Morgunblaðið - 13.09.2010, Page 8
8 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. SEPTEMBER 2010
Jóhanna Sigurðardóttir forsætis-ráðherra afhjúpaði sig með
óvenjulega afgerandi hætti í sam-
tali við fréttamenn síðdegis á laug-
ardag. Hún gaf kost á stuttu viðtali
eftir útbýtingu á skýrslu þing-
mannanefndar og tillagna til þings-
ályktunar um málshöfðun gegn
ráðherrum frá nokkrum þing-
manna úr nefndinni.
Jóhanna varspurð að því
hvort hún héldi
að tillögurnar
sem fyrir lægju
myndu að ein-
hverju leyti róa
almenning.
Spurningin varút af fyrir sig
sérkennileg, en svarið miklu verra:
„Ég vona það, til þess var þetta nú
sett á laggirnar.“
Forsætisráðherra upplýsti þannigað tilgangurinn með málshöfð-
uninni væri sá að „róa almenning“.
Ráðherrarnir fyrrverandi yrðu
þess vegna að mati forsætisráð-
herra ekki sóttir til saka vegna þess
að þeir hefðu brotið lög, heldur
vegna pólitísks mats á óróleika
meðal almennings.
Og þetta er því miður ekki einavísbendingin um að forystu-
menn Samfylkingarinnar líti á
málshöfðunina sem pólískt útspil og
þar með að réttarhöldin eigi að
verða pólitísk fallist Alþingi á
ákæru.
Það er hins vegar örugglega ekkirétt mat hjá forsætisráðherra
að almenningur vilji láta fara í
sakamál án þess að fyrir því sé
traustur lagalegur grundvöllur.
Ekkert bendir til þess að þjóðin vilji
losa sig við réttarríkið og láta
stjórna landinu með pólitískum
duttlungum eða pólitískum réttar-
höldum.
Jóhanna
Sigurðardóttir
Tilgangurinn afhjúpaður
Veður víða um heim 12.9., kl. 18.00
Reykjavík 11 skýjað
Bolungarvík 11 rigning
Akureyri 12 rigning
Egilsstaðir 13 skýjað
Kirkjubæjarkl. 13 alskýjað
Nuuk 5 skúrir
Þórshöfn 12 skýjað
Ósló 16 léttskýjað
Kaupmannahöfn 17 skýjað
Stokkhólmur 17 heiðskírt
Helsinki 16 súld
Lúxemborg 13 skýjað
Brussel 17 léttskýjað
Dublin 17 skýjað
Glasgow 16 skýjað
London 20 léttskýjað
París 21 heiðskírt
Amsterdam 17 léttskýjað
Hamborg 17 skýjað
Berlín 22 heiðskírt
Vín 20 léttskýjað
Moskva 15 skýjað
Algarve 27 léttskýjað
Madríd 32 léttskýjað
Barcelona 26 léttskýjað
Mallorca 26 léttskýjað
Róm 26 léttskýjað
Aþena 22 léttskýjað
Winnipeg 15 léttskýjað
Montreal 17 skúrir
New York 18 alskýjað
Chicago 22 heiðskírt
Orlando 30 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
STAKSTEINAR
VEÐUR KL. 12 Í DAG
13. september Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 6:46 20:03
ÍSAFJÖRÐUR 6:47 20:11
SIGLUFJÖRÐUR 6:30 19:54
DJÚPIVOGUR 6:14 19:33
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Það er gott að fá makrílinn inn en
ekki má gleyma áföllum sem hafa
orðið í öðrum tegundum. Við erum að
fara inn í þriðja sýkingarárið í ís-
lensku síldinni og höfum ekki fengið
loðnuvertíð í nokkur ár,“ segir Að-
alsteinn Ingólfsson, framkvæmda-
stjóri sjávarútvegsfyrirtækisins
Skinneyjar-Þinganess á Hornafirði.
Skinney-Þinganes er að mestu
búin með makrílkvótann og reynir að
treina það sem eftir er til að nýta sem
meðafla við veiðar á norsk-íslensku
síldinni. Aðalsteinn segir að meira
svigrúm þurfi að vera í stjórnun veið-
anna til að fyrirtækin geti gert sem
mest verðmæti úr aflanum. Hráefnið
fer í gegnum fiskvinnsluna en hluti
þess þarf alltaf að fara í bræðslu.
Fiskimjölsverksmiðjan er gangsett
annað slagið til að bræða afskurð og
annað hráefni sem ekki nýtist við
manneldisvinnsluna. „Fiskimjöl og
lýsi eru líka verðmætar afurðir, ekki
má gleyma því,“ segir Aðalsteinn.
Ásgeir Gunnarsson útgerð-
arstjóri segir að töluvert meira sé af
makríl núna við landið en menn hafi
talið en aftur á móti minna af norsk-
íslenskri síld. Skipin eru í vandræð-
um að sækja í hreina síld, þau sækja
langt og þurfa stundum að fara af
veiðisvæðum vegna þess að makríll
er of stór hluti aflans.
