Morgunblaðið - 13.09.2010, Side 6
6 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. SEPTEMBER 2010
www.noatun.is
FLJÓTLEGT
OG GOTT
Hafðu það
gott með
Nóatúni
FISKIBOLLUR
KR./KG
858
1149
F
ÚRFISKBOR
ÐI
ÚR
FISKBORÐI
ERSKIR
Í FISKI
25%
afsláttur
Einar Örn Gíslason
einarorn@mbl.is
Fulltrúar Vinstri grænna, Fram-
sóknarflokksins og Hreyfingarinnar
í þingmannanefnd um rannsóknar-
skýrslu Alþingis standa að þings-
ályktunartillögu um það að fjórir
fyrrverandi ráðherrar, þau Geir H.
Haarde, Ingibjörg Sólrún Gísladótt-
ir, Árni M. Mathiesen og Björgvin G.
Sigurðsson, verði sóttir til saka
„vegna refsiverðrar háttsemi þeirra
í embættisfærslu sinni.“ Fulltrúar
Samfylkingarinnar leggja það til að
þrír fyrrverandi ráðherrar verði
sóttir til saka, ofangreindir að Björg-
vini undanskildum. Fulltrúar Sjálf-
stæðisflokksins telja ekki ástæðu til
málshöfðunar.
Ásetningur eða hirðuleysi
Rökstuðningur þingsályktunartil-
lagnanna tveggja er samhljóma hvað
kæruatriðin varðar. Ráðherrarnir
fyrrverandi eru sakaðir um margvís-
leg brot, aðallega gegn lögum um
ráðherraábyrgð, sem framin hafi
verið „af ásetningi eða stórkostlegu
hirðuleysi.“ Ráðherrunum er meðal
annars gefið það að sök að hafa ekki
brugðist við aðsteðjandi hættu, sem
þeim hafi átt eða mátt vera kunnugt
um, ekki hafi verið unnin greining á
þeirri hættu sem ríkinu stafaði af
hugsanlegu fjármálaáfalli, ekkert
þeirra hafi haft frumkvæði að því að
draga úr stærð bankakerfisins eða
fullvissað sig um að unnið væri að
flutningi Icesave-reikninganna í
breskt dótturfélag. Þá er ráðherrun-
um gert að hafa litið fram hjá þeirri
skyldu sinni að ræða mikilvæg
stjórnmálaefni á ráðherrafundi.
Útilokuðu Björgvin markvisst
Fulltrúar Samfylkingarinnar telja
að ekki beri að höfða mál gegn
Björgvini, þar sem ekki hafi verið
samræmi milli lögboðins valds og
raunverulegs valds hans. Oddvitar
ríkisstjórnarinnar, þau Geir og Ingi-
björg, hafi farið inn á valdsvið ann-
arra ráðherra, og samskipti um
stöðu fjármálakerfisins takmörkuð
við þrjá ráðherra, þau tvö auk Árna.
Björgvin hafi markvisst verið útilok-
aður við upplýsingagjöf og ákvarð-
anatöku. Áhrifaleysi hans „kristall-
ast í því að 12. ágúst lagði hann fram
minnisblað fyrir ríkisstjórn sem
innihélt tillögur um að efla stöðug-
leika fjármálakerfisins. Tillaga þessi
var ekki afgreidd í ríkisstjórn,“ segir
í greinargerð samfylkingarfulltrú-
anna. Mörkin á milli gáleysis og stór-
fellds gáleysis séu mjög matskennd,
og beri að túlka óvissu ráðherra í
hag. Í ljósi þessa verði ekki séð að
Björgvin hafi gerst sekur um refis-
verða háttsemi í starfi sínu.
Þríklofin í afstöðu
til málshöfðunar
Samfylkingin vill hlífa Björgvini G. Sigurðssyni við ákæru
Morgunblaðið/Ómar
Landsdómur Atli Gíslason, formaður þingmannanefndarinnar um rannsóknarskýrslu Alþingis, er einn flutnings-
manna þingsályktunartillögu um að höfða skuli mál gegn fjórum fyrrverandi ráðherrum vegna afglapa í starfi.
