Morgunblaðið - 31.07.2010, Qupperneq 32
32 MenningFRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. JÚLÍ 2010
Dagskráin í Skálholti um helgina
verður fjölbreytt en um er að ræða
næst síðustu helgi tónleikarað-
arinnar Sumartónleikar í Skálholti.
Á laugardeginum verður boðið
upp á þrenna ólíka tónleika. Þeir
fyrstu hefjast kl. 15 en þá mun Skál-
holtskvartettinn flytja
strengjakvartett í G-dúr op. 161 eft-
ir Schubert sem talinn er eitt af hans
bestu verkum. Skálholtskvartettinn
hefur verið við upptökur í Skálholti
síðastliðna viku en að sögn Pamelu
De Sensi, framkvæmdastjóra Sum-
artónleika eru staddir hér á landi
tveir upptökumenn frá fyrirtæki í
Boston sem tóku upp Skálholts-
kvartettinn að spila kvartett og
kvintett eftir Schubert.
„Klukkan 17 verða svo tónleikar
þar sem Greta Salóme Stefánsdóttir
fiðluleikari og Ólafur Arnalds á
hljómborð ætla að spila verk eftir
Arvo Pärt og nýtt verk eftir Ólaf
sjálfan sem hann samdi fyrir þessa
tónleika,“ segir Pamela. Dagurinn
endar svo með tónleikum í Odds-
stofu í Skálholtsbúðum sem bera yf-
irskriftina Kammerklassík og krep-
pusinfónía þar sem flutt verður
Lundúnasinfónía í D dúr eftir Ha-
ydn í útsetningu Salomons auk
verka eftir Bériot, Boccherini og
fleiri.
Helginni lýkur með tónleikunum
Enska gullöldin, en þeir eru á dag-
skrá bæði á sunnudag og mánudag
kl. 15 og á þeim verður spiluð ensk
16. og 17. aldar hljóðfæratónlist. Í
messu á sunnudeginum kl. 17 verður
flutt tónlist af dagskrá helgarinnar.
Aðgangur að tónleikum helgarinnar
er ókeypis en gestir eru hvattir til að
taka með sér frjáls framlög til að
styrkja Sumartónleikana.
Heimar mætast
Skálholtskvartettinn og Ólafur Arnalds í Skálholti
Skálholtskvartettinn Hefur verið að taka upp efni í Skálholti.
Málarinn og
safnarinn
Rick Norsigi-
an hefur loks-
ins fengið það
staðfest að 65
negatívur úr
gleri sem
hann keypti á
skransölu í
Los Angeles
fyrir tíu árum
eru eftir ljós-
myndarann
Ansel Adams.
Norsigian hefur barist fyrir því að
fá uppruna myndanna staðfestan
og hefur meðal annars staðið í
deilum við fjölskyldu ljósmynd-
arans sem er enn ekki sannfærð
og hyggst lögsækja Norsigian fyr-
ir að nota nafn Adams á ólögmæt-
an hátt.
45 dollarar
Ansel Adams varð heimsfrægur
upp úr 1937, sérstaklega fyrir
landslagsmyndir sínar af ameríska
vestrinu. Talið var að negatív-
urnar sem um ræðir hefðu brunnið
í eldsvoða sem braust út í stúdíói
Adams. Hins vegar hafa sérfræð-
ingar nú staðfest að myndirnar
séu sannarlega eftir ljósmynd-
arann fræga og hefur safnið verið
metið á 200 milljónir dollara, eða
um 24 milljarða íslenskra króna,
en sjálfur greiddi Norsigian 45
dollara fyrir myndirnar á skran-
sölunni.
Norsigian hefur komið upp vef-
síðu þar sem hann hyggst selja eft-
irprentanir af myndunum en auk
þess verður heimildarmynd um til-
raunir hans til þess að fá uppruna
myndanna staðfestan frumsýnd í
Kaliforníu seinna á þessu ári.
Fann
negatívur
Adams
Metnar á alls 200
milljónir dollara
Fundin Ein af 65 negatívum á gleri.
