Morgunblaðið - 13.09.2010, Blaðsíða 13
Fréttir 13ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. SEPTEMBER 2010
VIÐSKIPTATÆKIFÆRI Í DANAVELDI
Heimsókn viðskiptafulltrúa
þriðjudaginn 14. september
P
IP
A
R
P
IP
A
R
PA
R
PA
R
P
I
P
AAAAAAAA
\T
B
W
A
\T
B
W
A
\T
B
W
\T
B
W
•
S
Í
S
Í
S
Í
S
ÍÍ
S
Í
•
S
Í
S
Í
SSSSSSS
•••••••
•
11
A
•
11
•
11
A
•
1
A
•
1
•
11
A
•
1
A
•
1
A
••
A
•
A
•
A
•
A
•
AAAAA
02
15
7
02
15
7
02
15
7
02
15
7
02
15
7
15
7
02
15
7
02
15
7
02
15
7
02
15
7
02
1
02
1
0202
1
0202
1
022022022022022022000
www.utn.stjr.is www.islandsstofa.is
Viðar Ingason, viðskiptafulltrúi við sendiráð Íslands
í Kaupmannahöfn, verður til viðtals um markaði og
markaðsaðstoð í umdæmislöndum sendiráðsins.
Hér er kjörið tækifæri fyrir þá sem vilja ræða
viðskiptamöguleika, menningartengd verkefni
og önnur hagsmunamál í umdæmi sendiráðsins.
Auk Danmerkur eru umdæmislönd sendiráðsins:
Búlgaría, Rúmenía og Tyrkland.
Fundirnir verða haldnir á skrifstofu Íslandsstofu,
Borgartúni 35.
Skráning í viðtöl fer fram í síma 511 4000 eða með
tölvupósti, islandsstofa@islandsstofa.is
Nánari upplýsingar veita:
Andri Marteinsson, andri@islandsstofa.is og
Hermann Ottósson, hermann@islandsstofa.is
Bjarni Ólafsson
bjarni@mbl.is
Töluverður meirihluti kjósenda í
Tyrklandi greiddi atkvæði með til-
lögum ríkisstjórnarinnar um
breytingar á stjórnarskrá lands-
ins. Þegar 99 prósent atkvæða
höfðu verið talin höfðu 58 prósent
kjósenda greitt atkvæði með
breytingunum.
Ríkisstjórn Receps Erdogan
segir breytingarnar styrkja lýð-
ræði í landinu og að þær séu gerð-
ar til að færa stjórnarskrá lands-
ins nær því sem gengur og gerist í
Evrópusambandinu. ESB hafði
lagt blessun sína yfir flestar breyt-
ingarnar, en gagnrýndi stjórn Er-
dogans fyrir að hafa ekki haft
meira samráð við stjórnarandstöð-
una um stjórnarskrárbreytingarn-
ar.
Andstæðingar ríkisstjórnarinnar
segja nýju stjórnarskrána hins
vegar færa stjórnarflokknum, sem
á rætur í pólitískum samtökum
múslima í Tyrklandi, of mikil völd
yfir dómskerfinu.
Víðtækar breytingar
Réttlætis- og framfaraflokkur
Erdogans (AKP) hefur oft þurft að
kljást við æðri dómstig í landinu,
en dómstólarnir líta meðal annars
á það sem hlutverk sitt til að
vernda veraldleg gildi í landinu.
Stjórnarandstæðingar hafa
lengi verið tortryggnir í garð
AKP-flokksins og hafa Erdogan
og flokksbræður hans grunaða
um að vilja auka áhrif íslams í
stjórn landsins. Með stjórnar-
skrárbreytingunum á að fjölga
dómurum í tveimur æðstu dóm-
stólum landsins og óttast stjórn-
arandstæðingar að með því að
skipa nýja dómara geti AKP auk-
ið um of ítök íslams í dómskerf-
inu og þar með stjórnkerfinu
öllu.
Íbúar í stærri borgum Vestur-
Tyrklands kusu frekar gegn til-
lögum ríkisstjórnarinnar, en þeir
eru almennt vestrænni og verald-
legri í hugsun en þeir sem búa í
sveitum og í austurhluta landsins.
Aðrar breytingar á stjórnar-
skránni fela í sér að borgaralegir
dómstólar geti nú tekið á málum
þar sem hermenn eru sakaðir um
glæpi gegn ríkinu. Verkamenn
munu geta gengið í fleiri en eitt
verkalýðsfélag og bann við póli-
tískum verkföllum hefur verið af-
numið. Þá munu þingmenn á tyrk-
neska þinginu áfram halda sætum
sínum þótt dómstólar leysi upp
stjórnmálaflokka þeirra.
Tyrkir samþykkja umdeildar
breytingar á stjórnarskrá
Reuters
Tyrkland Stuðningsmenn Erdogan, forsætisráðherra Tyrkland, fagna niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar.
Harðar deilur hafa staðið um áformaðar breytingar á dómskerfi landsins
Stjórnarskráin
» Stjórnarskránni var síðast
breytt árið 1982 eftir valdarán
hersins.
» Deilur milli AKP-flokksins og
stjórnarandstæðinga snúast
um ákvæði um dómstóla.
» Breytingarnar fela í sér að
dómurum mun fjölga og með
skipun nýrra dómara fær rík-
isstjórnin umtalsverð völd.
Þrír féllu á Gaza-
ströndinni í gær
eftir að ísra-
elskur skriðdreki
svaraði eld-
flaugaárás frá
þorpinu Bein
Hanoun, sem er
við landamærin
við Ísrael.
