Morgunblaðið - 13.09.2010, Síða 21
Minningar 21
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. SEPTEMBER 2010
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Antík
Gisting
AKUREYRI
Höfum til leigu 50, 85 og 140 m²
sumarhús 5 km frá Akureyri, öll
með heitum potti og flottu útsýni yfir
Akureyri. Bjóðum einnig upp á íbúðir
á Akureyri. www.orlofshus.is,
Leó, s: 897- 5300.
Geymslur
Vetrargeymslur:
,,Geymdu gullin þín í Gónhól”.
Pöntun í s. 771 1936 - gonholl.is
Sumarhús
Falleg og vönduð sumarhús frá
Stoðverk ehf. í Ölfusi
Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup-
enda.
Símar: 660 8732, 660 8730,
892 8661, 483 5009.
stodverk@simnet.is
Málverk
ÚTSALA
Smellurammar
10x15 kr. 100,- 20x25 kr. 250,-
og 40x50 kr. 800
Myndir frá kr. 2500,-
Málverk frá kr. 5000,-
Karton m. glugga
kr. 200 - 600.-
Innrömmun
20% afsláttur
Sérskorinn karton 20% afsláttur
Tré- og álrammar
50-60% afsláttur
Álrammar 21x30 kr. 1200,-
og 59x67 kr. 1800.-
Íslensk grafík
Tolli - Bragi - Jón Reykdal -
Þórður Hall o.fl.
20 - 40% afsláttur
Opið virka daga kl. 9-18
Laugardaga kl. 11 -15
Síðumúla 34, sími 533 3331
Til sölu
Ódýr blekhylki og tónerar í
HP, Dell, Brother, Canon og Epson.
Send samdægurs beint heim að
dyrum eða í vinnuna. S. 517 0150.
Sjá nánar á blekhylki.is
Óska eftir
KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR
Kaupum gull til að smíða úr.
Spörum gjaldeyri. Heiðarleg
viðskipti. Aðeins í verslun okkar
Laugavegi 61. Jón og Óskar,
jonogoskar.is - s. 552-4910.
KAUPI GULL !
Ég, Magnús Steinþórsson gull-
smíðameistari, kaupi gull, gull-
peninga og gullskartgripi. Kaupi
allt gull, nýlegt, gamalt og illa
farið. Leitið til fagmanns og fáið
góð ráð. Upp. á demantar.is, í
síma 699 8000 eða komið í
Pósthússtræti 13 (við Austurvöll).
Verið velkomin.
Byggingar
Húsasmíðameistari getur bætt
við sig verkefnum.
Get tekið að mér byggingarstjórn á
byggingum. Get komið með allt
timbur til sökkla og uppsláttar. Vanur
sumarbústaðasmíði.
Upplýsingar í síma 897 1961.
Ýmislegt
...þegar þú vilt þægindi
Kr. 9.990,-
Klossar. Leður með hælbandi
Litur - Hvítt. Stærðir 35- 42.
Bonito ehf. Praxis
Faxafeni 10, 108 Reykjavík
Sími: 568 2878
Opnunartimi: mánud- föstudag
kl. 11.00 - 17.00
www.praxis.is
TILBOÐ
Vandaðir götuskór úr mjúku leðri.
Nokkrar stakar stærðir.
Verð 3.500,-
Sími: 551 2070,
opið: mán.- fös. 10 - 18
laugardaga 10 - 14.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.mistyskor.is
Erum einnig á Facebook.
Nýkomin alveg geggjuð lína
Teg. BARBARA - push up í BCD
skálum á kr. 7.680,-
Teg. BARBARA - fyrir þær stærri í
D,DD,E,F,FF,G skálum á kr. 7.680,-
Laugavegi 178, sími 551 3366.
Opið mán.-fös. 10-18.
