Morgunblaðið - 31.07.2010, Side 22

Morgunblaðið - 31.07.2010, Side 22
Leiðir okkar Jakobs lágu fyrst saman haustið 1963 í gagn- fræðadeild Austur- bæjarskóla. Fljótt kom í ljós að Jakob var enginn venjulegur unglingspiltur, hann var leiftrandi greindur og víðlesinn, einkum í hvers kyns hugvísindum, umfram allt skemmtilegur og frjór í hugsun, rót- tækur. Jakob varð því fljótt sjálfkjör- inn leiðtogi þeirra sem hölluðust að bókum og leyndardómum þeirra. Mest héldum við hópinn fjórir, auk okkar, Friðrik Kr. Guðbrandsson og Sigurjón Páll Ísaksson eða Litla gáfumennafélagið eins og Jakob kall- aði okkur. Að loknu landsprófi skildu leiðir, Jakob fór í MR, við hinir í MH, en það breytti engu um samneyti okkar og vinskap sem hélst öll menntaskólaárin. Frá þeim tíma eru ótal minningar, varla leið t.d. sú vika að ekki var komið við í kjallaranum hjá Magnúsi Torfa Ólafssyni í er- lendu bókadeildinni í Máli og menn- ingu á Laugavegi. Þetta var á þeim árum þegar Penguin-kiljurnar kost- uðu flestar þrjá skildinga og sex pence, 28 krónur hjá Magnúsi Torfa. Eitt sumarið vann Jakob við grjót- mulning í Hvalfirði og átti að fylgjast með færibandi. Vildi þá ekki betur til en svo að bók eftir franska róttæk- linginn Regis Debray, sem hann stalst til að lesa við vinnuna, lenti á færibandinu. Hafa kenningar De- brays varla hlotið harkalegri mót- tökur annars staðar en með harðfylgi tókst Jakobi að bjarga bókinni frá glötun, en æði tætt og rifin var hún eftir átök við íslenskt grjót. Aufúsu- gestir vorum við alltaf á æskuheimili Jakobs, hjá hans ágætu móður Unni, líka eftir að hún stóð unglingana að því að lauma áfengi í gosdrykki sem hún hafði fært okkur. Að loknum menntaskóla hélt Jak- ob til Frakklands í sálfræðinám. Á Frakklandsárunum hittumst við og ungar fjölskyldur okkar reglulega að sumri, oft hjá tengdaforeldrum hans að Hafrafelli í Laugardalnum í Reykjavík þar sem iðulega var gripið í franskt ballvarp og sérhver dagur í minningunni umvafinn gleði fyrstu fullorðinsáranna. Tengsl okkar Jak- obs rofnuðu einhverra hluta vegna þegar hann hélt til Svíþjóðar í fram- haldsnám en hófust að nýju þegar við réðumst báðir til sálfræðideildar Há- skóla Íslands fyrir hálfum öðrum áratug. Var þá tekinn upp þráðurinn Jakob Smári ✝ Jakob Smárifæddist 11. janúar árið 1950. Hann lést 19. júlí 2010. Útför Jakobs fór fram frá Neskirkju í Reykjavík 28. júlí 2010. þar sem frá var horfið eins og ekkert hefði í skorist og margt síðan verið skrafað og skeggrætt í gamni og alvöru. Á liðnum vetri dró dökkt ský yfir þessar samræður þeg- ar ljóst var að Jakob gekk ekki lengur heill til skógar og læknavís- indunum veittist erfitt að henda reiður á sjúk- dómi hans. Eitt dimmt vetrar- kvöld á unglingsárun- um lögðum við Jakob leið okkar í Hafnarfjörðinn að sjá kvikmynd Ing- mars Bergman, Sjöunda innsiglið, þar sem segir frá sænskum kross- fara frá miðöldum og skák sem hann teflir við Dauðann með lífið sjálft að veði. Setti að okkur slíkan dauðabeyg þarna í bíósalnum að okkur varð ekki svefnsamt næstu nætur. Á fallegum sumardegi í liðinni viku gaf Jakob sína lífsskák. Við Aldís syrgjum hlýj- an og góðan vin og vottum ástvinum Jakobs okkar dýpstu samúð. Blessuð sé minning Jakobs Smára. Jörgen L. Pind. Látinn