Ísraelski herinn segir hina föllnu
hafa verið hryðjuverkamenn og
sagði að minnsta kosti einn þeirra
hafa verið vopnaðan.
Í frétt BBC segir að eldflauga-
árásum frá Gaza á Ísrael hafi farið
fjölgandi síðustu viku. Hamas-
samtökin, sem stjórna Gaza-
ströndinni, vilja ekki taka þátt í
friðarviðræðum Ísraels og palest-
ínsku heimastjórnarinnar.
Þrír falla í átökum
milli Hamas og
Ísraelshers
Í sjötíu og níu ár
hefur þýskum
rútufyrirtækjum
verið óheimilt
að bjóða upp á
lengri ferðir
innan Þýska-
lands, en það
gæti breyst á
næsta ári.
Bannið var
sett á árið 1931 til að vernda þýsk
járnbrautarfyrirtæki fyrir sam-
keppni, en ríkisstjórn Angelu
Merkel er staðráðin í að ryðja
þessum samkeppnishömlum úr
vegi.
Enn er þó óvíst hvort það tekst,
en ríkisjárnbrautarfyrirtækið
Deutsche Bahn er mjög áhrifaríkt
í Þýskalandi. bjarni@mbl.is
Mega fara í rútu
milli borga
Angela Merkel
Sérstakur saksóknari í Serbíu hef-
ur gefið út ákærur á hendur níu
mönnum fyrir meinta stríðsglæpi í
átökunum í Kosovo árið 1999.
Mennirnir níu voru allir meðlimir
í óformlegum serbneskum vígahóp
sem gekk undir nafninu Sjak-
alarnir og eru ákærðir fyrir morð,
gripdeildir, nauðganir og aðra
glæpi sem ætlað var að fæla alb-
anska borgara frá heimilum sínum í
þorpinu Cuska í Vestur-Kosovo.
Ákærurnar eru partur af við-
leitni serbneskra stjórnvalda til að
takast á við fortíðina og auka líkur
á að landið fái inngöngu í ESB.
Alls er talið að um 10.000 manns,
einkum óbreyttir borgarar, hafi
fallið í átökunum í Kosovo.
Kosovo Syrgjendur við útför tveggja
manna sem hurfu í stríðinu í Kosovo.
Níu ákærðir
fyrir stríðsglæpi
Reuters
Ætla má að dýrasta beitarland í
heimi sé í austurríska þorpinu Tre-
besing. Það er að minnsta kosti mat
þorpsbúa og hafa þeir haft sam-
band við Guinness heimsmetabók-
ina til að fá það staðfest.
Stjórnvöld vörðu upphaflega um
tveimur milljörðum króna til að
byggja hraðbraut í gegnum þorpið.
Íbúar mótmæltu hins vegar harka-
lega og í kjölfarið var ákveðið að
verja þremur milljörðum í viðbót í
byggingu jarðganga undir þorpið.
Upphaflega brautin hefur verið
þökulögð og er nú beitarland.
Dýrasta beitarland í
heimi er í Austurríki
Bjarni Ólafsson
bjarni@mbl.is
Rússnesk lögregluyfirvöld hafa í
auknum mæli ráðist gegn stjórn-
málasamtökum og fjölmiðlum, sem
eru ríkisstjórninni ekki þóknanleg,
með því að saka þau um að hafa
stolið hugbúnaði, að því er segir í
frétt New York Times.
Í fréttinni er ítarlega farið yfir
mál umhverfisverndarsamtakanna
Baikal Wave, sem berjast gegn
mengun í Baikal-vatni, einkum
mengun frá pappírsverksmiðju við
vatnið.
Í janúarlok kom hópur óein-
kennisklæddra lögreglumanna í
skrifstofur Baikal Wave og lagði
hald á allar tölvur samtakanna.
Talsmaður Baikal Wave segir að
samtökin hafi greitt fyrir allar út-
gáfur af Microsoft-hugbúnaði sem
hafi verið í tölvunum og að þau hafi
kvittanir sem sýni fram á það. Lög-
reglan hafi hins vegar ekki viljað
taka þessi gögn til greina, heldur
hafi lýst því yfir að í tölvunum væri
stolinn hugbúnaður.
Í tölvunum var að finna upp-
lýsingar um stuðningsmenn sam-
takanna, fjármál og framtíðaráætl-
anir. Í kjölfarið mun lögreglan hafa
heimsótt einhverja þessara stuðn-
ingsmanna og yfirheyrt þá.
Þáttur Microsoft í Rússlandi í
þessum aðgerðum hefur verið
gagnrýndur en lögreglan hefur oft
sagst hafa undir höndum kvartanir
frá Microsoft áður en farið er í
húsleit. Eru í frétt New York Tim-
es nefnd dæmi um húsleitir í
tveimur stjórnarandstöðu-
dagblöðum í borginni Samara en
þar naut lögreglan stuðnings lög-
fræðings Microsoft.
Í yfirlýsingu frá höfuðstöðvum
Microsoft í Bandaríkjunum segir
að fyrirtækið verði að geta varið
höfundarrétt sinn í Rússlandi en
það megi hins vegar ekki gerast á
kostnað mannréttinda þar í landi.
Mun fyrirtækið ætla að endur-
skoða stefnu sína í Rússlandi og
marka skýrari stefnu fyrir lög-
fræðinga sína.
Reuters
Harka Lögreglumenn takast á við stjórnarandstæðinga í Moskvu í gær.
Rússneska lögreglan hefur sætt harðri gagnrýni undanfarin ár fyrir hörku.
Rússnesk yfirvöld sögð
beita Microsoft fyrir sig
Hugbúnaðarrisinn gagnrýndur