Morgunblaðið - 31.07.2010, Síða 40
LAUGARDAGUR 31. JÚLÍ 212. DAGUR ÁRSINS 2010
Sindri Sverrisson
sindris@mbl.is
„Ég vaknaði í fyrrinótt með svo gríð-
arlegan hálsríg að ég gat ekki rétt
hausinn almennilega við. Ég fór til
læknis og hann sagði að ég mætti ekki
einu sinni hlaupa og mælti nú ekki
með að ég tæki þátt í þessu móti held-
ur yrði bara heima. Ég þurfti líka smá
að rífast við mömmu til að fá að taka
þátt,“ sagði Ólafsfirðingurinn Sig-
urbjörg Áróra Ásgeirsdóttir hlæjandi
í samtali við Morgunblaðið í gær. Hún
var þá í spjótkastskeppni á 13. Ung-
lingalandsmóti UMFÍ sem fram fer í
Borgarnesi um helgina og vakti at-
hygli fyrir hálskragann sem hún
skartaði.
Þrátt fyrir tilmæli læknis og móður
var spjótkastið síður en svo eina
greinin sem Sigurbjörg ætlaði sér að
taka þátt í um helgina.
„Maður tekur þetta fram yfir allt.
Þetta er alveg æðislegt hérna og þetta
er líka langskemmtilegasta mótið.
Ég keppi í kastgreinunum í frjáls-
um, en á þessu móti er ég líka í fót-
boltanum og kannski glímu. Ég var
með kragann í fótboltanum en það
þarf aðeins að ræða málin varðandi
glímuna, hvort ég megi taka þátt í
henni. En ég hlakka til og mig langar
til að prófa allt,“ sagði Sigurbjörg sem
á Íslandsmet í flokki telpna 11-12 ára í
sleggjukasti og er ekki í vafa um
hverjar eru fyrirmyndir hennar hér á
landi.
„Helga Margrét [Þorsteinsdóttir]
og Ásdís [Hjálmsdóttir] eru bestar.
Ég fylgist alltaf með þeim og lít upp til
þeirra.“
Unglingalandsmótið í Borgarnesi
hófst með miklu fjöri í gær og var
keppt í fjölda greina frá morgni til
kvölds, líkt og ætlunin er í dag og á
morgun. Keppendur og áhorfendur
fengu rjómablíðu í gær og var margt
um manninn.
MUnglingalandsmót UMFÍ » Íþróttir
Hlustaði ekkert á lækninn
Margmenni í
rjómablíðu á Ung-
lingalandsmóti
Morgunblaðið/Eggert
Ósérhlífin Sigurbjörg Áróra kallar ekki allt ömmu sína og keppti í Borgarnesi með myndarlegan hálskraga.
Morgunblaðið/Eggert
Landsmótið sett Gáski var í krökkunum frá UMSE við setningu unglinga-
landsmótsins á íþróttavellinum í Borgarnesi í gærkvöldi, í blíðskaparveðri.
Þrettánda landsmótið
» Í ár fer fram þrettánda Ung-
lingalandsmót UMFÍ en það fer
jafnan fram um Verslunar-
mannahelgina. Að þessu sinni
er mótið í Borgarnesi.
» Keppendur eru á aldrinum
11-18 ára og geta þeir meðal
annars keppt í golfi, fótbolta,
körfubolta, glímu, sundi, frjáls-
um íþróttum, dansi, hesta-
íþróttum, skák og fleira.
» Auk keppnisgreinanna er
ýmsa aðra skemmtun að finna
í Borgarnesi yfir helgina fyrir
þá fjölmörgu sem leið sína
leggja þangað. Áætlað er að
10-15 þúsund gestir séu á
svæðinu.
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í LAUSASÖLU 590 ÁSKRIFT 3890 HELGARÁSKRIFT 2400 PDF Á MBL.IS 2200
VEÐUR » 8 www.mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. Herjólfur tafðist um þrjá tíma
2. Óvenjuleg snekkja í heimsókn
3. „Búið að vera … leiðinlegt“
4. Fer að sofa á þriðjudaginn
„Þeir eru mjög hrifnir af landi og
þjóð,“segir Geir Gunnlaugsson um
hljómsveitina Super Mama Djombo
frá Gíneu-Bissá sem heldur tónleika
hérlendis á næstunni. »33
Morgunblaðið/Frikki
Afrískir hljómar á
leiðinni til landsins
Tökum á gam-
anmyndinni
Gauragangi lýkur
í bili um helgina
en þær hefjast
aftur í október.
Stefnt er að því
að myndin verði
frumsýnd um jól-
in, en leikstjóri
hennar er Gunnar Björn Guðmunds-
son. Myndin er byggð á metsölubók
Ólafs Hauks Símonarsonar og fer Al-
exander Briem með hlutverk aðal-
persónunnar, Orms Óðinssonar.
Tökum á Gauragangi
lýkur í bili
Jóhann Ágúst Jóhannsson, skipu-
leggjandi tónlistarhátíðarinnar Pönk
á Patró, segir að fyrri hlutinn hafi
heppnast ótrúlega vel. „Ég er mjög
ánægður með að hafa
gert þetta. Það var
svo gaman að sjá
ungu kynslóðina
upplifa tónlist á sín-
um forsendum.“
Seinni hluti hátíð-
arinnar fer fram
laugardaginn 7.
ágúst næstkom-
andi. »33
Annar hluti Pönks
á Patró næstu helgi
FÓLK Í FRÉTTUM
VEÐURÍÞRÓTTIR
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Austlæg eða breytileg átt 3-8 m/s, skýjað eða skýjað með köflum,
en sums staðar þokuloft við N- og A-ströndina. Hiti 12 til 20 stig, hlýjast inn til landsins.
Á sunnudag Hæg vestlæg eða breytileg átt og skýjað með köflum, en þurrt að kalla. Hiti
víða 13 til 18 stig að deginum.
Á mánudag Hæg austlæg eða breytileg átt og væta sunnan- og vestanlands þegar kem-
ur fram á daginn, en annars þurrt að mestu. Hiti breytist lítið.
Steinþór Freyr Þorsteinsson hefur
leikið sinn síðasta leik í bili með
úrvalsdeildarliði Stjörnunnar í fót-
bolta. Framherjinn samdi við
sænska 1. deildarliðið Örgryte í
gær.
„Það er frábært að fá þetta tæki-
færi enda hefur maður stefnt að
atvinnumennsku síðan maður var
lítill,“ sagði Steinþór í gær. »1
Steinþór Freyr samdi
við Örgryte í Svíþjóð
Helga Margrét Þorsteins-
dóttir frjálsíþróttakona úr
Ármanni hætti keppni í sjö-
þraut í gær á Evrópumeist-
aramótinu í Barcelona vegna
meiðsla. Helga kláraði þrjár
greinar og eftir kúluvarpið
hætti hún keppni. Þar með
hafa allir íslensku keppend-
urnir lokið keppni á EM. Óð-
inn Björn Þorsteinsson
og Þorsteinn Ingason
kepptu í gær. »1
Helga hætti
keppni á EM
Tinna Jóhannsdóttir Íslandsmeistari
í golfi kvenna slær 215 metra teig-
högg að jafnaði með Titleist-dræv-
ernum sínum. Meistarinn úr GK notar
ávallt tí með enska lið-
inu Manchester United
í keppni og hún stefn-
ir á atvinnumennsku
að loknu háskóla-
námi næsta vor.
»4
Meistarinn er ekki
„græjupælari“