Skinney-Þinganes er vel útbúið
til síldar- og makrílvinnslu og hefur
vinnslan gengið vel í sumar. Makríll-
inn kemur sér vel fyrir íbúana, eins
og víðar í sjávarbyggðum og eykur
atvinnutekjur.
Fjölþætt starfsemi
Skinney-Þinganes er með fjöl-
breytta útgerð og vinnslu. „Það er
stutt á miðin og alltaf einhver vertíð í
gangi hjá okkur,“ segir Aðalsteinn.
„Það eru sveiflur í öllum þessum
greinum og við dreifum áhættunni
með því að vera á mörgum sviðum.“
Auk vinnslu og bræðslu á öllum
tegundum uppsjávarfisks er fyr-
irtækið öflugt í humri og saltfiski.
„Vertíðirnar sköruðust lítið, þar til
fyrir nokkrum árum að við fórum að
vinna norsk-íslensku síldina í miklum
mæli og síðan bættist makríllinn við,“
segir Aðalsteinn.
Óvissan er slæm
„Óvissan hefur slæm áhrif,“ seg-
ir Ásgeir þegar talið berst að stöð-
unni almennt í sjávarútvegi. „Það fer
öll orkan í að fylgjast með um-
ræðunni og reyna að átta sig á stöð-
unni frá degi til dags. Á meðan verið
er að ræða um innköllun fjárfestir
enginn í greininni, endurnýjun stöðv-
ast og það hefur einnig áhrif á fyr-
irtæki sem þjónusta útgerðina.“ Ás-
geir nefnir sem dæmi að þessi
spurning komi upp í hvert skipti sem
hugað er að endurnýjun veiðarfæra.
Aðalsteinn segir að þótt starfs-
hópur um endurskoðun fisk-
veiðilöggjafarinnar leggi til að farin
verði svonefnd samningaleið hafi
óvissunni ekki verið eytt. Ráðherra
og ríkisstjórn eigi eftir að koma með
sínar tillögur.
Skinney-Þinganes hefur fjárfest
mikið í útgerðinni og er búin að end-
urnýja meginhluta fiskiskipa sinna.
„Við erum ánægðir með að vera bún-
ir að því. Ef hins vegar einhver út-
færsla af fyrningarleið verður farin
og aflaheimildir boðnar á markaði
verða stór skref stigin aftur á bak.
Þá verður best að vera með sem
ódýrust skip til að geta notað pen-
ingana til að bjóða sem mest í afla-
heimildirnar. Slík öfugþróun hefur
áhrif á vinnuaðstöðu sjómanna og
dregur úr gæðum hráefnisins. Það er
erfitt að gera áætlanir til framtíðar
við þessar aðstæður,“ segir Aðal-
steinn Ingólfsson.
Alltaf einhver vertíð í gangi
Makríllinn bætir upp áföll í öðrum tegundum hjá Skinney-Þinganesi Stjórn-
endur segja að óvissan um sjávarútvegsstefnuna hafi slæm áhrif og hindri framþróun
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Stjórnendur Ásgeir Gunnarsson og Aðalsteinn Ingólfsson segja óvissu í
rekstrarumhverfi slæma. Öll orkan fari í að fylgjast með umræðunni.
Humarvertíðin í ár er heldur lak-
ari en undanfarin þrjú ár sem
raunar voru mjög góð. „Vertíðin
fór vel af stað en upp úr sjó-
mannadegi byrjaði að draga úr
afla,“ segir Ásgeir Gunnarsson,
útgerðarstjóri hjá Skinney-
Þinganesi á Hornafirði.
Ásgeir segir að sjómenn og
vísindamenn séu nokkuð sam-
mála um að humarstofninn sé
sterkur. Það séu hins vegar ein-
hverjar aðstæður í sjónum sem
valdi því að humarinn dragi sig
inn í holurnar í sumum djúp-
anna. „Hann heldur áfram að
vaxa og við fáum stóran humar
þegar við komust aftur á þessi
svæði,“ segir Ásgeir.
Humarinn selst jafnóðum.
Verðið lækkaði í erlendri mynt
eftir bankahrun en hefur síðan
verið að hækka smám saman.
Vertíðinni er ekki lokið og Ás-
geir segir að haldið verði áfram,
fram eftir hausti, á meðan hag-
kvæmt er að veiða humar.
helgi@mbl.is
Dregið hefur
úr humarafla
HUMARVERTÍÐIN
Ljósmynd/Hlynur Pálmason
Makrílvinnsla Makrílfrystingin hjá Skinney-Þinganesi á Hornafirði er
tæknivædd og ekki þarf mikinn mannskap til að halda henni gangandi.