Morgunblaðið - 13.09.2010, Side 17
Minningar 17
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. SEPTEMBER 2010
✝ Ingvi Einar Guð-mundsson fædd-
ist í Skálmardal í
Austur-Barðastrand-
arsýslu 23. desember
1926. Hann lést á
heimili sínu 4. sept-
ember síðastliðinn.
Foreldrar hans
voru Guðný Jóhanns-
dóttir og Guð-
mundur Einarsson.
Ingvi átti þrjá bræð-
ur sem allir eru látn-
ir.
Árið 1954 kvæntist
Ingvi Einar Halldóru G. Jafets-
dóttur, f. 1933, foreldrar hennar
voru Sigríður Guðmundsdóttir og
Jafet Egill Sigurðsson. Ingvi og
Halldóra eignuðust fimm börn.
Þau eru Sigríður Guðný, f. 1953,
gift David L. Walters, þeirra synir
eru G. Bragi, Aaron N. og Gabríel
L. Einar, f. 1955,
kvæntur Guðríði Sig-
urðardóttur, þeirra
börn eru Hildur,
Heiða, Harpa og Sig-
urður Daníel. Jafet
Egill, f. 1957, kvænt-
ur Hrönn Péturs-
dóttur, þeirra börn
eru Hrund og Egill.
Baldur, f. 1960,
ókvæntur. Inga
Dóra, f. 1964, gift
Gunnari Þór Hall-
dórssyni, þeirra börn
eru Nína Rún og
Baldur Mikael, börn Ingu Dóru
frá fyrra hjónabandi eru Dóra
Björg og Ingvi Einar. Barna-
barnabörnin eru sjö.
Ingvi Einar verður jarðsunginn
frá Þjóðkirkjunni í Hafnarfirði í
dag, 13. september 2010, og hefst
athöfnin kl. 13.
Hann elsku pabbi er farinn frá
okkur; hefur kvatt þetta jarðlíf.
Það er skrítið til þess að hugsa
þar sem nærvera hans er svo
sterk ennþá. Eflaust mun líða
góður tími þar til við fjölskyldan
áttum okkur á því að hann er ekki
lengur hér hjá okkur. Pabbi var
yndislegur maður sem var alltaf
til staðar fyrir okkur börnin sín
hvort heldur að hann hjálpaði til
við húsbyggingar eða að passa
barnabörnin með mömmu. Hann
var einnig mjög liðtækur sem
„skutlari“ hingað og þangað eftir
þörfum. Alltaf var hann boðinn og
búinn og mjög svo ósérhlífinn í
alla staði. Við andlátið var hann
umvafinn fjölskyldu sinni og er
það huggun fyrir okkur sem eftir
stöndum að hafa fengið að upplifa
sál hans einfaldlega svífa fallega á
braut; engin átök, einungis frið-
sæld. Elsku pabbi, við sjáumst
síðar og hafðu þökk fyrir allt og
allt.
Kveðja,
Inga Dóra Ingvadóttir.
Elsku Ingvi, nú er baráttu veik-
inda lokið og er ég þess fullviss
að þér líður vel á nýjum stað þar
sem vel er tekið á móti þér. Þú
varst mikill fjölskyldumaður og
hvergi leið þér betur en í hópnum
þínum en það kallaðir þú þína
nánustu fjölskyldu. Þar hefur nú
stórt skarð myndast og þín sárt
saknað. Ég kom inn í fjölskyldu
ykkar Dóru fyrir 36 árum og þið
hjónin tókuð mér sem ykkar eigin
dóttur.
Í minningu okkar lifa ófáar
góðar stundir sem við höfum átt
saman í gegnum tíðina, betri
tengdaföður hefði ég ekki getað
hugsað mér. Barnabörnin og
barnabarnabörnin þín hændust
mjög að þér enda varst þú ein-
stakt ljúfmenni og sérstaklega
sporléttur þegar kom að börn-
unum sem dvöldu ófáar stundir
hjá ykkur Dóru. Þú varst góður
afi og fylgdist vel með því sem
barnabörnin þín tóku sér fyrir
hendur.
Ég, Jaffi og börnin okkar
Hrund og Egill nutum góðra
stunda í þeim utanlandsferðum
sem við fórum með ykkur Dóru í
og geymum við þær minningar
hjá okkur, þær munu ylja okkur
um ókomin ár. Það má segja að
nærfjölskyldan og ferðalög hafi
verið þín áhugamál. Þú hafðir líka
gaman af að syngja og kom það
best í ljós þegar þú varst að
byggja heimilin fyrir fjölskyld-
una, þá naustu þín við smíðar og
söng svo mátti heyra í næsta ná-
grenni.
