Morgunblaðið - 13.09.2010, Qupperneq 22
22 Dagbók
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. SEPTEMBER 2010
Sudoku
Frumstig
7 1 3
5 1 7
4 2
1 4 8
8
3 2 5
9 5 2 8
8 1
4 3 1
1
4 2
9 3
7 2 8 4
6 8 9 4 1 7
9 6 3
6 2 3
4 1 3 8 9
1
7 4
3 2
9 6
5 7 3
1
8 9 6 4
6 2 7
5 9
6 8 5
7 1 9 2 3 8 5 4 6
6 2 3 5 1 4 7 8 9
5 8 4 6 7 9 1 2 3
4 5 8 1 9 3 6 7 2
9 7 6 8 2 5 3 1 4
2 3 1 7 4 6 9 5 8
8 9 2 3 5 7 4 6 1
3 6 5 4 8 1 2 9 7
1 4 7 9 6 2 8 3 5
7 5 3 1 9 6 8 2 4
9 1 4 2 3 8 5 6 7
2 6 8 4 5 7 9 3 1
3 9 6 5 7 1 4 8 2
8 2 1 9 6 4 3 7 5
5 4 7 3 8 2 1 9 6
1 3 2 6 4 9 7 5 8
4 8 5 7 2 3 6 1 9
6 7 9 8 1 5 2 4 3
4 5 1 6 8 3 7 2 9
3 9 2 7 1 4 6 5 8
8 6 7 5 9 2 3 4 1
6 3 5 8 7 9 2 1 4
2 4 8 3 5 1 9 6 7
1 7 9 4 2 6 5 8 3
9 1 6 2 3 8 4 7 5
5 8 4 9 6 7 1 3 2
7 2 3 1 4 5 8 9 6
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er mánudagur 13. september,
256. dagur ársins 2010
En hjálparinn, andinn heilagi, sem
faðirinn mun senda í mínu nafni, mun
kenna yður allt og minna yður á allt
það, sem ég hef sagt yður. (Jóh. 14, 25.)
Stundum getur verið erfitt aðhalda gleði sinni, einkum á tím-
um þegar klipið er úr veskinu úr öll-
um áttum og skammdegið nálgast.
Víkverji vill ekki draga úr þessum
vandamálum, en á sama tíma er mik-
ilvægt að reyna að láta þau ekki kaf-
færa mann. Það er auðveldara að
takast á við vandamálin þegar mað-
ur er sæmilega bjartur í hugsun en
þegar maður lætur bugast undan
andans þyngslum.
Í þessu sambandi er gott að hafa í
huga að mannshugurinn og andleg
líðan okkar mótast af umhverfinu á
hverri stundu. Ef maður lætur und-
an freistingunni um að liggja of lengi
í bælinu er hætta á að það auki á
þunglyndið. Sama á við ef maður
frestar því að taka til heima hjá sér,
þrífa salernið og skúra. Þetta eru
allt leiðinleg verkefni, en manni líður
svo miklu betur þegar þeim er lokið
að nánast mætti líkja hreingern-
ingum við geðhjálp.
x x x
Aðrar undarlegri, en engu síðuráhrifaríkar aðferðir eru mögu-
legar. Hugur og líkami eru nátengd
og getur líkaminn haft áhrif á það
hvernig okkur líður. Það er ekki að
ástæðulausu að allir sálfræðingar og
geðlæknar leggja hart að sínum
skjólstæðingum að hreyfa sig reglu-
lega. En það er líka hægt að plata
hugann með einfaldari hætti. Rann-
sóknir hafa sýnt að með því að brosa
– þótt maður hafi enga sérstaka
ástæðu til þess – getur maður létt
eigin lund.
Hugurinn tekur nefnilega merki-
lega mikið mark á líkamanum varð-
andi það hvernig honum á að líða.
Líkamleg streitueinkenni geta plat-
að hugann til þess að verða reiður og
pirraður. Þegar maður finnur fyrir
því að maður er að verða pirraður án
þess að raunveruleg ástæða sé fyrir
pirringnum getur verið gott að doka
við og anda djúpt að sér. Það eitt að
makinn tyggur með of miklum lát-
um, svo dæmi sé tekið, er ekki
ástæða til þess að hefja rifrildi yfir
matarborðinu. Líkaminn getur verið
mikill vitleysingur og það er engin
ástæða til að láta hann ráða förinni.
víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 forhengi, 4 aftur-
elding, 7 púkans, 8 dægur, 9
forskeyti, 11 svelgurinn, 13
vaxi, 14 eykst, 15 sterk, 17
reykir, 20 agnúi, 22 aula, 23
dínamó, 24 aldna, 25 lestr-
armerki.