„Komi til þess að
Alþingi samþykki
tillögu um að
stefna mér fyrir
landsdóm verður
það þungbær
reynsla en sá sem
hefur hreinan
skjöld er ekki
hræddur við að fá
úrlausn sinna
mála fyrir óháð-
um og óvilhöllum dómstóli eins og
landsdómi er ætlað að vera,“ segir
Geir H. Haarde, fyrrverandi for-
sætisráðherra og oddviti Sjálfstæð-
isflokks í ríkisstjórn flokksins og
Samfylkingarinnar árin 2007-9, í yf-
irlýsingu sem hann hefur sent frá
sér. Hann segir það mikið áfall að sjá
nafn sitt „nefnt í sömu andrá og
landsdómur,“ og að vera sakaður um
að vanrækja störf sín „þannig að
varðaði við lög um ráðherraábyrgð“.
Geir segir það munu verða mikinn
áfellisdóm yfir þingmannanefndinni
og Alþingi verði sakborningar sýkn-
aðir. Ábyrgð þingmanna sé því mikil.
Röng niðurstaða meirihlutans
Geir segist telja að meirihluti þing-
mannanefndarinnar hafi komist að
rangri niðurstöðu. Allt árið 2008 hafi
málefni viðskiptabankanna verði
hans aðalviðfangsefni. Hann hafi
hins vegar ekki gert sér grein fyrir
því „hversu mjög bankarnir höfðu
verið veiktir innan frá“ fyrr en eftir
rannsókn rannsóknarnefndar Al-
þingis. Það hafi verið honum „reið-
arslag“ að allar ráðagerðir um að
bjarga bönkunum skuli hafa mistek-
ist. „Ég stend við þá sannfæringu
mína að embættisfærsla mín sem for-
sætisráðherra hafi ekki valdið
bankahruninu og það hafi hvorki
verið á mínu færi né annarra ráð-
herra að koma í veg fyrir það á árinu
2008 eins og málum var háttað,“ seg-
ir Geir í yfirlýsingu sinni. Hann segir
það heldur ekki hafa verið á færi
þeirra Össurar Skarphéðinssonar og
Jóhönnu Sigurðardóttur, sem sátu í
ríkisstjórn hans, og „sitja í æðstu
valdastólum í núverandi ríkisstjórn,
en hafa af einhverjum ástæðum verið
undanþegin umfjöllun þingmanna-
nefndarinnar“.
Segir niðurstöðu
meirihlutans
mikil vonbrigði
Geir H.
Haarde
Björgvin G. Sig-
urðsson, fyrrver-
andi við-
skiptaráðherra,
segist ekki ætla
sér að tjá sig um
niðurstöðu þing-
mannanefnd-
arinnar, eða um-
fjöllun Alþingis
um hana, fyrr en
þeirri afgreiðslu
sé lokið. „Málið er nú í höndum Al-
þingis, sem kveður upp úr um loka-
niðurstöðu. Ég hef áður sagt að ég
muni ekkert gera sem geti truflað
störf þingsins í þessu mikilvæga
máli,“ segir Björgvin í stuttri yf-
irlýsingu sem hann sendi frá sér eft-
ir að niðurstaðan lá fyrir. Fulltrúar
Vinstri grænna, Hreyfingarinnar og
Framsóknarflokksins mæla fyrir
þingsályktunartillögu um að Björg-
vin verði sóttur til saka vegna alvar-
legrar vanrækslu í störfum sínum
sem ráðherra bankamála í aðdrag-
anda hrunsins árið 2008. Fulltrúar
Samfylkingarinnar og Sjálfstæð-
isflokksins telja hins vegar ekki
ástæðu til að höfða mál gegn honum.
Tjáir sig ekki fyrr en
þingið lýkur sér af
Björgvin G.
Sigurðsson
Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir, fyrr-
verandi utanrík-
isráðherra, segist
hvorki hafa átt
þátt í hruni fjár-
málakerfisins né
hafi hún getað
komið í veg fyrir
það. „Sem utan-
ríkisráðherra og
formaður Sam-
fylkingarinnar hafði ég ekki forræði
innan stjórnarráðsins á málum sem
tengjast fjármálakerfinu eða hags-
tjórninni,“ segir hún í skriflegu er-
indi til þingmannanefndarinnar, en
hún hefur ekki rætt við fjölmiðla eft-
ir að niðurstaða vinnu nefndarinnar
lá fyrir á laugardag.