er í Reykjavík vinur og samstarfsmaður til áratuga, Jakob Smári sálfræðingur og prófessor við Háskóla Íslands. Þegar hugsað er til baka er líklega einn eftirminnilegasti eiginleiki Jakobs fróðleiksþráin, sú fölskvalausa ánægja sem hann hafði af því að afla þekkingar og skapa nýja þekkingu. Því fylgdi að í huga hans vöknuðu stöðugt nýjar spurn- ingar sem leita þurfti svara við bæði með lestri og rannsóknum og sú frjóa leitandi hugsun knúði bæði hann sjálfan og þá sem með honum unnu áfram í þekkingarleitinni. Mest af okkar samskiptum hin síð- ari ár tengdist rannsóknastarfi af ýmsum toga. Lokaverkefni nemenda í sálfræði var algengur samstarfs- vettvangur. Jakob var vinsæll meðal nemenda og eftirsóttur leiðbeinandi, þar sem bæði sinnti hann nemendum vel og mörg lokaverkefni sem hann stýrði náðu þeim styrk að verða að birtanlegu efni í ritrýndum fræðirit- um. Samstarf á þessum vettvangi var einstaklega ánægjulegt og gefandi. Auk þátttöku í mörgum rannsókna- verkefnum innan HÍ, átti Jakob einnig hlut að fjölmörgum verkefn- um utan skólans. Gott var að eiga hann að þegar maður stóð á kross- götum í rannsóknavinnu eða þurfti einfaldlega að viðra einhverjar hug- myndir. Við sem áttum þess kost að setjast niður til samræðna við hann stóðum upp innblásnir af nýjum spurningum og hugmyndum um verkefni sem vinna þyrfti til að svara þeim. Þegar kom að nauðsynlegri gagnrýni setti hann hana fram á upp- byggilegan og nærfærinn hátt, oft sem spurningu: „Já, en getur ekki verið …?“ Í hug kemur minningarbrot um að hafa mætt Jakobi á Laugalæknum þar sem hann var að leggja upp gangandi til vinnu sinnar í Háskól- anum með heyrnartól á höfði og lítið kasettutæki um hálsinn. Þegar spurt var kom í ljós að hann var að hlusta á Einar Ólaf Sveinsson lesa Njálu. „Maður þarf að mennta sig,“ sagði Jakob. Það var eftirminnilegt og til eftirbreytni hvernig þessi hámennt- aði maður notaði markvisst hverja lausa stund til að mennta sig í víðasta skilningi þess orðs, öðlast dýpri skilning, ekki einungis á fræðunum, heldur á öllu umhverfinu, menningu og sögu. Dugnaði hans og elju var viðbrugðið og oft mátti sjá ljós í glugga á skrifstofu hans löngu eftir að hefðbundnum vinnudegi lauk. Alvarleg veikindi Jakobs komu okkur í opna skjöldu, sérstaklega þegar haft er í huga að lífsstíll hans byggði á heilbrigðum grunngildum og var hann jafnan vel á sig kominn líkamlega. Nú er þessi góði drengur genginn og að honum mikill missir fyrir sálfræðideild HÍ, fyrir okkur sem þurftum á þekkingu hans og leiðsögn að halda, en umfram allt fyr- ir hans nánustu sem þurfa að takast á við lífið án hans. Þeim eru færðar hugheilar samúðarkveðjur á þessum erfiðu tímamótum. Páll Magnússon, Evald Sæmundsen. Það er nær aldarfjórðungur frá því að ég hitti Jakob Smára. Þá bættist hann í hóp sálfræðinga á geðdeild Landspítala. Ég hafði heyrt af hon- um og öllum þeim kostum sem hann áttu að prýða. Þær frásagnir reynd- ust allar á rökum reistar. Eftir því sem ég kynntist Jakobi betur kom í ljós að þar fór gull af manni. Við urð- um fljótlega mjög góðir vinir og unn- um saman að mörgum verkefnum. Sum þessara verkefna, s.s. ritstjórn og útgáfa tveggja bóka, voru margra ára verkefni og kölluðu á nána og mikla samvinnu. Það samstarf