Morgunblaðið - 30.07.2010, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 30.07.2010, Blaðsíða 23
Minningar 23 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. JÚLÍ 2010 ✝ Tryggvi Harð-arson fæddist í Víðikeri í Bárðardal 27. maí 1939. Hann lést 19. júlí 2010 á Fjórðungssjúkrahús- inu á Akureyri. Foreldrar hans voru Guðrún Anna Benediktsdóttir hús- freyja og Hörður Tryggvason, bóndi í Víðikeri. Systkini hans eru Haukur, f. 3. maí 1936 og Steinunn, f. 13. september 1945. Árið 1970 kvæntist Tryggvi, El- ínu Baldvinsdóttur, f. 1. júní 1944, frá Arnarstöðum í sömu sveit. For- eldrar hennar voru Sigurlína Guð- mundsdóttir og Baldvin Árnason. Börn Tryggva og Elínar eru: 1) Guðrún Sigríður, f. 1971. Maki ára aldurs en þá flutti hann með foreldrum sínum og systkinum að Svartárkoti í Bárðardal þar sem hann átti heima til æviloka. Tryggvi vann með foreldrum sínum við búskapinn auk vinnu utan heim- ilis. Frá 1964 stundaði hann refa- og minkaveiðar og hafði hann mikla ánægju af því. Eins vann hann ötullega að uppgræðslu lands bæði á eigin vegum og í samstarfi við Landgræðsluna. Tryggvi og El- ín bjuggu í Svartárkoti ásamt for- eldrum Tryggva til ársins 1992. Auk búskaparins stunduðu þau veiðar í Svartárvatni og héldu við þeirri gömlu hefð að kofareykja sil- ung. Tryggvi var mikið náttúru- barn og naut þess að ferðast og skoða landið jafnt gangandi sem akandi á jeppa eða vélsleða. Hann hafði gaman af tónlist og lék gjarn- an á gítar eða harmonikku hvort heldur á mannamótum eða heima sér til ánægju. Útför Tryggva fer fram í Lund- arbrekkukirkju í dag klukkan 14. Hlini Jón Gíslason, f. 1971. Börn þeirra eru Hafrún Huld, Tryggvi Snær, Elín Heiða og Gísli Berg. 2) Heið- rún, f. 1972. Sam- býlismaður Garðar Jónsson, f. 1958. Börn hennar Aldís Ósk og Sandra Sif, faðir þeirra er Agnar Daní- elsson. Börn Heiðrún- ar og Garðars: Tinna Dögg og óskírður drengur. Barn hans Sveinn. 3) Sigurlína, f. 1977. Sambýlismaður Magnús Skarphéðinsson, f. 1974. Börn þeirra Katrín Ösp og Daníel Ró- bert. 4) Hörður Hafliði, f. 1979. Sambýliskona Sif Sigurðardóttir, f. 1981. Tryggvi ólst upp í Víðikeri til 7 Inn milli fjallanna hér á ég heima, hér liggja smaladrengsins léttu spor. Hraun þessi leikföng í hellinum geyma, hríslan mín blaktir enn í klettaskor. Við þýðan þrastaklið og þungan vatnanið æskan mín leið þar sem indælt vor. (Guðm. Magnússon.) Kæri bróðir. Nú er komið að kveðjustund eftir rúmlega 70 ára samleið. Í Víðikeri stigum við systkinin fyrstu sporin í glöðum jafnaldrahópi dætra Möggu og Kára föðurbróður. Einn vinsælasti leikstaðurinn var Bæjargrófin þar sem við náðum leikni í að grípa smásilunga, safna í polla og hafa fyrir leikfélaga. Minnisstætt er, þegar við grófum djúpu holuna vestan við túngarðinn. Við óvænta fyrirstöðu uppástóð Dústa frænka að við værum komin niður á hornin á „skrattanum“. Skelf- ingu lostin hlupum við heim þar sem skipta þurfti um buxur. Á vetrum voru innileikir óteljandi og amma og fleiri ólöt að segja okkur sögur. Sumarið 1946 flutti fjölskyldan í Svartárkot. Þar er víðsýni einstakt, en bærinn stendur í jaðri Ódáða- hrauns í rösklega 400 metra hæð yfir sjó. Í Svartárvatni er bleikjuveiði en urriði í Svartánni. Fyrsta fiskirækt á Íslandi var flutningur á frjóvguðum bleikjuhrognum þaðan í Svartárvatn. Á haustin horfðum við á bleikjuna hrygna. Einu sinni urðum við bræð- urnir heldur æstir að eltast við hrygningarpar í uppsprettu, en að henni lá mjó en djúp renna. Við stóð- um beggja vegna þegar parið leitaði út. Báðir stukkum við yfir hana á