Morgunblaðið - 31.07.2010, Side 17

Morgunblaðið - 31.07.2010, Side 17
Fréttir 17ERLENT MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. JÚLÍ 2010 Fundist hefur grjót á Mars sem geymir í sér steingerðar leifar af lífverum, svo- nefnd karbónöt, að sögn breska ríkisútvarpsins, BBC. Grjótið fannst á svæði sem nefnist Nili Fossae og er bergið um fjögur þúsund milljón ára gam- alt. Skýrt er frá þessari uppgötvun í tímaritinu Earth and Planetary Science Letters. Vísindamenn undir stjórn Adrians Brown við Seti- stofnunina í Kaliforníu notuðu búnað í Marsfarinu Crism til að rannsaka umrætt grjót með innrauðu ljósi. Brown og liðsmenn hans notuðu sams konar aðferðir við að rannsaka grjót á svæði er nefnist Pilbera og er í norðvesturhluta Ástralíu. Svæðið er sagt nauðalíkt Nili Fossae á Mars. Einhverjar elstu vísbendingar um líf á jörðinni hafa fundist í Pil- bera. „Pilbera er stórkostlegt,“ sagði Brown. „Þetta er hluti af jörðinni sem hefur tekist að vera á yfirborð- inu í um 3500 milljónir ára – um þrjá fjórðu alls þess tíma sem jörðin hef- ur verið til.“ Örverur sem þróuðust á milljörðum ára hafa skilið eftir sig fyrirbæri í klettum Pilbara er nefn- ist strómatólít. Að sögn Browns er það auðséð á formi strómatólíta að lifandi verur hafi mótað fyrirbærin. kjon@mbl.is Leifar af fornu lífi á Mars? Búnaður í Marsfari fann karbónöt í grjóti Kristján Jónsson kjon@mbl.is Franskt samfélag er slegið vegna frétta af 45 ára gamalli konu sem hefur viðurkennt að hafa á 20 árum kæft a.m.k. átta nýfædd börn sín. Konan, Dominique Cottrez, hefur starfað við umönnun á hjúkr- unarheimili og er vel látin í því starfi, feimin en prúð eins og eig- inmaðurinn, Pierre-Marie Cottrez sem vissi ekkert um glæpina. „Hún gæti ekki gert flugu mein,“ sagði nágrannastúlka um Dom- inique. Hún sagði fjölskylduna hafa verið notalegt fólk í viðkynningu. Pierre-Marie er trésmiður og var í fyrra kjörinn í sveitarstjórn í þorp- inu sem nefnist Villers-au-Tertre og er með um 700 íbúa. Það er í norð- austurhluta Frakklands, skammt frá belgísku landamærunum. Hjón- in hafa búið á staðnum í 15 ár. „Venjulegt fólk“ „Ég er enn agndofa,“ sagði Dani- el Collignon, fyrrverandi bæj- arstjóri Villers-au-Tertre. Nágrann- ar hjónanna lýstu einnig mikilli undrun. „Þau eru venjulegt fólk sem gegndi mikilvægu hlutverki í samfélaginu,“ sagði einn þeirra. „Þetta er ótrúlegt.“ Hjónin eiga tvær uppkomnar dætur, Emeline og Virginie, og tvo dóttursyni og bera dæturnar móð- urinni vel söguna. Þær segja að hún hafi verið góð móðir og umhyggju- söm og hlý amma. „Við tókum aldr- ei eftir því að nokkuð væri að. En hún var oft þreytt, vann nærri því allan sólarhringinn,“ sögðu dæt- urnar í viðtali við blaðið La Voix du Nord. En hvað olli þessu athæfi og hvernig stendur á því að enginn tók eftir neinu? Konan ber því við að hún hafi ekki viljað eignast fleiri börn og ekki viljað leita til læknis til að fá getnaðarvarnir. Hún hafi haft slæma reynslu af læknum. Hún er feitlagin, mun vera um 130 kíló. Holdafarið mun hafa gert henni kleift að klæða af sér þungann þannig að engan grunaði neitt. „Þetta er óskiljanlegt,“ sagði mágur Dominique, Yves Cottrez. „Við trúum því ekki að svona nokk- uð geti gerst. Og bróðir minn sá ekki neitt, þó að hann svæfi við hlið- ina á konunni sinni … En Dom- inique var alltaf þéttvaxin, það sá ekkert á henni þegar hún gekk með dæturnar sínar tvær.“ Hugðust grafa fyrir sundlaug Málið kom upp sl. laugardag þeg- ar nýir eigendur húss í þorpinu hugðust grafa fyrir sundlaug og fundu þá beinagrindur af börnum grafnar í garðinum. Húsið var áður í eigu foreldra Dominique. Fólkið hringdi í lögregluna sem fann beinagrindur tveggja hvítvoð- unga í garðinum. Lögregla handtók síðan Cottrez-hjónin, sem búa í um kílómetra fjarlægð frá húsinu þar sem fyrstu líkin voru grafin og fundu sporhundar þá sex lík til við- bótar í bílskúr hjónanna. Öll voru af nýfæddum börnum og vafin í plast. „Tókum aldrei eftir því að nokkuð væri að“  Dætur móðurinnar, sem kæfði átta nýfædd börn sín á laun, segja hana hafa verið góða við sig og barnabörnin Móðirin Dominique Cottrez er sögð hlédræg og prúð mannskja. Óvíst um sakhæfi » Enn er ekki vitað hvort Cott- rez er sakhæf en reynist hún það á hún yfir höfði