Morgunblaðið - 30.07.2010, Page 8

Morgunblaðið - 30.07.2010, Page 8
8 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. JÚLÍ 2010 Þáttargerðarmenn útvarpsinsfengu Elías, aðstoðarmann menntamálaráðherra, til sín í hljóð- stofu til að ræða afrek hans, sem óvænt varð á allra vitorði. Ekki mátti á milli heyra hvert þeirra þriggja var hrifnast af framgöngu aðstoðarmannsins.     Þó kom fram að Elías vildi biðjaafsökunar á atriði, sem ekki er hér hægt að hafa eftir. En allir máttu heyra að afsökunin snerist í raun um það að uppátækið hafði komist upp, en ekki gjörðina sjálfa.     Og þáttagerð-arfólkið gapti upp í skýringar spunastráklings Steingríms, hvern- ig samspil þeirra „Dodda“ við að koma dægurumræðu í farveg sem hentaði ríkisstjórninni væri alveg sambærilegt við fréttatilkynningar og blaðamannafundi ráðherra. Ekkert var reynt að kafa í fyrri af- rek þeirra félaga við fréttasmíð.     Daginn eftir kom fram að Elíasaðstoðarmaður hefði beðið menntamálaráðherrann afsökunar á því að hafa notað orð, sem hér er ekki hægt að hafa eftir, í póstinum á milli spunadrengjanna. Hefur ráðherrann, að gefnu tilefni, látið fara yfir annað það sem sent hefur verið úr tölvu ráðuneytisins af hálfu sama manns?     Varla trúir ráðherrann því aðslysapósturinn sé einstakur. Geri hún það, þá trúir hún því líka að það hafi í raun verið litla barnið sem sendi út póstinn, eins og að- stoðarmaðurinn hefur haldið fram.     Barnið gáði ekki að sér, geranditvennt í senn, skrifa á tölvu ráðuneytisins og lesa Doddabæk- urnar. Elías Jón Guðjónsson Afrek aðstoðarmanns Veður víða um heim 29.7., kl. 18.00 Reykjavík 14 skýjað Bolungarvík 16 skýjað Akureyri 15 skýjað Egilsstaðir 17 léttskýjað Kirkjubæjarkl. 13 alskýjað Nuuk 13 skýjað Þórshöfn 11 alskýjað Ósló 15 alskýjað Kaupmannahöfn 17 skúrir Stokkhólmur 17 skúrir Helsinki 26 skýjað Lúxemborg 17 skýjað Brussel 18 skýjað Dublin 17 skýjað Glasgow 18 heiðskírt London 20 léttskýjað París 22 heiðskírt Amsterdam 18 léttskýjað Hamborg 18 léttskýjað Berlín 22 heiðskírt Vín 18 þrumuveður Moskva 30 heiðskírt Algarve 27 heiðskírt Madríd 36 léttskýjað Barcelona 26 léttskýjað Mallorca 30 heiðskírt Róm 27 léttskýjað Aþena 27 léttskýjað Winnipeg 21 skýjað Montreal 20 skýjað New York 28 léttskýjað Chicago 25 léttskýjað Orlando 32 heiðskírt Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ STAKSTEINAR VEÐUR KL. 12 Í DAG 30. júlí Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 4:29 22:40 ÍSAFJÖRÐUR 4:11 23:09 SIGLUFJÖRÐUR 3:53 22:52 DJÚPIVOGUR 3:53 22:16 Halldór Armand Ásgeirsson haa@mbl.is Þrátt fyrir að einungis tæp tvö ár séu liðin síðan Íslendingar upplifðu hlutfallslega mesta fjármála- hrun hagsögunnar og nokkur fyrirtæki þeirra komust ofarlega á lista yfir stærstu gjaldþrot veraldarsögunnar virðist slíkt ekki hafa hreyft mikið við launum forstjóra fyrirtækja hér á landi. Tímaritið Frjáls verslun gaf í gær út árlegt tekjublað sitt og kennir þar ýmissa grasa. Að sögn Jóns G. Haukssonar, ritstjóra blaðsins, voru 200 launahæstu forstjórarnir hér á landi með 2,2 millj- ónir að meðaltali í launatekjur á mánuði árið 2009. Launtekjur þeirra árið 2008 voru hins vegar að meðaltali 2,4 milljónir á mánuði. „Þetta er það sem skatturinn lítur á sem laun. Yfirleitt eru þetta vinnulaun en geta líka verið arðgreiðslur eða ýmis hlunnindi sem skatturinn lítur á sem laun. Fjár- magnstekjur eru ekki þarna inni í.