Morgunblaðið - 30.07.2010, Blaðsíða 32
32 MenningFRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. JÚLÍ 2010
Stuðsveitin Hjálmar verður með
tvenna tónleika á Akureyri um
helgina. Í kvöld stígur sveitin á svið
á Græna hattinum kl.23.00 og á
morgun verður sama upp á ten-
ingnum þegar hljómsveitin spilar
aftur á sama tíma á tónleikastaðn-
um vinsæla.
Tvö kvöld með Hjálm-
um á Græna hattinum
Fólk
Eins og fram kom í tímaritinu Monitor í gær not-
ar tölvurisinn Apple lag í nýrri auglýsingu sem
er keimlíkt laginu „I Sing I Swim“ með hljóm-
sveitinni Seabear og hefur nokkur umræða
skapast um málið á veraldarvefnum undanfarna
daga.
Meðlimir hljómsveitarinnar taka þessu öllu
með stakri ró og hafa þess í stað efnt til ábreiðu-
keppni á vefsíðuni Youtube. Þar gefst fólki tæki-
færi á að senda inn sínar eigin útgáfur af lögum
sveitarinnar og verður vinningshafanum boðið
að koma og spila sína útgáfu á tónleikum með
sveitinni.
„Það er margt fólk sem hefur verið að taka lög
eftir okkur og setja á Youtube, þannig að við
ákváðum að þakka fyrir okkur með því að verð-
launa fyrir besta lagið. Sá sem vinnur fær að
spila á undan okkur á einum tónleikum og líka
með okkur í lokalaginu á tónleikunum,“ segir
Halldór Ragnarsson, bassaleikari Seabear, um
keppnina á Youtube.
Ábreiðukeppnin er ekki eina keppnin sem
hljómsveitin stendur fyrir þessa dagana því á
vefsíðunni TracksAndFields.com er hægt að
taka þátt í keppni um bestu endurhljóðblönduna
á laginu „Wolfboy“ sem er að finna á annarri
plötu sveitarinnar We Built A Fire sem kom út
fyrr á þessu ári. Hægt er að senda inn lög til
sjötta september, en eftir það gefst fólki færi á
að hlusta á innsend lög og kjósa það sem því
finnst best.
matthiasarni@mbl.is
Efna til ábreiðu- og endurhljóðblöndunarkeppni
Morgunblaðið/Eggert
Seabear Ábreiður og endurhljóðblandanir.
Færeyskir fjölskyldudagar á
Stokkseyri eru haldnir í annað
sinn nú um helgina. Í ár koma
fram 16 listamenn frá Færeyjum
sem munu syngja, spila og dansa
færeyska dansa alla versl-
unarmannahelgina.
Þar á meðal eru Eivör Páls-
dóttir, Högni Lisberg, Angelika
Nielsen, Benjamin Petersen ásamt
hljómsveitum eins og Kvönn,
Yggdrasil, Hilmar Joensen band
og fleirum. Auk þeirra verða
Hilmar og Gunnvör með kennslu í
færeyskum dönsum. Dagskrá má
nálgast á stokkseyri.is og miða á
midi.is
Færeysk skemmtun á
Stokkseyri um helgina
Það verður mikið fjör á Faktorý
um verslunarmannahelgina þar
sem plötusnúðar ætla að sjá um að
skemmta gestum verksmiðjunnar.
Í kvöld mætir Dj Maggi Legó og
þeytir skífum frá miðnætti til lok-
unar. Annað kvöld halda DJ Valbrá
og Marlon Pollock uppi stemming-
unni og á sunnudag sér Björn Teits-
son um að koma gestum í gírinn.
Plötusnúðar yfirtaka
Faktorý um helgina
t.a.m. sýnd á BSÍ, í Elliðaárdalnum
og í kjallaraherbergi.
„Svo er einnig að koma danshöf-
undur frá Stokkhólmi sem skapar
mjög spennandi verk þar sem áhorf-
endur fá iPod og eiga að ganga um
Reykjavík og fá leiðbeiningar um það
hvernig þeir eiga að haga sér og eiga
að dansa um borgina. Einnig verða 6
listamenn starfandi innan RPSP pró-
grammsins og munu þeir notast við
vinnureglur frá mjög mikilsvirtum
erlendum hópum sem eru notaðir
sem upphafspunktur. Sem dæmi um
listamenn sem hafa sent inn reglur
eru Gob Squad og Tim Etchells og við
erum ótrúlega stolt af því að hafa
fengið innlegg frá þessum sviðs-
listamönnum.“
Hefur sýnt í Tate Modern
Richard DeDomenici kemur einnig
til landsins á vegum hátíðarinnar en
hann hefur m.a. sýnt í Tate Modern
listasafninu í Lundúnum. Hann verð-
ur með ókeypis vinnustofu sem ein-
staklingar geta enn skráð sig í á art-
fart@artfart.is. „Vinnustofan fer fram
3. - 5. ágúst og hann mun vinna með
hugmyndir sínar um list í almennings-
rýmum. Hann er ansi róttækur og
hefur meðal annars lent í kasti við lög-
in við framkvæmd gjörningsins
Cable-Tie Chicago þegar hann reyndi
að komast leiðar sinnar í Chicago með
plastpoka á hausnum og hendurnar
bundnar á bakinu með plast-bensli.
