Morgunblaðið - 31.07.2010, Side 24

Morgunblaðið - 31.07.2010, Side 24
Þegar ég hugsa til systursonar míns Sig- finns Pálssonar þá er það fyrsta sem kemur upp í hugann hve ein- stakur drengur hann var. Hann var búinn að berjast við illvígan sjúkdóm í tæp 3 ár og þó svo við höfðum vitað hvert stefndi, var það samt sem áður mikið áfall þegar kallið kom. Ég gæti skrifað heila bók um þær yndislegu minningar sem ég á, alveg frá fæðingu hans og fram á síðasta dag, hversu hetjulega hann barðist og hve elskulegur drengur hann var, en minningarnar mun ég ávallt geyma í hjarta mínu, en læt hér örfá orð duga. Ljósið á himnum lýsi þér, litli fallegi drengur. Í hjarta mér og fleiri hér brostinn er einn strengur. (Höf. ók.) Sigfinnur var þroskaðri en flestir hans jafnaldrar, það var alltaf jafn gaman að sitja og spjalla við hann, hann hafði skoðanir á öllu og var svo fróður á svo mörgum sviðum. „Einstakur“ er orð sem notað er þegar lýsa á því sem engu öðru er líkt, faðmlagi eða sólarlagi eða manni sem veitir ástúð með brosi eða vinsemd. „Einstakur“ lýsir fólki sem stjórnast af rödd síns hjarta og hefur í huga hjörtu annarra. „Einstakur“ á við þá sem eru dáðir og dýrmætir, hverra skarð verður aldrei fyllt. „Einstakur“ er orð sem best lýsir þér. (Terri Fernandez) Elsku Viddý systir, Vignir Páll, Elín, mamma og pabbi, megi góður Guð styrkja ykkur og styðja í ykkar miklu sorg. Elínborg Ellertsdóttir (Ellý frænka) og Bjarne Palm- quist Svendsen. Elsku Sigfinnur okkar. Þú komst með látum í heiminn og fórst á líkan hátt. Þú fæddist með hjartagalla og þurftir að berjast mikið fyrstu fimm mánuði lífs þíns. En þú braggaðist fljótt og þetta stóra ör var bara fyrsta stríðssárið af mörgum þegar á leið. Brosmildi, fallegi drengurinn okkar var mættur á svæðið, stór og sterkur. Þú hefur alla tíð verið rólegur, yfirvegaður og fullorðinn í anda. Það kunna fáir að meta lestur líkt og þú gerðir. Harry Potter-bækurnar kláruðust á einu kvöldi. Þú last líka á ensku og fannst það nú ekki mikið mál. Enda var ég viss um frá þeim degi sem þú byrj- aðir að tala þá myndir þú verða pró- fessor, elsku klári strákurinn okkar. Þú þurftir aldrei að hafa mikið fyrir náminu og fannst þig svo í boxi hjá Hnefaleikafélagi Reykjanesbæjar. Þar hefðir þú brillerað ef þú hefðir ekki veikst. Veikindin komu sem mikið áfall fyrir okkur öll en þú vildir berjast og það átti að skera þennan óþverra burt. Það lýsir þér svo vel þegar ég sat með þér á vöknun eftir fyrstu að- gerðina á lunga, þá vaknaðir þú ró- lega, leist á okkur mömmu þína og svo niður á skurðina og sönglaðir svo, 1 lítill, 2 litlir, 3 litlir skurð- ir … og við gátum ekki varist hlátri. Eða þegar mamma þín spurði eftir þá aðgerð, hvort þú vildir ekki fara á Man. Utd leik, þá sagðir þú, förum fyrst í afslöppunarferð til Parísar. Það er engin afslöppun að skreppa á sigurleik hjá Man. Utd. Aldrei komstu til Parísar en ég er svo ánægð að hafa átt smáhlut í því að þú komst samt á leik með þínu liði í Sigfinnur Pálsson ✝ Sigfinnur Pálssonfæddist í Reykja- vík 26. nóvember 1994. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja hinn 19. júlí 2010. Útför Sigfinns var gerð frá Keflavík- urkirkju 27. júlí 2010. febrúar sl. og fékkst líka að hitta nokkra leikmenn. Myndin með þér og Wayne Rooney var stækkuð og sett í ramma beint upp á vegg. Það var yndislegt að sjá þig fylgjast með leikjum þíns liðs, einbeitingin og áhuginn var gríðar- legur. Síðustu jól vorum við að spjalla og þá komst ég að því hvað þú varst víðlesinn enda gastu rekið mig á gat um hin ótrúlegustu atriði, t.d. vissir þú allt um borgarastríðið í Bandaríkjunum og hvaða mistök Napóleon gerði sem varð til þess að hann tapaði sinni orrustu. Við erum svo stolt af þér, hvernig þú hefur alltaf viljað berjast, allt fram til hins síðasta. Við sitjum með tárin í augum og sting