Morgunblaðið - 13.09.2010, Síða 4
4 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. SEPTEMBER 2010
Nú er upplagt að skreppa til Prag og njóta haustsins í þessari einstaklega fögru
borg. Haustið í Prag er einstakt og frábært að heimsækja borgina og njóta lífsins. Í
Prag er hagstætt verðlag og þar eru frábær tækifæri til að gera hagstæð innkaup og
njóta lífsins í mat og drykk. Gríptu tækifærið og skelltu þér til Prag og njóttu góðs
aðbúnaðar í ferðinni. Ath. mjög takmarkaður fjöldi herbergja í boði á þessum
kjörum.
Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til
leiðréttinga á slíku. Ath. að verð getur breyst án fyrirvara.
Prag
30. September í 3 nætur
frá kr. 49.900
Kr. 49.900
Netverð á mann.
Flugsæti báðar leiðir
með sköttum.
Frábær þriggja nátta helgarferð - síðustu sætin!
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Kr. 64.980
Netverð á mann, m.v gistingu í
tvíbýli á Hotel Top **** í 3 nætur
með morgunmat. Aukagjald fyrir
einbýli kr. 15.000
Kr. 69.980
Netverð á mann, m.v gistingu í tvíbýli á
Hotel Clarion Congress **** í 3 nætur
með morgunmat. Aukagjald fyrir einbýli
kr. 18.200
Landsdómi er ætlað að fara með og
dæma þau mál sem Alþingi ákveður
að höfða gegn ráðherrum út af emb-
ættisrekstri þeirra í samræmi við
ákvæði 1. gr. laga nr. 3/1963 um
landsdóm.
Í landsdómi eiga sæti 15 dóm-
endur og eru þeir þessir sbr. 2. gr.
laga um landsdóm. Þeir fimm dóm-
arar við Hæstarétt sem hafa átt þar
lengst sæti en það eru: Árni Kol-
beinsson, Garðar Gíslason, Gunn-
laugur Claessen, Ingibjörg Bene-
diktsdóttir og Markús
Sigurbjörnsson. Dómstjórinn í
Reykjavík sem er Helgi I. Jónsson
og prófessorinn í stjórnskipunarrétti
við Háskóla Íslands sem er Björg
Thorarensen. Þá eru átta menn
kosnir af Alþingi með hlutfallskosn-
ingu til 6 ára í senn. Síðast var kosið
11. maí 2005 og þá hlutu kosningu:
Linda Rós Michaelsdóttir kenn-
ari, Jóna Valgerður Kristjánsdóttir,
Sigrún Magnúsdóttir, fyrrverandi
borgarfulltrúi, Vilhjálmur H. Vil-
hjálmsson hæstaréttarlögmaður,
Fannar Jónasson viðskiptafræð-
ingur, Hlöðver Kjartansson lögmað-
ur, Dögg Pálsdóttir hæstarétt-
arlögmaður, Brynhildur Flóvenz
lögfræðingur.
Þar sem Markús Sigurbjörnsson
og Björg Thorarensen eru hjón er
ljóst að annaðhvort þeirra verður að
víkja sæti úr landsdómi og kalla inn
varamann en í lögum um dóminn
segir að hjón megi ekki sitja saman í
landsdómi sbr. eftirfarandi:
4. mgr. 3. gr. „Skyldir menn eða
mægðir að feðgatali eða niðja eða
hjón, kjörforeldri og kjörbarn, fóst-
urforeldri og fósturbarn eða skyldir
eða mægðir að fyrsta eða öðrum lið
til hliðar mega ekki sitja samtímis í
landsdómi.“
Víki Markús, sem er hæstarétt-
ardómari, kveður Hæstiréttur til
varadómara úr hópi annarra hæsta-
réttardómara en víki Björg kýs laga-
deild Háskóla Íslands varamann
hennar sem prófessors í stjórnskip-
unarrétti skv. 2. gr. laganna.
sigrunrosa@mbl.is
Dögg
Pálsdóttir
Vilhjálmur H.
Vilhjálmsson
Helgi I.
Jónsson
Gunnlaugur
Claessen
Ingibjörg
Benediktsdóttir
Árni
Kolbeinsson
Linda Rós
Michaelsdóttir
Hlöðver
Kjartansson
Jóna Valgerður
Kristjánsdóttir
Garðar
Gíslason
Fimmtán í landsdómi sem
hefur aldrei komið saman
Brynhildur
Flóvenz
Fannar
Jónasson
Markús
Sigurbjörnsson
Sigrún
Magnúsdóttir
Björg
Thorarensen
FRÉTTASKÝRING
Sigrún Rósa Björnsdóttir
sigrunrosa@mbl.is
Meiri líkur en minni virðast til þess að
Alþingi samþykki þingsályktun-
artillögu þess efnis að mál þriggja
fyrrverandi ráðherra, Geirs H.
Haarde, Ingibjargar Sólrúnar Gísla-
dóttur og Árna M. Mathiesen fari fyr-
ir landsdóm vegna brots á lögum um
ráðherraábyrgð samkvæmt heim-
ildum Morgunblaðsins. Að sama skapi
virðist af ummælum margra viðmæl-
enda Morgunblaðsins líklegt að fjórði
fyrrverandi ráðherrann, Björgvin G.
Sigurðsson, verði ekki ákærður.
