Morgunblaðið - 31.07.2010, Page 6
6 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. JÚLÍ 2010
Jónas Margeir Ingólfsson
jonasmargeir@mbl.is
Hitamet í júlímánuði kann að verða slegið í
Reykjavík í dag. Hlýjasti júlímánuður sem hefur
mælst í Reykjavík var árið 1991 en þá mældist
meðalhitastigið 13,03 gráður. Eftir mælingar í
gær var meðalhitastig júlímánaðar 13,00. Það
vantar því tveggja aukastafa breytingu á með-
alhitastigi til að setja nýtt met. Mælingar eru
framkvæmdar á þriggja klukkustunda fresti all-
an sólarhringinn.
Júnímánuður var sá hlýjasti sem mælst hef-
ur í Reykjavík og því mikil tíðindi ef hlýjasti júlí-
mánuður fylgir beint á eftir.
Trausti Jónsson, veðurfræðingur hjá Veð-
urstofu Íslands, segir spána vera í kringum
fimmtán stig í dag en það gefi ekki endilega til
kynna að meðalhitinn nái yfir þrettán stig. „Spá-
in er nú sínhvorum megin við þetta. Ég kíkti á
tvær spár. Önnur nær þessu ekki en hin rétt nær
yfir þetta. Ég mundi því orða það þannig að ef
okkur tekst að komast upp í 13,1 stig þá sláum
við met. En það er óvissa um 0,2 - 0,3 gráður,“
segir Trausti sem kveður það þó ljóst að saman
hafi júní og júlí verið þeir hlýjustu frá því að
mælingar hófust.
„Það er alveg óhætt að segja að það sé á
hreinu. Hitinn hefur verið yfir 12 stig samtals að
meðaltali. Það er heldur meira en áður hefur
verið í Reykjavík.“
Nýtt hitamet kann að verða sett í dag
Meðalhitastig í júní og júlí samtals það hlýjasta síðan mælingar hófust Munar einungis 0,03
gráðum Spár tvísýnar um hvort metið verði sett Júnímánuður var sá hlýjasti í Reykjavík
Morgunblaðið/Eggert
Heitt Þó svo að veðrið sé ákaflega gott og hitinn mikill þá geta Íslendingar stólað á kaldan sjóinn.
Hitamet
» Hitamet í júlímánuði í
Reykjavík var sett árið 1991 en
þá mældist meðalhitinn 13,03
gráður.
» Meðalhitinn í júlímánuði
fram að gærdeginum var 13,00.
» Einungis vantar tveggja
aukastafa breytingu til að slá
metið en spár eru tvísýnar um
hvort það hafist.
» Þó þykir víst að júní og
júlí-mánuðir til samans verði
þeir hlýjustu frá því að mæl-
ingar hófust.
» Spáin er um fimmtán stig í
Reykjavík í dag.
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Skipverjar á Hugin VE kepptust við
að frysta makríl og þrífa skipið
skammt frá Vestmannaeyjum síðdeg-
is í gær. Síðan átti að halda til hafnar
og taka þátt í þjóðhátíð. Ekki var bú-
ist við að löndun fengist úr skipinu
fyrr en á mánudag!
Guðmundur Huginn Guðmunds-
son, skipstjóri á Hugin, sagði að í hans
huga kæmi ekki til greina annað en að
taka þátt í þjóðhátíð og helst með
trompi. „Ég myndi aldrei fara frá
Eyjum á föstudegi fyrir þjóðhátíð
nema nauðbeygður. Ég hef séð full-
orðna menn gráta úti á sjó yfir því að
missa af þjóðhátíð og skil þá vel,“
sagði Guðmundur Huginn.
Allmörg uppsjávarskip eru á síld og
makríl þessa dagana og eru þau flest
fyrir austan land. Vel hefur gengið á
makrílnum og eru komin yfir 70 þús-
und tonn á land. Alls ákvað sjávarút-
vegsráðherra að heimila veiðar á 130
þúsund tonnum af makríl í ár. Hefð-
bundin uppsjávarskip hafa heimild til
að veiða 112 þúsund tonn af makríl
samkvæmt veiðireynslu. Síðan var
leyfilegum afla skipt í tvo potta eftir
skipategundum og veiðarfærum.
Heimild til veiða úr 15 þúsund
tonna potti höfðu 73 skip, en einhver
þeirra hafa skilað leyfum sínum og að-
eins 13 skip hafa landað afla umfram
100 kíló úr þessum potti. Fjölmargir
minni bátar hafa heimild til veiða úr 3
þúsund tonna potti.
