Morgunblaðið - 30.07.2010, Blaðsíða 29
Dagbók 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. JÚLÍ 2010
Sudoku
Frumstig
9 7
5 7 2 6
2 1 3 7
6
8 5 7 6
9 2
5 1
3 5 2
6 3 8
4 1
1 2
8 2 6
3 7 9
2 4 6 8
3 2 7
4 3
1
7 9 8 4
5 7 2
7 4
3 8 4
8
2 3 9
6 3 2 1 4
5 1
8 4 9 3
1 6 3
8 4 1 3 6 7 9 5 2
6 2 3 9 5 4 8 7 1
7 9 5 8 2 1 6 3 4
2 3 8 7 4 9 1 6 5
5 6 7 2 1 3 4 9 8
4 1 9 5 8 6 3 2 7
9 5 2 1 3 8 7 4 6
1 7 4 6 9 5 2 8 3
3 8 6 4 7 2 5 1 9
4 1 9 7 5 3 8 6 2
6 8 2 9 1 4 5 7 3
3 7 5 6 2 8 9 4 1
9 2 1 8 4 7 3 5 6
8 4 6 5 3 1 7 2 9
7 5 3 2 9 6 4 1 8
5 9 7 3 6 2 1 8 4
2 3 4 1 8 5 6 9 7
1 6 8 4 7 9 2 3 5
4 2 1 8 6 7 3 5 9
3 9 5 1 4 2 7 8 6
7 6 8 9 5 3 2 4 1
6 8 2 5 7 1 4 9 3
1 5 3 2 9 4 6 7 8
9 7 4 3 8 6 5 1 2
2 4 9 6 1 5 8 3 7
8 3 7 4 2 9 1 6 5
5 1 6 7 3 8 9 2 4
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er föstudagur 30. júlí, 211. dagur
ársins 2010
Orð dagsins: Jesús segir við hann: “Þú
trúir, af því þú hefur séð mig. Sælir
eru þeir, sem hafa ekki séð og trúa þó.“
(Jh.. 20.)
Aðalbygging Háskóla Íslands er aðmargra mati eitt helsta kenni-
leiti borgarinnar. Sem betur fer hefur
ekki hvarflað að nokkrum manni, svo
Víkverji viti, að reisa byggingar fyrir
framan aðalsmerki háskólamennt-
unar á Íslandi og því blasir byggingin
við vegfarendum langt að.
x x x
Í áratugi hefur aðalbygging Há-skólans á Bifröst verið helsta
kennileitið í Norðurárdal í Borg-
arfirði, en fyrir um þremur árum
voru byggðir nemendagarðar framan
við bygginguna og skyggja þeir á
hana frá þjóðveginum. Eðlilega hafa
margir hneykslast á þessum
nemendagörðum enda falla þeir alls
ekki inn í umhverfið og hafa í raun
eyðilagt fagra ásýnd, skemmt falleg-
asta listaverk landsins. Bifröst sést
ekki umvafin Hraunsnefsöxl, Baulu
og Grábrókum og Borgarfjörðurinn
er ekki samur. Landið er ekki samt.
x x x
Kunningi Víkverja segir að í hvertskipti sem hann fer framhjá
Bifröst óskar hann þess heitast að
nemendagarðarnir verði jafnaðir við
jörðu og reistir annars staðar, þannig
að aðalbyggingin fái að njóta sín eins
og hún gerði áður en menn misstu sig
í kapphlaupinu 2007.
x x x
Víkverji er sammála síðasta ræðu-manni. Í raun skilur hann ekki
hvernig leyfi fékkst fyrir byggingu
nemendagarðanna fyrir framan að-
albygginguna og hvers vegna ekki
var komið í veg fyrir eitt mesta
náttúruslys landsins í tíma. Hvar
voru náttúruverndarsinnar sem hafa
sumir hverjir látið sem mannýg naut
hafi verið minnst á virkjun eða aðrar
stórframkvæmdir? Að ekki sé talað
um niðurrif ónýtra húsa í 101 Reykja-
vík. En ekki er öll nótt úti enn. Skip-
aður hefur verið umboðsmaður
skuldara og svo vill til að hann þekkir
tilurð umræddra nemendagarða
betur en nokkur annar. Það færi vel á
því að hann bjargaði skólanum og
landinu frá enn meira tjóni. Um-
hverfisráðherra hlýtur að styðja það.
víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 nefna, 8 glufa,
9 tætir sundur, 10 veð-
urfar, 11 skakka, 13 fyr-
ir innan, 15 vænsta, 18
vondar, 21 ungviði, 22
upptök, 23 viðurkennt,
24 skjálfti.