Lóðrétt | 1 skýrði frá, 2
áana, 3 stynja, 4 slór, 5
megnar, 6 næstum, 10
starfsvilji, 12 tek, 13 tímg-
unarfruma, 15 slæpt af
drykkju, 16 dýrahljóð, 18
legubekkjum, 19 munn-
tóbak, 20 álka, 21 öngul.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 sædjöfull, 8 folar, 9 lyfta, 10 tía, 11 sárna, 13 rýran, 15
stáss, 18 jagar, 21 lóa, 22 knapa, 23 tinna, 24 miskunnar.
Lóðrétt: 2 ætlar, 3 jurta, 4 fúlar, 5 lofar, 6 ofns, 7 bann, 12 nes,
14 ýsa, 15 sekk, 16 álagi, 17 slark, 18 jatan, 19 gunga, 20 róar.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. d4 d5 2. c4 c6 3. Rf3 Rf6 4. g3 e6 5.
Dc2 dxc4 6. Dxc4 b5 7. Dc2 Bb7 8. Bg2
Rbd7 9. 0-0 c5 10. Hd1 Hc8 11. Dd3 a6
12. Rh4 Db6 13. Be3 Rd5 14. Rc3 Rxe3
15. fxe3 Be7 16. Bxb7 Dxb7 17. Rf3 0-0
18. Hac1 Rf6 19. Rg5 Hfd8 20. Rce4
Rxe4 21. Rxe4 e5 22. d5 c4 23. Dc2
Hxd5 24. Hxd5 Dxd5 25. Hd1 De6 26.
Rc3 f5 27. e4 f4 28. gxf4 exf4 29. Rd5
Bc5+ 30. Kg2 Dg4+ 31. Kh1
Staðan kom upp í AM-flokki Fyrstu
laugardagsmótaraðar sem lauk fyrir
skömmu í Búdapest í Ungverjalandi.
Daði Ómarsson (2.150) hafði svart
gegn Tuan Tran (2.244) frá Víetnam.
31. … f3! 32. e3 f2! og hvítur gafst upp.
Svartur á leik
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Sofandi sauður.
Norður
♠ÁK10
♥D987
♦K1054
♣ÁK
Vestur Austur
♠652 ♠D9873
♥5 ♥4
♦G76 ♦ÁD82
♣G98642 ♣D103
Suður
♠G4
♥ÁKG10632
♦93
♣75
Suður spilar 6♥.
Á austur opnun? Hann taldi svo vera
og hóf leikinn með 1♠. Suður stökk í
4♥ og norður í 6♥. Hröð afgreiðsla og
spaði út frá vestri.
„Kærar þakkir fyrir opnunina,“
hugsar sagnhafi, sem veit fyrir víst að
austur á bæði ♠D og ♦Á – lykilspilin,
sem allt snýst um. Hann drepur á ♠Á
og hendir gosanum undir heima, tekur
svo trompin í botn og ♣Á-K. Í enda-
stöðunni á blindur þrjú spil: ♠K10 og
♦K. Austur verður svo sendur inn á
♦Á til að spila upp í spaðagaffalinn.
Gat austur bjargað málunum með
útspilsdobli á slemmunni? Það kann að
vera, en ekki þarf alltaf dobl til að
vekja makker. Vestur mátti vita að
norður væri viðbúinn spaðaútspili og
hefði því átt að reyna fyrir sér annars
staðar.
13. september 1894
Verslunareigendur í Reykja-
vík gáfu starfsmönnum sínum
frí á rúmhelgum degi „til upp-
bótar fyrir allt það strit og eril
er þeir hafa í kauptíðinni og
oftar,“ eins og það var orðað í
Ísafold. Hátíðahöld voru í Ár-
túni en þar komu á þriðja
hundrað manns saman. Frí-
dagur verslunarmanna var
síðar fluttur fram í byrjun
ágúst.
13. september 1952
Fyrsta einkasýning Gerðar
Helgadóttur myndhöggvara
hér á landi var opnuð í Lista-
mannaskálanum í Reykjavík.
„Áræði og kjarkur einkenna
verk hennar,“ sagði í umsögn í
Morgunblaðinu. „Það er mik-
ils að vænta af slíkri konu sem
Gerði.“
13. september 1981
Borgarfjarðarbrúin var vígð,
en umferð um hana hófst árið
áður. Með brúnni styttist leið-
in milli Akraness og Borg-
arness úr 69 kílómetrum í 38
kílómetra. Framkvæmdir
stóðu í sjö ár. Brúin er 520
metrar, aðeins Skeiðarárbrúin
er lengri.
13. september 2006
Magni Ásgeirsson varð í
fjórða sæti í keppninni Rock-
star Supernova í Los Angeles.