Talsvert fékkst af smærri makríl
framan af sumri, en hlutföllin hafa
breyst undanfarið. Guðmundur Hug-
inn segir að Huginsmenn flokki mak-
rílinn og frysti þann stærri, en smærri
makríllinn fari í bræðslu. Gott verð fá-
ist fyrir það sem fari í bræðslu, en
væntingar um hátt verð fyrir frystar
afurðir hafi ekki fyllilega staðist.
Huginn er með mestan makrílkvóta
uppsjávarskipa og er búinn að veiða
um sjö þúsund tonn af rúmlega 10
þúsund tonna kvóta. Eftir þjóðhátíð
verður stefnan sett á norsk-íslenska
síld og makríl fyrir austan land.
Þjóðhátíð tekin með trompi
Á þjóðhátíð Glaðbeittir Huginsmenn með yfirskegg í lok mottumarz.
„Ég hef séð fullorðna menn gráta úti á sjó yfir því að missa af þjóðhátíð,“ segir
skipstjórinn á Hugin VE Vel hefur gengið á makrílveiðum að undanförnu
Síðastliðna viku hafa 25 unglingar frá Zafra á
Spáni dvalið hér á landi til að taka þátt í skipti-
nemaverkefni á vegum Evrópu unga fólksins.
Þeir hafa m.a. farið í Landmannalaugar í úti-
legu, „Amazing Race“-keppni á Þingvöllum
o.m.fl. ásamt íslenskum jafnöldrum sínum sem
munu endurgjalda heimsóknina næsta sumar.
„Þetta er búið að vera alveg frábært,“ segir Mar-
grét Jónsdóttir, vararæðismaður Spánar á Ís-
landi og einn af skipuleggjendum verkefnisins.
Uppskeruhátíð var haldin í gær í Nauthólsvík
og skemmtu börn og foreldrar sér konunglega.
Morgunblaðið/Ernir
Héldu uppskeruhátíð í Nauthólsvík
Árni Múli Jón-
asson, fiskistofu-
stjóri, er nýráð-
inn bæjarstjóri
Akraness. Hann
segir Akranes
heimabyggð sína
en hann býr þar
með fjölskyldu
sinni. Árni er
sonur Jónasar
Árnasonar, al-
þingismanns og leikskálds, og Guð-
rúnar Jónsdóttur.
„Ég er í sjálfu sér mjög ánægður
í starfi en hitt finnst mér nú ekki
síður spennandi. Ég hef áhuga á
stjórnsýslu og samfélagsmálum þó
ég sé ekki flokkspólitískur. Ég
hefði sótt um þetta starf burtséð frá
því hvaða flokkar eru í meirihluta.
Mér skilst að það sé þverpólitísk
samstaða um að ráða mig og mér
þykir vænt um það,“ segir Árni sem
kveðst ekki hafa áhyggjur af því að
yfirgefa góða stöðu til að taka að
sér verkefni sem ráðið er í til fjög-
urra ára. „Það er ekkert sem úti-
lokar að menn hafi það traust að
halda áfram. Ég lít bara á þetta
sem ópólitískt framkvæmda-
stjórastarf. Eins og er hjá mér akk-
úrat núna. Ég framfylgi bara stefnu
þeirra sem fara með valdið í þess-
um sjávarútvegsgeira. Það er ekki
svo mikil breyting hvað það varð-
ar.“
Árni segist kveðja Fiskistofu með
söknuði en þar hafi hann unnið með
góðu fólki. Hann játar að hann eigi
margt ólært en kvíði því ekki. „Ég
ætla ekki að vera of brattur, auðvit-
að þarf maður að læra mikið en ég
er ekkert hræddur við það.“
Kveður
Fiskistofu
með söknuði
Árni Múli ráðinn
bæjarstjóri Akraness
Árni Múli
Jónasson
Fólksbíll fór út af á Suðurlands-
vegi, austan við Bláfjallaveg, í gær.
Bíllinn fór út fyrir veg norðan veg-
ar, lenti þar á stórum steini og valt
á hliðina. Ökumaðurinn mun hafa
sofnað undir stýri. Tilkynnt var um
eld í bílnum og fór slökkvilið á stað-
inn en fann engan eld til að slökkva.
Bíllinn var óökufær á eftir.
Þá valt bíll efst á Bröttubrekku í
gær, fór margar veltur og endaði
eina 40 metra utan vegar. Ökumað-
ur slasaðist ekki alvarlega.
Bílveltur við Bláfjöll
og á Bröttubrekku