Morgunblaðið - 30.07.2010, Blaðsíða 14
Veiðihornið • Síðumúla 8 • 568 8410 • veidihornid.is
Munið vinsælu gjafabréfin okkar
Bestu flugurnar
Já, þú færð allar bestu
flugurnar á betra verði hjá okkur
Í sérverslun fluguveiðimannsins á netinu,
Flugan.is, færðu á fjórða hundrað gerðir af
vönduðum, vel hnýttum og veiðnum flugum.
Flestar þeirra færðu einnig
í Veiðihorninu, Síðumúla 8
Veldu úr yfir 300 gerðum af flugum
á Flugan.is eða komdu við
í Veiðihorninu Síðumúla 8 – Opið alla daga
Gerðu verð og gæðasamanburð.
Fjölmargir veiðimenn hafa áttað sig á því
að það margborgar sig.
Rektor - 290 krónur
Killer - 220 krónur
Fransis - 450 krónur
Hairy Mary - 390 krónur
HKA Sunray (Bismo) - 450 krónur
Flæðarmús - 290 krónur
Peacock - 220 krónur
Snælda - 450 krónur
Stekkur Blá - 390 krónur
HKA Sunray (Bismo) - 450 krónur
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. JÚLÍ 2010
Góðarfréttir
Nýsérhæfð
fluguveiðiverslun
á Kambsvegi 33
Bendumeinnigáheimasíðuokkar
Flugulínur, hjól,
flugustangir,
veiðiföt ofl.
Sérhæfð ráðgjöf
og þjónusta.
Hjá okkur finnur þú eitt mesta úrval
landsins af bestu fáanlegum laxa og
silungaflugum. Veiðimenn þekkja gæði!
fyrirveiðimennogkonur!
Kambsvegi 33 ~ 104 Reykjavík
hilmar@veidiflugur.is ~ S: 568 2127
STANGVEIÐI
Hjörtur J. Guðmundsson
hjorturjg@mbl.is
Farið er að bera á laxadauða í Norð-
urá í Borgarfirði vegna þurrka, að
því er fram kemur á heimasíðu
Stangveiðifélags Reykjavíkur
(SVFR). Ástandið nú er verra en það
var sumarið 2007 og að sögn leið-
sögumanna við ána er ástandið kom-
ið á alvarlegt stig. Hitinn hefur verið
slíkur í Norðurárdal í langan tíma að
áin hefur ekki náð að kólna, ekki einu
sinni á næturnar líkt og gerðist fyrir
þremur árum, með þeim afleiðingum
að laxinn er hættur að fá nægjanlegt
súrefni. Veiðimenn eru að fara út í 17
til 18 gráða heitt vatn.
„Ástandið er náttúrulega bara
mjög slæmt. Það vantar gersamlega
vatn. Það vantar ekkert fiskinn, það
er nóg af honum, en hann heldur sig
bara í djúpu hyljunum. Lofthiti og
vatnshiti hafa haldist nokkurn veg-
inn í hendur sem er mjög slæmt.
Þannig að hann bara liggur. Það er
mjög erfitt að eiga við hann,“ segir
Guðmundur Viðarsson, staðarhald-
ari í Veiðihúsinu við Norðurá. Hann
segist aðspurður hreinlega ekki
muna hvenær rigndi síðast á svæð-
inu.
Fram kemur á heimasíðu SVFR
að um þessar mundir sé áin nánast
við það að þorna upp. Ekki hafi
veiðst lax neðan við Víðinesfljót und-
anfarna daga sem einfaldlega þýðir
að enginn lax gengur í ána við þessar
aðstæður. Lax hefur fundist dauður í
nokkrum hyljum sem afleiðing af
þessu.
Veiðimenn í ánni binda nú allar
vonir við það að rigningin sem spáð
er um helgina verði að veruleika en
ítrekað hefur verið spáð rigningu á
svæðinu án þess að það hafi gengið
eftir. Þá segir að hollið sem nú sé við
veiðar í Norðurá hafi veitt sjö laxa á
tveimur dögum á samtals tólf stang-
ir. Að sögn Guðmundar má búast við
að það veiðist kannski 50 til 60 laxar í
þessari viku þegar hún ætti undir
eðlilegum kringumstæðum að skila í
kringum 200 fiskum. Yfirstandandi
holl muni kannski skila 15 til 20 fisk-
um.
Metveiði í Blöndu
Öllu betri fréttir berast af veiði í
Blöndu en þar hefur orðið metveiði
þrátt fyrir að ekki sé komið fram í
ágúst. Þetta kemur fram á vefsíð-
unni Votnogveidi.is. Óvíst er hvar
þetta endar eins og segir á síðunni
þar sem enn er nokkuð í yfirfall.
Fram kemur að Blanda sé nú efst á
lista yfir aflahæstu ár á Íslandi þó
forskotið sé reyndar aðeins 9 laxar.
Síðustu vikuna hafa 362 laxar komið
á land.
Hiti og þurrkar hafa ekki staðið
mönnum fyrir þrifum í Blöndu eins
og víða um land undanfarnar vikur.
Samtals er áin komin í 2.453 laxa
miðað við fyrrakvöld, sem er met-
veiði. Fram kemur á vefsíðunni að
gamla metið sé þó ekki ýkja gamalt
heldur frá því í fyrra þegar áin gaf af
sér aðeins 40 færri laxa. Enn er því
góður tími til stefnu til þess að auka
forskotið.
Næst á listanum á eftir Blöndu er
Þverá/Kjarrá með 2.444 laxa, miðað
við sama kvöld, og gaf vikan þar af
sér 377 laxa. Áin féll samkvæmt
þessu niður í annað sætið en hafði áð-
ur vermt það fyrsta. Nokkuð er niður
í þær ár sem næstar koma þar á eftir.
Góðar fréttir frá Alviðru
Öllu betri fréttir berast af Alviðru-
svæðinu í Sogi samkvæmt heimasíðu
SVFR. Þar hefur verið fínn gangur í
sumar en eins og kunnugt er varð
aflabrestur þar á síðustu vertíð.
Veiðin í sumar er þegar komin yfir
heildartöluna í fyrra. Svo virðist sem
mikill lax sé á svæðinu og er útlitið
fyrir næstu daga gott. Heildartala úr
veiðibók er 65 laxar.
Laxadauði í miklum
þurrkum í Norðurá
Veiðimenn krossleggja fingurna og vonast eftir að fá rigningu
Morgunblaðið/Einar Falur
Fengsæll Frá opnun á veiði í Hafralónsá í sumar. Veiðimaðurinn á myndinni er Kjartan Þorbjörnsson, ljósmyndari.