Laugardaga 10-14.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.misty.is
- vertu vinur
Þægilegir inniskór úr leðri í
úrvali, skinnfóðraðir
Teg 2178
Stærðir: 36 - 42 Með „ stretch“ efni
í hliðum. Verð: 10.900.-
Teg: 3716
Stærðir: 36 - 4. Með „stertch“ efni í
hliðum. Verð: 10.900.-
Teg: 1410
Stærðir: 36 - 42. Litir: beige, svart,
grænt. Verð: 8.950.-
Sími: 551 2070,
opið: mán.- fös. 10 - 18.
laugardaga 10 - 14
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.mistyskor.is
Erum einnig á Facebook.
Veiði
HAGLASKOT - Haglaskot fyrir
leirdúfur, sjófugl, rjúpu, önd og gæs.
Topp gæði - botn verð.
Sportvörugerðin sími 660-8383.
www.sportveidi.is
Bílar
Nýr Renault Trafic L1H1
2,0 L turbo disel. Skilrúm með
glugga. Plata í botni. Eldgamalt verð.
Okkar verð 3.376 þús með vsk.
( 2.690 þ. Án vsk. )
www.sparibill.is
Fiskislóð 16 - sími 577 3344.
Bílaþjónusta
!
"
Ökukennsla
Glæsileg kennslubifreið
Subaru Impreza AERO 2008, 4WD.
Akstursmat og endurtökupróf.
Gylfi Guðjónsson,
sími 6960042,
bilaskoli.is
Bilaskoli.is
Bókleg námskeið - ökukennsla -
akstursmat - kennsla fatlaðra
Sverrir Björnsson
Volkswagen Passat '08.
8924449/5572940.
Ævar Friðriksson
Toyota Avensis '06.
8637493/5572493.
Gylfi Guðjónsson
Subaru Impreza '08.
6960042/5666442.
Snorri Bjarnason
BMW 116i.
8921451/5574975. Visa/Euro.
Fellihýsi
Ferðavagnageymsla Borgarfirði
Geymum tjaldvagna, fellihýsi,
hjólhýsi og fleira í upphituðu rými.
Gott verð. S: 899 7012.
E-mail solbakki.311@gmail.com.
Húsviðhald
Þak og
utanhússklæðningar
og allt húsaviðhald
Ragnar V Sigurðsson ehf
Sími 892 8647.
Elsku besta amma okkar. Eitt-
hvað er hann afi ánægður núna að
þú sért komin til hans. Eftir sitj-
um við sorgmædd með allar
minningarnar um þig og afa.
Þið voruð yndisleg og alltaf svo
stolt af okkur. Það voru forrétt-
indi fyrir okkur að eiga ykkur að.
Allar stundirnar þegar þið tókuð
á móti okkur með bros á vör í
Borgarhrauninu, þar var sko gott
að koma. Þegar við systur eign-
uðumst drengina okkar leiddist
ykkur ekki að fá okkur í heim-
sókn. Þið afi voruð mjög rík af
barna- og barnabarnabörnum.
Þorgerður Guðný
Guðmundsdóttir
✝ Þorgerður GuðnýGuðmundsdóttir
fæddist í
Vetleifsholtsparti,
Ásahreppi, Rang-
árvallasýslu, hinn 9.
júlí 1926. Hún and-
aðist á hjúkr-
unarheimilinu Víði-
hlíð í Grindavík
laugardaginn 4. sept-
ember 2010.
Útför Þorgerðar
fór fram frá Grinda-
víkurkirkju 10. sept-
ember 2010.
Þær voru ófáar sög-
urnar sem þú sagðir
okkur í gegnum árin
úr sveitinni þinni og
víðar. Þú kunnir sko
að segja vel frá enda
fróð um landið og
þína heimahaga. Þú
varst alltaf svo dug-
leg og snyrtileg og
það sást vel á heim-
ili ykkar afa, það var
alltaf svo fallegt hjá
ykkur. Ófá handtök-
in varstu búin að
vinna í garðinum og
við að búa ykkur fallegt heimili
enda varstu mikill kvenskörung-
ur. Ekki leiddist þér heldur að
klæða þig upp á, þú varst algjör
pæja. Það var erfitt að horfa upp
á þig veikjast því þá gast þú ekki
verið jafn sjálfstæð og þú varst
alltaf. Elsku besta amma okkar,
vonandi líður þér vel þar sem þú
ert núna.