sér ævi- langt fangelsi. » Hún mun á næstunni gang- ast undir ýtarlega sálfræði- rannsókn og -próf til að ganga úr skugga um að hún sé ábyrg gjörða sinna. » Verjandi hennar segir að það sé mikill léttir fyrir hana að upp komst loks um málið. Julian Assange segist hafa með milligöngu The New York Times hafa haft sam- band við embætt- ismenn í Hvíta húsinu áður en hann birti á vef sínum Wikileaks tugþúsundir leyniskýrslna hermanna í Afganist- an. Gætu embættismenn þá farið yf- ir gögnin og tryggt að með birting- unni yrði lífi saklauss fólks ekki ógnað. Assange segist ekki hafa fengið nein svör. Ráðamenn áhugalausir? Julian Assange Íhaldsmaðurinn Boris Johnson, borgarstjóri Lundúna, hefur lengi verið þekktur fyrir að fara allra sinna ferða á reiðhjóli. Hann hefur sett sér það markmið að gera Lundúnir að reiðhjólaborg heimsins og í gær hleypti hann af stokkunum nýju framtaki sem gerir vegfarendum kleift að leigja sér hjól. Þegar hafa liðlega 12.000 manns gerst þátttakendur og talið er að strax verði að fjölga hjólhestunum sem í fyrstu verða 5.000 og dreift á 315 miðstöðvar þar sem þau eru tryggilega hlekkjuð. Hægt er að leigja lykla og fer verðið eftir tíma- og vegalengd. Ekki er sérstakur lás á hverju leigu- hjóli og segir Johnson það vera til að koma í veg fyrir að fólk sé of lengi með hvert hjól, þá sé hentugra að það einfaldlega kaupi sér eigið reiðhjól. Reuters London verði reið- hjólaborg heimsins Borgarstjórinn Boris Staða Helle Thorning-Schmidt, leið- toga Jafnaðarmannaflokksins danska og stærsta stjórnarand- stöðuflokks landsins, er nú talin mjög ótrygg. Hún gæti átt yfir höfði sér sektir eða jafnvel allt að fjögurra mánaða fangelsisdóm fyrir að hafa vísvitandi gefið yfirvöldum rangar upplýsingar um dvalartíma eigin- manns síns í Danmörku, að sögn Jyl- landsposten í gær. Fjölmiðlar hafa krafist skýringa en flokksleiðtoginn er í sumarleyfi og hefur litlu sem engu svarað um- ræddum ásökunum. Eiginmaðurinn, Stephen Kinnock, er sonur Neils Kinnocks, fyrrum leiðtoga breska Verkamannaflokksins. Kinnock yngri býr og starfar í Sviss. Blaðið BT birti á fimmtudag frétt- ir um að Thorning-Schmidt hefði veitt dönskum stjórnvöldum misvís- andi upplýsingar um það hversu oft og lengi eiginmaður hennar hefði verið í Danmörku en dvalartíminn getur skipt sköpum varðandi skatta. Hún sagði dómsmálaráðuneytinu í fyrra að eiginmaðurinn væri í Dan- mörku um hverja helgi og voru þær upplýsingar veittar til að Kinnock fengi að vera skráður meðeigandi að fasteign hjónanna í Danmörku. En fyrr í þessum mánuði sagði Thorning-Schmidt hins vegar, að eiginmaðurinn dveldi aðeins í 33 helgar á ári í Danmörku og því ætti hann ekki að þurfa að borga skatta þar í landi. Skattalögfræðingur bendir á að Thorning-Schmidt hafi vísvitandi veitt stjórnvöldum rangar upplýsingar og það sé refsivert at- hæfi. kjon@mbl.is Leiðtogi sak- aður um lygar  Thorning-Schmidt veitti yfirvöldum rangar upplýsingar til að fá lægri skatta Í ræðustólnum Helle Thorning- Schmidt, leiðtogi jafnaðarmanna. Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, segir að stjórn sín muni ekki liðast í sundur þrátt fyrir brotthvarf Gianfranco Fini, sem var einn af stofnendum Frels- isflokks (PDL) Berlusconis og 32 félaga hans. „Það er engin hætta á ferð, við erum með meirihluta,“ sagði Berlusconi á fimmtudag. En sumir fréttaskýrendur eru á því að þótt Berlusconi njóti enn stuðnings Norðurbandalagsins sé óvíst hvort stjórnin sitji út kjörtímabilið, þ.e. til 2013. Berlusconi sakaði á fimmtudags- kvöld Fini um að vera svikari sem græfi undan flokknum og stefndi að því að láta hann „deyja hægum dauðdaga“. Hann fór fram á að Fini léti af embætti forseta neðri deildar ítalska þingsins en Fini vís- aði í gær kröfunni á bug. Fini hefur að undanförnu reitt forsætisráðherrann til reiði með því að hamra á mikilvægi siðferð- islegra gilda og lögmætis. Auðkýf- ingurinn Berlusconi hefur marg- sinnis verið sakaður um svik og pretti en sloppið við dóm, m.a. vegna fyrningarákvæða. Fini tókst einnig að þvinga stjórnina til að útvatna ný lög sem áttu að minnka tjáningarfrelsi blaðamanna. Klofningur í ríkis- stjórn Berlusconis Silvio Berlusconi Gianfranco Fini

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.