Morgunblaðið - 13.09.2010, Síða 19
Minningar 19
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. SEPTEMBER 2010
sjálfsagða og snjalla leið að velja þá
eftir stjórnmálaskoðunum. Frá Al-
þýðubandalaginu var valinn Guðjón
Friðriksson sagnfræðingur. Guð-
mundur Árni Stefánsson, nú sendi-
herra, var valinn fyrir hönd Alþýðu-
flokksins. Sjálfstæðismenn fengu
eðlilega að velja tvo menn og eftir
töfraformúlu stjórnmálanna varð
niðurstaðan að leita til okkar Þór-
unnar Gestsdóttur. Skemmst er frá
því að segja að þátturinn „Í vikulok-
in“ varð geysivinsæll. Til að missa
ekki af neinu slökktu sumir á ryk-
sugunum en aðrir hækkuðu svo í út-
varpinu að undir tók í stigagöngun-
um. Stjórnendur þáttarins létu það
aldrei draga úr ánægju sinni, að á
þessum árum var aðeins ein rás og
ein útvarpsstöð.
Samstarf og vinátta okkar Þór-
unnar hófst af þessu tilefni. Þarna
var hún komin, fimm barna einstæð
móðir á fertugsaldri, harðdugleg og
frumleg, glaðlynd og brosandi. Út-
varpshlustendum þótti strax vænt
um hláturmildina og léttleikandi
röddina. Pólitík bar aldrei á góma í
samstarfi þessara fjórmenninga sem
raðað var saman með þessum rök-
rétta hætti en góð vinátta myndaðist
sem haldist hefur æ síðan.
Síðar unnum við Þórunn saman á
Vísi og DV, á meðan það var enn
sæmandi blað, og vináttubönd
treystust. Þórunn starfaði víða um
ævina, lengi við blaðamennsku og
ritstjórn og á vettvangi Sjálfstæð-
isflokksins, i borgarstjórn og flokks-
starfi. Hún bætti við sig námi, starf-
aði á Ísafirði og varð meðal annars
sveitarstjóri í Borgarfjarðarsveit
eitt kjörtímabil. Allan tímann gætti
hún að heimilinu og börnunum fimm
með móðurlegum og ljúfum aga. Það
var víða „þörf fyrir Þórunni“ eins og
sagði í ógleymanlegu og kjarkmiklu
slagorði í prófkjörsframboði hennar
í Reykjavík.
Þórunn Gestsdóttir var athafna-
söm og dugmikil kona með jákvæð
viðhorf til lífsins þrátt fyrir ýmsar
erfiðar mótbárur. Hún hafði skap-
ferli og framgöngu sem bætti og
gladdi samferðafólk. Það var gott að
tilheyra þeim hópi.
Blessuð sé minning Þórunnar
Gestsdóttur.
Óskar Magnússon.
Fortíðarþrá í blámóðu rúmlega
hálfrar aldar getur stundum brengl-
ast og blindað sýn á veruleikann.
Engu að síður get ég fullyrt, að
Reykjavík var ekki óskemmtileg
borg þeim vina- og kunningjahópi,
sem við Tóta áttum samleið með á
sjötta áratug síðustu aldar. Rúntur-
inn var stikaður, Skalli í Lækjargötu
var viðkomustaður, Hótel Borg
heimsótt um helgar og fyrsti ham-
borgarastaðurinn, sem var við hlið-
ina á Skalla, vinsæll dvalarstaður.
Bill Haley þandi saxófóninn í Aust-
urbæjarbíói og rokköldin gekk í
garð með laginu „Rock around the
clock“. Ford Fairline var glæsileg-
asti eðalvagninn á götunum. Þetta
voru ár áhyggjuleysis og glaðværð-
ar. Allur heimsins tími var framund-
an, endalaus hamingja og gleði og
tækifærin við hvert fótmál. Síðan
tvístraðist þessi hópur, vinátta
sumra hélt og heldur enn, en örlög
einstaklinganna urðu jafn marg-
breytileg og litrófið. Margir eru
brottgengnir og nú er Tóta farin.