Ingibjörg segir að upplýsingum
hafi verið haldið frá sér á mán-
uðunum í aðdraganda hrunsins, þar
á meðal gögnum unnum af eða að
beiðni Seðlabankans. Upplýs-
ingagjöf hennar sjálfrar hafi verið
þeim annmörkum háð að hún hafði
„takmarkaðar upplýsingar innan úr
stjórnkerfinu.“ Ingibjörg lýsir sig
ánægða með skýrslu rannsókn-
arnefndar Alþingis, og vísar til
þeirrar niðurstöðu nefndarinnar að
hún hafi ekki gerst brotleg í störfum
sínum sem utanríkisráðherra.
Segir upplýs-
ingum hafa verið
haldið frá sér
Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir
„Það er oft auð-
velt að gagnrýna
og vera vitur eft-
ir á. Ég tel þó að
þegar horft er til
baka yfir árið
2008 […] sé ekki
auðvelt að draga
fram hluti sem
frekar hefði átt
að gera eða gera
til viðbótar því
sem þá var gert. Slík atriði þurfa að
vera óyggjandi, nákvæmlega til-
greind og með greindum afleið-
ingum svo hægt sé að ákvarða
mönnum vanrækslu eða mistök á
grundvelli þeirra í svo flókinni at-
burðarás,“ segir Árni M. Mathie-
sen, fyrrverandi fjármálaráðherra,
í skriflegu svari við fyrirspurn
þingmannanefndarinnar um hugs-
anlega vanrækslu sína í starfi. Árni
hefur ekki rætt við fjölmiðla eftir
að nefndin skilaði af sér tillögum
sínum, en í skriflegu svari sínu seg-
ist hann telja að ásakanir á hendur
sér fái ekki staðist. Hann segir
ásakanirnar byggjast á veikum
grunni. Jafnframt leiki vafi á því að
sú vanræksla sem hann er sakaður
um hafi verið innan ábyrgðarsviðs
embættis hans. Framkvæmd laga
og reglna um fjármálastarfsemi og
eftirlit með henni hafi til að mynda
ekki verið á könnu fjármálaráðu-
neytis, heldur viðskiptaráðuneytis,
og Seðlabankinn hafi heyrt undir
forsætisráðuneytið.
Ásakanir um van-
rækslu byggðar
á veikum grunni
Árni M.
Mathiesen
Jóhanna Sigurðardóttir, forsætis-
ráðherra, sagði eftir þingflokksfund
á laugardag að það væri áfall að
ekki hafi náðst samstaða í þing-
mannanefndinni. „Auðvitað hefði
verið betra að það hefði komið ein-
róma niðurstaða frá þessari nefnd.
Það styrkir málið í heild sinni. Það
er hins vegar að verulegu leyti sam-
staða um tillögur nefndarinnar.“
Hún gagnrýnir lögin um landsdóm,
þingið hefði átt að vera búið að af-
nema þau fyrir löngu sem hefði þýtt
að ráðherrar væru ákærðir fyrir al-
mennum dómstólum.
Í svarbréfi til þingmannanefnd-
arinnar segir hún að rannsókn-
arskýrsla Alþingis feli í sér áfell-
isdóm yfir stjórnsýslunni í aðdrag-
anda hrunsins. Hún tekur þó á ekki
afstöðu til þess hvort einhverjir ráð-
herrar í ríkisstjórn þess tíma, sem
hún sat í sem félagsmálaráðherra,
kunni að hafa gerst sekir um afglöp.
Áfall að ekki náðist
samstaða nefndarinnar
Morgunblaðið/Ómar
Gagnrýni Jóhanna segir að afnema hefði átt lögin um landsdóm fyrir löngu.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í þingmannanefndinni, þær Ragnheiður
Ríkharðsdóttir og Unnur Brá Konráðsdóttir, styðja hvoruga þingsályktun-
artillöguna um málshöfðun gegn fyrrverandi ráðherrum.
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir að sér finn-
ist tillaga meirihluta nefndarinnar ekki traustvekjandi. Alþingi megi ekki
ákæra menn nema það hafi trú á að ákærurnar leiði til sakfellingar.
„Til þess að ákæra þurfa menn að hafa sannfæringu um að dómstólar
muni komast að þeirri niðurstöðu að hér hafi af ásetningi eða stórkost-
legu hirðuleysi verið framinn refsiverður verknaður. Ég hef verið þeirrar
skoðunar að viðkomandi ráðherrar hafi ekki framið saknæman verknað
og ég styrkist í þeirri trú minni þegar ég sé ákæruskjalið,“ segir Bjarni.
Styðja ekki málshöfðun
„EKKI TRAUSTVEKJANDI“