Þegar börnin fóru að byggja sín
heimili varst þú aldrei langt und-
an með hamarinn enda afbragðs
húsasmiður. Þú varst ekki maður
sem hallmæltir öðrum. Þú hafðir
ákveðnar skoðanir á stjórnmálum
og stjórnmálamönnum og hafðir
gaman af að ræða þau málefni.
Elsku Ingvi það voru forréttindi
að fá að kynnast þér, ég trúi því
að þér líði vel í dag. Hvíl í friði.
Þín tengdadóttir,
Hrönn.
Elsku afi.
Það er erfitt að koma orðum að
því hvernig mér líður. Ég sakna
þín svo ótrúlega mikið og trúi
varla ennþá að þú sért búinn að
kveðja okkur en þinn tími var víst
kominn. Þú varst svo innilega
þakklátur fyrir hvað lífið gaf þér.
Þér fannst þú ríkasti maður í
heimi að eiga alla þessa afkom-
endur.
Ég hef alltaf verið náin ykkur
ömmu og verið mikið hjá ykkur í
gegnum tíðina, nánast litið á ykk-
ur sem mína aðra foreldra. Þú
hafðir yndi af því að ferðast út
fyrir landsteinana á síðari árum
og var ég svo heppin að fá að
njóta tveggja utanlandsferða með
ykkur. Fyrir þessi tækifæri er ég
þakklát enda voru ferðirnar alveg
frábærar.
Ég man vel eftir söngröddinni
þinni en þú áttir það til að raula
með óperum í útvarpinu eða koma
með heilu aríurnar upp úr þurru.
Ég á eftir að sakna þess að heyra
í þér. Þú varst svo góður og
hjartahlýr enda vildirðu allt fyrir
mann gera. Alltaf varstu tilbúinn
að skutlast með mann hingað og
þangað og bíllinn heldur betur vel
upphitaður þannig að okkur
krökkunum yrði ekki kalt. Þor-
láksmessukvöldin eru mér mjög
minnisstæð. Þá áttir þú afmæli og
frá því að ég man eftir mér hittist
fjölskyldan alltaf og átti saman
góðar stundir þar sem kunnugleg-
ur ilmur fyllti loftið. Það verður
ekki eins án þín.
Þær virðast endalausar minn-
ingarnar sem hrannast upp þegar
í hugsa til þín. Mér þykir svo ótrú-
lega vænt um að þú hafir getað
notið útskriftardagsins með mér í
sumar þrátt fyrir að heilsan hafi
verið farin að segja til sín. Þetta
var virkilega góð kvöldstund sem
ég mun aldrei gleyma.
Þín verður sárt saknað, elsku
afi minn. Þú veist að við fjölskyld-
an munum hugsa vel um ömmu og
gefa henni þann styrk sem hún
þarfnast til að halda áfram með
lífið án þín við hlið sér. Þú verður
alltaf nálægt í hjörtum okkar og
huga.
Dóra Björg.
Elsku afi minn, ég kveð þig með
trega en veit að þér líður betur
núna.
Þú ert besti afi og hefur alltaf
verið.
Ég hef alltaf verið mikið hjá þér
og ömmu og ekki síst þegar ég var
lítil stelpa þá fékk oft að gista hjá
ykkur. Ég naut þess í hvert skipti
sem ég kom til ykkar, alltaf kaffi
og með því. Þú kenndir mér að
drekka kaffi þegar ég var um
fimm ára gömul, ég gleymi því
aldrei; alltaf helmingur sykur,
mjólk og örlítið kaffi í málið, ég
hef drukkið kaffi meira og minna
síðan en nota engan sykur í dag.
Það var alltaf best að koma í
heimsókn og fá klór á bakið, þú
varst sérfræðingur í því.
Þú varst alltaf svo góður og allir
elskuðu návist þína, það er tóm-
legt án þín. Ég mun alltaf sakna
þín elsku afi minn.
Ég veit að við hittumst aftur síð-
ar.
Þín
Hrund.
Látinn er heiðursmaðurinn
Ingvi Einar Guðmundsson en hann
var faðir vinar míns Baldurs.