var frábært. Jakob var ekki einungis af- burða snjall, hann var víðlesinn, víð- sýnn, jákvæður, vinnusamur, af- kastamikill, frábær stílisti, skáld- mæltur. Ég gat treyst því að hann þekkti bakgrunn og samhengi þess við vorum að fjalla um, hvort sem það var tilvísun í sögu, bókmenntir, sál- arfræðina eða rétta málnotkun. Þau eru mörg hástemmdu lýsingaorðin sem hægt er að nota um Jakob Smára. Mörg þeirra snúa að óvenju miklum hæfileikum en önnur að miklum mannkostum. Hann hefði getað tekið sér hvað sem er fyrir hendur en kaus sálfræði þar sem hann varð mikilvirkur og virtur fyrir klínísk störf, kennslu, rannsóknir og skrif. Þetta reyndist honum létt hvort sem um var að ræða þekkingu og skilning fræðilegra hugtaka, sýn á aðferð til þess að prófa tilgátur eða tölfræðileg úrvinnsla gagna. Þá gat hann auðveldlega gert flókna hluti einfalda og skýrt út fyrir öðrum. Jak- ob hafði líka fjölmargt annað sem gerði hann einstakan. Hann var ástríðufullur, ákafur og hugrakkur í öllu sem hann tók sér fyrir hendur, greiðvikinn og gjafmildur á allt það sem hann hafði. Þá var hann langt frá því að vera einangraður í sínum fræðaheimi, hann þekkti og kunni listir og tungumál og gat svo auð- veldlega samþætt þetta allt. Þrátt fyrir þessa yfirburði var ekki til vott- ur af hroka eða yfirlæti í Jakobi, hann var allra. Í mínum huga var Jakob „maður allra tíma“. Jakobi var afar annt um að ráða við og sinna öll- um verkefnum sínum og var annt um ímynd sína. Þegar hann fann til meins sem hann taldi að myndi gera sér ókleift að starfa áfram af sömu getu og fyrr, var komið að leiðarlok- um. Að eiga góðan vin verður órjúfan- legur hluti tilverunnar, þarfnast ekki réttlætingar, rúmar allt, þolir allt, leyfir allt. Jakob var ómetanlegur vinur, alltaf aðgengilegur, hjálpleg- ur, jákvæður og traustur. Við hitt- umst oft og með Jakobi kom alltaf andblær krafts og lífs. Jakob hafði mikil og jákvæð áhrif á líf mitt og ég verð honum ævinlega þakklátur. Undanfarin ár hlupum við reglulega saman fjórir félagar, Páll Ólafsson, Sigurjón Stefánsson, Jakob og ég. Þetta hefur verið frábær vettvangur fjögurra vina, oftast skemmtilegur, stundum gáfulegur, jafnan fræðandi, alltaf ómissandi og heilsusamlegur. Jakob var sálin í þessum hópi, með honum kom líf, umræðuefni, álita- mál. Hans skarð verður ekki fyllt og við hlaupafélagar söknum hans sárt. Það eru margir sem eiga um sárt að binda við fráfall Jakobs Smára. Það á ekki síst við um fjölskyldu hans. Þeim sendi ég mínar innileg- ustu samúðarkveðjur. Hörður Þorgilsson. Jakob var fræðimaður í sérflokki og gull af manni. Glettinn í tilsvörum og lagði jafnan gott til málanna. Nefndastörf með Jakobi voru leikur einn enda var hann ætíð vel undirbú- inn. Ráðleggingar Jakobs voru vel ígrundaðar og dómgreind hans var traust. Hann tók stundum þátt í um- ræðum á póstlista starfsmanna Há- skóla Íslands. Ekki til að rétta kúrs- inn af í afstöðu manna heldur meira til að gefa upplýsingar um málefnið sem til umræðu var. Jakob gekk löngum til vinnu sinnar þótt hann byggi í austurbænum. Hlustaði á fræðimenn af diskum og fylgdist með dægurumræðunni. Ef Íslendingar líktust Jakobi meira er víst að staðan í þjóðmálunum væri önnur og betri en hún er í dag. Missir okkar koll- eganna