Morgunblaðið - 13.09.2010, Qupperneq 2
2 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. SEPTEMBER 2010
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti
vidsk@mbl.is Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is
Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Prentun Landsprent ehf.
LAXÁ Á REFASVEIT
Eigum laus holl eftir 19. september.
Upplýsingar veitir Stefán í síma 898-3440.
Það hljóp heldur betur á snærið hjá páfagaukn-
um Kókó, sem er 10 ára gamall kakadú-páfa-
gaukur, þegar hann fékk Heiðdísi Hörpu í heim-
sókn til sín á sýningu Dýraríkisins í Blómavali.
Heiðdís Harpa, sem er 9 ára, er greinilega mikill
dýravinur og kann á þeim lagið. Kókó kunni
enda vel að meta klapp hennar og strokur og
gerði henni verkið auðveldara með því að snúa
sér eftir hreyfingum hennar.
Dýravinurinn Heiðdís Harpa og Kókó
Morgunblaðið/Ómar
Vonast er til að hægt verði að halda
áfram að dýpka Landeyjahöfn í dag
eða kvöld að sögn Óttars Jónssonar,
skipstjóra dýpkunarskipsins Perlu.
Hætta varð vinnu við dýpkunina í
gær vegna veðurs. Óttar segir að
verkið muni taka um fjóra til fimm
sólarhringa þegar hægt sé að vera
við það. Herjólfur mun því halda
áfram að sigla til Þorlákshafnar
næstu daga, að því er segir í til-
kynningu frá Eimskipi frá því í gær-
kvöldi.
Að sögn Sigurðar Áss Grétars-
sonar, forstöðumanns Siglingastofn-
unar, er kostnaðurinn við dýpk-
unina nú um tíu milljónir króna en
alls er gert ráð fyrir 25 milljónum
króna í viðhaldsdýpkun hafnarinnar
á ári í samgönguáætlun. Sigurður
segir að gert hafi verið ráð fyrir erf-
iðleikum fyrsta árið eftir opnun en
þeir verði ekki til þess að farið verði
fram úr kostnaðaráætlun enda hafi
kostnaður við gerð Landeyjahafnar
verið langt undir áætlun. „Það
versta við þetta eru óþægindin fyrir
Vestmannaeyinga enda er þjónustu-
stigið lakara eins og ástandið er í
dag,“ segir Sigurður.
Aðspurður hvort sífelld dýpkun-
arvinna sé það sem koma skal í vet-
ur segir Sigurður að ef engin hressi-
leg lægð gangi yfir landið geti
veturinn orðið erfiður. „Það hafa
verið ríkjandi suðaustlægar áttir
undanfarið sem hafa flutt efni sem
kemur niður Markarfljótið vestur
en hluti þess er nú fyrir framan
höfnina og veldur okkur erfiðleik-
um. Við þurfum brjálað veður til
þess að hreinsa efnið burt.“ kjart-
an@mbl.is
Áfram siglt til Þorlákshafnar á
meðan Landeyjahöfn er dýpkuð
Morgunblaðið/RAX
Aðstoð Hressilega lægð þarf til þess að hreinsa gosefni frá höfninni.
„Þurfum brjálað
veður til þess að
hreinsa efnið burt“
Skáksveit Salaskóla hafnaði í
öðru sæti á Norðurlandamóti
grunnskóla í skák. Sveitin vann
Norðurlandameistaratitilinn í
fyrra en réð ekki við geysi-
öfluga sveit Norðmanna að
þessu sinni.
Strákarnir í Salaskóla sigr-
uðu Dani í lokaumferðinni, 3:1,
og enduðu með 11,5 vinninga.
Norska sveitin fékk 19 vinn-
inga. Í skáksveit Salaskóla eru
Páll Snædal Andrason, Eiríkur
Örn Brynjarsson, Guðmundur
Kristinn Lee, Birkir Karl Sig-
urðsson og Ómar Yamak.
Í öðru sæti á stórmóti
Fyrirkomulagið
með landsdóm er
fullkomlega úrelt
og á ekki að vera
við lýði, segir
Brynjar Níelsson,
hæstaréttar-
lögmaður og for-
maður Lög-
mannafélagsins.
Hann segir það
koma á óvart að
þingmenn hafi lagt til að kæra fyrr-
verandi ráðherra til landsdóms.