Greiða atkvæði eins
og fulltrúar
Meirihluti þingmannanefndar sem
falið var að fjalla um rannsókn-
arskýrslu Alþingis tilkynnti á laug-
ardag þá niðurstöðu sína að ákæra
bæri fyrrverandi ráðherrana. Þegar
farið er inn í þingflokkana og viðbrögð
hleruð þar virðist sem margir ætli að
taka mið af því hvernig nefndarmaður
flokksins greiði atkvæði og greiða at-
kvæði samkvæmt því. Fari svo er ljóst
að ákæra á hendur Björgvini G. Sig-
urðssyni verður ekki samþykkt þar
sem sjálfstæðismenn og samfylking-
armenn fara samtals með 36 atkvæði
af þeim 63 sem eru á Alþingi.
Ágreiningur vegna Ingibjargar
Samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins virðist sem helsti ágrein-
ingurinn sé innan Samfylking-
arinnar.
Þar er stóra spurningarmerkið
hvort vilji sé fyrir því að Ingibjörg
Sólrún verði ákærð. Einnig er mikið
deilt um hvort ákæra beri Björgvin
fyrrverandi viðskiptaráðherra. Einn
af þeim þingmönnum sem Morg-
unblaðið ræddi við benti á að stjórn-
skipulega séð hefði mesta ábyrgðin
legið hjá viðskiptaráðherra þar sem
hann bar ábyrgð á þeim málaflokkum
sem ákært er í. Í raun hefði frekar átt
að ákæra hann en hin þrjú.
Einhugur innan
Sjálfstæðisflokks
Innan Sjálfstæðisflokksins virðist
vera einhugur um þá afstöðu sem
fulltrúar flokksins í nefndinni tóku og
þá afstöðu sem formaður flokksins
lýsti yfir í fjölmiðlum um að hafna
beri ákærum á hendur fjórmenning-
unum. Birgir Ármannsson segir afar
veikan grunn í tillögum nefndarinnar
um ákæru. Einnig skorti verulega á
að fyrir hendi séu lögfræðilegar for-
sendur til að fara í mál af þessu tagi.
Heimildir benda til þess að innan
Vinstri grænna og Hreyfingarinnar
séu þingmenn á því að fara að nið-
urstöðu sinna nefndarmanna komi
ekkert nýtt fram við umræður á Al-
þingi. Eftir þingflokksfund Fram-
sóknar á laugardag var ákveðið að
hver og einn læsi sér til um málið og
tæki afstöðu út frá eigin samvisku.
Siv Friðleifsdóttir, þingmaður Fram-
sóknar, segir fulltrúa flokksins hafa
farið mjög vel yfir niðurstöður nefnd-
arinnar og þær röksemdir sem lágu
að baki ákæruliðum.
Manndómur að greiða atkvæði
Enginn sem talað var við ætlaði að
sitja hjá en margir viðmælendur
Morgunblaðsins voru hins vegar á
því að hjáseta væri raunhæfur val-
kostur. Gunnar Bragi Sveinsson,
þingflokksformaður Framsókn-
arflokksins, sagði ákveðna yfirlýs-
ingu í því að vilja ekki segja að ein-
hver væri saklaus eða sekur með öllu.
Í sama streng tók Sigmundur Ernir
Rúnarsson, Samfylkingu. Höskuldur
Þórhallsson Framsóknarflokki sagði
það hins vegar felast í skyldu alþing-
smanna að sýna þann manndóm að
taka afstöðu með og á móti.
Hve margir fyrir Landsdóm?
Mikill ágreiningur virðist vera innan Samfylkingar um hvort samþykkja eigi þingsályktunartillögu
um að Ingibjörg Sólrún fari fyrir landsdóm Einhugur sagður vera innan Sjálfstæðisflokksins
Morgunblaðið/Ómar
Ábyrgð Aðspurð um hvort þessar tillögur myndu róa almenning sagðist Jó-
hanna Sigurðardóttir forsætisráðherra vona það. Þetta væri áfellisdómur.
Skýrsla og ákærur
» Skýrsla þingmannanefndar,
sem fjallaði um skýrslu rann-
sóknarnefndar Alþingis var
kynnt þingflokkum kl. 15 á
laugardag.
» Skýrslunni var dreift á Al-
þingi kl. 17 sama dag.
» Þingmannanefndin lagði
með henni tvær þingsályktun-
artillögur fram á Alþingi um
málshöfðun gegn ráðherrum
og hvort ástæða væri til að
kalla saman landsdóm.
Skýrsla þingmannanefndarinnar
verður tekin til umræðu á Alþingi
fyrir hádegi í dag. Ein umræða fer
fram um sjálfa skýrsluna en tvær um
þingsályktunartillögurnar um máls-
höfðun gegn ráðherrum.
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir,
forseti Alþingis, segist ekki gera ráð
fyrir því að fleiri en nefndarfull-
trúarnir komist að í umræðum dags-
ins þar sem þingmenn hafa rýmri
tíma nú en segir um skýrsluumræð-
ur í þingsköpum. Skýrslan verði aft-
ur á dagskrá á morgun.
Samkvæmt starfsáætlun þingsins
ætti haustþingi að ljúka nú á mið-
vikudag. Spurð um það hvort haust-
þingið verði lengt segir Ásta Ragn-
heiður: „Ég geri ekki ráð fyrir að
menn klári umræður á þeim tveimur
dögum sem eftir standa af haust-
þingi samkvæmt starfsáætlun, þann-
ig að það mun lengjast eitthvað.“
Hún stefnir að því að umræðum ljúki
á yfirstandandi þingi.
Haustþingið
mun lengjast
Þingumræðan hefst fyrir hádegi í dag
Morgunblaðið/Ómar