er mikill en mestur fyrir fjöl- skyldu hans sem var honum afar kær. Minningin um góðan dreng mun ætíð lifa. Helgi Gunnlaugsson Ég hitti Jakob fyrst árið 1994 að mig minnir, þegar hann kenndi okk- ur stórum hópi áhugasamra sálfræði- nema um leyndardóma sálfræðilegra prófa. Leiðir okkar lágu aftur saman átta árum síðar og þá á ráðstefnu í Hollandi. Ég var að ljúka framhalds- námi þar og hafði hringt í hann því mig vantaði aðstoð við að gera rann- sókn heima á Íslandi. Jakob tók vel í það eins og hans var von og vísa. Þar með hófst samstarf okkar í rann- sóknum og síðar kennslu í sálfræði við HÍ sem hefur staðið óslitið síðan og hefur verið mér mjög mikils virði. Af og til á lífsleiðinni kynnumst við fólki sem við viljum taka okkur til fyrirmyndar vegna góðra kosta þess. Í mínum huga var Jakob slíkur mað- ur. Hann var traustur félagi, heið- arlegur og hafði sterka réttlætis- kennd. Í samræðum var glettnin sjaldan langt undan og hann hafði lag á að sjá jákvæðar hliðar á mönnum og málefnum. Hann var sanngjarn við nemendur sína og kom ætíð fram við þá af stakri virðingu. Jakob var metnaðarfullur í störfum sínum og var án efa fremstur íslenskra rann- sakenda á sínu sviði. Þó var hann alltaf hógvær og hvatti fólk áfram og studdi. Undanfarna daga hef ég heyrt í mörgum fyrri nemendum Jakobs. Óhætt er að segja að hann skipar sérstakan sess í hugum okkar allra. Vonandi getum við haldið merki hans á lofti. Ég votta öllum ástvinum Jakobs mína dýpstu samúð um leið og ég þakka fyrir kynnin af þessum góða manni. Ragnar Pétur Ólafsson. Okkur langar að kveðja samstarfs- mann okkar, Jakob Smára, með fá- einum orðum. Fráfall hans er mikið áfall. Hann var mikill öðlingur í sam- starfi auk þess að vera frábær fræði- maður. Kynni okkar af Jakobi komu til af mismunandi ástæðum. Nokkur okk- ar þekktu hann frá því hann starfaði sjálfur á geðsviði spítalans á níunda áratugnum, nokkrir þekktu hann sem samkennara við sálfræðideild Háskóla Íslands, margir þekktu hann sem kennara og leiðbeinanda frá því þeir voru nemendur hans við sálfræðideildina og við sem störfum nú á geðsviði þekktum hann einnig sem félaga, fræðimann, ráðgjafa og samstarfsmann í fjölda verkefna, auk þess sem nokkrir skokkuðu stundum með honum í hádeginu. Jakob var þekktur fræðimaður bæði á innlendum og erlendum vett- vangi og framlag hans til sálfræði á alþjóðlegum vettvangi er mikils met- ið. Að öðrum íslenskum sálfræðing- um ólöstuðum er hann einn af fremstu fræðimönnum Íslendinga á sviði sálfræði. Framlag hans á þeim vettvangi mun skipta máli um ókom- in ár. Þegar litið er yfir farinn veg kem- ur margt upp í hugann. Jakob var mjög úrræðagóður í samstarfi og lagði sitt af mörkum. Hann var fljót- ur að hugsa og skýr í framsetningu og mjög ritfær. Þá var hann bóngóð- ur og fljótur að bregðast við. Við er- um mörg á Landspítalanum sem komum til með að sakna Jakobs, bæði sem félaga og samstarfsmanns, en ekki síst sem fræðimanns. Missir hans verður ekki bættur. Við vottum fjölskyldu hans innilega samúð. Fyrir hönd samstarfsmanna á geðsviði Landspítala, Jón Friðrik Sigurðsson, yfirsálfræðingur. Að kvöldi mánudagsins 19. júlí síð- astliðins bárust þær þungbæru frétt- ir að vinur okkar og félagi við sál- fræðideild Háskóla