Morgunblaðið - 30.07.2010, Page 4

Morgunblaðið - 30.07.2010, Page 4
4 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. JÚLÍ 2010 FRÉTTASKÝRING Hjörtur J. Guðmundsson hjorturjg@mbl.is „Ég hefði munað það ef það hefði komið einhver athugasemd um að þetta væri ekki rétt innleitt,“ segir Valgerður Sverrisdóttir, fyrrum viðskiptaráðherra, spurð um þau ummæli framkvæmdastjórnar Evr- ópusambandsins í svari til norska fréttavefjarins ABC Nyheter að Íslendingum beri að endurgreiða innistæðueigendum innan sam- bandsins á þeim forsendum m.a. að tilskipun þess um innistæðutrygg- ingar hafi ekki verið innleidd með viðunandi hætti hér á landi. Í svarinu kom einnig fram viður- kenning framkvæmdastjórnarinnar á því að í tilskipuninni fælist ekki ríkisábyrgð á bankainnistæðum innan Evrópska efnahagssvæð- isins. Valgerður tók við sem viðskipta- ráðherra skömmu eftir að lög frá Alþingi tóku gildi byggð á tilskipun Evrópusambandsins í lok árs 1999. Forveri Valgerðar í viðskiptaráðu- neytinu, Finnur Ingólfsson, tekur í sama streng. „Ég er alveg viss um það að það komu aldrei neinar at- hugasemdir af hálfu nokkurs aðila um innleiðinguna á þessu hérna enda veit ég ekki hvað gæti verið rangt í því.“ Kemur ekki á óvart „Þetta kemur mér í sjálfu sér ekki á óvart. Ég sé ekki að þetta breyti stöðunni í neinum grundvallaratriðum,“ segir Stein- grímur J. Sigfússon, fjár- málaráðherra. Að öðru leyti vildi hann ekki tjá sig um málið þar sem stjórnvöld væru að undirbúa svar til Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) við áminningarbréfi sem barst frá henni sl. vor vegna málsins og væru því ekki í aðstöðu til þess að tjá sig efnislega um það. „Þetta er bara ánægjuleg stað- festing á að ríkisábyrgð sé ekki til staðar og styrkir stöðu okkur í við- ræðum við Breta og Hollendinga. Ég er annars að heyra það í fyrsta skiptið núna að við höfum ekki inn- leitt þessa tilskipun með réttum hætti á sínum tíma. Það hefur eng- inn haldið því fram áður, að ég best veit,“ segir Höskuldur Þór- hallsson, þingmaður Framsókn- arflokksins. Einbeittur vilji „Það virðist vera einbeittur vilji fyrir því að túlka allt varðandi þetta Icesave-mál með þeim hætti að við eigum að standa undir þess- um greiðslum. Við verðum einfald- lega að halda áfram að halda mál- stað okkar hátt á lofti í þessum efnum,“ segir Ólöf Nordal, varafor- maður Sjálfstæðisflokksins. „Það er auðvitað jákvætt ef það er loksins komin fram opinber staðfesting á því að engin ríkis- ábyrgð sé til staðar,“ segir Þór Saari, þingmaður Hreyfingarinnar. Tilskipunin rétt innleidd  Breytir ekki neinum grundvallar- atriðum, segir fjármálaráðherra Morgunblaðið/Ómar Icesave Frá mótmælum á Austur- velli vegna Icesave-málsins. Engin stórverkefni hafa komið upp hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæð- isins þar sem þörf hefur verið á að kalla til aukalið eftir að slökkviliðs- menn skiluðu boðtækjum sínum vegna verkfalls. „Það hefur ekki verið ýtt á takkann, en alveg verið komið að því,“ segir Jón Viðar Matthíasson slökkviliðsstjóri. Mikið var að gera hjá sjúkra- flutningamönnum og slökkviliðs- mönnum á dælubílum fyrir síðustu helgi. Þá lá við að boðaður yrði aukamannskapur. Þrjátíu menn eru á hverri vakt hjá slökkviliðinu en aðeins 22 í vinnu hverju sinni yfir sumarið vegna sumarleyfa. Fram hefur komið að það skapar óöryggi þegar slökkviliðsmenn bera ekki boðtæk- in á frívöktum vegna þess að tíma- frekara er að kalla til meiri mann- skap. Spurður að því hvort ekki væri möguleiki að hafa fleiri menn á vakt segir Jón Viðar að slökkvi- liðsmenn með menntun og reynslu séu ekki gripnir upp af götunni. Hann segir að bent hafi verið á þann möguleika að fjölga upp í 24 til 26 á vakt. Það hjálpi lítið í stórút- köllum. „Þá þurfum