Morgunblaðið - 13.09.2010, Side 1
M Á N U D A G U R 1 3. S E P T E M B E R 2 0 1 0
Stofnað 1913 213. tölublað 98. árgangur
ALLTAF MEÐ
EITTHVAÐ Á
PRJÓNUNUM SKRÍTLA OG LÚSÍ KRÚS
STEMNING OG
ÞOKKI HJÁ KK Í
ALDARFJÓRÐUNG
FRUMSÝNING HJÁ SVEPPA 26 AFMÆLISTÓNLEIKAR 27PRJÓNAROKKSTJARNA 10
Sigrún Rósa Björnsdóttir
sigrunrosa@mbl.is
Meiri líkur en minni virðast sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðsins til
þess að Alþingi samþykki þingsálykt-
unartillögur um ákærur á hendur
þremur af fjórum fyrrverandi ráð-
herrum og að Björgvin G. Sigurðsson
sleppi við ákæru. Heimildir Morgun-
blaðsins herma að skiptar skoðanir
séu einkum innan Samfylkingarinnar.
Þingflokkur hennar fundaði fram á
kvöld í gær en þingmenn vildu ekki
tjá sig eftir fundinn.
Skýrsla þingmannanefndarinnar
verður tekin fyrir á Alþingi í dag og í
beinu framhaldi á að taka fyrir þings-
ályktunartillögur um ákærur á hend-
ur ráðherrum. Þótt gert sé ráð fyrir
því í starfsáætlun þingsins að því ljúki
á miðvikudag efast margir þingmenn,
sem Morgunblaðið ræddi við, um að
það náist. Mál sem þetta sé fordæma-
laust hér á landi og líklegra að at-
kvæðagreiðsla fari ekki fram fyrr en í
lok þessarar viku eða í byrjun þeirrar
næstu.
Geir H. Haarde, fyrrverandi for-
sætisráðherra, sendi í gær frá sér til-
kynningu þess efnis að hann teldi nið-
urstöðu nefndarinnar ranga og að
hún ylli sér vonbrigðum. Björgvin G.
Sigurðsson sendi frá sér tilkynningu
um að málið væri í höndum Alþingis
og að hann myndi ekki reyna að hafa
áhrif á niðurstöðu þess.
Brynjar Níelsson, hæstaréttarlög-
maður og formaður Lögmannafélags-
ins, segir landsdóm úreltan og að það
hafi komið sér á óvart að þingmenn
hafi lagt til að ráðherrarnir yrðu
ákærðir.
Margrét Frímannsdóttir, fyrrver-
andi formaður þingflokks Samfylk-
ingar, er sammála Brynjari um að
lögin séu úrelt. Búast megi við að slíkt
mál endi fyrir Mannréttindadómstól
Evrópu.
Ólga og hörð viðbrögð
Meiri hluti þingmannanefndar telur ástæðu til að ákæra fjóra fyrrverandi ráð-
herra Mikill ágreiningur í Samfylkingu um hvort ákæra eigi Ingibjörgu Sólrúnu
MTillögur um landsdóm »2,4,6-7
Ekki einróma
» Fulltrúar Framsóknar,
Vinstri grænna og Hreyfing-
arinnar vildu ákæra fjóra fyrr-
verandi ráðherra.
» Fulltrúar sjálfstæðismanna
vildu ekki ákæra neinn ráð-
herra og telja málatilbúnað of
veikan.
» Samfylking vildi ekki ákæra
Björgvin.
Fulltrúar seðlabanka og fjármála-
eftirlitsstofnana heimsins náðu sam-
komulagi í gær um nýjar alþjóð-
legar kröfur um eiginfjárhlutfall
bankastofnana. Lágmark svokallaðs
eiginfjárhlutfalls A verður hækkað
úr 2,0 prósentum í 4,5 prósent og
svo verður í fyrsta skipti gerð krafa
um 2,5 prósenta varúðarhlutfall. Í
raun hækkar lágmarks eiginfjár-
hlutfall því úr tveimur prósentum í
sjö prósent. » 14
Reglur hertar um
eiginfjárhlutfall
Reglur Þjóðverjar vildu slakari reglur en
þær sem samþykktar voru í gær.