Lóðrétt | 2 gyðja, 3 týna,
4 hlífði, 5 tangarnir, 6
mynni, 7 konur, 12
megna, 14 fljót, 15 hús-
gagn, 16 náði í, 17 nytja-
lönd, 18 starfið, 19 dánu,
20 tala.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 frekt, 4 fátæk, 7 engið, 8 neytt, 9 ann, 11 ilma,
13 hani, 14 sulla, 15 hark, 17 ljót, 20 egg, 22 látur, 23
rígur, 24 torfi, 25 tæran.
Lóðrétt: 1freri, 2 elgum, 3 tuða, 4 fönn, 5 teyga, 6 ketti,
10 nýleg, 12 ask, 13 hal, 15 helft, 16 rytur, 18 júgur, 19
tíran, 20 ermi, 21 græt.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 f5 4.
Rc3 fxe4 5. Rxe4 Rf6 6. d3 d5 7.
Rxe5 dxe4 8. Rxc6 bxc6 9. Bxc6+
Bd7 10. Bxa8 Dxa8 11. O-O Bd6
12. d4 O-O 13. c4 c6 14. Bg5 De8
15. Bxf6 Hxf6 16. c5 Bf4 17. He1
Dg6 18. d5
Staðan kom upp í grísku deildar-
keppninni sem lauk fyrir skömmu.
Viktorija Cmilyte (2527) hafði
svart gegn Haritomen Markanto-
naki (2129). 18… Bxh2+! 19. Kf1
hvítur hefði einnig tapað eftir 19.
Kxh2 Hxf2. 19…Bh3 20. He2
Dxg2+ 21. Ke1 Bf4 og hvítur gafst
upp.
Svartur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
2000-klúbburinn.
Norður
♠8754
♥954
♦D52
♣932
Vestur Austur
♠G10 ♠ÁK
♥103 ♥ÁD62
♦G874 ♦ÁK96
♣D7654 ♣ÁK8
Suður
♠D9632
♥KG87
♦103
♣G10
Suður spilar 2♦ doblaða.
Sú staða er fræðilega hugsanleg að
það borgi sig að fara 2000 niður á fórn-
arsögn. Það gefur 2210 að vinna 7♥ á
hættunni, þannig að fórn í 7♠, 2000
niður, skilar smávegis ágóða. En lík-
lega hefur Sveinn Rúnar Eiríksson
frekar verið með hugann við hrak-
fallasögur þegar hann stofnaði sér-
stakan spjallþráð á vef BSÍ undir heit-
inu „2000-klúbburinn“.
Bandaríkjamennirnir Wildavsky og
Doub gengu í 2000-klúbbinn í lands-
liðskeppninni í Chicago. Austur vakti á
alkröfu og Wildavsky í suður sagði 2♦.
Hann taldi sig vera að sýna hálitina, en
Doub var á öðru máli og passaði. Wil-
davsky passaði síðan dobl austurs sem
kom í kjölfarið, enda treysti hann því
að makker ætti tígul úr því hann
breytti ekki í hálit. Sjö niður á hætt-
unni og nákvæmlega 2000-kall.
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Eitthvað sem þú hefur treyst á
verður ekki og það veldur þér miklum
vonbrigðum. Málamiðlanir ættu að reyn-
ast auðveldar og það er líklegt að sátt ná-
ist.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Þeim mun meiri orku sem þú setur
í samband, þeim mun betri verða tengsl-
in. Einhver reynir á þolrifin í þér en það
líður hjá.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Gakktu í verkefni með tilþrifum.
Láttu það ekki trufla þig þó aðrir trúi
ekki á drauma þína. Haltu þínu striki en
reyndu að temja þér meiri þolinmæði.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Lykillinn að velgengni þinni er
heiðarleikinn sem þú hefur í hávegum.
Fullur ísskápur og blómlegur garður
veita þér gleði.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Fylgdu innsæi þínu þegar um nýtt
samband er að ræða. Líkaminn hefur sitt
eigið vit, hlustaðu á hann þegar hann er
að reyna að segja þér eitthvað.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Þú hefur vald yfir einhverjum sem
þú telur þig ekki hafa neina stjórn á.
Haltu sköpunargáfunni við með því að
umgangast þá sem kunna að meta hana.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Þú lætur af ósið, eins og þeim að
kvarta yfir verkefnum sem aðrir fagna.
Máli skiptir að verja tíma með fjölskyld-
unni.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Þér leiðist, ráð við því er að
breyta út af vananum. Verkefni heima
fyrir dregur úr þér máttinn, en hefurðu
nokkuð beðið um hjálp?