sama tíma og stað því við mættumst á miðri leið og fengum ærlegt bað. Faðir okkar var mikið náttúru- barn. Hann þekkti með nafni flestar háplöntur á heiðarlöndunum og alla fugla sem áttu sér þar samastað. Þessa nutum við systkinin. Diddi bróðir hélt sig við heimaslóð- irnar, hann stundaði bústörf á sumr- in en vetrarvertíð í Vestmannaeyjum um 10 ára skeið. Ungur að árum tók hann að sér refa- og minkaveiðar fyrir Bárðdæla- hrepp, frá byggð austan Skjálfanda- fljóts, allt suður á Hraunárdal. Ég fékk oft að fljóta með, sérstaklega á refaveiðar á vorin. Á bæjarstjóraárum mínum á Húsavík var það fastur siður að stunda refaveiðarnar með Didda á vorin. Þetta var kærkomin hvíld frá erilsömu en skemmtilegu starfi. Síð- ustu sameiginlegu veiðiferðina fórum við bræður á Hraunárdal 1978. Feng- um við norðan-krapahríð í tvo sólar- hringa. Í óveðrinu gátum við lítið sinnt veiðunum en röbbuðum mikið saman. Þegar rofaði til skaut ég þar mína síðustu tófu. Kæri „litli bróðir“. Við munum ekki oftar stilla saman strengi á gítar og harmonikku eða píanó, eða á nikk- urnar, þú gjarna með milliröddina en raddsetning var sjaldan vandamál hjá okkur í dægurmúsík, trúlega vegna sjálfmenntunar í hljóðfæraleik og þingeysks lítillætis. Þú varðst þeirrar gæfu aðnjótandi að eignast góða og samheldna fjöl- skyldu, verða einstaklega vinmargur og njóta þeirra forréttinda að fá að eyða starfsævinni í Svartárkoti, í nánum tengslum við hina villtu nátt- úru. Síðasta heila daginn þinn fórstu lokaferðina inn á öræfin. Sú ferð hef- ur án efa verið erfið sjúkum líkama, en fyrir þig sem veganesti í „nýjar veiðilendur“ mun hún hafa verið ómetanleg. Farðu í friði, kæri „litli bróðir“. Innilegar samúðarkveðjur til að- standenda. Þinn „stóri bróðir“, Haukur Harðarson. - Þegar mér barst sú sorgarfrétt að Diddi í Koti væri látinn, hrönnuðust minningarnar upp um þennan ást- sæla frænda í Svartárkoti í Bárðar- dal. Það var gaman að heimsækja Tryggva því hann var mikill sögu- maður og naut þess að vera með vin- um og ættingjum, þar sem hann var hrókur alls fagnaðar. Tryggvi spilaði á harmonikku og gerði það manna best og fátt var skemmtilegra en hlusta á hann spila á nikkuna með vinum og frændum á böllum og ætt- armótum. Tryggvi var bæði refa- og minkaskytta í Bárðardal og fóru oft Víðikersbræður með honum og sem ungum dreng í sveit í Víðikeri fannst mér þessar ferðir klæddar dulúð og spennu, Tryggvi naut þess að segja sögur úr þessum veiðiferðum sínum. Þegar mér verður hugsað til ár- anna í Bárðardal er eins og margt hafi gerst í gær, t.d þegar hann fór með okkur í fjallgöngu upp á Sel- landafjall og þegar dregið var fyrir silung í vatninu. Diddi var mikill athafnamaður og vann mikið starf fyrir Landgræðsl- una, þegar ég fór 2004 frá Koti og upp í Mývatnssveit trúði ég varla eig- in augum þegar ég sá hvað var búið að rækta mikið land upp. Það hefur ávallt verið gott að koma í Svartárkot þar sem mikil gestrisni hefur ríkt og minnist ég þessara heimsókna með hlýju. Með þessum fátæklegu orðum mínum vil ég minnast míns kæra frænda og allra góðu tímanna okkar saman í sveitinni. Ég sendi Ellu og börnum og barnabörnum og syst- kinum hans, Hauki og Steinunni, mínar dýpstu samúðarkveðjur. Drottinn blessi minningu þína, kæri frændi. Hin langa þraut er liðin, nú loksins hlauztu friðinn, og allt er orðið rótt, nú sæll er sigur unninn og sólin björt upp runnin á bak við dimma dauðans nótt. Fyrst sigur sá er fenginn, fyrst sorgar þraut er gengin, hvað getur grætt oss þá? Oss þykir þungt að skilja, en það er Guðs að