Hann lærði húsasmíðar og starf-
aði við þá iðngrein mestan hluta
starfsferils síns. Það var alveg
sama hvað hann tók sér fyrir
hendur varðandi smíðar, allt lék í
hendi hans. Ingvi starfaði sem
smiður á smíðaverkstæðinu í Þjóð-
leikhúsinu í 18 ár og starfaði eftir
það sem fangavörður á Skóla-
vörðustíg 9. Með þessari föstu
vinnu rak Ingvi um allmörg ár
hænsnabú þar sem nú er virðulegt
íbúðarhverfi í Hafnarfirði. Ingvi
og Halldóra (Dóra) kona hans
bjuggu alla sína hjúskapartíð í
Hafnarfirði og eignuðust þau fimm
börn. Dóra starfaði sem dag-
mamma og eru það ófá börn í
Hafnarfirði sem voru hjá Ingva og
Dóru í pössun og ætli sum hver
séu ekki komin vel á fertugsald-
urinn.
Ingvi var sístarfandi. Þegar
hann var ekki á vakt á Skólavörðu-
stígnum var hann að passa með
Dóru, eða sinna smíðaverkum hér
og þar.
Þau hjónin ferðuðust um heim-
inn; Spánn var vinsæll. Ég fór með
þeim og Baldri í eina ferð og fór-
um við að heimsækja Sigríði, dótt-
ur þeirra, og hennar fjölskyldu í
Ástralíu. Þetta er mjög minnis-
stæð ferð þó að 22 ár séu liðin. Við
Baldur fórum sem „túlkar og leið-
sögumenn“ en Ingvi talaði ekki
ensku en Dóra gat bjargað sér ef í
harðbakkann sló. Í Sydney í Ástr-
alíu gistum við í illræmdu glæpa-
og gleðihverfi en þar vorum við
sett niður fyrir þekkingarleysi
ferðaskrifstofunnar hér heima.
Leigubílstjórinn sem keyrði okkur
af flugvellinum á hótelið sagði að í
þetta hverfi ættu túristar ekki að
koma og alls ekki eftir myrkur.
Við Baldur læddumst með veggj-
um til að skjóta okkur á pitsustað
en komumst að því seinna að
gömlu hjónin fóru í labbitúr um
kvöldið og fengu sér að borða og
voru ekkert að láta okkur „leið-
sögumennina“ vita. Síðan var hald-
ið til Brisbane þar sem elsta dóttir
þeirra hjóna býr ásamt eiginmanni
sínum og fjölskyldu. Þar var dvalið
í rúmar fjórar vikur í góðu yfirlæti
og flakkað um nágrennið. Ingvi
hafði einnig gaman af að ferðast
innanlands og sérstaklega þótti
honum gaman að fara vestur á
Barðaströnd og tína ber. Verið var
í nokkra daga og tínt í allar fötur
sem til voru og síðan var sultað og
saftað og að sjálfsögðu úr aðalblá-
berjum.
Ingvi var af þeirri kynslóð sem
var sístarfandi; ef ekki fyrir sig þá
fyrir aðra. Hann vildi vera sjálf-
stæður og ekki upp á aðra kominn.
Hann var hinn mesti ljúflingur
sem hafði gaman af því að gantast.
Ef maður rak inn nefið þá var tek-
ið höfðinglega á móti manni og var
Ingvi hrókur alls fagnaðar.
Þegar aldurinn færðist yfir fór
heilsunni hjá Ingva að hraka smátt
og smátt og þrekið að minnka;
stundum farið áfram á seiglunni.
Ingvi var lagður á sjúkrahús í
sumar vegna veikinda en var bú-
inn að vera heima í tæpan hálfan
mánuð þegar hann lést hinn 4.
september sl.
Mér þykir það leitt að geta ekki
fylgt þér í þína síðustu ferð því að
ég verð að heiman. Um leið og ég
kveð þig, Ingvi, þá sendi ég að-
standendum og ástvinum innilegar
samúðarkveðjur.
Sigurbjörn og fjölskylda.
Ingvi Einar
Guðmundsson
✝ Sigurður Rings-ted Ingimund-
arson fæddist í Ólafs-
firði 2.5. 1912, hann
andaðist á dval-
arheimilinu Horn-
brekku á Ólafsfirði 5.
9. sl.
Sigurður var sonur
hjónanna Ingimundar
G. Jónssonar, f. 21.4.
1875, d. 1966, og
Guðrúnar Guðmunds-
dóttur, f. 2.4. 1880, d.