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Peningar sem náinn vinur
hefur lofað þér gætu látið á sér standa.
Notaðu hvíldartímann til að anda djúpt
og íhuga. Reyndu að miðla málum á for-
dómalausan hátt.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Þú ert bráðfyndin/n. Þér líður
eins og enginn sé morgundagurinn,
þannig á það einmitt að vera. Passaðu að
sofa nóg.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Þú virðist alltaf vera ánægð/
ur, alveg sama á hverju gengur. Ef þú
bælir depurð eða ótta gæti það hefnt sín
síðar meir.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Hamingja þín smitar út frá sér.
Þú ert lukkunnar pamfíll, þakkaðu fyrir
það. Einhver kemur þér á óvart í næstu
viku.
Stjörnuspá
30. júlí 1284
Sturla Þórðarson sagnaritari
lést, um 70 ára. Hann tók sam-
an eina gerð Landnámu,
samdi Íslendinga sögu og sett
hefur verið fram kenning um
að hann sé höfundur Njálu.
Sturla var lögmaður í nokkur
ár. Minnisvarði um hann var
afhjúpaður í Búðardal 1992.
30. júlí 1951
Örn Clausen, 22 ára laganemi,
setti Norðurlandamet í tug-
þraut, hlaut 7.453 stig. Þetta
var næstbesti árangur í heim-
inum það ár.
30. júlí 1994
Rúta með 32 erlenda ferða-
menn valt út af þjóðveginum
fyrir ofan Bólstaðarhlíð í
Austur-Húnavatnssýslu. Flest-
ir farþeganna slösuðust og ell-
efu voru lagðir á sjúkrahús.
30. júlí 2006
Sigur Rós hélt útitónleika á
Miklatúni í Reykjavík. Morg-
unblaðið sagði að tónleikarnir
hefðu tekist með eindæmum
vel og að áhorfendur hefðu
verið um fimmtán þúsund.
Þetta var hluti af tveggja
vikna tónleikaför um landið.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson
Þetta gerðist…
Tombóla
Þær Sara Bergdís Albertsdóttir
og María Ósk Steinsdóttir máluðu
myndir og seldu og héldu einnig
tombólu og gáfu RKÍ ágóðann, alls
1.707 krónur.
„Ég er nú bara í fríi núna með konunni minni á
Vestfjörðum. Þannig að það er það sem ég ætla að
gera á afmælisdaginn, flýja í burtu og vera í fríi,“
segir Þórhallur Reynir Stefánsson, málari og
trommuleikari hljómsveitarinnar Lights on the
Highway, en hann er þrítugur í dag. „Við erum
hérna í litlu sumarhúsi í Norðurfirði á Ströndum.
Við höfum verið hérna í tvo daga og förum héðan
á morgun. Þá ætlum við að keyra eitthvað vestur
eftir, það er ekkert ákveðið hvert,“ segir Þórhall-
ur og bætir við að það fari eftir ýmsu hvert haldið
verður. Veðrið spili þar t.a.m. eðlilega mikið inn í.
„Við ætlum bara að láta reyna á það hvert við förum. Við ætlum að
taka verslunarmannahelgina í þetta. Það kemur bara í ljós hvert við
förum og hvar við stoppum.“
Þórhallur segir að hann ætli að halda upp á afmælið 7. ágúst nk.
þegar þau verði komin heim aftur. Hann segir afmælið sitt gjarnan
hafa hitt á verslunarmannahelgina í gegnum tíðina og þá hafi allir
verið í burtu og þ.m.t. hann sjálfur. Hann hafi því oft þurft að halda
upp á afmælið helgina á eftir. Á móti hafi komið að gjarnan hafi verið
mikið stuð á afmælisdeginum hans. hjorturjg@mbl.is
Þórhallur Reynir Stefánsson þrítugur í dag
Óvissuferð um Vestfirði
Nýirborgarar
Reykjavík Sigríður
Ragna fæddist 1. mars kl.
12.53. Hún vó 3.870 g og
var 54 cm löng. Foreldrar
hennar eru Helga Margrét
Gunnarsdóttir og Kjartan
Páll Sæmundsson.
Reykjavík Máney Petra
fæddist 7. júlí kl. 12.05.
Hún vó 3.620 g og var
51,5 cm löng. Foreldrar
hennar eru Sigríður Pét-
ursdóttir og Torfi Páls-
son.
Nýbakaðir
foreldrar?
Sendið mynd
af barninu
til birtingar í
Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt
að senda mynd af barninu
með upplýsingum um
fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum
foreldra. Einnig má senda
tölvupóst á barn@mbl.is