Þórunn Gestsdóttir, sem ávallt var
kölluð Tóta, skar sig nokkuð úr
stúlknahópnum. Svipmót hennar var
sérstakt og óvenjulegt. Hún var kát
að eðlisfari og hlátur hennar smit-
andi. Hún var hreinskiptin og góður
félagi, og tókst á við lífið af miklum
dugnaði og eljusemi, starfaði lengi
utan heimilis og tók að sér marg-
vísleg trúnaðarstörf. Börnum sínum
var hún hin besta móðir og átti ást
þeirra og umhyggju. Hún skilaði
miklu og merkilegu hlutverki með
sóma og sann. Þegar Tóta greindist
með Alzheimer-sjúkdóminn fyrir
nokkrum árum virtist hún taka því
með jafnaðargeði, þótt sá dómur
hljóti að skelfa hverja sál, a.m.k. um
stundarsakir. Á unglingsárum
áhyggjuleysis voru þessi örlög henn-
ar Tótu, og líknandi máttur dauðans,
óhugsandi. En nú ganga nýjar kyn-
slóðir rúntinn og eiga allt lífið fram-
undan. Hringrásin eilífa stöðvast
ekki. Ég kveð Tótu með vísu Theo-
dóru Thoroddsen.
Förlast máttur fót og hönd,
fúinn þáttur bindur önd.
Við heiminn sátt ég held frá strönd,
hafið er blátt við sólarrönd.
Árni Gunnarsson.
Kæra Þórunn.
Þá er komið að leiðarlokum, þú
búin að skipta um heimkynni. Þú bú-
in að lifa fjölbreyttu, áhrifaríku og
fallegu lífi.
Við hittumst fyrst fyrir um það bil
fimmtíu árum. Þú varst þá í Kvenna-
skólanum, ég í Verslunarskólanum.
Leiðir skildi um tíma. Þú fórst til
Danmerkur í módelstörf. Ég hóf
störf hjá Loftleiðum. Ég man alltaf
eftir því þegar þú komst til baka að
tveim árum liðnum. Þá var ég vakt-
stjóri á Reykjavíkurflugvelli, en þá
fór allt flugið um hann. Í þá daga var
móttaka flugvéla talin frekar gam-
aldags. Ég fór upp landganginn til að
opna vélina. Hver var fyrsta mann-
eskja, sem ég augum barði? Það
varst þú, gullfalleg að vanda. Mér
brá og hugsaði, þetta verð ég að end-
urnýja og það strax. Ég hringdi í þig
um kvöldið, bauð í bíó. Síðan liðu
tuttugu yndisleg ár, fimm yndisleg
vel gerð börn. Það hefðu fáar konur,
aðrar en þú, staðið sig jafn vel. Fæða
fimm börn á 10 árum með sæmd. Við
nutum lífsins og barnanna okkar, í
blíðu og stríðu þennan tíma. En að
lokum misstigum við okkur, leiðir
skildi.
Ég vil að leiðarlokum þakka þér
samfylgdina. Víð áttum dásamlegt líf
meðan það varði.
Megi þér, börnunum og barna-
börnum okkar vegna vel um ókom-
inn tíma. Það eiga þau skilið eftir að
eiga slíka móður og ömmu. Sem þú
varst þeim alla tíð. Að svo sögðu,
megi Guð taka vel á móti þér.
Með kærri kveðju frá mér.
Guðmundur Arason.
Kær vinkona hefur kvatt. Ég hef
saknað hennar í tvö ár, eða síðan að
hún hóf sína för um ljóssins heima.
Við kynntumst í félagsstarfi
flokksins okkar, á blómaskeiði hans,
að okkar áliti. Hún formaður Lands-
samtakanna og ég formaður Hvatar.
Þá var margt brallað og fátt okkur
óviðkomandi er kom að skemmtileg-
um uppákomum eða afstöðu til
manna og málefna. Það var gaman
að vinna með Þórunni, áhuginn og
krafturinn og framkvæmdagleðin og
eðlilegt og sjálfsagt að leggja sitt af
mörkum við hvaðeina sem gera
þurfti.
Af ferðalögum stendur kvenna-
ráðstefnan í Osló upp úr minninga-
skjóðunni, myndaalbúmið bregður
upp minningum um góðar vinkonur
og góða vini, þar sem gleði og gáski
krydduðu tilveruna og tilefni til
mannfagnaða voru mörg og merki-
leg.