í hjarta við að skrifa þessi orð til þín, elsku frændi. Við trúum og treystum á að þér líði betur núna, getir hlegið, boxað og rökrætt um allt mögulegt! Elsku Viddý, Vignir Páll, Elín, amma og afi, megi góður guð styrkja ykkur og leiða á þessum erfiða tíma. Sofðu nú blundinum væra, blessuð sé sálin þín hrein. Minningin, milda og tæra, merluð, í minningar stein. (Bryndís Halldóra Jónsdóttir.) Elsku Sigfinnur, þú varst, ert og verður alltaf litli prófessorinn minn. Hvíl í friði, elsku frændi. Halla Björg, Brynjar Örn, Guðrún Elfa og Bryndís Eva. Hví var þessi beður búinn, barnið kæra, þér svo skjótt? Svar af himni heyrir trúin hljóma gegnum dauðans nótt. Það er kveðjan: „Kom til mín, kristur tók þig heim til sín. Þú ert blessuð hans í höndum, hólpin sál með ljóssins öndum. (B. Halld.) Kveðja, Kristín Guðnadóttir og fjölskylda. Ég er samfærður um að hann Sig- finnur frændi minn hafði gengið oft um þessa jörð áður en hann fæddist inn í fjölskylduna okkar. Hann var gömul sál sem var send okkur til leiðsagnar. Hann var fræðarinn sem byrjaði samtölin á „Vissir þú að …“ Hann grúskaði í vísindum, alls kyns fræði, sögu mannkyns, fólki og flóru jarðar en líka í úrslitum Manchester United og annarra liða. Allt mann- legt vakti athygli hans og það var honum eðlislægt að vilja fræða aðra um það sem hann hafði uppgötvað. Nærvera hans var róleg og róandi. Hann lagði gott til allra og var mannasættir með sínu rólega fasi. Við litum öll upp til hans; þó hann væri ekki orðinn hár í loftinu vissum við að aldirnar höfðu fært honum vitneskju sem vert var að hlusta á. Hann sótti snemma í fróðleik og safnaði til að læra meira en ekki til að sitja að því einn heldur miðla til okkar hinna sem vorum of upptekin til að taka eftir. Hann var fyrirmynd systkina sinna en ekki síður okkar sem vorum eldri. Það var auðvelt að gleðja Sigfinn og þakklætið fyrir góða bók að gjöf var einlægt og bókin eða tölvuleik- urinn strax krufin til mergjar og beðið með óþreyju eftir framhaldinu. Alltaf að byggja ofan á og bæta við þekkingu sína. Hann flutti líka inn í heim skáldsögunnar og gekkst æv- intýrunum á hönd, fannst ævintýrið jafn sjálfsagt og raunveruleikinn. Kannski hafði hann vitneskju um að stundum yrðu ævintýrin að raun- veruleik löngu síðar. Það eru grimm örlög að vera 13 ára og þurfa að horfast í augu við baráttu upp á líf og dauða. Þurfa að sitja stundum einn með hugsunum sínum um hvað ef ? Sigfinnur lagði ekki byrðar sínar á okkur hin. Hann bar þær í hljóði og tók því sem að höndum bar af sömu rósemd og öllu í lífinu. Kannski var það að vissan um að dagleiðinni gæti lokið en ekki ferða- laginu, það myndi halda áfram. Nú svífur Sigfinnur yfir Old Trafford á vængjum drekans Sapphyru og hvetur sitt lið. Takk fyrir þína sögu, elsku frændi. Þú ert einstakur. Ómar frændi og Árni. Ég vil fá að þakka þér, Sigfinnur, fyrir öll árin saman. Þessum þús- undum klukkustunda sem við höfum verið saman var vel eytt. Takk fyrir allt saman, allt frá vítaspyrnukeppni um það hvort við yrðum atvinnu- menn í fótbolta hjá Manchester United eða Arsenal, til kvöldstunda sem var varið í vel völdum tölvu- leikjum. Kæri vinur, minning þín mun lifa í hjarta mínu að eilífu. Þú varst hraustur, þjáning alla þoldir þú og barst þig vel, vildir aldrei, aldrei falla: Uppréttan þig nísti hel. Þú varst sterkur, hreinn í hjarta, hirtir ei um skrum og prjál; aldrei náði illskan svarta ata þína sterku sál. (Matthías Jochumsson) Þinn vinur, Elvar Ingi Ragnarsson. Mikil tilhlökkun var þegar von var á litla stubbnum honum Sigfinni í þennan heim. Þar sem foreldar hans voru komnir vel yfir þrítugt og hann þeirra fyrsta barn var þetta ennþá meiri spenningur. Sólarhring eftir að hann fæddist kom í ljós að hann var með hjarta- galla. Nokkurra mánaða fór hann til Boston í aðgerð sem heppnaðist svona líka vel