1934. Hann ólst upp á
Kvíabekk hjá fóstur-
foreldrum sínum þeim Guðlaugu R.
Kristjánsdóttur, f. 20.9.1866, d.
1957 og Rögnvaldi K. Rögnvalds-
syni f. 18.7. 1858, d. 1950. Sigurður
átti átta systkini sem öll eru látin,
þau voru Ingibjörg f. 8.11. 1901, d.
1957, Ólöf, f. 9.9. 1903, d. 1906,
Jakob, f. 21.7. 1905, d. 1988, Ólöf, f.
28.9. 1907, d. 2000, Gísli, f. 2.12.
1909, d. 1993, Sigríður, f. 16.10.
1913 d. 2009, Halldóra, f. 3.11.
1914, d. 2009, og Þorvaldur, f. 15.1.
1918, d. 1974.
Sigurður kvæntist Sumarrós Sig-
urðardóttur, f. 5.12. 1918, d. 28.5
2007. Foreldrar hennar voru Þór-
unn Jónsdóttir, f. 14.12. 1890, d.
1975, og Sigurður Gunnlaugur Jó-
hannesson, f. 11.9. 1891, d. 1982.
Sigurður og Sumarrós eignuðust
átta börn. 1) Sólveig, f. 28.5. 1943,
gift Matthíasi Ásgeirssyni, f. 14.4.
1938. 2) Bjarki, f. 6.5. 1944, hans
kona er Elín Haraldsdóttir, f. 26.3.
1950. 3) Þráinn, f. 13.11. 1945,
kvæntur Dröfn Gísladóttur, f. 28.3.
1946. 4) Lísbet, f. 15.11. 1948, sam-
býlismaður hennar er Leó Sveins-
son, f. 22.8. 1942. 5) Rögnvaldur K.,
f. 8.11. 1950, kvæntur Margréti
Kjartansdóttur, f. 19.10. 1964. 6)
Sigurður, f. 15. 1. 1952, kvæntur
Hólmfríði Dóru Kristjánsdóttur, f.
29. 8. 1965. 7) Rík-
harður Hólm, f. 19.5.
1954. 8) Hjörtur, f.
19.10. 1956, kvæntur
Eygló Birgisdóttur, f.
3.1. 1964.
Fyrir átti Sum-
arrós 3 börn þau eru:
Kristinn H. Gíslason,
f. 19.11. 1936, kvænt-
ur Sigríði Vilhjálms,
f. 9.9. 1943. Halla
Gísladóttir, f. 27.10.
1938, gift Guðlaugi
Eyjólfssyni, f. 23.10.
1933, og Björk Gísla-
dóttir, f. 5.6. 1941, eiginmaður
hennar er Kristinn Traustason, f.
14.5. 1936.
Afkomendur Sigurðar eru í dag
orðnir 69.
Sigurður starfaði alla tíð sjálf-
stætt, ýmist sem vörubílstjóri eða
sérleyfishafi með rútur. Sigurður
var fyrstur til að fara á bifreið yfir
Lágheiði árið 1934. Á þeim árum
voru engar vegasamgöngur við
Ólafsfjörð og barðist hann fyrir því
að Ólafsfjörður kæmist í vega-
samband. Sigurður barðst einnig
mikið fyrir lagningu Múlavegar
ásamt fleiri heimamönnum. Hann
hélt uppi samgöngum milli Siglu-
fjarðar og Ólafsfjarðar til margra
ára og rak einnig steypustöð á
Ólafsfirði um árabil. Sigurður var
alla tíð virkur í félagsmálum og
var lengi í forsvari fyrir Bygging-
arfélag verkamanna og mikill al-
þýðuflokksmaður.
Sitt fyrsta heimili áttu Sigurður
og Sumarrós á Siglufirði en eftir
tveggja ára dvöl þar fluttust þau til
Ólafsfjarðar. Þau bjuggu lengst af
á Brekkugötu 21.
Útför Sigurðar fer fram frá
Ólafsfjarðarkirkju 13. september
2010 og hefst athöfnin kl 14. Jarð-
sett verður á Kvíabekk.
Í dag fylgi ég tengdaföður mínum
Sigurði Ringsted til hinstu hvílu.
Ég kom inn í fjölskylduna 1967 svo
árin eru orðin mörg og margs að
minnast. Sigurður var giftur Sum-
arrós Sigurðardóttur og eignuðust
þau átta börn saman auk þess sem
Rósa átti þrjú börn frá fyrra hjóna-
bandi.