Þórunn var góð vinkona, alltaf ná-
læg, þótt fjöll og firðir skildu að,
jafnvel höf og álfur. Ég horfi til baka
og þakka fyrir heimsóknirnar,
göngutúrana og ökuferðirnar og
könnunarleiðangrana, þegar sam-
ræður og samvera gefa augnablikinu
gullið skin í minningunni.
Fjölskyldu Þórunnar votta ég
samúð mína.
María E. Ingvadóttir.
Mín kynni af Þórunni hófust þegar
við fjölskyldan fluttum vestur á Ísa-
fjörð haustið 1996. Þá var hún í starfi
hjá Ísafjarðarbæ. Það hafði vakið at-
hygli mína nokkrum misserum áður
þegar hún réð sig vestur enda var
Þórunn oft áberandi í þjóðlífinu sem
blaðamaður og þátttakandi í stjórn-
málum. Mér fannst það merki um
framsýni hennar sjálfrar og þeirra
sem réðu hana á þeim tíma að fara
vestur og takast á við nýja hluti þar.
Hún lét að sér kveða í starfi, kom
með hugmyndir og framkvæmdi
þær, stundum í mótbyr en þraut-
seigja einkenndi hana, hún hafði oft
farið móti vindi og yfirleitt komist
þangað sem hún ætlaði sér. Sumu af
því sem við sjáum fjallað um í dag
átti hún stóran þátt í. Má þar nefna
komu skemmtiferðaskipa til Ísa-
fjarðar sem fjölgað hefur ár frá ári.
Þar vann hún ásamt fleirum að því
að leggja grunninn sem við byggjum
á í dag. Hún lagði einnig fram fjölda
hugmynda er vörðuðu ferðaþjón-
ustuna enda reynd á því sviði sem og
á sviði fjölmiðlunar. Frumkvöðla-
hugsun Þórunnar og víðtæk reynsla
voru til góðs fyrir samfélagið sem
hún kaus til búsetu í nokkur ár. Síð-
ustu mánuðina sem Þórunn bjó á
Ísafirði unnum við töluvert saman.
Þórunn hætti hjá Ísafjarðarbæ og
kom til okkar sem þá héldum um
þræði Atvinnuþróunarfélags Vest-
fjarða og skipulagði stóra atvinnu-
vegasýningu á Ísafirði sem heppn-
aðist afar vel enda mikill metnaður
hjá Þórunni að vinna allt vel sem hún
kom að.
Mér er jafnframt minnisstætt
verkefni sem hún vann í tengslum
við nám sem hún stundaði. Þar
tengdi hún saman námið, verkefni
fyrir Atvinnuþróunarfélagið og að-
stæður og sérstöðu Vestfjarða.
Verkefnið sem hún skilaði fjallaði
um ræktun bláberja á ökrum fyrir
vestan í því skyni að auka fram-
leiðslu svæðisins, nýta sérstöðuna og
skapa ný verðmæti og störf. Hver
veit nema það verkefni verði ein-
hvern tíma að veruleika.
Eftir störf hennar vestra tók Þór-
unn að sér starf sveitarstjóra Borg-
arfjarðarsveitar og sinnti því í fjögur
ár og lagði sig alla fram við það eins
og annað sem hún tók sér fyrir hend-
ur. Ég man að hún velti mikið fjall-
skilum fyrir sér einhverju sinni er
við hittumst en fjallskil voru nýr
málaflokkur fyrir henni þótt hún
þekkti sveitarstjórnarmálin og
stjórnmálin vel. Eftir Borgarfjörð-
inn tóku við önnur störf í borginni
sem hún hafði yfirgefið í nokkur ár,
hugsanlega fleiri en hún hafði sjálf
átt von á í upphafi.
Fjarlægðin á milli okkar eftir
flutning Þórunnar að vestan skar
ekki á vinatengsl sem höfðu orðið til
við kynni og samstarf á Ísafirði. Þeg-
ar óvæginn sjúkdómur Þórunnar tók
völdin varð hins vegar til fjarlægð
sem ekkert varð ráðið við. Ég þakka
fyrir kynni mín af Þórunni Gests-
dóttur, hún gaf mikið af sér í við-
kynningu og bætti umhverfi sitt.