vilja, og gott er allt, sem Guði er frá. Nú héðan lík skal hefja, ei hér má lengur tefja í dauðans dimmum val. Úr inni harms og hryggða til helgra ljóssins byggða far vel í Guðs þíns gleðisal. (Vald. Briem) Bragi Egilsson. Fallinn er frá kær frændi og vinur, Tryggvi bóndi í Svartárkoti í Bárð- ardal. Tryggvi – eða Diddi, eins og hann var kallaður af frændfólki og vinum – var fæddur í Víðikeri, sem er 8 km norðar í Bárðardal. Þá bjuggu í Víði- keri fjórar fjölskyldur, allar í sama húsinu. Það voru: Sigrún, ekkja Tryggva bónda Guðnasonar, og synir hennar, Egill og Sverrir, Kári og kona hans Margrét og dætur þeirra; Hildur, Sigrún, Rannveig og Áslaug, Hörður og Guðrún og börn þeirra; Haukur, Tryggvi og Steinunn og Kjartan og Kristbjörg og dæturnar Vera og Þorgerður. Það var því þröngt í Víðikersbænum, en þar sannaðist gamla máltækið, „að þröngt mega sáttir sitja.“ Snemma bar á veiðináttúru Didda. Hann var ekki hár í loftinu er hann fór að veiða síli í Grófinni, bæjar- læknum í Víðikeri, með höndunum. Fleira í náttúrunni vakti áhuga hans, skordýr þurfti að skoða, einkum hun- angsflugur sem hin börnin forðuðust. Hann varð einnig fróður um blóm og jurtir eins og fleiri ættmenn hans. Árið 1946 flutti fjölskyldan í Svart- árkot, bæ sem stendur nánast á bökkum Svartárvatns og í jaðri Ódáðahrauns. Þar varð Diddi öllum leiðum kunnugur og virtist þekkja allt út og inn og var gaman og fróð- legt að fara með honum í allskyns leiðangra þar sem eknar voru leiðir sem kaupstaðarbúanum sýndust óá- litlegar, jafnvel ófærar, en Diddi var magnaður bílstjóri, sem skilaði öllu heilu. Hann virtist taka eftir öllu, gróðri, fuglum og sporum eftir dýr, enda var hann í áratugi minka- og refaskytta sveitarinnar. Á yngri árum var Diddi 10 vertíðir í Vestmannaeyjum. Fyrst eina í Vinnslustöðinni og síðan 9 í Fiskiðj- unni. Það var alltaf mikil tilhlökkun hjá okkur hjónum og börnum okkar þegar von var á Didda frænda. Hann spilaði á gítar á þeim árum, en sneri sér svo að harmonikunni og varð all- góður harmonikuleikari, sem skemmti mörgum bæði heima og heiman. Eiginkona Tryggva er Elín Bald- vinsdóttir frá Arnarstöðum í Bárð- ardal og hófu þau búskap í Svartár- koti, ásamt foreldrum hans, um 1970. Þau eignuðust fjögur börn, þrjár dætur og son, og búa tvær dæturnar og fjölskyldur þeirra nú í Svartár- koti. Diddi var vel byggður og hraustur maður, en fyrir 3-4 árum fór heilsa hans að bila og versnaði með árunum. Þá reyndi verulega á Ellu, sem ann- aðist hann frábærlega vel. Á heimili Didda og Ellu hefur alltaf verið gestkvæmt enda þau ákaflega gestrisin og gott þar að koma og vera. Við, sem þetta skrifum, höfum notið þess ríkulega, komið árlega og verið þar margfaldar gestanæturnar, nú síðast um mánaðamótin. Ekki datt okkur í hug er við kvöddum Didda á mánudegi að hann væri allur hálfum mánuði síðar. Þó heilsa hans væri orðin afar slæm var ákveðið að við kæmum aftur seinna í sumar og fær- um inn á afrétt í smölun eins og við höfðum áður gert. Af því verður ekki. Við, börn okkar og fjölskyldur þeirra, sendum Ellu, börnunum og fjölskyldum þeirra okkar innilegustu samúðarkveðjur og eigum að skila kveðjum frá systrunum Sigrúnu og Rannveigu og þeirra fólki. Hvíldu í friði, kæri frændi og vinur, og þökk fyrir allt. Hildur og Gísli. Látinn er æskufélagi og sam- starfsmaður heima í Bárðardal, Tryggvi Harðarson, bóndi í Svartár- koti, eftir erfið veikindi. Mín fyrsta minning um Tryggva er þegar ég fór fyrst í skóla 8 ára. Skól- inn var í Víðikeri, kennari var föð- urbróðir hans Kári Tryggvason og