Sigurður var yngstur barna
hjónanna Ingimundar og Guðrúnar;
börnin voru mörg og fátækt mikil.
Nokkurra vikna gömlum var honum
komið í fóstur til Guðlaugar á Kvía-
bekk er foreldrar hans fóru til að afla
fjár í vinnu á Siglufirði. Þegar þau
sneru aftur heim var örbirgðin enn
svo mikil að úr varð að drengurinn
varð áfram á Kvíabekk. Þar ólst Sig-
urður upp við ástríki Guðlaugar og
dætra hennar, Petru og Stínu, sem
allar sáu vel um hann í uppvextinum.
Sigurður var 23 ára er hann fór frá
Kvíabekk og leit alltaf á þann stað
sem heimili sitt.
Sigurður var á margan hátt
óvenjulegur maður, dagfarsprúður
og yfirlætislaus; við hann var gott að
lynda og hann hafði mikla útgeislun
og hlýju að gefa. Það var alltaf laust
hné þó að barnabörnin væru mörg
enda sóttu þau mikið í hann.
Sigurður var krati af lífi og sál og
fjórða hvert ár, fyrir kosningar, sá
maður hann skipta mjög skapi. Fór
hann þá oft hamförum og mætti Jón
Baldvin þakka fyrir ef hann hefði
verið eins mikill krati og Sigurður
var. Sigurður var mikill framfara-
sinni og í litla bænum Ólafsfirði, þar
sem Lágheiði var aðeins opin þrjá og
í mesta lagi fjóra mánuði á ári, var
einangrun mikil. Sem dæmi um elju
Sigurðar má nefna að í júní árið 1934
neitaði Vegagerðin að opna Lág-
heiði; þá tók hann sig til og hand-
mokaði heiðina ásamt fleiri karl-
mönnum á sjö dögum. Sigurður hóf
malarvinnslu heima í Ólafsfirði við
erfiðar aðstæður og peningaleysi.
Hélt hann uppi ferðum á rútu milli
Siglufjarðar og Ólafsfjarðar á sumr-
in ásamt því að gera út vörubíl sem
mörgum þótti ógerningur á þeim
tíma. En Sigurður átti sér annan
stóran draum og það var vegur fyrir
Ólafsfjarðarmúla er margir töldu
fráleita hugmgynd. Fyrir henni
barðist hann með kjafti og klóm og
gafst aldrei upp fyrr en því verki var
lokið. Aðdragandinn var langur og
verkið mjög erfitt. Múlavegurinn var
ótrúleg samgöngubót á sínum tíma
og rauf þá einangrun sem Ólafsfjörð-
ur var í.
Er þau hjón tóku að reskjast fluttu
þau til Akureyrar, Rósa var þá kom-
in með liðagigt á háu stigi og Sig-
urður farinn að missa mjög sjón. Er
Rósa lést fluttist Sigurður á dvalar-
heimilið Hornbrekku í Ólafsfirði.
Þar leið honum vel við umönnun af-
bragðs starfsfólks. Á tímabili dvöldu
þar saman systkinin Sigurður, Sigga
og Dóra, auk Petru, uppeldissystur
Sigurðar, sem allar eru nú látnar.
Sigurður lést 5. september eftir
mikið og sárt dauðastríð við manninn
með ljáinn er hafði betur enda ekki
orðið af miklu að taka. Sigurður var
98 ára og fór með reisn. Hann hafði
ákveðið að láta jarðsetja sig á Kvía-
bekk og nú er hann kominn heim aft-
ur. Guð veri með þér, Siggi minn.
Er sárasta sorg okkur mætir
og söknuður huga vorn grætir
þá líður sem leiftur úr skýjum
ljósgeisli af minningum hlýjum.
(H.J.H.)
Elín H. Haraldsdóttir.
Sigurður Ringsted
Ingimundarson
Morgunblaðið birtir minningar-
greinar endurgjaldslaust alla út-
gáfudaga.
Skil | Greinarnar skal senda í
gegnum vefsíðu Morgunblaðsins.
Smellt á reitinn Senda inn efni á for-
síðu mbl.is og viðeigandi efnisliður
valinn.
Skilafrestur | Ef óskað er eftir
birtingu á útfarardegi verður greinin
að hafa borist eigi síðar en á hádegi
tveimur virkum dögum fyrr (á föstu-
degi ef útför er á mánudegi eða
þriðjudegi).
Minningargreinar