Börnum hennar og öðrum aðstand-
endum sendi ég og fjölskylda mín
innilegar samúðarkveðjur.
Halldór Halldórsson Ísafirði.
Í dag kveðjum við Lionsfélagar á
Íslandi Þórunni Gestsdóttur fyrrver-
andi fjölumdæmisstjóra hreyfingar-
innar. Einstök manneskja, glæsilegt
prúðmenni og mikill félagi. Við
minnumst hennar í djúpri þökk og
virðingu. Við erum reynslunni ríkari
vegna þeirra kynna og samvinnu við
hana.
Það er erfitt að kveðja góðan fé-
laga með fáum orðum. Við áttum því
láni að fagna að kynnast Þórunni vel
og starfa með henni í Lionshreyfing-
unni. Við vorum saman í forystu
hreyfingarinnar í mörg ár. Hún var
glæsilegur fulltrúi Lions hérlendis
og erlendis og sinnti mörgum trún-
aðarstörfum innan hreyfingarinnar.
Hún vann þar gott og fórnfúst starf.
Hún var heiðarlegur samstarfsmað-
ur og félagi, til hennar var gott að
leita. Eiginleikum Þórunnar má lýsa
í orðunum vandvirkni og fáguð fram-
koma, sem allstaðar nýtur sín vel,
ekki síst í okkar hreyfingu, Lions-
hreyfingunni.
Margs er að minnast: fundirnir
hérlendis, ferðirnar erlendis, mót-
taka erlendra gesta og árlegar heim-
sóknir alþjóðaforseta Lionshreyf-
ingarinnar. Þegar hún var
sveitarstjóri heimsóttum við hana í
Borgarfjörðinn. Veður var gott og
alþjóðaforseti Lions, Jim Ervin,
veitti henni æðstu orðu hreyfingar-
innar fyrir einstök störf sem ritstjóri
Lionsblaðsins og einstakt starf inn-
an hreyfingarinnar. Móttökurnar
hjá henni urðu honum ógleymanleg-
ar og frásagnir Þórunnar um störf
sín og Borgarfjörðinn geymir hann í
minningum sínum. Ég flyt börnum
hennar samúðarkveðjur frá honum.
Þekkt var Þórunn fyrir góð störf
sem ritstjóri Lionsblaðsins á Íslandi
og þar kom sér vel reynsla hennar
við framsetningu á blaðinu. Hún bjó
yfir næmum skilningi á frásögn og
framsetningu og kenndi okkur að
setningar yrðu að vera gagnorðar og
hnitmiðaðar. Hún kunni vel að koma
frásagnarlistinni til skila. Hún bjó
yfir næmum skilningi á íslensku
máli.
Síðustu árin voru vinkonu okkar
erfið en hún hélt reisn sinni og
myndugleika og ræddi sjúkdóm sinn
af einlægni. Hún sinnti ritstjóra-
starfi Lionsblaðsins og fjölumdæm-
isstjórastarfi af dugnaði og festu.
Þar naut hún styrks frá fjölskyldu
sinni og oft minntist hún barna sinna
og aðstoðar þeirra.
Við Lionsfélagar á Íslandi kveðj-
um Þórunni, vin okkar, með miklum
söknuði. Lionshreyfingin á Íslandi
hefur misst einn sinn tryggasta og
virtasta félaga. Missir fjölskyldunn-
ar er þó mestur. Við viljum votta
börnum hennar og fjölskyldunni
þeirra okkar dýpstu samúð.
Minning Þórunnar mun lifa með
okkur um alla tíð.
Fyrir hönd Lionshreyfingarinnar,
Jón Bjarni Þorsteinsson,
fyrrverandi alþjóða-
stjórnarmaður,
Kristinn Hannesson,
fjölumdæmisstjóri.
