það komu aldrei neinar athugasemdir af hálfu nokkurs aðila um innleið- inguna á þessu hérna,“ segir Finnur. Undir þetta tekur Benedikt Árna- son, fyrrum skrifstofustjóri í við- skiptaráðuneytinu, sem hafði um- sjón með innleiðingu tilskipunar- innar. Engin ríkisábyrgð Framkvæmdastjórn Evrópusam- bandsins viðurkenndi í svari til norska fréttavefjarins ABC Nyheter í vikunni að ekki væri gert ráð fyrir ríkisábyrgð á bankainnistæðum í umræddri tilskipun. Íslendingum bæri eftir sem áður að endurgreiða innistæðueigendum innan sam- bandsins á þeim forsendum m.a. að ekki hefði verið staðið rétt að innleið- ingu tilskipunarinnar. Engin breyting „Þetta kemur mér í sjálfu sér ekki á óvart. Ég sé ekki að þetta breyti stöðunni í neinum grundvallaratrið- um,“ sagði Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra, en vildi ekki tjá sig frekar um málið. „Þetta er bara ánægjuleg staðfest- ing á að ríkisábyrgð sé ekki til stað- ar,“ segir Höskuldur Þórhallsson, Framsókn, um svar ESA. MTilskipunin rétt »4 Innleidd án athugasemda  Tilskipun um innistæðutryggingar innleidd á réttan hátt  Veldur ekki grundvallarbreytingu, segir fjármálaráðherra Morgunblaðið/Ernir Vongóður Seðlabankastjóri bendir á jákvæð teikn í hagkerfinu. Már Guðmundsson seðlabankastjóri telur að það skref lánshæfismats- fyrirtækisins Moody’s að breyta horfunum fyrir lánshæfismat Ís- lands úr stöðugum í neikvæðar þurfi ekki að hafa neikvæð áhrif. Már telur brýnt að eyða óvissu í hagkerfinu en telur aðspurður að Icesave-deilan hafi óveruleg áhrif, enda hafi ekkert nýtt komið fram í henni að undanförnu. Hann kveðst almennt bjartsýnn: „Það er svo margt um þessar mundir sem er að þróast á betri veg í undirliggjandi efnahagsstöðu þjóðarinnar.“ »2 Samt bjartsýnn  Már um neikvæðar horfur Moody’s ins sem snýr til sjávar ber þó ekki eins oft fyrir augu og sú sem vísar að miðbænum. Í dumbungi gærdagsins var þessi ókunnari hlið Hörpu dularfull og allt að því draumkennd sýn. Bygging Hörpu, nýs tónlistar- og ráðstefnuhúss við höfnina, hefur varla farið framhjá neinum og eru í það minnsta Reyk- víkingar orðnir vanir því að berja hana augum. Þá hlið húss- Áætlað er að starfsemi hefjist í húsinu 4. maí á næsta ári og mun Sinfóníuhljómsveit Íslands þá leika undir stjórn Vladim- írs Ashkenazy. Er aðalsalurinn fullbókaður til jóla þess árs. Dumbungur gærdagsins sveipaði Hörpu draumkenndri dulúð Morgunblaðið/Árni Sæberg  Héraðsdómur Reykjavíkur kvað upp úr- skurð þess efnis að læknir og lög- fræðingur skuli fara með mat á varanlegri fjár- hagslegri örorku en ekki tveir læknar. Hið bótaskylda tryggingafélag krafðist mats tveggja lækna en þeir meta oftast bótaskyldu lægri en læknir og lögfræðingur. »20 Læknir og lögfræð- ingur meti örorku Héraðsdómur Eignir innistæðutryggingasjóða í fimmtán elstu ríkjum Evrópu- sambandsins voru töluvert und- ir lögboðnu lágmarki árið 2005. Þetta kemur fram í skýrslu ESB um tryggingasjóðakerfið. Hér á landi skal trygginga- sjóður innistæðueigenda inni- halda um 1% af tryggðum inni- stæðum. Því marki hefur yfir- leitt ekki verið náð frá 2002. Ástæðan er hraður vöxtur inni- stæðna í bankakerfinu. »18 Á svig við lög SJÓÐIR UNDIR MÖRKUM

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.