13. september 2007
Allar hundrað myndirnar á
málverkasýningu Eggerts
Péturssonar í i8 seldust á
fyrsta degi. „Einsdæmi,“ sagði
Fréttablaðið.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson
Þetta gerðist …
Allt er þegar þrennt er, segir máltækið, og það á
sannarlega við í dag þegar Ingibjörg Ósk Birg-
isdóttir verður fertug. Á laugardaginn varð móðir
móðir hennar, Kristín S. Kristjánsdóttir, fyrrver-
andi sýningastjóri Íslensku óperunnar, sextug, og
3. september varð amma hennar, Erla Hafliða-
dóttir gistihúseigandi, áttræð. Leitun er að ann-
arri eins stórafmælaröð og þessari.
Ingibjörg ætlar sér reyndar ekki að halda sér-
staklega upp á afmælið. Henni finnst skemmti-
legra að halda upp á afmæli barnanna. Þau eru
fimm og því er það ærinn starfi.
Ekki er laust við að Ingibjörgu, eins og mörgum öðrum, þyki dálítið
erfitt að horfast í augu við fertugsafmælið. Sé eitthvert mið tekið af
ömmu hennar þarf Ingibjörg þó ekki að hafa neinar áhyggjur af efri
árunum. Þegar Erla amma hennar varð áttræð í byrjun mánaðarins
var blásið til mikillar veislu í félagsheimilinu á Patreksfirði þar sem
hún býr. Alls komu um 170 manns til veislunnar. Um kvöldið var svo
mikið húllumhæ á Gistihúsi Erlu. Spilað var á gítara og sungið fram
undir morgun. „Hún er frábær, í einu orði sagt, bæði hvað varðar
heilsu- og lundarfar,“ segir Ingibjörg um ömmu sína. runarp@mbl.is
Ingibjörg Ósk Birgisdóttir er fertug
Þrjú stórafmæli í september
Söfnun
Þær Jenný Rebekka Jónsdóttir og
Vigdís Helga Einarsdóttir héldu
tombólu í Norðlingaholti og söfn-
uðu 2.500 kr. sem þær gáfu Rauða
krossinum.
Flóðogfjara
13. september Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur
Reykjavík 3.16 0,4 9.35 3,9 15.49 0,7 21.58 3,5 6.46 20.03
Ísafjörður 5.22 0,3 11.34 2,1 17.59 0,4 23.49 1,9 6.47 20.11
Siglufjörður 1.46 1,3 7.42 0,2 14.02 1,3 20.06 0,2 6.30 19.54
Djúpivogur 0.16 0,4 6.32 2,3 12.58 0,5 18.49 1,9 6.14 19.33
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Þú gætir selt slátraranum slátur, því í
dag ertu útsmogin/n. Taktu það með í reikn-
inginn að þú ert langþreytt/ur og hættir til
fljótfærni þess vegna.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Á næstu vikum fer best á því að þú
sinnir ókláruðum málum. Vertu umburð-
arlyndari.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Lífið leikur við þig þessa dagana og
rómantíkin blómstrar. Leggðu þitt af mörkum
svo öllum geti liðið jafnvel og þér.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Það er í svo mörg horn að líta að þér
finnst verkefnaskráin yfirþyrmandi. Samstarf
byggist á málamiðlunum svo vertu undir þær
búin/n.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Vegna afstöðu stjarna eru miklar líkur á
að þú munir njóta góðs af auði annarra á
næstunni. Nýleg samskipti vekja forvitni þína
og þú spáir í hvað muni gerast næst.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Á næstu vikum er upplagt að setja sér
takmark og velta fyrir sér leiðum til þess að
ná því. Farðu samt að öllu með gát því ekkert
liggur á.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Það er eitt og annað heima við, sem þú
hefur látið sitja á hakanum. Fáðu góðan vin til
að slást í för með þér.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Láttu það ekki angra þig þótt
ekki séu allir á sömu bylgjulengd og þú. Þú
ert mælskan uppmáluð í dag.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Það er komið nóg af svartsýni.
Sannur vinir bendir þér á hversu einstakur/
einstök þú ert í raun. Langþráð frí er fram-
undan.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Þótt vinir þínir vilji ekki um-
svifalaust fallast á röksemdir þínar er engin
ástæða fyrir þig til að reiðast því.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Dagurinn virðist kannski tilbreyt-
ingarlaus, en kvöldið bætir það svo sann-
arlega upp. Fólk talar ekki af heilindum og
það skapar óvissu.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Fylgdu gullnu reglunni og öllum kem-
ur vel saman. Nú er komið að því. Stattu upp
og segðu hvers vegna fjölskyldan er betur
komin með þig innanborðs.
Stjörnuspá
Nýbakaðir
foreldrar?
Sendið mynd af
barninu til birtingar
í Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda
mynd af barninu með upplýsingum
um fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig
má senda tölvupóst á barn@mbl.is