Hann mun einnig sýna verk í opn-
unarteiti hátíðarinnar og hann verður
líka með fyrirlestur sem er eins konar
leikverk og fjallar um samskipti hans
við lögregluna,“
Hver og einn einstaklingur fær að
að vinna sitt með aðferðum hans og
hugmyndafræði og 5. ágúst sýna þeir
verkin um alla Reykjavíkurborg.
Stella Polaris kemur frá Noregi
Leikhópurinn Stella Polaris kemur
einnig til landsins frá Noregi með
styrk frá Vodafone og Fimleikafélag-
inu Ármanni, en í honum eru skandin-
avískir fjöllistamenn sem skapa fjöl-
breytt verk, sum í stíl við sirkus. Á
menningarnótt ætlar hópurinn að
frumsýna verkið The Dream of the
Shaman sem þeir frumsýndu á Ól-
ympíuleikunum í Lillehammer í Nor-
egi og fer það fram í Hljómskálagarð-
inum.
„Þetta er rosa-sýning og þau vinna
á mjög stórum skala. Verkin sem þau
sína hérna á menningarnótt verða
mikið sjónarspil. Í verkum sínum
skapa þau alveg nýjan heim og er
markmið þeirra að skapa heim á milli
ævintýra og raunveruleika og menn
fara bara inn í aðra vídd,“ segir Ás-
gerður að lokum.
Listasprenging á artFart
í ár, listamenn hvaðanæva
Sviðslist Stella Polaris setur upp sviðslistaverkið The Dream of the Shaman sem var frumsýnt á Ólympíuleikunum í Lillehammer í Noregi.
Skipuleggjendur Arna Ýr Sævarsdóttir, Alexander Graham Roberts,
Sigurður Arent Jónsson og Ásgerður G. Gunnarsdóttir.
Hátíðin hefur aldrei verið eins stór og í ár DeDomenici með opna vinnustofu
Stella Polaris skapar Reykvíkingum nýjan heim á menningarnótt
Guðmundur Egill Árnason
gea@mbl.is
ArtFart-sviðslistahátíðin sem er
styrkt af Kultur Kontakt Nord,
Reykjavíkurborg og mennta-
málaráðuneytinu verður haldin í
fimmta sinn í ár en hátíðin skapaðist
þegar sviðslistahópar sem allir höfðu
fengið styrk sem skapandi sum-
arstarfshópar ákváðu að stofna hátíð í
kringum verkin sem þeir voru allir að
frumsýna þá. Síðan hefur hátíðin vax-
ið talsvert og ljóst er að í ár er engin
breyting á örum vexti hátíðarinnar
sem setur svip sinn á borgina 5.-22.
ágúst.
„Þetta er fimm ára afmælið í ár og
hún hefur vaxið eiginlega alveg síðan
hún byrjaði. Á þriðja árinu fór að
koma meiri áhugi að utan og síðan í
fyrra varð algjör sprenging, alveg 24
verk og í ár verða 28 verk svo ég
myndi segja að hún hafi verið á hraðri
uppleið. Við vildum líka gera hana að-
eins stærri og veglegri í ár. Þema há-
tíðarinnar í ár er óhefðbundið rými og
við vildum skapa sérstaka dagskrá í
kringum þá hugmynd. Það fékk nafn-
ið Reykjavík Public Space Pro-
gramme (RPSP). Þessi hluti er nýj-
ung á artFart, en innan hans eru
vinnustofur út frá hugmyndum um
list í almenningsrýmum, auk fyr-
irlestra og sýninga,“ segir Ásgerður
G. Gunnarsdóttir, einn skipuleggj-
enda sviðslistahátíðarinnar.
Óhefðbundnar staðsetningar
Í áranna rás hefur fólk verið að
sýna verk á alls kyns stöðum en ekki
bara í leikrýmum og í ár verða verk
Morgunblaðið/Jakob Fannar
Hátíðin stendur frá 5.-22. ágúst
en þemað er óhefðbundin rými.
Hátíðin fer m.a. fram á:
BSÍ
Norðurpólnum
Útgerðinni
Elliðaárdalnum
Íslensku óperunni
galleríum og kjöllurum.
Nýir staðir
ARTFART-LISTAHÁTÍÐIN
Íslandsmeistaramótið í pylsuáti
fer fram Ráðhústorgi á Akureyri á
sunnudaginn. Skráningu þátttak-
enda lýkur í dag. En hún fer fram á
útvarpsstöðinni Voice FM 98,7.
Þátttakendur munu þurfa að sporð-
renna fjórum pylsum í brauði á sem
skemmstum tíma. Fimm fljótustu
keppendur munu síðan taka þátt í
lokaúrslitum sem fara fram kl. 15 á
sunnudaginn. Þeir hafa svo tíu mín-
útur til að borða eins margar pyls-
ur og þeir mögulega geta.
Íslandsmeistaramótið
í pylsuáti á sunnudag