var skólinn á heimili Kára. Þrjár fjöl- skyldur bjuggu í sama húsinu. Var því þröng á þingi en vistin var góð. Leikvöllurinn var svell og harðfenni. Árin liðu í leik og starfi. Í Svartár- koti er sauðfjárbú, einnig var veiði í Svartárvatni til búdrýginda. Tryggvi var mikill náttúruunnandi. Hann var veiðimaður, veiddi silung á heimaslóð og kunni vel til verka í reykhúsinu. Einnig veiddi hann refi og minka, hann vildi vernda fugla og fiska í mó- um og vötnum. Tryggvi var athugull og gætinn ferðamaður, marga ferð- ina fór hann að leita kinda inn í Ódáðahraun og á Austurafrétt Bárð- dæla með nágrönnum sínum úr Bárðardal og Mývatnssveit. Tryggvi var músíkalskur, spilaði á gítar og harmóníku sér til afþreying- ar og öðrum til ánægju. Tryggvi Harðarson og fjölskylda hans hafa verið framverðir byggðar í Bárðardal í full 60 ár. Þótt Tryggvi sé fallinn halda dætur hans og tengda- synir merkinu uppi, meðal annars með með þátttöku í öflugu starfi í Kiðagili, skólanum okkar á Stóruvöll- um. Kæra fjölskylda, missir ykkar er mikill en minning um góðan dreng lif- ir. Ég minnist Tryggva Harðarsonar með virðingu og þakklæti Egill Gústafsson. Ég minnist bóndans, sem bjó á næsta bæ við Ódáðahraun, stórgerður sonur mikillar móður og maður í sjón og raun. Í hrjúfum svipnum var barnsleg blíða og brennandi frelsisþrá, og þarna gekk hann á hólm við heiminn og hraunin öskugrá. (Davíð Stefánsson.) Svartárkot og Grænavatn eru grannbæir. Báðir liggja næst öræf- um, hvor í sinni sveit. Sellandafjall í milli, áþekkt á að sjá að sunnan og norðan. Og það segir nokkuð um víð- áttuna, að bæjarleiðin er ekki nema þrjátíu kílómetrar. En það er gott ná- grenni. Svo er fólkinu fyrir að þakka. Traustari granna en Tryggva er ekki hægt að fá, þótt fé sé í boði en ekki fyrirhöfnin ein. Margan snún- inginn tók hann af Grænvetningum, ekki síst þegar huga þurfti að eftir- legukindum í afrétt að áliðnu hausti. Og marga gistinguna og greiðann hafa gangnamenn úr Mývatnssveit þegið í Svartárkoti. Gestrisni hús- bænda þar enda jafnan við brugðið, svo í búskapartíð þeirra Elínar sem fyrr í tíð foreldra hans. Tryggvi var ekki þeirrar gerðar sem hrópar á torgum sér til athygli. Yfirlætisleysi hans og æðrulaust þrek, greiðvikni og gott skaplyndi gerðu hann hins vegar að æskilegri fyrirmynd ungum mönnum, og virð- ingu foreldra minna átti hann meiri en aðrir menn. Hann var hraust- menni og drengur góður. Erlingur Sigurðarson frá Grænavatni. Tryggvi Harðarson ✝ Ástkær eiginmaður minn og faðir, FRIÐRIK SIGURBJÖRNSSON, Bárugötu 23, Reykjavík, lést á gjörgæsludeild Landspítala Fossvogi miðvikudaginn 14. júlí. Útförin hefur farið fram. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð. Kristbjörg Kristjánsdóttir, Svana Friðriksdóttir. ✝ Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÞÓR JAKOBSSON, Framnesvegi 6, Reykjavík, lést á Landspítalanum við Hringbraut miðvikudaginn 28. júlí. Ásta Þórsdóttir, Knútur Benediktsson, Guðný Þórsdóttir, Tryggvi Már Valdimarsson, Þóra Margrét Þórsdóttir, Jón Eiríkur Rafnsson, barnabörn og langafabörn. ✝ Ástkær móðir okkar, stjúpmóðir, tengdamóðir, amma og langamma, ÓSK ÓLAFSDÓTTIR, frá Bolungarvík, lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli laugardaginn 17. júlí. Útförin fer fram frá Hólskirkju í Bolungarvík laugardaginn 31. júlí kl. 14.00. Halldór Ben Halldórsson, Erla Gunnlaugsdóttir, Ólafur Halldórsson, Sigurlaug Ingimundardóttir, Sólveig Halldórsdóttir, Una Halldóra Halldórsdóttir, Geir Guðmundsson, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.