að aldrei varð það neitt vandamál meir. Sigfinnur óx og dafnaði rólegur og ljúfur drengur, eignaðist systkinin Vigni Pál og El- ínu með tveggja ára millibili. Mikil breyting varð á lífi Sigfinns þegar foreldrar hans slitu samvistir og var hann allt í einu orðinn hús- bóndinn á heimilinu, stoð og stytta móður sinnar og systkina. Stóð hann sig með mikilli prýði við að líta til með systkinum sínum aðeins 10 ára gamall meðan mamman var í vinnunni. Svo var það fyrir tæpum þremur árum að hann greindist með krabba- mein. Þá hófst mikil orrusta sem Sigfinnur ætlaði sér að sigra en því miður tókst það ekki. En oft komu góðir tímar milli aðgerða og varð ég þeirrar gæfu njótandi að fara með honum og fjölskyldunni til Flórída þar sem við áttum frábærar stundir saman. Þar kynntist ég honum betur en ég hafði nokkru sinni gert fyrr og þvílíkur viskubrunnur sem hann var og fræddi hann mig um ýmislegt sem ég hafði aldrei heyrt áður. Svona dags daglega var hann frekar fámáll en þegar hann tjáði sig var það alltaf eitthvað viturlegt og skemmtilegt. Hann var mikill dýravinur og átti með fjölskyldu sinni köttinn Snúlla og fiðrildahundana Múlan og Nettu. Það var mikill spenningur hjá hon- um að bíða eftir hvolpunum sem Múlan hans gengur með og eiga að fæðast á næstu dögum en nú verður hann að fylgjast með þeim frá öðrum stað. Fyrsti hundurinn þeirra, hann Stubbur, varð fyrir bíl og dó og veit ég að hann hefur tekið vel á móti Sigfinni og er búinn að kyssa hann mikið. Mig langar til að kveðja þig, elsku Sigfinnur, með texta úr lagi Magn- úsar Eiríkssonar, Farðu í friði góði vinur fylgir hugsun góð og hlý, sama hvað á okkur dynur aftur hittumst við á ný. Elsku Viddý, Palli, Vignir, Elín og aðrir aðstandendur, megi allt hið góða í heiminum hjálpa ykkur á þessum erfiðu tímum. Hvíldu í friði og verkjalaus dúllan mín og takk fyrir að hafa leyft mér að vera vinkona þín. Jóna Karlotta Herbertsdóttir. 24 Minningar MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. JÚLÍ 2010 ✝ Faðir okkar, ÞORSTEINN JÓNSSON flugmaður, Skipasundi 40, sem lést á heimili sínu miðvikudaginn 30. júní, verður jarðsunginn frá Neskirkju miðvikudaginn 4. ágúst kl. 15.00. Sigurbjörn Þór Þorsteinsson, Jón Bergsveinn Þorsteinsson, Unnur Þorsteinsdóttir og aðrir ástvinir. ✝ Ástkær móðir mín og amma okkar, SIGRÍÐUR TÓMASDÓTTIR, Góa, Grænuhlíð 26, Reykjavík, lést miðvikudaginn 28. júlí á líknardeild Landspítalans. Útför hennar fer fram frá Háteigskirkju föstudaginn 6. ágúst kl. 13.00. Eva Sóley Sigurðardóttir, Gígja Sigríður Guðjónsdóttir, Karítas Sveina Guðjónsdóttir. ✝ Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, JÓN PÁLS GUÐMUNDSSON, áður til heimilis að Sléttuvegi 13, Reykjavík, lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli fimmtudaginn 29. júlí. Valgerður Jónsdóttir, Ágúst Ingi Jónsson, Margrét Theodórsdóttir, Gísli Hafþór Jónsson, Jóhanna Úlfarsdóttir, Ásrún Jónsdóttir, Árni Már Björnsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskaður eiginmaður, faðir, tengdafaðir og afi, INGÓLFUR HJARTARSON hæstaréttarlögmaður, Ólafsgeisla 16, Reykjavík, lést að morgni fimmtudags 29. júlí. Lára Björnsdóttir, Jón Ingólfsson, Fjóla Ósk Gunnarsdóttir, Halldór Rúnar Jónsson, Iðunn Andrésdóttir, Elísabet Jónsdóttir, Hildur Björg Ingólfsdóttir, Rebekka Lára Rósantsdóttir, Björn Freyr Ingólfsson, Birna Hlín Káradóttir, Húni Ingólfur Björnsson, Birnir Kári Björnsson. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, KRISTÍN SIGTRYGGSDÓTTIR, Árskógum 6, Reykjavík, lést á heimili sínu föstudaginn 30. júlí. Jarðarförin verður auglýst síðar. Lína Þórðardóttir Jonsson, Sigurður Jónsson, Jófríður Halldórsdóttir, Áslaug Jónsdóttir, Róbert Melax, Ágústa Jónsdóttir, Helgi Baldvinsson, Steingrímur Jónsson, Ásta Kristín Davíðsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.