Íslands, prófessor Jakob Smári, væri látinn. Jakob Smári nam fyrst sálfræði í Frakklandi en síðar í Stokkhólmi þar sem hann lauk doktorsprófi árið 1985. Jakob starfaði um árabil sem klínískur sálfræðingur, fyrst við geð- deild Borgarspítala, síðar við geð- deild Landspítala auk þess að reka eigin sálfræðistofu. Á þessum árum sinnti hann einnig stundakennslu í sálfræði við Háskóla Íslands. Með árunum beindist hugur Jakobs í æ ríkari mæli að vísinda- og fræðistörf- um og var hann ráðinn dósent í sál- fræði við Háskóla Íslands árið 1994 og varð prófessor árið 1999. Jakob Smári var mikilsvirtur fræðimaður og birti tugi vísinda- greina í alþjóðlegum og innlendum fræðitímaritum auk bókarkafla. Rit- aði hann jöfnum höndum greinar í ensk, frönsk og norræn fræðirit. Fræðilegur áhugi Jakobs lá víða, en var þó fyrst og fremst á sviði klín- ískrar sálfræði, heilsusálfræði og sál- mælinga. Jakob hafði sérstakt lag á að virkja nemendur til rannsóknar- starfa og var eftirsóttur leiðbeinandi nemenda í BS-, meistara- og dokt- orsnámi. Jakob var einnig vinsæll samstarfsmaður í rannsóknarverk- efnum innan sálfræðideildar og á Landspítala - háskólasjúkrahúsi. Hann hafði sérstakt lag á að gera hlut samstarfsmanna sinna meiri en efni stóðu til, þrátt fyrir að hann bæri oft hitann og þungann af rannsókn- arstarfinu og ritun fræðigreina. Jak- obi var mjög umhugað um hag klín- ískrar sálfræði á Íslandi og stóð meðal annars að þýðingu og staðfær- ingu á fjölda mælitækja á þessu sviði sem hefur eflt mjög störf íslenskra sálfræðinga. Jakob Smári lagði einn- ig mikla áherslu á útgáfu á fræðslu- efni fyrir almenning og var ritstjóri ásamt Herði Þorgilssyni sálfræðingi að bókunum Sálfræðibókin og Árin eftir sextugt sem er efalaust víða að finna í hillum landsmanna. Jakob Smári var traustur sam- starfsmaður og vann mikið og óeig- ingjarnt starf við framgang sálfræði á Íslandi. Hann tók virkan þátt í að undirbúa og hleypa af stokkunum kandídatsnámi í sálfræði við Háskóla Íslands árið 1999 og kenndi þar alla tíð námskeið í klínískri sálfræði ásamt því að sjá um skipulagningu starfsnáms fyrir stóran hluta nem- enda. Jakob var léttur í lund, sérstakt ljúfmenni, óeigingjarn á tíma sinn og kunnáttu og lagði sig fram um að að- stoða yngri samstarfsmenn við að feta fyrstu sporin í vísindastörfum. Undirritaður átti því láni að fagna að kynnast Jakobi fyrst sem kennara en eiga hann síðar að sem samstarfs- mann til margra ára og hefur eytt ófáum stundum á skrifstofu Jakobs við undirbúning rannsóknarverkefna undir hans leiðsögn. Þess tíma er minnst með söknuði. Stórt skarð er höggvið í kennarahóp sálfræðideild- ar með fráfalli Jakobs Smára og sendum við eiginkonu hans Guð- 22 Minningar MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. JÚLÍ 2010 ✝ Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför elskulegrar móður okkar, tengdamóður og ömmu, HELGU FANNEYJAR STEFÁNSDÓTTUR, Rauðagerði 12, Reykjavík. Jónína Kárdal, Þorbjörn Vignisson, Anna María Kárdal, Ásgeir Karl Ólafsson og barnabörn. ✝ Móðir mín, tengdamóðir og amma okkar, SOLVEIG BENEDIKTSDÓTTIR SÖVIK, er látin. Ragnheiður Sövik, Arnór Gunnarsson, Óskar Arnórsson, Atli Gunnar Arnórsson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.