Ljósmyndarinn
Ansel Adams
Í dag kl. 14 verður farin sögu-
ganga Minjasafnsins á Akur-
eyri, en lagt verður af stað frá
húsi skáldsins Matthíasar
Jochumssonar, Sigurhæðum.
Frá húsinu verður gengið í
Innbæinn að Minjasafnskirkj-
unni en það er leið sem Matt-
hías gekk sér til heilsubóta.
„Þaðan verður farið upp og
norður Nonnastíg, um Búð-
argil, Spítalaveg og Eyr-
arlandsveg aftur að Sigurhæðum. Í lok göng-
unnar verður boðið upp á kaffi, kakó og vöfflur á
Sigurhæðum,“ segir í tilkynningu. Ekkert þátt-
tökugjald er fyrir gönguna og á hún að henta fólki
á öllum aldri.
Söguganga
Gengið í fótspor
skáldsins
Matthías
Jochumsson
Á morgun kl. 15 verður
boðið upp á leiðsögn um
sumarsýningar Gerð-
arsafns. Annars vegar er
um að ræða sýninguna
Gerður og Gurdjieff þar
sem líta má verk eftir
Gerði Helgadóttur sem
tengjast kenningakerfi
armenska dulspekings-
ins G. I. Gudjieff. Hins
vegar er það sýningin
Lífshlaup Kjarvals og fleiri úrvalsverk í einka-
safni Þorvaldar og Ingibjargar en þar er til sýnis
verkið Lífshlaup eftir Kjarval ásamt verkum eftir
m.a. Ásgrím Jónsson, Louisu Matthíasdóttur,
Gunnlaug Scheving og Guðmund Thorsteinsson.
Leiðsögn um sýningu
Sumarsýningar
Gerðarsafns
Lífshlaup Kjarvals
Í dag kl. 16 verður opnuð sýn-
ing myndlistarmannanna
Finns Arnars og Kristjáns
Steingríms og tónskáldsins
Þorkels Atlasonar í Verksmiðj-
unni á Hjalteyri. „Listamenn-
irnir, sem eru búsettir á höfuð-
borgarsvæðinu, lögðu land
undir fót á húsbíl norður á
Hjalteyri viku fyrir opnunina
og settu upp sýninguna úr efn-
is- og hljóðheimi staðarins,“
segir í tilkynningu. Við opnunina verður fluttur
gjörningur en sýningin stendur til 5. september
og safnið er opið um helgar frá kl. 14-17. Á virkum
dögum er hægt að hafa samband í síma 692-7450
til að sjá sýninguna.
Myndlist
Opnun og gjörn-
ingur á Hjalteyri
Listamennirnir
við húsbílinn
Hólmfríður Gísladóttir
holmfridur@mbl.is
Dagana 3.-15. ágúst næstkomandi
verður Tónlistarhátíð unga fólksins
haldin í þriðja sinn. Hátíðin var stofn-
uð af Helga Jónssyni og Guðnýju
Þóru Guðmundsdóttur, sem nú situr í
framkvæmdanefnd hátíðarinnar
ásamt Elínu Ástu Ólafsdóttur og
Gunnhildi Daðadóttur. Strax fyrsta
árið leituðu þau til Kópavogsbæjar
sem tók að sögn Elínar mjög vel í
hugmyndina og hefur styrkt þau frá
upphafi bæði fjárhagslega og með því
að veita þeim aðgang að húsnæði, en
opnunarhátíðin á þriðjudaginn verð-
ur einmitt haldin í tónlistarhúsinu
Salnum.
– Segðu mér frá hátíðinni ...
„Þetta eru tónleikar og námskeið
ásamt fyrirlestrum og málþingi um
aðkomu ungs fólks að tónlistarlífi á
Íslandi sem verður haldið á lokadegi
hátíðarinnar. En þetta er hugsað sem
sambland af tónleikum og
námskeiðahaldi, ætlað nemendum
bæði í almennum tónlistarskólum hér
á landi og einnig nemendum sem eru
lengra komnir í námi. Tónleikarnir
sjálfir eru einkum hugsaðir til þess að
aðstoða ungt fólk til að koma sér á
framfæri í tónlistarlífinu hér á landi,“
segir Elín Ásta, sem sat fyrir svörum.