Útgerðarstjóri
Skinneyjar-
Þinganess segir
óvissu um fram-
tíð fisk-
veiðistjórn-
unarkerfisins
hafa slæm áhrif á
sjávarútveg. „Á
meðan verið er
að ræða um inn-
köllun fjárfestir
enginn í greininni, endurnýjun
stöðvast og það hefur einnig áhrif á
fyrirtæki sem þjónusta útgerðina,“
segir Ásgeir Gunnarsson. Þrátt fyr-
ir að starfshópur um endurskoðun
fiskveiðilöggjafar leggi til að farin
verði samningaleið hafi óvissunni
enn ekki verið eytt. »8
Enginn fjárfestir á
meðan óvissa ríkir
Ásgeir
Gunnarsson
Það var hart tekist á í leik Gammanna gegn Drekunum
í andspyrnu í Kórnum í Kópavogi í gær. Andspyrna er
íslenskt heiti á áströlskum fótbolta en sérstakt and-
spyrnusamband var stofnað hér á landi í fyrra. Leik-
urinn í gær var næstsíðasti leikur tímabilsins en í ár er
í fyrsta skipti keppt í deildakeppni í íþróttinni. Gamm-
arnir sigruðu, 88-81, og mæta næst Griðungum í hrein-
um úrslitaleik. Þrjú lið eru í deildinni og eru iðkendur
íþróttarinnar 30-50 talsins að sögn Friðgeirs Ásgeirs-
sonar, formanns Andspyrnusambands Íslands.
Morgunblaðið/Ómar
Andspyrna í Kórnum
Skuldir Baugs hjá ríkisvæddum
bönkum í október 2008 námu 1,1
milljarði punda. Þar að auki námu
skuldir félagsins hjá öðrum bönk-
um um 280 milljónum punda. Eign-
ir félagsins voru hins vegar aðeins
ríflega 563 milljónir punda, eða
innan við 40% af heildarskuldum
þess.
Þetta kemur fram í vitnisburði
Jóns Ásgeirs Jóhannessonar fyrir
dómstóli í Bretlandi, vegna máls-
höfðunar slitastjórnar Glitnis á
hendur fyrrverandi eigendum og
stjórnendum Glitnis. Í vitnisburð-
inum segir Jón Ásgeir einnig að
hann hafi ekki á neinn hátt stýrt
rekstri eða lánveitingum Glitnis.
Því til stuðnings nefnir Jón að
hann hafi aldrei setið stjórnarfundi
bankans, né heldur fundi hjá hinum
ýmsu nefndum hans.
Dómarinn gerði flókið fyrir-
tækjanet Jóns Ásgeirs að umtals-
efni í úrskurðarorðum sínum, enda
gæfi það í það minnsta ástæðu til
að hafa fyrirvara á því að Jón Ás-
geir hefði skilað tæmandi eigna-
lista. Dómarinn sagði rökin fyrir
áframhaldandi frystingu eigna Jóns
Ásgeirs meira en fullnægjandi. »12
Eignir
40% af
skuldum
Jón Ásgeir segist
ekki hafa stýrt Glitni
Átján slösuðust, þar af þrír alvar-
lega, í lestarslysi í Svíþjóð í gær-
kvöldi. Farþegalest, sem var á leið-
inni frá Stokkhólmi til Málmeyjar,
rakst á kranabíl sem var á lest-
arteinunum nærri bæjunum Lin-
köping og Norrköping.
Tveir farþegar lestarinnar eru
alvarlega slasaðir og ökumaður
kranabílsins sömuleiðis. Voru níu
farþegar fluttir á sjúkrahús í Lin-
köping og aðrir níu til Norrköping.
Alls voru 244 farþegar um borð í
lestinni. Eimreið lestarinnar
skemmdist nokkuð auk fimm af sjö
farþegavögnum.
Átján slasast í
lestarslysi í Svíþjóð
Lestarslys Lestin var á sjötíu kílómetra
hraða þegar slysið varð í gærkvöldi.