“ Bankafólk virðist ekki heldur vera á flæðiskeri statt þrátt fyrir að fall gömlu bankanna árið 2008 hafi verið hátt og harkalegt. Laun 200 launahæstu bankamannanna voru að meðaltali 2 milljónir á mánuði á síðasta ári. Þær voru 5 milljónir árið 2008 og felst skýringin á lækkuninni eflaust í al- gjöru hruni sem varð á hlutabréfamarkaði – ýmis hlunnindi tengd hlutabréfum eru álitin vera launa- tekjur en þau heyra nú sögunni til. „Laun hafa lítið sem ekkert lækkað hjá forstjórum og eru ennþá mjög há hjá bankafólki þó þau hafi lækkað. Þetta eru sláandi há laun. Það verður að líta á þetta í því samhengi að við erum að ganga í gegnum mestu kreppu Íslandssögunnar; bankarnir hrundu og sparisjóðirnir og mörg fyrirtæki fóru í þrot og voru tekin yfir af bönkum og ríki.“ Forstjórum hlýtt á toppnum  Launatekjur þeirra hafa lítið sem ekkert lækkað þrátt fyrir fjármálahrunið Birkir Fanndal Haraldsson Jökulsá á Fjöllum setur nú strik í reikning þeirra sem vilja komast stystu leið í Herðubreiðarlindir. Á undanförnum árum hefur áin verið að þrengja stöðugt meir að leiðinni um Mývatnsöræfi í lindirnar. Talið er að áin hlaði undir sig aurframburði og lyfti sér þannig og þoki sér smám saman að Lindahrauni, en á þeirri leið rífur hún stórar gróðurspildur sem áður voru mikið augnayndi vegna eyrarósabreiðna og hvannstóðs. Af þessum sökum hefur á síðustu árum smám saman þurft að færa veg- inn meir og meir inn á hraunið sem er töluvert hærra en áreyrarnar. Í sumar hefur ágangur árinnar ágerst mikið og nú á síðustu dögum er svo komið að leiðin er ekki fær nema stórum og traustum fjallabílum, en Jökulsá og Kreppa eru báðar í miklum vexti vegna hlýindanna. Fólki á lægri bílum er ráðlegt að velja leið- ina suður frá Möðrudal, brú á Kreppu og aðra á Jökulsá sunnan Upptypp- inga vilji menn komast að náttúru- perlunum Öskju og Herðubreiðar- lindum. Núverandi varnargarðar gera ekki betur en að verja lítið svæðið sem næst liggur skálum Ferðafélagsins og er vandséð hvernig úr verður bætt til frambúðar nema með öflugum varn- argörðum. Gísli Rafn Jónsson þekkir þessa leið manna best og hefur verið með Öskjuferðir í áratugi. Gísli segir mikið vatn á eyrunum og vaðið á Lindaá óvenju djúpt eða allt að 1 metra vegna hækkunar í Jökulsá. Hann telur þó leiðina hættulausa þeim sem eru á fjallabílum. Jökulsá í vexti þrengir meir að lindunum Morgunblaðið/Birkir Fanndal Á kafi Blómabreiður sem áður voru á þurrum melum eru nú sumar að sökkva undir vatn. Hér ber mest á eyrarrósinni. í fjarska ber Upptyppingar við loft. Sp ör eh f. s: 570 2790www.baendaferdir.is A L L I R G E T A B Ó K A Ð S I G Í B Æ N D A F E R Ð I R Vínbændur & 8. - 15. október HAUST 5 kastalar Móseldalurinn er ægifagur, haustlitirnir skarta sínu fegursta og vínuppskerutíminn er hafinn. Gist verður í 5 nætur hjá vínbændum í Leiwen við ána Mósel. Þaðan verður farið í áhugaverðar skoðunarferðir, t.d. til Bernkastel og Cochem, sem þykir einn fallegasti bærinn við ána. Þá verður komið til Idar-Oberstein sem frægur er fyrir skartgripagerð, mjög skemmtilegt gimsteinasafn og ekki má gleyma hellakirkjunni frægu sem er byggð inni í kletti. Einnig verður komið til elstu borgar Þýskalands, Trier, sem hefur að geyma miklar fornminjar frá tímum Rómverja. Síðustu 2 næturnar gistum við á góðu hóteli í Bingen við Rín en þar verður boðið uppá hina svokölluðu kastalasiglingu á Rín, frá Bingen til borgarinnar Koblenz. Fararstjórar: Georg Kári Hilmarsson og Agnar Guðnason Verð: 144.700 kr. á mann í tvíbýli Örfá sæti laus! Innifalið: Flug, skattar, gisting, allar skoðunarferðir með rútu, hálft fæði, vínsmökkun og íslensk fararstjórn. Hálftfæðiogallarskoðunarferðirinnifaldar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.