Umfangið hátíðarinnar
aldrei meira
Hátíðin er hugsuð fyrir tónlistar-
nemendur á aldrinum 12-33 ára sem
sækja um að taka þátt í námskeið-
unum en Elín segir alla velkomna á
tónleika og fyrirlestra. „Fyrir allra
yngstu nemendurna erum við með
strengjasveit og höfum reyndar haft
áhuga á því að koma á fót blás-
arasveit en aðsóknin hefur því miður
verið svo dræm að við höfum aldrei
getað komið því í gegn. Strengja-
sveitin er einkum ætluð þeim nem-
endum sem eru í miðnámi í almenn-
um tónlistarskólum. Síðan eru
námskeiðin aðallega ætluð fyrir þá
sem eru lengst komnir í almennu tón-
skólanámi hér heima eða eru í háskól-
unum.“
Elín segir umfang hátíðarinnar
aldrei hafa verið meira, en að þessu
sinni verða í boði 10 hljóðfæranám-
skeið, strengjasveitarnámskeið,
sviðsframkomunámskeið og
jóganámskeið. „Sviðsframkom-
unámskeiðið verður undir leiðsögn
Gunnars Eyjólfssonar og er ætlað öll-
um nemendum. Jóganámskeiðið er
einnig nýjung hjá okkur og er hugsað
til að huga að líkamlega þættinum hjá
okkur tónlistarnemum, sem er ekki
síður mikilvægur. Það er Melkorka
Ólafsdóttir flautuleikari sem hefur
umsjón með því.“
– Og þið hvetjið fólk til að koma og
vera með?
„Já, áherslan hjá okkur er á tón-
leikana, en einnig erum við með fyr-
irlestraröð sem er opin bæði tónlist-
arnemum og öðru áhugafólki um
tónlist. Þar mun Gunnhildur Ott-
ósdóttir sjúkraþjálfari tala um lík-
amsbeitingu tónlistarfólks og for-
varnir gegn álagseinkennum og síðan
mun Jón Þorsteinsson söngkennari
kynna sérstaka söngtækni sem er
mjög áhugaverð fyrir alla sem stunda
tónlist. Og síðan ætlar Atli Ingólfsson
tónskáld að tala um nýja tónlist,“ seg-
ir Elín að lokum en bætir því svo við
að ef fólk sé mjög áhugasamt um
námskeiðin sjálf þá geti það haft sam-
band og fengið að koma og hlusta á
það sem fram fer.
Allar nánari upplýsingar er að
finna á heimasíðunni wwm.music-
fest.is.
Áherslan á unga fólkið
Tónlistarhátíð unga fólksins haldin dagana 3.-15. ágúst Umfang hátíðarinnar
aldrei meira Á dagskránni eru námskeið, fyrirlestrar, tónleikar og málþing
Morgunblaðið/Jakob Fannar
Skipuleggjendur Guðný Þóra Guðmundsdóttir og Elín Ásta Ólafsdóttir. Á myndina vantar Gunnhildi Daðadóttur.
Strengjasveitin Skark sem spil-
ar á opnunarhátíðinni 3. ágúst
er skipuð tónlistarnemum sem
allir eru í framhaldsnámi er-
lendis. Stjórnandi hennar er
Bjarni Frímann Bjarnason sem
er rétt rúmlega tvítugur.
Skark spiluðu undir innsetn-
ingu fransks listamanns í sund-
laug í Berlín fyrr á árinu en þau
hyggjast í vetur snúa þangað
aftur og spila á tónlistarhátíð.
Þau stefna einnig á að gefa út
geisladisk í náinni framtíð.
Metnaðarfull
SKARK
Það hefur lengi verið
sagt að „eldri“ konur
geri það betur, en hvað með
oftar? 34
»