við alla okkar menn sem mögulega geta komið,“ segir Jón Viðar og nefnir brunana í Hringrás og á Laugavegi sem dæmi um það. Slík mál komi upp án fyrir- vara. Kjaradeilan er hjá ríkissátta- semjara. Ekki hefur verið boðað til fundar frá því upp úr slitnaði rétt fyrir verkfallið 22. júlí. Slökkviliðs- menn hafa boðað til annars verk- falls 6. ágúst. helgi@mbl.is Morgunblaðið/Júlíus Kjaradeila Slökkviliðsmenn mót- mæla á Austurvelli. Ekki þurft að ýta á takkann Óbreytt staða hjá slökkviliðsmönnum Í Garðyrkjustöðinni Jörva á Flúðum stóð fólk í ströngu við að skera spergilkál þegar ljósmynd- ara bar að garði en þar og annars staðar í Hrunamannahreppi stefnir í góða uppskeru í ár. Þetta segir Þröstur Jónsson, garðyrkjubóndi á Flúðum, og kveður aðstæður að undanförnu hafa verið mjög ákjósanlegar fyrir ræktunina. „Reyndar er blómkálið svolítið seinna á ferð en í meðalári og við kunnum ekki skýringar því. Kannski að þurrkakaflinn í vor hafi sett strik í reikninginn, en það er allt komið á fullt núna,“ segir Þröstur. Aðaluppskerutíminn hefst í ágústmánuði og er því handan við hornið. Uppskeran heldur svo eitthvað áfram fram í september. Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson Útlit fyrir mjög góða uppskeru í Hrunamannahreppi Björn Karlsson, brunamálastjóri, segir að ekki sé nauðsynlegt að loka Hvalfjarðargöngum vegna hættu sem þar gæti skapast í eldsvoða. Göngin komu verst út úr könnun á 26 göngum í Evrópu, meðal annars hvað varðar eldvarnar- og öryggis- mál. Bendir Björn á að í áhættumati sem gert var árið 2004 hafi komið í ljós að sexfalt meiri áhætta fælist í að keyra fyrir Hvalfjörðinn en að fara um göngin. Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðsstjóri á höf- uðborgarsvæðinu, segir að niðurstaðan komi ekki á óvart. Segir hann að ljóst hafi verið að slökkvilið gæti átt erfitt með að komast að eldi og athafna sig í göngunum. Þá hafi slökkviliðið ekki yfir að ráða búnaði til starfa í göngum í langan tíma. Björn segir að göngin hafi verið byggð í sam- ræmi við reglur þess tíma og bendir á að hinar hertu Evrópureglur taki ekki gildi fyrr en 2014. Nokkur tími sé því til að gera úrbætur. Segir Björn að snar þáttur í slæmri útreið ganganna sé að þau séu einföld; í tvöföldum göng- um sé alltaf fyrir hendi flóttaleið gegnum hin göngin. Undir þetta tekur Jón Viðar og kveður tvöföldun ganganna myndu leysa mikinn vanda. Gylfi Þórðarson, framkvæmdastjóri Spalar, rekstrarfélags Hvalfjarðarganga, segir að á verk- áætlun séu úrbætur í öryggismálum. Ingvar Sverrisson, aðstoðarmaður samgöngu- ráðherra, reiknar með að málið verði tekið til skoðunar fljótlega í ráðuneytinu. skulias@mbl.is Þarf ekki að loka göngunum vegna falleinkunnar EuroTap  Göngin voru byggð í samræmi við þágildandi reglur  Úrbætur eru áformaðar Falleinkunn » Fern göng af 26 fengu falleinkunn en af þeim komu Hvalfjarðargöngin verst út. » Viðbúnaður vegna mögulegs neyðar- ástands, viðbrögð við eldi, flótta- og út- gönguleiðir og loftræsting í göngunum voru þeir þættir sem verst komu út úr könnuninni. » Könnunin var gerð í 13 Evrópulöndum und- ir merkjum EuroTap (European Tunnel As- sessment Programme). „Það er al- veg hreint kristaltært að það kom engin at- hugasemd sem laut að stærð kerf- isins eða að það væri röng innleið- ing á því almennt,“ segir Bene- dikt Árnason, fyrrverandi skrif- stofustjóri í viðskiptaráðuneytinu, sem hafði á sínum tíma umsjón með innleiðingu tilskipunar Evrópu- sambandsins um innistæðu- tryggingar. „Ég held líka að það sé þá nokkuð ljóst að ef þetta er skilningur framkvæmdastjórn- arinnar þá sé ekkert ríki sem uppfyllir ákvæði tilskipunar- innar.“ Alveg hreint kristaltært BENEDIKT ÁRNASON Benedikt Árnason

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.