Þín verður sárt saknað og það
verður mjög skrítið að geta ekki
droppað inn til þín þegar okkur
hentar.
Minning um góða ömmu lifir.
Erna Rós, Guðný Rut og
Gunnar Örn Bragabörn.
Bridsdeild
Breiðfirðingafélagsins
Nú fer vetrarstarfið hjá okkur í
Bridsdeild Breiðfirðingafélagsins
að hefjast. Við byrjum að spila
sunnudaginn nítjánda september
kl. 19. Spilagjald er 600 kr. og er
kaffi innifalið í spilagjaldi. Við
byrjum á að spila eins kvölds tví-
menning. Stjórnandi eins og und-
anfarin ár verður Ólafur Lárus-
son
Spilað er í Breiðfirðingabúð,
Faxafeni 14, á sunnudögum kl.
19.
Frá eldri borgurum
í Hafnarfirði
Þriðjudaginn 7. september var
spilað á 14 borðum.
Úrslit urðu þessi í N/S
Ragnar Björnss. – Pétur Antonsson 382
Oliver Kristófess. – Magnús Oddsson 376
Ólafur Ingvarss. –
Sigurb. Elentínuss. 369
Jóhann Benediktss. –
Erla Sigurjónsd. 343
A/V
Björn Árnason – Örn Einarsson 404
Tómas Sigurjss.–
Jóhannes Guðmannss. 380
Ágúst Stefánsson – Anton Jónsson 362
Bragi V. Björnsson –
Guðrún Gestsd. 352
Bridsfélag
Reykjavíkur
Fyrsta spilakvöld í haust hjá
Bridsfélagi Reykjavíkur verður
þriðjudaginn 14. september. Spil-
aður verður Monrad-tvímenning-
ur en 21. september hefst þriggja
kvölda Butler-tvímenningur. Dag-
skrána má sjá á bridge.is/br.
Að vanda er spilað í Síðumúla
37 og hefst spilamennska kl. 19.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson| norir@mbl.is
Björn Ingvarsson
✝ Björn Ingvarsson,fyrrverandi yf-
irborgardómari í
Reykjavík og lög-
reglustjóri á Kefla-
víkurflugvelli, fædd-
ist í Reykjavík 20. maí
1917. Hann lést á
Hrafnistu í Hafn-
arfirði 28. ágúst 2010.
Útför Björns fór
fram frá Hafnarfjarð-
arkirkju 7. september
2010.
Nú kveðjum við
elsku besta afa okkar.
Þegar móðir okkar hóf
sambúð með Birni
Björnssyni vorum við
systkinin, tveggja og
sex ára, svo lánsöm að
eignast ömmu og afa á
Sunnuvegi. Þau tóku
okkur opnum örmum
og við fundum aldrei
annað en ást og um-
hyggju frá þeim hjón-
um, Margréti og Birni.
Minningarnar um
allar góðu stundirnar
sem við áttum með afa á Sunnó í út-
reiðartúrum, í Kollstaðagerði við
veiðar og spjall eru margar. Enda-
laus þolinmæði og hjálpsemi afa er
okkur systkinum ógleymanleg, hvort
heldur var að aðstoða okkur við
heimalærdóm eða kenna okkur að
umgangast hesta. Amma og afi voru
ótrúlega samrýnd hjón og okkur til
eftirbreytni.
Síðasta ár var afa erfitt, sökum
fráfalls ömmu og Björns, en hann
sýndi æðruleysi og styrk í því mót-
læti eins og honum einum var lagið.
Afi er farinn, en eftir sitja minningar
um góðan mann sem hafði mikil og
góð áhrif á líf okkar.
Guð geymi þig,
Þín barnabörn,
Halldór og Hildigunnur.