Kveðja frá Lionsklúbbnum Eir
Í dag kveðjum við kæra vinkonu
og félaga, Þórunni Gestsdóttur,
glæsilegan fulltrúa innan Lions sem
utan. Lionessuklúbburinn Eir var
stofnaður á vordögum 1984 og var
Þórunn fyrsti formaður hans. Það
var okkur ómetanlegt að stíga fyrstu
skrefin innan hreyfingarinnar undir
handleiðslu hennar. Hún var ætíð
svo jákvæð, hvetjandi og ráðagóð.
Þórunn barðist af miklun krafti og
metnaði fyrir því að Lionessur
fengju sömu réttindi og Lionsmenn
innan hreyfingarinnar og náðist það
markmið á alþjóðaþingi Lions árið
1987.
Lionsklúbburinn Eir, sem stofn-
aður var 12. janúar 1988, er fyrsti
kvennaklúbburinn á Íslandi og erum
við Eirarkonur stoltar af því og
þakklátar Þórunni fyrir hennar
störf. Gegndi hún ótal embættum
fyrir Lionshreyfinguna, ávallt með
einstökum sóma. Hún var okkur góð
fyrirmynd í hvívetna og lærðum við
mikið af henni. Öflugt starf hefur
ætíð verið í okkar klúbbi og var alltaf
gott að hafa Þórunni með, jafnt í
gleði og sorg. Hvar sem hún bjó tók
hún á móti okkur með sínu hlýja og
milda viðmóti og gefandi nærveru.
Viljum við minnast hennar með þökk
fyrir allt og allt. Við sendum fjöl-
skyldu Þórunnar okkar innilegustu
samúðarkveðjur.
Steinunn, Guðríður og Margrét.
Kveðja frá Landssambandi
sjálfstæðiskvenna.
Látin er Þórunn Gestsdóttir, fyrr-
verandi formaður Landssambands
sjálfstæðiskvenna. Þórunn var for-
maður LS árin 1985-1989. Hún átti
einnig sæti í miðstjórn Sjálfstæðis-
flokksins, var borgarfulltrúi og
gegndi fleiri trúnaðarstörfum fyrir
Sjálfstæðisflokkinn.
Þórunn var glæsileg og vel gefin
kona og hún naut virðingar í hópi
sjálfstæðiskvenna. Hún var skör-
ungur og átti auðvelt með að hrífa
fólk til samstarfs. Landssambands-
konum er efst í huga þakklæti til
Þórunnar fyrir störf hennar í þágu
Sjálfstæðisflokksins.
Ástvinum hennar sendum við
kærar samúðarkveðjur. Blessuð sé
minningar Þórunnar Gestsdóttur.
Drífa Hjartardóttir,
formaður Landssambands
sjálfstæðiskvenna.
✝
Elsku drengurinn okkar,
GUÐMUNDUR ÞÓR SIGURÐSSON,
Smárarima 75,
lést mánudaginn 6. september.
Jarðarförin verður gerð frá Grafarvogskirkju
þriðjudaginn 14. september kl. 14.00.
Halldóra Kristín Halldórsdóttir,Sigurður Brynjar Guðmundsson,
Jón Valdimar Sigurðsson, Þorbjörg Birgisdóttir,
Halldór Brynjar Sigurðsson, Thelma Björk Bogadóttir,
Kristinn Freyr Sigurðsson, Kristín Eva Ólafsdóttir,
Unnur Jónsdóttir, Halldór H. R. Friðjónsson,
Arnar Freyr, Alexander Þór, Kristín Björk
og frændsystkini.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
SIGURÐUR ÓLAFSSON
slökkviliðsmaður,
Skipalóni 26,
Hafnarfirði,
lést á heimili sínu laugardaginn 4. september.
Jarðarförin fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði
þriðjudaginn 14. september kl. 13.00.
Ingunn Elísabet Viktorsdóttir,
Viktor Rúnar Sigurðsson, Ásthildur Elín Guðmundsdóttir,
Kristín Sigurðardóttir, Sæmundur Bjarnason,
Guðrún Lísa Sigurðardóttir, Viðar Utley,
barnabörn og barnabarnabarn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma.
GUÐRÚN MAGNÚSDÓTTIR
frá Hálsum, Skorradal,
lést 8 september. Útförin fer fram í kyrrþey að ósk
hinnar látnu.
Börn,
tengdabörn, og fjölskyldur.