„Þessi gömlu lög um ráðherra-
ábyrgð samræmast illa nútímasjón-
armiðum um skýrleika réttarheim-
ilda sem snúa að refsingum og
réttindum sakborninga. Það gengur
ekki að þeir sem eru ásakaðir skuli
ekki njóta hefðbundinna réttinda
sakborninga eins og að mál séu
rannsökuð og þeir fái að koma að
andmælum. Það er réttur manna áð-
ur en ákvörðun er tekin um ákæru
gegn þeim. Ef menn hafa brotið
refsilagaákvæði ætti að sækja þá til
saka fyrir almennum dómstólum,“
segir Brynjar. kjartan@mbl.is
Úreltur
lands-
dómur
Brynjar
Níelsson
Margrét Frí-
mannsdóttir,
fyrrverandi for-
maður þingflokks
Samfylking-
arinnar, segir frá-
leitt að leggja það
til að sækja fjóra
fyrrverandi ráð-
herra til saka fyr-
ir landsdómi. „Ég
hef kynnt mér
mannréttindasáttmála Evrópu og
meðferð sakamála og ég sé ekkert
sem styður það að þingnefnd geti
lagt fram ákærur á hendur ein-
staklingum. Það er fráleitt,“ segir
Margrét. Hver maður sem sé
ákærður eigi rétt á ákveðinni máls-
meðferð. „Ég trúi því að réttarríkið
eigi að tryggja hagsmuni sakborn-
inga. Í þessu máli er það á engan
hátt tryggt. Lögin um landsdóm eru
úrelt gagnvart mannréttinda-
sjónarmiðum og geta ekki gilt,“ seg-
ir Margrét. kjartan@mbl.is
Fráleitar
tillögur
Margrét
Frímannsdóttir
Mikil leit var gerð að gangnamanni
á Skaga, milli Skagafjarðar og
Eyjafjarðar, í gærkvöldi. Kallað
var eftir aðstoð björgunarþyrlu
Landhelgisgæslunnar og var hans
leitað á fjórhjólum og með leitar-
hundum.
Mannsins var leitað frá því í
gærmorgun en hann skilaði sér til
byggða sjálfur í kringum 22:00 í
gærkvöldi. Kom hann gangandi
niður að bænum Ketu á Skaga og
var hann ómeiddur en nokkuð
hrakinn og kaldur eftir langa
göngu í slæmu veðri. Rigning var á
svæðinu og þokusuddi. Talið er að
hann hafi gengið um tuttugu kíló-
metra.
Maðurinn var við fjárleitir þegar
hann missti frá sér hestinn þannig
að hann þurfti að fara á eftir hon-
um. Um klukkan 10 náðist sam-
band við hann í talstöð og hafði
hann þá náð hesti sínum og var
sagt að hitta félaga sína í Kamba-
dal. Spurðist síðan ekki til hans þar
til hann kom sjálfur gangandi til
byggða.
Mikil leit gerð
að gangnamanni
Morgunblaðið/Árni Sæberg
TF-GNA Þyrla Landhelgisgæslunnar
var kölluð út við leitina.
Skilaði sér sjálfur
til byggða gangandi
Bilun í háspennu-
búnaði Norðuráls
olli skammhlaupi
í rafmagnsflutn-
ingskerfi Lands-
nets fimmtudags-
morguninn 9.
september að því
er segir í frétta-
tilkynningu frá
Landsneti. Var þetta önnur bilunin
sem kom upp í flutningskerfinu á
rúmri viku og var hún sambærileg
við þá fyrri. Olli hún fyrirvaralausu
skammhlaupi í raforkukerfinu og
varð vart við skammhlaupið um
mest land örstutta stund en ekkert
straumleysi varð hjá almennum not-
endum. Töluverðar spennusveiflur
urðu þó á Norður- og Austurlandi.
Í fréttatilkynningunni segir að
varnarbúnaður hafi brugðist við með
eðlilegum hætti og hafi aftengt ál-
verið frá raforkukerfinu þegar bil-
unin varð. Landsnet hafi þegar grip-
ið til bráðabirgðaráðstafana til að
koma í veg fyrir að slíkar truflanir
endurtaki sig og jafnframt sé var-
anlegra lausna leitað. kjartan@mbl.is
Háspennu-
búnaður bilaði