Morgunblaðið - 30.07.2010, Page 34
AF VEÐURFRÉTTUM
Hugrún Halldórsdóttir
hugrun@mbl.is
Nú er ein stærsta ferðahelgiársins framundan og fólk íferðahug farið að spá í
hvert á land skal halda. Margt get-
ur skipt sköpum þegar valið er, til
dæmis hvaða útihátíðir eru í boði.
Ein með öllu á Akureyri heillar ef-
laust fjölskyldufólkið, djammarar
leggja leið sína til Vestmannaeyja,
íþróttafólk horfir hýru auga til
Unglingalandsmótsins í Borgarnesi
og Innipúkinn verður sennilega
fyrir valinu hjá heimakærum borg-
arbúum. Það er þó margt annað
sem getur haft áhrif á þessa
ákvörðunartöku, svo sem vinnufyr-
irkomulag, bensínverð, heilsufar,
ferðahagir vina og ættingja og svo
mætti lengi telja. Það sem ræður þó
lokaúrslitum er veðurspáin.
Ég er handviss um að allirþeir vefir sem búa yfir veð-
urspám slái met í fjölda innlita um
helgina þar sem þorri landsmanna
liggur nú yfir veðurfréttum líkt og
hrægammar. Sjálf er ég forfallinn
veðurfréttafíkill og fylgist með
þeim í tíma og ótíma, enda eflaust
ekki annað hægt. Þær eru til taks á
vefnum, í dagblöðum, útvarpi og
sjónvarpi. Þetta er eflaust ekki
versta fíknin sem til er þar sem
veðrið er jú helsta umræðuefni okk-
ar Íslendinga. Ég er ávallt með á
nótunum þegar það ber á góma.
Það vill þó svo til að spáin
bregst oftar en ekki, sérstaklega
þegar um er að ræða langtímaspár.
Því getur verið erfitt að taka ferða-
ákvarðanir fram í tímann.
Ég var stödd í saumaklúbbifyrr í vikunni þar sem talið
barst að helginni góðu. Mikið var
rætt um vænlega áfangastaði. Að
lokum var sú ákvörðun tekin að sjá
til, fylgjast með veðrinu og stökkva
síðan á sólríkasta landshlutann …
Eða alla vega þann þurrasta. Þó svo
að mér fyndist þetta frábær hug-
mynd þá fór ég að hugsa; Hversu
oft hefur maður brennt sig á þessu?
Í fyrrasumar planaði vinahópurinn
veglega Laugavegsgöngu. Spennan
stigmagnaðist dag frá degi, eða þar
til örfáir dagar voru til stefnu. Veð-
urspáin var ömurleg, fólk heltist úr
lestinni og ferðin leystist upp. Sam-
starfskona mín lét veðrið ekki á sig
fá og dreif sig á fjöll. Á mánudeg-
inum kom hún brún og sæl til vinnu
og undraðist hvar ég hefði nú eig-
inlega verið. Ég dró að sjálfsögðu
upp trompið mitt: Samkvæmt veð-
urspánni var óðs manns æði að
leggja í hann. Ég varð eilítið
skömmustuleg þegar hún sagði mér
að það hefði verið bongóblíða í
Þórsmörk og nágrenni þessa helgi.
Á Íslandi er allra veðra von ogþví ættum við að vera búin að
læra fyrir löngu að láta veðurspána
ekki komast upp með að ráða ferða-
straumnum. Ef fólk er enn skept-
ískt og hrætt við slæma spá mæli ég
með veðurfréttamanninum Sigurði
Þ. Ragnarssyni, eða Sigga Stormi
eins og hann er betur þekktur.
Hann hefur þann eiginleika að láta
óþarflega mörg vindstig og rign-
ingu hljóma vel.
Skjótt skipast veður í lofti
»Ég dró að sjálf-sögðu upp trompið
mitt: Samkvæmt veð-
urspánni var óðs manns
æði að leggja í hann.
Morgunblaðið/Frikki
Stormurinn Sigurður Þ. Ragnarsson veðurfræðingur er með eindæmum hress og lætur skin og skúrir ekki á sig fá.
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. JÚLÍ 2010
Karate Kid kl. 5:10 - 8 - 10:50 LEYFÐ Shrek 4 2D íslenskt tal kl. 3:30 LEYFÐ
Karate Kid kl. 5:10 - 8 - 10:50 LÚXUS Shrek 4 3D enskt tal kl. 3:30 - 5:45 LEYFÐ
Babies kl. 6 - 8 LEYFÐ Knight and Day kl. 8 - 10:30 B.i. 12 ára
Predators kl. 8 - 10:20 B.i. 16 ára Grown Ups kl. 10 LEYFÐ
Shrek 4 3D íslenskt tal kl. 3:30 - 5:45 LEYFÐ
Sími 462 3500
Karate Kid kl. 5:30 - 8 - 10:30 LEYFÐ
Predators kl. 10 B.i. 16 ára
Knight and Day kl. 5:30 - 8 B.i. 12 ára
Þú færð 5 %
endurgreitt
í Smárabíó,
Háskólabíó
og Borgarbíó
Þú færð 5 %
endurgreitt
í Smárabíó,
Háskólabíó
og Borgarbíó
S.V., MBL
SÝND Í SMÁRABÍÓI OG HÁSKÓLABÍÓI SÝND Í SMÁRABÍÓI OG BORGARBÍÓI
SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI
Jackie Chan kennir ungum lærling
sitthvað um Kung fu í vinsælustu
fjölskyldumynd ársins!
Missið ekki af myndinni
sem sló í gegn í
Bandaríkjunum og fór
beint á toppinn.
FRÁBÆR
GRÍNMYN
D
FYRIR ALL
A
FJÖLSKYL
DUNA!
SÝND Í
Þrívíddin er ótrúlega
mögnuð.
- New York Daily News
L.A Times
USA Today
T.V., Kvikmyndir.is
Börnin í einlægni sinni og
sakleysi eru bæði yndisleg
og sprenghlægileg
-H.G., MBL
Stórfín hugmynd sem
útfærð er á einfaldan og
áhrifaríkan máta
-Ó.H.T. Rás 2
SÝND Í SMÁRABÍÓI
Með lokakaflanum af
Shrek tekst þeim að
finna töfrana aftur.
- Empire
Bráðfyndin og hjartnæm frá
byrjun til enda. Lang besta
Shrek myndin og það eru
engar ýkjur.
- Boxoffice Magazine
Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Háskólabíói ef þú borgar bíómiðann með Kreditkorti teng